Dagblaðið - 04.07.1979, Síða 12
12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ1979.
Góðurárangur
íStokkhólmi
Mjög góAur árangur náðist í gærkvöldi á heljar-
miklu frjálsíþróttamóti, sem fram fór í Stokkhólmi.
Þar kepptu ýmis fræg nöfn og árangurinn lét ekki á
sér standa þrátt fyrir kalsaveður og óhagstæð skil-
yrði. Hápunklur mótsins var miluhlaupið og þar var
geysimikil keppni, þrátt fyrir að tímarnir væru e.t.v.
ekki neitt undur.
Bandarikjamaðurinn Steve Scott kom dálitið á
óvart og sigraði á 3:55,96 sek. en í öðru sæti varð
írinn Eamonn Coghlan á 3:56,24. Næstu keppendur
voru ekki langt undan því Josef Planchy frá Tékkó-
slóvakíu hljóp á 3:56,33 og Willi Wulbeck frá V-
Þýzkalandi hljóp á 3:56,38 mín.
í 5000 metra hlaupinu var einnig skemmtileg
keppni en slæmt veður og lítill byrjunarhraði komu í
veg fyrir enn betri árangur. Rússinn Valeri Abramov
vann á 13:19,18 mín en annar varð V-Þjóðverjinn
Thomas Wessinghage á 13:19,87 eftir mikinn enda-
sprett. Tanzaníumaðurinn Suleiman Nyambui varð
þriðji á 13:20,20 og leiddi hlaupið lengi vel framan
af.
, í 800 metra hlaupinu sigraði Evans White frá
Bandaríkjunum á 1:46,31 mín. og annar varð Hans
Peter Fcrner frá V-Þýzkalandi á 1:46,59. Antonio
Paez frá Spáni varð þriðji á 1:46,75 og Mike Boit frá
Kenýa varð að sætta s'ig við 4. sætið á 1:47,79 mín.
James Sanford frá Bandaríkjunum sigraði í 100
metra hlaupinu á 10,39 sek. cn annar varð Jerome
Deal frá USA á sama tíma, en var dæmdur sjónar-
mun á eftir. Sovétmaðurinn Andrei Sjlijapnikov
varð þriðji á 10,57 sek.
Mac Wilkins sigraði í kringlukastinu með 66,16
metra. Markku Tuokko frá Finnlandi varð annar
með 64,50 mctra og þriðji varð Al Oerter frá USA
með 61,76 metra.
í 400 metra grindahlaupinu sigraði Edwin Moses
að vanda — hljóp nú á 49,51 sek. Annar varð Rich
Graybehl landi hans á 50,30 og þriðji varð James
King, einnig frá USA, á 50,35 sek.
Jazek Wszola frá Póllandi vann hástökkið með
2,29 metra og Holger Marlens frá V-Þýzkalandi
varð annar — stökk 2,20 m.
UEFA breytir til
Eins og greint var frá í blöðum í vetur hyggst
UEFA sambandið breyta fyrirkomulaginu á
Evrópukeppnunum hvað varðar þátttökufjölda
hvers einstaks lands. Tekur þessi nýja reglugerð gildi
1980—81 og skal þá miðað við árangur félagsliða
hverrar þjóðar í Evrópukeppnunum næstu 5 ár á
undan. Niðurstöður liggja nú fyrir og það eru aðeins
þrjú lönd, sem ná því að fá fjóra fulltrúa i UEFA
bikarnum þetta keppnistímabilið (1980—81). Það
eru Belgía, Holland og V-Þýzkaland. Þrátt fyrir
ágætan árangur enskra liða undanfarin ár fá
Englendingar aðeins þrjá fulltrúa ásamt Spánverj-
um, Rússum, Júgóslövum og A-Þjóðverjum.
Þau lönd sem fá að senda tvö lið eru: Ítalía,
Frakkland, Ungverjaland, Tékkóslóvakía, Pólland,
Portúgal, Sviss, Austurriki, Skotland, Grikkland,
Svíþjóð, Búlgaría og Rúmenía.Eitt félag er frá eftir-
töldum löndum: Tyrklandi, Danmörku, Irlandi,
Noregi, N-írlandi, Finnlandi, Kýpur, íslandi,
I.uxemborg, Möltu og Albaníu.
