Dagblaðið - 04.07.1979, Side 20
20
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 1979.
í dag veröur suflvestan gola efla
kaldi um allt land, skúrir um sunnan-
og vestanvert landifl. Á Austfjörðum I
verður léttskýjafl en á Norðurlandi j
skýjafl mefl köflum en þurrt afl!
mestu.
Klukkan sex í morgun var hitinn í!
ReykjavBc 6 stig, alskýjafl og skúrir, á
Gufuskálum 5 stig, abkýjafl og rign-
ing, Galtarvita 7 stig og rigning, Akur-
eyri 8 stig og skýjafl, Raufarhöfn 8'
stig og skýjafl, Dalatanga 9 stig og
lóttskýjafl, Höfn 6 stig og léttskýjafl, í
Vestmannaeyjum 6 stig, skýjafl og
skúrir.
í Kaupmannahöfn var hitinn 14 stig.
og heiflskfrt, (Osló 15 stig og lóttskýj-j
afl, f Stokkhólmi 11 stig og skúrir,
London 13 stig og léttskýjafl, Parfs 15
stig og skýjafl, Hamborg 12 stig og
skýjafl, Madrid 15 stig og heiflskírt,!
Mallorka 13 stig og léttskýjafl, Lissa-'
bon 14 stig og heiflskfrt og Boston 14
stig og heiflskfrt.
Andiát
Gylfi Kristinn Guðlaugsson var fæddur
17. desember 1954 og voru foreldrar
hans Kristín Kristinsdóttir og Guð
laugur Þorvaldsson. Gylfi lauk stúd
entsprófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1974. Síðan stundaði hann
nám i Tækniskóla íslands og lauk prófi
í meinatækni. Gylfi andaðist 25. júní
sl. á gjörgæzludeild Borgarspítalans og
verður jarðsettur frá Háteigskirkju í
dag.
Björgvin Óskar Benediktsson andaðist
að Hrafnistu 3. júlí.
Ögmundur Jónsson verkfræðingur lézt
aðfaranótt laugardags 30. júni.
Bergþór Sigurðsson, Fannborg 1,
Kópavogi verður jarðsettur frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 5. júlí kl.
1.30e.h.
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Sagt frá sumar-
mótinu. Einar J. Gíslason o.fl.
Hörgshlið 12
Samkoma í kvöld, miðvikudag, kl. 8.
Alþýðuleikhúsið
Lindarbæ
Sýning i kvöld á Blómarósum eftir ólaf Hauk
Símonarson kl. 8:30.
Farfuglar
6. júll kl. 20: Ferð á Heklu og i Hraunteig.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni Laufásvegi 41,
simi 24950.
Ferðafélag Islands
Miðvikudagur 4. júlí.
Kl. 08.00: Þórsmerkurferð.
Kl. 20.00: Gönguferð um Geldinganes, létt og róleg
ganga. Verð kr. 1.500.- gr. v/bilinn. Farið frá
Umferðarmiðstöðinni aðaustanverðu.
Föstudagur 6. júlí kl. 20.00. Þórsmörk, Landmanna-
laugar, gönguferð yfir Fimmvörðuháls, Einhyrnings-
flatir-Lifrarfjöll.
Hornstrandaferðir.
6. júli: Gönguferð frá Furufiröi til Hornvikur. Gengið
með allan útbúnað. Fararstjóri: Vilhelm Andersen. 9
daga ferð.
6. júlí: Dvöl í tjöldum i Hornvik. Gengið þaðan stuttar
eða langar dagsferðir. Fararstjóri: Gísli Hjartarson. 9
daga ferð.
13. júli: Dvöl i tjöldum í Aðalvik (9 dagar).
13. júli: Dvöl i tjöldum i Hornvik (9 dagar).
21. júli: Gönguferð frá Hrafnsfirði til Hornvíkur (8
dagar).
Aðrar sumarleyfisferðir I júlí.
13. júli: Gönguferð frá Þórsmörk til Landmannalauga
(9 dagar).
14. júlí: Kverkfjöll — Hannalindir (9 dagar), gist í
húsum.
17. júli: Sprengisandur — Vonarskarð — Kjölur (6
dagar), gist í húsum.
20. júli: Gönguferð frá Landmannalaugum til Þórs-
merkur, (9 dagar). Gist í húsum. Kynnist landinu.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni.
Kvenfélag
Bústaðasóknar
Sumarferð Kvenfélagsins verður farin 5. júli. Farið
verður í fjögurra daga ferð. Konur, látið skrá ykkur
ffyrir 1. júlí í sima 35575, Lára eða 33729, Bjargey.
