Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 19.07.1979, Qupperneq 12

Dagblaðið - 19.07.1979, Qupperneq 12
12. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 1979. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ1979. idHn ÚTIMÓTIÐ HEFST í KVÖLD Haukar og Valur leika f m.f I. karla Okkur varð heldur belur á í messunni hér á íþróttasíðunni fyrir réttri viku er við auglýstum þá að íslandsmótið i handknattleik utanhúss væri að hefjast þá um kvöldið. Þetta' var alrangt og það er i kvöld, sem utan- hússmótið hefst við Lækjarskólann i Hafnarfirði. FH sér um mótið að þessu sinni. Mótið hefst með setningarathöfn kl. 18.45 og mun þá formaður HSÍ, Júlíus Hafstein, flytja stutt ávarp. Að því loknu hefst fyrsti leikur mótsins og leika þá i meistaraflokki kvenna FH og Þróttur og ætti þar að verða auðveldur FH sigur. Að þeim leik loknum leika karlalið sömu félaga en aðalleikur kvöldsins verður leikur Hauka og Vals í meistara- flokki karla. Haukar unnu utanhúss- bikarinn í fyrsta skipti í sögu félagsins í fyrra og Valsmenn unnu utanhúss 1977. Það er því viðeigandi að þessi tvö lið leiki saman í kvöld. Síðan verður leikið á hverjum degi allt þar til 2. ágúst en þá er leikið um 1.- 4. sætið í mótinu. í meistarafl. karla verður leikið í tveimur riðlum og skýtur þar nokkuð skökku við. Fyrr í sumar auglýsti FH að leikið yrði í tveimur riðlum ef liðin yrðu tíu eða fleiri. Tiu lið tilkynntu þátttöku, þar á meðal Víkingur. Bogdan þjálfari Víkings vill hins vegar ekki að sínir menn taki þátt í þessu móti og verða þeir því ekki með. Þá eru aðeins 9 lið eftir — af hverju tveir riðlar? í sjálfu sér skiptir þetta ekkihöfuð- máli en því að gefa út einhverjar yfir- lýsingar og starfa svo í þversögn við þær. Sömu sögu er að segja um meistaraflokk kvenna, þar eru 9 lið og leikið í tveimur riðlum. Islandsmótið sem hefst í kvöld er hið 32. í röðinni. Gestgjafarnir, FH, hafa langoftast unnið mótið, eða 17 sinnum. Valur hefur unnið 6 sinnum, Ármann þrivegis, Fram tvisvar og Haukar, KR og Víkingur einu sinni hvert félag. í meistaraflokki kvenna hefur verið leikið 38. sinnum og því leikið í 39. sinn í kvöld. Þar hefur Valur 10 sinnum unnið, Fram 7 sinnum, KR sex sinnum, FH fjórum sinnum, Ármann 5 sinnum, ÍBÍ þrívegis, ÍBA, Haukar og Týr einu sinni hvert félag. Valur og Haukar hafa æft vel að undanfömu og ætti leikur þeirra að geta orðið mjög spennandi í kvöld, en hann hefst kl. 21. Þrótturvann Þróttur vann T.B. efsta liðið í 1. deild- inni færeysku 4-2. Mörkin gerðu Halldór Arason 2 Ársæll Kristjánsson 1 Páll Ólafsson 1 Guðmundur Baldursson, markvörður Fram, slær hér frá marki eftir sókn Breiðabliks. Framararnir á myndtnni eru Gunnar Bjarnason (nr. 4.) og Friðrik Emilsson en Blikinn er Sigurður Grétarsson. DB-mynd S. Fram í undanúrslit Framarar tryggðu sér réttinn til að leika í undanúrslitum bikarkeppni KSÍ er þeir lögðu lið Breiðabliks, efsta lið 2. deildar, að velli 3- 1 á Laugardalsvellinum i ágætlega leiknum leik oft á tíðum. í hálfleik var staðan 2-0. Framarar voru ákveönari í byrjun leiksins og það kom dálítið á óvart hversu Blikarnir hikuðu. Á 12. mínútu náðu Hafþór Sveinjónsson knettinum og gaf laglega send- ingu