UEFA bíður eftir samþykki viðkomandi knatt-
spyrnusambanda fyrir þessari breytingu, en viðbúið
er að Englendingar vcrði illir í garð UEFA. ísland
heldur sínu eina liði og svo er um flest hina minni
landa. Svíar fá þó tvö lið eins og verið hefur, en
athygli vekur að ítalir skuli aðeins fá að senda tvö
lið.
Gott met hjá Rut
í fjölmiðlum í gær og í fyrradag mátti lesa greinar
um árangur íslenzka kvcnnalandsliðsins í frjálsum
iþróttum, sem keppti i Wales í milliriðli í Evrópu-
meistarakeppninni. Skrif fjölmiðla voru mjög á einn
veg (þar á meðal skrif Dagblaðsins) og voru menn
óánægðir með árangurinn. I einstaka greinum náðist
þö góður árangur og hæst bar frábært hlaup Rutar
Ólafsdóttur úr Hafnarfirði, sem er aðeins 15 ára
gömul.
Rut hljóp 800 metra á 2:09,40 mín., en íslandsmel
Lilju Guðmundsdóttur er 2:06,2. Árangur Rutar er
að sjálfsögðu stúlknamct en staðreyndin er sú að
hinn góði árangur hennar hefur vafalitið fallið í
skuggann af hinni mjög svo lágu heildarstigatölu
landsliðsins — 23 stig.
Guðmundur Þórarinsson benti DB á að árangur-
inn hjá kvennalandsliðinu nú væri betri en siðast
þegar keppt var i milliriðli, fyrir tveimur árum. Að
sjálfsögðu viljum við hafa það sem sannara reynist
hér á DB og óskum Rut til hamingju með metið.
Leiðrétting
Inn í frétt af fyrsta opna golfmóti kvenna á Akra-
nesi slæddust tvær ineinlegar villur og verða þær að
skrifast á undirritaðan, sem hefði í báðum tilvikum
átt að vita betur. Sagt var að Skagaprjón hefði gefið
hin glæsilcgu verðlaun, en það er rangt. Það var
Akraprjón og eru eigendur fyrirtækisins beðnir vcl-
virðingar á þessum mistökum. Þá var sagt að Golf-
klúbburinn Leynir hefði verið stofnaður 1967. Hið
rétta er að hann var stofnsettur 1965. Hlutaðeigandi
eru bcðnir velvirðingar á þessu.
-SSv.
Þorgeir Þorgeirsson (sést ekki á myndinni) hefur hér skorað annað mark Þróttar gegn Haukum i gærkvöld.
DB-mynd Sv. Þorm.
HAUKARNIR SK0TNIRI
FLUGTAKI í GÆRKVÖLD
—Þróttur skoraði strax í upphafi og vann öruggiega 3-0 íbikamum
Hann var ekki ýkja mikið augnayndi
leikur Hauka og Þróttar í 16 liða úrslit-
um bikarkeppni KSÍ í gærkvöld. Það
má eiginlega segja, að Haukarnir hafi
verið skotnir í flugtaki því Þróttur
skoraði strax í upphafi og vann sann-
gjarnan sigur, 3-0, og hefði hann eftir
atvikum getað orðið stærri. Þróttur
leiddi i ieikhléi 3-0.
Strax á 2. minútu skoruðu Þróttarar
mark. Örn Bjarnason, sem var í mark-
inu í stað Gunnlaugs Gunnlaugssonar,
brá sér bæjarleið og var víðs fjarri
þegar Halldór Arason skoraði auðveld-
lega af stuttu færi.