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykajvík
Hin árlega sumarferð Fríkirkjusafnaðarins verður
farin sunnudaginn 8. júli. Komið saman við Fríkirkj-
una kl. 8.30 f.h., ekið um Borgarfjörðinn og Hvitársið-
una. Hádegisverður i Bifröst. Farmiðar eru seldir til
fimmtudagskvölds í Verzluninni Brynju, Laugavegi
29, og i Frikirkjunni kl. 5—6 e.h. Nánari uppl. i síma
31985.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför
Jakobs Einarssonar
bólstrara, Hátúni 8
Þórunn Elisabet Sveinsdóttir, börn og tengdabörn.
iHiiiiiNiiiiiiiiiiiiNiiiiiiiiiHiiiiimiiimiiiiiuiiraniHmi
1
Þjónusta
i
Til sölu heimkeyrð
gróðurmold, einnig grús. Uppl. í síma
24906 allan daginn og öll kvöld.
Tökum að okkur
að leggja gangstéttar, hlaða veggi og
fleira. Uppl. í síma 24958.
Glerisetningar.
Setjum i einfalt gler, útvegum allt efni,
fljót og góð þjónusta. Uppl. i sínia 24388
og heima i síma 24496. Glersalan
Brynja. Opiðá laugardögum.
Til leigu JCB traktorsgrafa.
Vanur maður. Sími 72656 og 66397.
Húsbyggjendur
og garðyrkjumenn i Breiðholti. Keyri
mold í lóðir ódýrt, einnig mokað á bíla
ókeypis við Hólaberg i Breiðholti.
Aðalbraut hf., sími 81700 eða 77075
eftir kl. 18.
Þakpappalagnir — viðgerðir.
Tökum að okkur þakpappalagnir á stein
og tréþök í heitt asfalt, einangrum einnig
kæli- og frystiklefa. Uppl. í síma 10827
og 20808.
Til sölu heimkeyrð
gróðurmold, einnig grús. Uppl. i síma
24906 allan daginn.
Sláum lóðir með orfi eða vél.
Uppl. í símum 22601 og 24770.
Fjölbýiis— einbýlishúsaeigendur
— fyrirtæki.
Getum bætt við nokkrum verkefnum.
Sláum grasið, snyrtum og hirðum heyið
ef óskað er. Uppl. í sima 77814 milli kl.
18 og 19. Geymið auglýsinguna. Garð-
sláttuþjónustan.
Garðeigendur.
Tek að mér standsetningu lóða, einnig
viðhald og hirðingu, gangstéttalagningu,
vegghleðslu, klippingu limgerða o.fl.
E.K. Ingólfsson garðyrkjumaður, sími
82717 og 23569.
Garðeigendur athugið.
Tek að mér slátt og snyrtingu á einbýlis-,
fjölbýlis- og fyrirtækjalóðum, geri tilboð
ef óskað er, sanngjarnt verð, Guð-
mundur sími 37047. Geymið auglýsing-
una.
Úrvals gróðurmold
til sölu, heimkeyrð. Uppl. i síma 16684
allan daginn og öll kvöld.
Skerpingar.
Garðeigendur, húsmæður, kjötiðnaðar-
menn og fisksalar. Skerpum sláttuvélar
og önnur garðverkfæri, hnífa, skæri o.fl.
Sækjum, sendum. Uppl. í síma 16722
milli kl. 12 og 1 og 7 og 10. Geymiðaug-
lýsinguna.
Garðúðun — Garðúðun.
Góð tæki tryggja örugga úðun. Úði sf.,
Þórður Þórðarson, sími 44229 milli kl. 9
og 17.
Tökum að okkur að hreinsa
og snyrta til í görðum. Uppl. gefur Árni í
síma 13095 milli kl. 19 og 21 á kvöldin.
I
Hreingerníngar
9
Ávallt fyrstir.
Hreinsum teppi og húsgögn með há-
þrýstitæki og sogkrafti. Þessi nýja aðferð
nær jafnvel ryði, tjöru, blóði o.s.frv. Nú
eins og alltaf áður tryggjum við fljóta og
vandaða vinnu. Ath! 50 kr. afsláttur á
fermetra á tómu húsnæði. Erna og Þor-
steinn, sími 20888.
Hreingerningar og teppahreinsun.
Gerum hreinar íbúðir, stigaganga og
stofnanir. Gerum föst tilboð ef óskað er.