á markteigshornið nær. Þar var fyrir Guðmundur Steinsson sem skallaði mjög laglega aftur fyrir sig í stóran boga yfir slakan markvörð Blikanna, Svein Skúlason, 1-0. Blikarnir komu nú betur inn í myndina og nokkrum sinnum skall hurð nærri hælum við Frammarkið án þess þó að um verulega hættu væri að ræða. Blikarnir virtust vera að ná yfirtökunum þegar Framarar náðu bolt- anum og geystust fram völlinn á 25. minútu. Marteinn Geirsson gaf fyrir markið og skall- aði Gunnar Bjarnason knöttinn áfram til Guðmundar Steinssonar. Guðmundur lét ekki færið renna sér úr greipum, og skoraði örugglega með skalla af örstuttu færi. Hvar var Sveinn markvörður þarna? Á 38. mín. skapaðist mikil hætta við mark UBK eftir að Trausti hafði gefið fasta send- ingu fyrir markið. Sveinn missti boltann klaufalega undir sig en varnarmönnum tókst að bjarga í horn. Þar voru Blikar heppnir að enginn Framari var í nágrenninu. Blikarnir mættu mjög ákveðnir til leiks eftir hlé og voru allan síðari hálfleikinn með undirtökin í leiknum. Á 50. mínútu gaf Hákon mjög góða sendingu fyrir mark Fram Guðmundur Baldursson, markvörður, hélt ekki boltanum en Trausti var á næstu grös- um og bjargaði. Síðan skoruðu Framarar sitt þriðja mark og átti Guðmundur Steinsson allan heiðuraf því marki. Hann lék á tvo Blika úti á vinstri kantin- um, lék síðan aðeins áfram og gaf siðan mjög góða sendingu á Baldvin Elíasson, sem skoraði örugglega í gagnstætt horn án þess að Sveinn gerði hina minnstu tilraun til að verja, 3-0. Menn bjuggust nú við að Fram myndi kafsigla Blikana en það fór á annan jveg. Það voru nefnilega Blikarnir sem náðu tökum á leiknum. Á 60. mínútu skoruðu þeir sitt eina mark. Marteinn missti klaufalega af knettinum á vallarmiðjunni. Stungusending var gefin fram völlinn þar sem þeir voru Sigurður Grétarsson og Sigurður Halldórsson og börðust gegn Gunnari Bjarnasyni. Gunnar hafði betur og ætlaði að senda á markvörð sinn. Sendingin tókst ekki betur til en svo að hann gaf beint í fætur Sigurðar Halldórs- sonar, sem renndi á nafna sinn Grétarsson og hann skoraði örugglega. Á 66. mínútu lék Heiðar Breiðfjörð á þrjá varnarmenn Fram og komst í dauðafæri en gott skot hans fór rétt framhjá markinu. Þar fór gott færi forgörðum. Níu mínútum síðar komst Sigurður Halldórsson inn fyrir vörn Fram og var kom- inn að vítateignum er Trausti brá honum og fékk gult spjald fyrir vikið. Lokakaflann sóttu liðin nokkuð á víxl en Blikarnir voru heldur hættulegri. Sigur Fram komst þó aldrei i verulega hættu í leiknum en ekki hefði þurft mikið til að svo yrði. Þeir Krist- inn Atlason og Rafn Rafnsson léku ekki með Fram í gærkvöldi og í lið Blikanna vantaði Þór Hreiðarsson, en hann kom reyndar inn á síðla leiks. Ágætur dómari var Hreiðar Jóns- son. -SSv. „ÞYÐIR N0KKUD AÐ SETJA MGINNÁ?” — sagði Þorsteinn ÓÍafsson, markvörður ÍBKf við Matthías Hallgrímsson er hann var að hita upp 20 mfn. fyrir leikslok Hilpert Matthíasi inn á fyrir Kristin „Þýðir nokkuð að setja þig inn á, Matti?” sagði Þorsteinn Ólafsson, markvörður ÍBK, í gærkvöld á Akra- nesi við Matthías Hallgrímsson sem var að hita upp fyrir aftan mark Kefl- víkinga um 20 mín. fyrir leikslok. Hann kom siðan inn á þegar rúmar 