Þróttararnir áttu mun meira í leikn-
um lengst af — utan smákafla í síðari
hálfleik — og á 28. mínútu bættu þeir
öðru marki sínu við. Eftir mikla þvögu
og barning inni í markteig Haukanna
barst knötturinn út til Þorgeirs Þor-
geirssonar, sem afgreiddi hann í netið
með fallegu skoti. Haukarnir náðu af
og til sæmilegum samleiksköflum, en
þegar upp undir vítateig ar.Jstæðing-
anna var komið koðnaði allt niðui í\ it-
leysu. Halldór Arason skaut yl'ir í
dauðafæri á 39. mín. áður en Þróttur
bætti sínu þriðja marki við á 41.
mínútu. Sakleysisleg sending kom þá
fyrir markið. örn gómaði boltann en
datt síðan og missti boltann úr höndum
sér. Þorgeir Þorgeirsson var þar nær-
staddur og skoraði næsta auðveldlega
— grátlegt mark.
Þegar blásið var til leikhlés höfðu
Þróttarar því örugga forystu og Hauk-
arnir ógnuðu henni aldrei neitt að ráði í
síðari hálfleiknum. Vörn Haukanna
var mjög óörugg, en örn var sannfær-
andi í markinu í síðari hálfleik þrátt
fyrir tvenn mjög slæm mistök í þeim
fyrri.
Strax í upphafi s.h. — á 49. mín. —
komst Páll Ólafsson í gegnum vörn
Hauka og gaf vel fyrir markið en bjarg-
að var í horn. Á 60. mín. kom sending
fyrir markið og örn náði aðeins að slá
knöttinn stutt frá marki en varði síðan
með tilþrifum gott skot Þorgeirs.
Rétt á eftir átti Lárus Jónsson hörku-
skot að merki Þróttar, sem Egill Stein-
þórsson varði vel með handboltatil-
burðum. Örn varði glæsilega skalla frá
Arnari á 68. mín. og á 72. mín. náðu
Haukarnir sinni beztu sóknarlotu.
Boltinn gekk skemmtilega á milli
manna en þegar endahnútinn átti að
reka skaut Hermann Þórisson yfir
markið í upplögðu færi. Á 82. mínútu
fékk Björn Svavarsson dauðafæri inn í
miðjum vítateig en það var hreint og
beint eins og Haukunum væri fyrir-
munað að skora mark í gærkvöld.
Hinum megin fékk Arnar, nýliðinn í
liði Þróttar, gullið tækifæri til að skora
á 85. mín., en skaut rétt framhjá.
A lokamínútunni átti síðan Guð-
mundur Sigmarsson fallegt skot i þver-
slá og yfir úr vel tekinni aukaspyrnu
rétt utan vitateigs Þróttaranna. Hefði
verið sanngjarnt að Haukarnir hefðu
uppskorið a.m.k. eitt mark i lokin.
Leikurinn var lengst, eins og fyrr
sagði, lítið augnayndi, en það spil sem
sást kom að mestu leyti frá Þrótturum,
sem oft á tíðum náðu upp ágætu spili.
Haukarnir voru hvorki fugl né fiskur
allan leikinn ef undan er skilinn loka-
kafli leiksins, en þá sóttu þeir nokkuð í
sig veðrið. Þá vantaði tvo af sínum
beztu mönnum, þá Sigurð Aðalsteins-
son og Ólaf Jóhannesson, en að vanda
var Guðmundur Sigmarsson potturinn
og pannan i leik þeirra. Þá átti Daníel
góðan leik í vörninni.
Hjá Þrótti voru leikmenn mjög
jafnir og í raun enginn öðrum fremri.
Góður dómari var Guðmundur Har-
aldsson.
- SSv.
Fyrirhafnaiiítill
bikarsigur Eyjamanna
—ÍBVvaim Þór4-0á Akureyri ígærkvöldi
Eyjamenn gerðu góða ferð tii Akur-
eyrar í gærkvöld er þeir unnu Þór 4-0 í
16-liða úrslitum bikarkeppninnar.
Sigur Eyjamanna var aldrei í hættu og
spurningin var aðeins um hversu stór
sigur þeirra yrði. Staðan i hálfleik var
3-0.
Það var ágætisveður þegar leikurinn
hófst og tækifærin létu ekki bíða lengi
eftir sér. Strax á 8. mínútu átti Sveinn
Sveinsson gott skot af vítateig en rétt
framhjá markinu. Sex mín. síðar skor-
uðu Eyjamenn svo fyrsta mark sitt. Þá
skaut Óskar Valtýsson sannkölluðum
þrumufleyg af um 30 metra færi og
knötturinn þaut efst í markhornið —
glæsilegt mark. Þó er rétt að benda á
það, að varnarmenn Þórs voru ekkert
að reyna að trufla hann í aðgerðum sín-
um.
