Dagblaðið - 04.07.1979, Side 7
DAQBLADIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ1979.
7
Carterávarparþjóð sína íkvöld:
Bandaríkiamenn búast við slæm-
um tíðindum frá forsetanum
Bandaríkjamenn halda 4. júlí
hátíðlegan í dag, vitandi vits um að
forsetinn þeirra mun væntanlega
bera pii«i slæmar fréttir í orkumál-
unum er hánn ávarpar þá í kvöld (á
miðnætd að islenzkum tíma). Carter
og menn hans hafa látið það berlega í
ljósi að Bandaríkjamenn verði að
færa einhverjar fórnir í átökunum
við orkukreppuna.
Stjórnin hefur enn ekki upplýst
það í smáatriðum, hvaða boðskap
Carter muni færa þjóðinni í sjón-
varpsræðu sinni í kvöld. — Hann
hefur undanfarna tvo daga setið á
fundum með helztu orkuráðgjöfum
sínum. — Þó er vitað að ráðamenn-
irnir hafa ekki á takteinum neina
einfalda lausn á þeim gífurlegu
hækkunum á eldsneytiskostnaði og
endalausu biðröðum við bensín-
stöðvar, sem Bandaríkjamenn hafa
orðið að sætta sig við á undanförnum
dögum og vikum. Þá óttast margir að
veturinn muni verða nokkru kaldari
innan dyraen sá síðastí vegna ráðstaf-
ana stjórnarinnar.
Meðal umræðuefna á fundum
Carters og orkuráðgjafanna var svo-
kallað „tílbúið eldsneytí” og fram-
leiðsla þess. Fram að þessu hefur
framleiðsla slíks eldsneytis verið
óarðbær. Dagblaðið Star kvaðst í
gær hafa komizt yfir áætlanir um
framleiðslu slíks eldsneytis. — Fast-
lega má búast við því að forsetínn
ræði nokkuð um möguleikana á
framleiðslu „tilbúins eldsneytis”.
Þá er einnig talið að Carter muni
'stinga upp á að bensíndrekar verði
skattlagðir sérstaklega og kröfur til
mengunarvarna verði rýmkaðar til að
auðvelda notkun „óhreinna” orku-
gjafa, svosem kola.
Erlendar
fréttir
Evrópumeistaramótið íbridge:
FRAKKARAUKA ENN
FORYSTU SÍNA
íslendingaremí6.—7. sæti ásamt Sviþjóð
Frakkar styrktu enn stöðu sína á
Evrópumótinu i bridge í gær. Þásigr-
uöu þeir gestgjafana, Svisslendinga,
með nitján stigum gegn einu. ítalir
sem oft hafa verið sigursælir á
Evrópumótinu virðast nú öllum heill-
um horfnir og eru i fjórða sæti eftir
að hafa tapað fyrir Englendingum í
gær með sex stígum gegn fjórtán.
íslenzka sveitin keppti í gær við þá
belgísku. Leikar fóru þannig að sú ís-
lenzka sigraði með sextán stigum
gegn fjórum.
önnur úrsiit í fjórðu umferð
Evrópumótsins urðu þessi: ,
Pólland 16 — Þýzkaland 4;
Noregur 20 — Holland —2;
Danmörk 18 — Júgóslavía 2; Svíþjóð
17 — Ungverjaland 3; Spánn 20 —
Finnland 0; Austurriki 15 — ísrael 5:
Portúgal 11 — Tyrkland 9.
Staðan er þá þessi:
1. Frakkland, 77 stig; 2. Noregur,
'57; 3. Pólland, 55; 4. Ítalía, 54; 5.
Austurríki, 50; 6.-7. ísland og Sví-
þjóð, 49 stíg; 8. Danmörk, 47; 9.
Bretland, 46; 10. irland, 45 stig. —
Belgar og Finnar eru I neðstu sætun-
um á mótinu. Fyrrnefnda þjóðin
hefur hlotiö nítján stig, sú síðari
þrettán.