Vanir og vandvirkir menn. Uppl. í síma
13275 og 77116. Hreingerningar s/f.
Vélhreinsum teppi
í heimahúsum og stofnunum. Kraftmikil
ryksuga. Uppl. í simum 84395, 28786 og
77587.______________,
Þrif — teppahreinsun — hreingerningar.
Tökum að okkur hreingerningar á íbúð-
um, stigagöngum, stofnunum o.fl.
Einnig teppahreinsun með nýrri djúp-
hreinsivél, sem tekur upp óhreinindin.
Vanir og vandvirkir menn. Uppl. í síma
33049 og 85068, Haukur og Guðmund-
ur.__________________________________
Hreingerningar og teppahreinsun.
Nýjar teppa- og húsgagnahreinsivélar.
Margra ára örugg þjónusta. Tilboð í
stærri verk. Simi 51372. Hólmbræður.
Hreingerningaþjónusta
Stefáns Péturssonar
tekur að sér hreingerningar á stofnunum
og fyrirtækjum, einnig á einkahúsnæði.
Menn með margra ára reynsiu. Sími
25551.
Hreingerningarstöðin hefur
vant og vandvirkt fólk til hreingerninga.
Einnig önnumst við teppa- og húsgagna-
hreinsun. Pantið í síma 19017. Ólafur
Hólm.______________________________
Önnumst hreingerningar
á íbúðum, stigagöngum og stofnunum.
Gerum einnig föst tilboð. Vandvirkt fólk
með margra ára reynslu. Sími 71484 og
84017, Gunnar.
1
Ökukennsla
Ökukennsla-æfingatimar-bifhjólapróf.
Kenni á Simcu 1508 GT. Nemendur
greiða aðeins tekna tima. Nemendur*
geta byrjað strax. Ökuskóli og öll próf-
gögn ef óskað er. Magnús Helgason,
simi 66660.__________________________,
Takið eftir — takið eftir.
Ef þú ert að hugsa um að taka ökupróf
eða endurnýja gamalt þá get ég aftur
bætt við nokkrum nemendum sem vilja
byrja strax. Kenni á mjög þægilegan og
góðan bíl, Mazda 929, R-306. Góður
ökuskóli og öll prófgögn. Einnig getur
þú fengið að greiða kennsluna með
afborgunum ef þú vilt. Nánari uppl. í
síma 24158 .Kristján Sigurðsson öku-
kennari.
Ökukennsla—æfingatímar.
Kenni á japanska bílinn Galant árg. '19.'
ökuskóli og prófgögn ef þess er óskað,
nemandi greiðir aðeins tekna tima. Sími
77704. Jóhanna Guðmundsdóttir.
Ökukennsla — æfingatímar.
Ef þú þarft á bílprófi að halda, talaðu þá
við hann Valda, sími 72864.
Ökukennsla — æfingatimar.
Kenni á Mazda 626 og 323 árg. '19.
Engir skyldutímar, nemendur greiði
aðeins tekna tima. Ökuskóli ef óskað er.
Ath: Góð greiðslukjör eða staðgreiðslu-
afsláttur. Gunnar Jónasson, sími 40694.
Ökukennsla, æfingartímar,
hæfnisvottorð.
Engir lágmarkstímar, nemendur greiða
aðeins tekna tima,Jóhann G. Guðjóns-
son, símar 21098, 17384, Athugið! Sér-
stakur magnafsláttur, pantið 5 eða fleiri
saman.
Kenni á Datsun 180 B árg. ’78.
Mjög lipur og þægilegur bill. Nokkrir
nemendur geta byrjað strax. Kenni allan
daginn, alla daga og veiti skólafólki sér-
stök greiðslukjör. Sigurður Gíslason,
ökukennari, sími 75224 (á kvöldin).
Jakob Hafstein
í Casa Nova
Jakob V. Hafstein sýnir þessa dagana og til 8. júli
sextíu vatnslitamyndir i Casa Nova i Menntaskólan-
um i Reykjavík. Sýningin er opin á venjulegum
sýningartima, kl. 14—22.
Myndirnar eru allar náttúru- og landslagsmyndir, viða'
að af landinu en einnig frá útlöndum. Myndirnar eru
allar til sölu og eru seldar myndir afhentar á sýningar-
stað kl. 20—22 síðasta sýningarkvöldið, sunnudags-
kvöldið nassta, 8. júli.
Myndin er af Jakobi Hafstein við tvö verka sinna á
sýningunni, Herðubreiðog Reynisfjall.
-DB-mynd Bjarnleifur.