Á 22. mínútu fékk Tómas Pálsson
hasttulegt færi, en Ragnar Þorvaldsson
markvörður varði í horn og rétt á eftir
átti Óskar þrumuskot í stöng og aftur
fyrir. Annað markið hlaut að koma og
á 29. mín. varð það ekki lengur umflú-
ið. Eyjamenn fengu aukaspyrnu á
vinstri vængnum. Knettinum var lyft
inn i teiginn þar sem hann barst til
Þórðar Hallgrímssonar, sem skaut
strax að marki af markteig. Ragnar
komst fyrir skot hans en af honum
hrökk boltinn til Ómars Jóhannssonar,
sem skoraði örugglega, 2-0.
Og áfram fengu Eyjamenn tækifæri
og t.d. fékk Sveinn Sveinsson dauða-
færi á 31. mín. en var sekúndubroti of
seinn að ná til knattarins. Næst var
komið að Þórsurum og Jón Lárusson
átti tvö skot með stuttu millibili — ann-
að yfir, hitt framhjá.
Á lokamínútu fyrri hálfleiks skoruðu
Eyjamenn sitt þriðja mark. Kom það
úr tvítekinni vítaspyrnu. örn Óskars-
son var búinn að spyrna áður en dóm-
arinn gaf merki og það varð honum til
happs þvi negling hans fór í slá og yfir.
Spyrnan var því endurtekin og í þetta
skiptið þrumaði Örn boltanum í fætur
Ragnars, sem hafði hent sér í annað
hornið, en skot Arnar var beint á mark-
ið. Örn fékk boltann aftur frá Ragnari
og skoraði þá örugglega, en hvar var
Þórsvörnin?
Eyjamenn höfðu áfram yfirburði í
síðari hálfleiknum en fengu mun færri
tækifæri, enda mátti sjá að leikmenn
voru ekkert að keyra sig út að óþörfu.
Þórsarar voru svo slakir að þeir ógn-
uðu aldrei neitt að ráði og virtust satt
að segja áhugalausir með öllu fyrir
þessum leik. Eyjamenn bættu einu
marki við fyrir leikslok og skoraði þá
Einir Ingólfsson eftir að hann kom inn
á sem varamaður. Var þetta ekki meira
en önnur eða þriðja snerting hans við
knöttinn í leiknum. Aðdragandinn var
sá, að Snorri Rútsson tók hornspyrnu,
sem Ragnar missti klaufalega fyrir
fætur Einis, þakkaði gott boð og
skoraði örugglega.
Lið Eyjamanna virkaði mjög sterkt
og hvergi var veikan hlekk að finna.
Friðfinnur lék ekki með að þessu sinni
en þeir Valþór og Örn skiluðu sinu
mjög vel í miðvarðarstöðunni og sömu
sögu er að segja um aðra leikmenn liðs-
ins.
Þórsarar voru á hinn bóginn af-
spyrnuslakir lengst af og höfðu minni
en engan áhuga á leiknum og kunni það
ekki góðri lukku að stýra. Eini maður-
inn, sem stóð upp úr meðalmennskunni
var Hilmar Baldvinsson í stöðu hægri
bakvarðar. Var hann hinn eini leik-
manna Þórs, sem eitthvað kom út úr af
viti. Dómari var Þorvarður Björnsson
ogdæmdi vel.
- St.A.
DAGBLAÐID. MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ1979.