Evrópumótið fer fram í Lausanne í
Sviss.Alls tejcur 21 þjóð þátt í mótinu.
ERTU ÖNUGUR
á morgnana?
Komdu þá og kauptu
þérrúm.
Bíldshöfða 20 - S*81410 - 81199
Sýningahöllin- Artúnshöfða
Muhammad Ali er
hættur að boxa
Muhammad Ali, heimsmeistari í
þungavigt, hefur boðað til mikilla
hljómleika í Los Angeles í tilefni af því
að hann hyggst nú leggja hanzkana á
hilluna._ Hljómleikar þessir verða
haldnir þann 6. september. Meða!
skemmtikrafta, sem boðið hefur verið
að taka þátt í húllumhæinu eru Sammy
Davis jr. og Frank Sinatra.
Ali hefur nú ritað Alþjóða hnefa-
leikasambandinu bréf, þar sem hann
tilkynnir, að hann hyggist hætta-
keppni. Það gerir að engu vonir manna
um að fá að sjá kappann verja titil sinn
enn einu sinni.
Á blaðamannafundi sem Ali boðaði
til til að kynna hljómleikana fyrirhug-
uðu kvaðst hann vera sæll og glaður
með að vera nú loksins hættur keppni.
„Þetta var orðið að heilu helvíti,”
sagði hann um hnefaleikana og heims-
meistaratignina.
Ali varð heimsmeistari í þungavigt
alls þrisvar sinnum. Síðast náði hann
titlinum í september i fyrra af
Ameríkananum Leon Spinks.
AIls geta um sautján þúsund manns
séð hljómleikana til heiðurs Ali. Meist-
arinn hefur beðið um að ágóða af þeim
verði varið til bandaríska ólympíuliðs-
ins í hnefaleikum.
Muhammad Ali tilkynnti á
blaðamannafundi að meðal
iistamanna sem boðið hefði
verið að koma fram á hljóm-
leikum hans væru Sammy Davis
jr. og Frank Sinatra.
„Albert feiti” heitir hann i auglýsingum ferðahringleikahússins, sem hann starfar
með i Bandarikjunum. T.J. Albert staðhæfir að hann sé hreykinn af hverju einasta
kflógrammi sinu. Hann hlýtur þvi að vera mjög hreykinn maður, þvf að hann
vegur hvorki meira né minna en 388 kflógrömm. — Þrátt fyrir allan þennan
þunga segist Albert geta gengið og meira að segja hlaupið, — „að vfsu ekki eins
og elding,” segir hann, „en ég kemst þó hraðar en skjaldbaka.”
Mallorka:
Fimmmanns
fórustí
hótelbruna
Fjórir Finnar og frönsk kona
fórust er hótel í Palma, höfuð-
borg Mallorka, brann í gærmorg-
un. Alls slösuðust tuttugu manns
í eldinum, þar af sextán Finnar.
Sjúkraflugvél var væntanleg til
Mallorka í dag til að flytja fjóra
alvarlega slasaða Finna heim á
leið.
Hótelið sem brann nefndist E1
Paso.
Bandaríkjamenn
affjórumhjól-
umátvö?
Bandaríska umferðarráðuneytið
kannar nú, hvort aukin notkun reið-
hjóla þar í landi geti ekki hjálpað til við
að minnka orkukreppuna. Könnun
þessi beinist einnig að því, hvaða áhrif
það hafi á umferð stórborga ef Banda-
rikjamenn taka að grípa í stórauknum
mæli til reiðhjóla sinna í stað þess að
nota bifreiðar.
Eftir að ráðuneytið hefur fullunnið
málið verður skýrsla send Carter for-
seta til frekari athugunar.
' ....... *
—Efnirtil
hljómleika
ítilefni
dagsins
-
REUTER
HREYKINN AFHVERJU KÍLÓI