Knattspyrna
Miðvikudagur 4. júlí.
Bikarkeppni KSt — 16 liða úrslit.
GRINDAVlKURVÖLLUR
Grindavlk-Ármann, 3ja deild A, kl. 20.00.
VALSVÖLLUR
Valur-ÍA, kvennaflokkur kl. 20.00.
HVALEYRARHOLTSVÖLLUR
Haukar-ÍA, Bikarkeppni 2. flokkur, kl. 20.00.
KAPLAKRIKAVÖLLUR
FH-Reynir, Bikarkeppni 2. flokkur kl. 20.00.
GARÐSVÖLLUR
Viðir-UBK/KR, Bikarkeppni 2. flokkur, kl. 20.00.
BREIÐHOLTSVÖLLUR
ÍR-lA.4. BokkurB.kl. 20.00.
FELLAVÖLLUR
Leiknir-Í A, 5. flokkur A, kl. 20.00.
Fundir
Sálarrannsóknarfélag
íslands
heldur félagsfund að Hallveigarstöðum við Túngötu
miðvikudaginn 4. júli kl. 20.30.
Fritz Reinhardt verkfræðingur heldur fyrirlestur um
„Mind Programing” og kynnir meðal annars „vatns
leitartækni”. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku en
þýddur jafnóðum.
Herstöðvaandstæðingar
í Kópavogi
Fundur á fimmtudaginn kl. 8.30 i Þinghól við Hamra-
borg. Fundarefni, fjármál og störf framundan. Ás
mundur Ásmundsson, formaður miðnefndar, kemur á
fundinn. Önnur mál 21. ágúst.
24. ársþing Lionshreyfing-
arinnar á íslandi var haldið á
Akureyri dagana 8. og 9. júni
1979
Var það fjölmennasta Lionsþing á lslandi, sem haldið
hefur verið, en það sóttu tæplega 300 Lionsfélagar
hvaðanæva af landinu auk gesta og eiginkvenna þing
fulltrúa. Lokahófið, sem haldið var í Sjálfstæðishúsinu
að þinginu loknu, sóttu um 500 manns.
Island, sem er Lionsumdæmi 109 í alþjóðasambandi
Lionsklúbba, skiptist i tvö umdæmi, 109 A og 109 B.
Eru 77 starfandi klúbbar í landinu með tæplega 3000
félaga og er ísland „þéttbýlasta” Lionsland i heimi.
Á þinginu voru mættir fulltrúar Lionshreyfinganna
frá Danmörku, Noregi, Svíþjóðog Finnlandi og færðu
islenzkum Lionsbræðrum gjafir og árnaðaróskir.
Fjölumdæmisritari var kjörinn Gissur K. Vilhjálms-
son, Hafnarfirði og fjölumdæmisgjaldkeri Björgvin
Schram, Reykjavik.
Varaumdæmisstjórar voru kosnir Eirikur Alexanders-
son, Grindavík i 109 A og Aðalsteinn Jónsson,
Akureyri í 109 B.
Lionsklúbbarnir á Akureyri önnuðust þinghaldið og
var Hörður Svanbergsson framkvæmdastjóri undir-
búningsnefndar. Var þingið hið ánægjulegasta i alla
staði og bar vaxandi styrk Lionshreyfingarinnar á
tslandi gott vitni.
Félag einstæðra foreldra
Skrifstofan verður lokuð mánuðina júlí og ágúst
vegna sumarleyfa.
Aðalfundur
Amnesty International
Aðalfundur lslandsdeildar Amnesty International
fyrir árið 1979 var haldinn 12. júní sl.
Á vegum deildarinnar starfa nú fjórir starfshópar.
Tveir hópar beita sér fyrst og fremst fyrir frelsi svo-
nefndra samvizkufanga, þ.e. manna, sem fangelsaðir
hafa verið fýrir stjórnmála- eða trúarskoðanir sínar,
eða vegna kynþáttar, kynferðis, þjóðernis eða.tungu
sinnar. Hafa hóparnir á liðnu starfsári unnið fyrir
slíka fanga i Sovétrikjunum, Taiwan, Rhodesiu,
Argentinu, Júgóslaviu og Malasiu. Þrir þeirra voru
látnir lausir á árinu, einn i Sovétríkjunum og tveir i
Rhodesiu, en annar þeirra hefur nú verið handtekinn1
á ný. Þriðji hópurinn hefur unnið að svonefndum'
skyndiaðgerðum, þ.e. þátttöku i samræmdum alþjóð-
legum bréfaskriftum vegna 130 fanga i ýmsum
löndum. Fjórði hópurinn hefur unnið að bréfa-
skriftum og öðrum aögerðum vegna mannréttinda-
brota i tilteknum löndum, Rúmeniu, Eþiópiu, Argen-
tínu og Taiwan.