13
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
ff
NUNA ER TÆKIFÆRID
—til að rífa landsliðið upp með krafti, sagði nýráðinn landsl iðsþjálfari, Gnar Bollason
ff
,,Nú er tækifærið fyrir okkur, að
reyna að gera citthvað stórt i landsliðs-
málunum,” sagði nýráðinn iandsliðs-
þjálfari körfuknattleikslandliðs
íslands, Einar Bollason, á blaða-
mannafundi sem KKÍ boðaði til í gær-
dag. í gær var einnig tilkynntur 17
manna landsliðshópur og i honum eru
eftirtaldir leikmenn:
Símon Ólafsson, Fram
Þorvaldur Geirsson, Fram
Kristinn Jörundsson, ÍR
Jón Jörundsson, ÍR
Kolbeinn Kristinsson, ÍR
Bjarni G. Sveinsson, ÍS
Jón Héðinsson, ÍS
Jón Sigurðsson, KR
Geir Þorsteinsson, KR
Garðar Jóhannsson, KR
Gunnar Þorvarðsson, UMFN
Jónas Jóhannesson, UMFN
Guðsteinn Ingimarsson, UMFN
,,Ég veit ekki annað en að
Tim Dwyer komi til okkar, en
það gæti þó hugsanlega
breytzt,” sagði Halldór
Einarsson, er DB hafði sam-
band við hann vegna sögusagna
hér i borginni þess efnis að
Valsmenn væru hættir við að
fá Dwyer til sín á nýjan leik.
„Við erum nýbúnir að hafa
samband við Dwyer og allar lík-
ur benda til þess að hann komi
eins og um var talað,” sagði
Halldór ennfremur. ,,Það
yrði örugglega jafndýrt að fá
annan leikmann þó við borguð-
um honum minna kaup. Kostn-
aður við nýjan leikmann er mik-
ill, en Dwyer hefur verið hér
áður, þannig að við vitum að
hverju við göngum.”
Pétur Guðmundsson, Univ. of Wash.
Torfi Magnússon, Val
Ríkharður Hrafnkelsson, Val
Kristján Ágústsson, Vai
Auk þessara manna var leitað til
Kára Maríssonar, en hann leikur nú
með Tindastóli á Sauðárkróki. Kári gat
því miður ekki komið því við að vera
með í undirbúningnum þar sem hann
kemst ekki frá bústörfunum. Lands-
liðsnefndin, sem er skipuð þeim Steini
Sveinssyni, Kristni Stefánssyni og Agn-
ari Friðrikssyni, sagði einnig í gær að
yngri leikmenn hefðu komið til greina í
landsliðshópinn, en verið horfið frá því
að sinni.
Til greina komu t.d. hinn ungi og
efnilegi Björn Jónsson úr Fram, Njarð-
víkingarnir Árni Lárusson og Júlíus
Valgeirsson svo og nokkrir fleiri. Þá
má geta þess að Flosi Sigurðsson mun í
vetur dvelja í Bandarikjunum og hann
verður prófaður er hann kemur heim í
jólaleyfi.
„Það er engum blöðum um það að
fietta að Pétur Guðmundsson er
þungamiðjan í þessum hóp. Allt okkar
spil mun miðast við að spila hann
upp,” sagði Einar á fundinum í gær.
Landsliðið verður kallað saman með
2—3 vikna millibili þar til í ágúst en þá
tökum við leikmenn í 10 daga æfinga-
prógramm, en síðan verða þeir að
mestu i umsjá sinna félaga en æfingar
hefjast hjá öllum félögunum í ágúst.
„Mönnum verður umsvifalaust kippt
út úr hópnum ef í Ijós kemur að þeir
hafa ekki nægilegt þrek,” sagði Einar
ennfremur.
Einar er enginn nýgræðingur á sviði
landsliðsins því hann hefur leikið með
þvi í fjölda ára og hann hefur einnig
setið þar við stjórnvölinn áður og náð
betri árangri en nokkur maður fram til
þessa. Undir stjórn Einars lék íslenzka
landsliðið 23 landsleiki og af þeim unn-
Landsliðsþjálfarinn Einar Bollason ásamt landsliðsnefndinni.
i
DB-mynd Sv. Þorm.
Illa siðaðir áhorf-
endur á Seyðisfirði
Tveir leikir fóru fram í Austfjarða-
riðli 3. delldar i gærkvöldi og einum
var frestað. Á Seyðisflrði áttust við
Huginn og Leiknir og lauk þeim leik
með jafntefli 2-2. Leikmenn Hugins
voru betri i heildina en tókst ekki að
knýja fram sigur.
Á 15. mínútu leiksins náði Leiktjir
forystu með marki Ólafs Ólafssonar og
var það sérlega glæsilegt skallamark —
fallegasta atvik leiksins. Pétur
Böðvarsson jafnaði síðan metin fyrir
Hugin skömmu síðar. Óiafur var aftur
á ferðinni og skoraði af stuttu færi og í
leikhléi leiddi Leiknir 2-1.
í síðari hálfleik sótti Huginn mjög
stíft en aöeins einu sinni tókst aö skora
og var þar að verki Ólafur Már
Sigurðsson. Pressa Hugins var þung,
en allt kom fyrir ekki og Leiknismenn
geta vel við unað að hafa fengið eitt
stig.
í leiknum í gærkvöldi vakti leiðinleg
framkoma áhorfenda mikla athygli og
var hún þeim til háborinnar skammar.
Hins vegar má geta þess að Huginn
hefur, fyrst allra liða fyrir austan,
komið sér upp hátalarakerfi á vellinum
og leikmenn eru kynntir áður en leikur
hefst. Er þetta mjög lofsvert framtak
og til fyrirmyndar.
Þá léku á Stöðvarfirði Súlan og
Hrafnkell Freysgoði, en þessi lið hafa
alltaf teflt fram sameiginlegu liði. Að
þessu sinni leika þau sitt í hvoru lagi og
í þessum fyrsta innbyrðisleik þeirra
sigraði Hrafnkell 2-0 og annað mark
lið,sins skoraði Sigurður Gunnarsson.
Leikurinn þótti fjörugur og sigur
Hrafnkels var sanngjarn í alla staði.
Leik Sindra og Vals var frestað. - VS
ust 10. Minnisstæðastur er þó vafalítið
sigurinn yfir V-Þjóðverjum i Kaup-
mannahöfn 1975, en þá náði ísland
stórkostlegum leik og vann 82-71.
Einari hefur verið boðið út til Mil-'
waukee Bucks til þess að kynna sér
þjálfun og mun hann væntanlega halda
utan í haust. Þá eru allar líkur á því að
,Einar dvelji um tíma hjá University of
„Árangurinn var ágætur í mörgum
greinanna og eitt sveinamet var sett á
mótinu,” sagði Guðmundur Þórarins-
son er DB spurðist fyrir um árangur á
Reykjavíkurmeistaramóti pilta, telpna,
drengja og stúlkna, sem lauk á Laugar-
dalsvelli í gærkvöldi. Þetta met setti
Stefán Þ. Stcfánsson í 100 metra
grindahlaupi — hljóp á 14,4 sek. sem er
mjög góður tími. „Annars einkenndist
mótið mest af óskaplegri starfsmanna-
fæð,” sagði Guðmundur ennfremur.
í stelpuflokki má geta árangurs Haf-
disar Hafsteinsdóttur í 800 m hlaupi,
en hún hljóp á 2:57,3. í 200 metra
hlaupi meyja hljóp Sigríður Hjartar-
dóttir, Ármanni, á 28,0 og í 800 metra
hlaupinu hljóp Ásdís Sveinsdóttir, ÍR,
á 2:33,4 og hún hefur bætt sig verulega
í vor. María Óskarsdóttir kastaði spjóti
27,96 metra og i hástökki stökk
Sigriður Valgeirsdóttir 1,43 metra.
í 100 metra hlaupi sveina hljóp
Stcfán Þ. á 11,7 en Jóhann Jóhannsson
var rétt áeftir honum á 11,8 sek. Stefán
er mjög fjölhæfur iþróttamaður og
hann kastaði spjóti 44,98 metra og i há-
stökkini stökk hann 1,91 metra.
María Óskarsdóttir stökk 4,56 í lang-
stökki og Hafdís Hafsteinsdóttir hafði
yfirburði í 60 metra hlaupinu og hljóp á
9,0 sek. Jóhann Jóhannsson hljóp
síðan 200 metrana á 24,0 sek., sem er
mjög gott miðað við að hann hljóp 100
metrana á 11,8 sek.
Sigríður Valgeirsdóttir hljóp 100
metrana á 13,5 sek. og Sigríður
Hjartardóttir varð önnur á 13,6.