Stjórn Islandsdeildar Amnesty International skipa nú:
Margrét R. Bjarnason, formaður, Sigurður Magnús-
son, varaformaður, Erika Urbancic, ritari, Friðrik Páll
Jónsson, gjaldkeri og Anna Atladóttir, skjalavörður.
Formenn starfshópa eru: Bergljót Guðmundsdóttir,
Linda Jóhannesson og Þórir Ibsen.
Starf framkvæmdastjóra aðalbækistöðva samtakanna
i Lundúnum verður nú laust til umsóknar en núver-
andi framkvæmdastjóri, Martin Ennals, lætur af
störfum á miðju næsta ári. Starfið hefur verið auglýst i
öllum landsdeildum og nokkrum útbreiddustu dag-
blöðum heimsins, en gert er ráð fyrir að umsóknum sé
skilað til aðalskrifstofu Amnesty lnternational i
Lundúnum fyrir 1. júii. Framkvæmdastjóri aðal-
stöðvanna er helzti fulltrúi Amnesty International i
samskiptum við ríkisstjórnir og alþjóðasamtök og
vegna eðlis samtakanna og þeirrar áherzlu sem þau
leggja á pólitiskt hlutieysi og jafnvægi. koma um
sækjendur frá smáþjóðum ekkert siður til greina i
starfiðen umsækjendur frá hinum stærri þjóðum.
Félag farstöðvaeigenda
FR deild 4 Reykjavik FR 5000 — simi 34200. Skrif-
stofa félagsins að Siöumúla 22 er opin alla daga frá kl.
17.00—19.00, að auki frá kl. 20.00—22.00 á fimmtu-
dagskvöldum.
—............. ii. ■
Sýning í
Gallerí Suðurgötu 7
Hannes Lárusson opnaði myndlistarsýningu í galleri
Suðurgötu 7 þann 29. júní.
Hann hefur stundað nám við Myndlista- og Handiða
skóla Islands og um tveggja ára skeið við The Emily
Carr College of Art, Vancouver, Canada. Einnig
hefur hann staðið að rekstri Galleri frá stofnun þess.
Þetta er önnur einkasýning Hannesar en hann hefur
jafnframt tekið þátt í nokkrum samsýningum.
Flest verkanna á þessari sýningu eru unnin á síðast-
liðnum tveimur áritm. Hannes notar ýmsar aðferðir
við myndgerð sína, þ.á.m. Ijósmyndir, grafík, og texta.
Sýningin stendur til 10. júlí og verður opin frá kl. 4 til
10 á virkum dögum, en milli kl. 2 og 10 um helgar.
Gengið
GENGISSKRÁNING
Nr. 122 — 3. júlí 1979
Ferðamanna-
gjaldeyrir
Eining KL 12.00 Kaup Sala Kaup Sala
1 Bandarfkjadollar 345,10 345,90* 379,61 380,49*
1 StaHlnopund 757,10 758,90* 832,81 834,79*
1 KanadadoNar 295,10 295,80* 324,61 325,38*
100 Danskar krónur 648U5 6496,36* 7129,49 7145,99*
100 Norskar krónur 6804,70 6820,50* 7485,17 7502,55*
100 Saanskar krónur 8090,45 8109,25* 8899,50 8920,18*
100 Finnsk mörfc 8880,90 8901,50 9768,99 9791,65
100 Franskir frankar 8059,30 8078,00* 8865,23 8885,80*
100 Belg.frankar 1167,45 1170,15* 1284,20 1287,17*
100 Svtosn. frankar 20784,75 20832,95* 22863,23 22918,26*
100 GyRlni 16989,95 17029,35* 18688,95 18732^9*
100 V-Þýzk mörfc 18701,05 18744,45* 20171,16 20618,90*
100 Lírur 41,52 41,62 45,67 45,78
100 Austunr. Sch. 2545,95 2551,85* 2800,55 2807,04*
100 Escudos 704,30 705,90 774,73 776,49
100 Posetar 521,45 522,65 573,80 574,92
.100 Yen 157,71 158 J)7* 173,48 173,88*
1 Sérstök dréttarróttindi 446,62 447,66 49U8 492,43
•Broyting fré sfflustu skránkigu.'l
StmsvaH vegna gangbskrénínga 22190^