Sigríður Hjartardóttir náði siðan mjög
góðum tíma i 400 metra hlaupinu —
hljóp á 65,4 sek.
í kringlukasti sveina kastaði Her-
Hin 16 ára gamia skólastúlka frá
Riverside í California, Cynthia Wood-
head, bætti i gærkvöld heimsmet sitt i
200 metra skriðsundi er hún synti á
1:58,43 mín. á Pan Am leikunum í
Puerto Rico. Gamla metið, sem hún
átti, var 1:59,53 og sett i Berlin á síð-
asta ári.
Önnur í sundinu í gær varð Tim
Lineham á 2:01,93 og þriðja varð
kanadiska stúlkan Gail Amundrud á
2:03,38 mín. Árangur á leikunum hefur
verið mjög góður til þessa og mjög
mörg landsmet hafa verið sett hjá
hinum einstöku þjóðum sem keppa á
leikunum, en allar þjóðir Ameríku hafa
þátttökurétt.
Bill Sanchuk setti kanadískt met í
400 metra fjórsundi á 4:33,97 og i
4x100 metra skriðsundinu kom'
kanadíska sveitin fyrst í mark á 3:29,86
semerfrábærtimi.
Washington til þess eins að kynna sér
hvernig Pétur er notaður í leikjum
liðsins. „Það kom svo greinilega fram í
landsleikjunum nú í vor, að enginn
okkar leikmanna kunni almennilega að
gefa á Pétur. Við erum óvanir svona
stórum mönnum og miklu minna kom
út úr Pétri fyrir vikið. Því hefur verið
haldið frafn bæði í blöðum og annars
mundur Sigmundsson 1,5 kílóa kringlu
38,65 metra, en þessi kringla er 0,5 kg
þyngri en sveinarnir hafa venjulega
kastað. María Óskarsdóttir kastaði
síðan spjóti 28,40 metra og að sögn
Guðmundar var þetta helzti árangurinn
á mótinu.
Ekki varð tennisáhugamönnum að
ósk sinni — að sjá þá Björn Borg og
Jimmy Connors leika til úrslita um
Wimbledon bikarinn í þriðja sinn á sl.
fjórum árum, en Borg hefur unnið hina
miklu Wimbledon keppni si. þrjú ár.
Kapparnir drógust nefnilega saman í
undanúrslitunum. Átta manna úrslit
fóru fram í gær og urðu úrslit nokkuð
óvænt.
Björn Borg lék við „Hollendinginn
fljúgandi” Tom Okker, en flugið á
Okker var lágt í þetta skiptið og Borg
hafði mjög litið fyrir sigri sínum. í
fyrstu lotunni, sem aðeins tók 21
minútu, sigraði Borg auðveldlega 6-2
og engu líkara var en Okker brotnaði
algerlega strax í upphafi og hann náði
sér aldrei almennilega á strik. Borg
vann aðra lotuna 6-1 og þá þriðju 6-3
og léttur sigur var í höfn.
Bandaríska stúlkan Linda Jezek
bætti bandaríska metið í 100 metra
baksundi er hún synti á 1:04,53 og
Cynthia Woodhead bætti metið í 200
metra skriðsundi — synti á 2:04,14 og
síðan bætti hún heimsmetið í gær enn
frekar.
Bandaríkjamenn hafa haft ótrúlega
yfirburði á þessum sundleikum og
framfarimar þar virðast hreint og beint
óendanlegar. Fyrir nokkrum árum
voru Ástralir og A-Þjóðverjar allsráð-
andi í sundheiminum en á sl. 2—3 árum
hafa bandarisk ungmenni hrifsað til sin
fiest heimsmet Austur-Þjóðverjanna,
þeim til mikillar hrellingar.
Þá hafa Kanadamenn komið sterkir
út á þessum leikum og Brasilíumenn
hafa einnig komið á óvart, en fram til
þessa hafa þeir ekki átt marga afreks-
menn i sundi.
staðar að Pétur hafi verið slakur þegar
hann kom hingað í vor, en ég held að
staðreyndin sé sú, að menn gera sér
bara alls ekki grein fyrir hversu mikill
skrokkur Pétur er. Það er augljóst að
hann getur ekki sýnt sömu snerpu og
minni leikmenn. Við munum því leggja
alla áherzlu á að nýta Pétur sem bezt,”
sagði Einar.
Landsliðsnefnd hefur skrifað út til
II þjóða og spurzt fyrir um möguleika
á landsleikjum, en nú þegar er nokkuð
ljóst að írar koma hingað i haust. Það
verður stefnt að 10 landsleikjum i vetui
og siðan aftur næsta vetur og allai
áætlanir landsliðsnefndar eru til
tveggja ára. Það cr þvi óhætt að segja
að skurkur hafi verið gerður í landsliðs-
málunum og kominn tími til. Árangur
Einars með landsliðið gefur góð fyrir-
heit og í landsliðsnefndinni eru þrír val-
inkunnir menn þannig að ekki vantar
að hæfir menn séu við stjórn og nú er
bara að bíða og sjá hvað leikmennirni''
gera.
Jimmy Connors barðist í tæpar þrjár
klukkustundir við óþekktan tennis-
leikara Scanlon að nafni. Connors
vann fyrstu lotuna 6-3, en Scanlon þá
næstu 6-4 og fór þá um áhorfendur á
Wimbledon.
Þriðja lotan var æðisgengin barátta
allt frá upphafi til enda og Connors
tókst að hafa fram sigur, 7-6. í 4. og
lokalotunni vann Connors svo 6-4, en
sigur hann hékk á bláþræði og var
Scanlon klappað lof i lófa fyrir
frammistöðu sína.
í hinum undanúrslitaleiknum munu
þeir mætast Pat Dupre frá Belgiu, lítt
þekktur tennisleikari, og Roscoe
Tanner. Dupre vann í gær ítalanna
Adriano Panatta og Tanner vann Tim
Gullikson, sem hafði slegið út kjaftask-
inn John McEnroe i næstu umferð þar
á undan.
„Hvert stig, sem ég fæ hér eftir er
hrein og bein uppbót fyrir mig,” sagði
hinn líttþekkti Dupre. ,,Eg hef þegar
náð mun lengra en nokkurn mann
óraði fyrir, þannig að ég þarf ekki að
skammast mín þótt ég tapi fyrir Tanner
í undanúrslitunum. Ég veit að Tanner
lék stórvel gegn Gullikson, en ég hlýt
að eiga möguleika gegn honum, rétt
eins og gegn Panatta.”
Kvennakeppnin hefur ekki vakið eins
mikla athygli og keppnin hjá körlunum
en þar hefur margt verið um óvænt
úrslit eins og reyndar alltaf á þessu
móti, sem allir viðurkenna sem ópin-
bert heimsmeistaramót.
Undanúrslitin, eins og hjá körlun-
um, fara fram á morgun og þar leika
annars vegar saman sigurvegarinn frá i
fyrra Martina Navratilova, sem er
tékknesk en býr í Bandaríkjunum, og
Tracy Austin, hin 16 ára gamla Banda-
rikjastúlka. Hins vegar leika þær
santan Chris Evert Lloyd (eiginkona
John Lloyd, sem er einn af frægari
tennisleikurum þessa heims) og Evonne
Goolagong frá Ástraliu.
Austin vann i síðustu umferð Billy
Jean King á sannfærandi hátt og
Navratiloga verður að taka á öllu sínu
til að geta unnið þá litlu, sem hefur
skotið upp á stjörnuhimin tennisheims-
ins með ótrúlegum hraða.
Eitt sveinamet
—á Reykjavíkurmeistaramóti unglinganna ífrjálsum
sem laukfgærkvöld
Heimsmet í 200
metra skriðsundi
— Cynthia Woodhead bætti eldra met sitt
Borg og Conn-
ors mætast!
—í undanúrslitum á Wimbledon
BIKARKEPPNI K.S.Í.
16 LIÐA ÚRSLIT.
KR-KS
LAUGARDALSVÖLLUR • EFRI í KVÖLD KL. 20.00
V
KNATTSPYRNUDEILD KR
✓