10 min. voru eftir og það var enginn annar en Matthías, sem skoraði sigurmark Akurnesinga á elleftu stundu. Áhorf- endur voru farnir að búa sig undir jafn- tefli þegar Matthías lék á tvo varnar- menn Keflvikinga á 90. mín. og lyfti siðan knettinum framhjá varnar- mönnum ÍBK á línunni og í markið, 1—0. Örsluttu síðar flautaði dómarinn til leiksloka. Mikil vonbrigði fyrir Kefl- víkinga, sem áttu hættulegri færi í leiknum. Sigur Skagamanna hékk á bláþræði, en var þeim mun sætari i lokin. Um 800 manns voru á vellinum á Akranesi í gærkvöldi þrátt fyrir leiðindaveður, rigningarsudda og gjólu. Heimamenn byrjuðu mun betur og voru ákveðnari fyrstu 20minúturnar án þess þó að skapa sér svo mikið sem eitt marktækifæri. Eftir upphafskaflann jafnaðist leikurinn mjög. og var algert jafnræði með liðunum fram undir ieikhlé. Má með sanni segja að marktækifærin hafi verið teljandi á fingrum annarrar hand- ar i þessum leik. Kefivíkingar komu mjög ákveðnir til leiks i síðari hálfleik — greinilegt var að þeir ætluðu að selja sig dýrt. Þeir voru fljótari á boltann og náðu undir- tökunum. Bezta marí t-7 :færi leiksins fékk Steinar Jóhann«on, sem öllum á óvart lék með Keflavíkarliðinu og stóð sig mjög vel, a hann fékk góða sendingu frá Ölafi Júlíussyni. Steinar var einn á markteig og skallaði að markinu en Jón Þorbjörnsson sá við honum og varði laglega. Var vel að þessu staðið hjá þeim báðum. Kefl- víkingar byggðu mjög upp á stungu- boltum fram miðjuna, en Skagavörnin, með Sigurð Halldórsson í broddi fylkingar, gaf engan höggstað á sér. Þó voru Keflvikingar mjög óheppnir að skora ekki mark á 65 mínútu. Þórður Karlsson átti þá gott skot að marki í A en á leið sinni fór knötturinn i bak Gísla Eyjólfssona og það bjargaði Skagamönnum. Steinar var vörn Skagamanna erfiður í leiknum og einkum fór hann illa með gæzlumann sinn, Guðjón Þórðarson. Stakk hann Guðjón marg- sinnis af og eftir eina slíka meðferð -komst hann í gott færi en skaut í Ihliðarnetið á72. mín. Á 78. mínútu skipti Klaus Júrgen Björnsson og hann hleypti miklu lífi í framlínu Skagamanna og Matthías skapar alltaf hættu. Sveinbjörn Há- konarson átti lúmskt skot rétt yfir á mín. og var það eina færi Skagamanna allan leikinn utan marksins. Af Akurnesingum var Sigurður Halldórsson beztur ásamt Jóhannesi Guðjónssyni. Þá var Matthías hættulegur í lokin. Sveinbjörn var sprækari en i undanförnum leikjum og Jón Alfreðsson stóð fyrir sínu að vanda. Hjá ÍBK vöktu þeir Sigurður Björg- vinsson og Sigurbjörn Gústafsson mesta athygli og vor.u þeir mjög sterkir á miðjunni. Steinar var hættulegur frammi og gerði margsinnis usla í vörn Skagamanna. Keflvíkingar áttu sizt minna í leiknum og vonbrigði þeirra hljóta að hafa verið mikil í lokin. -KP. Cosmos ívandræðum Allt gengur nú á afturfótunum fyrir Bandaríkjameisturunum í knattspyrnu, New York Cosmos. Um sl. helgi tapaði liðið öðrum leik sínum i röð en heldur þó enn forystunni í sinni deild. Frans Beckenbauer, sem hefur verið meiddur síðan í apríl, lék að nýju með Cosmos og það var eini ljósi punkturinn í leikn- um frá sjónarhóii Cosmos séð. Þeir töpuðu fyrir Vancouver Whitecaps 2—4 og aðalmarkaskorari liðsins, Giorgio Chinaglia, var rekinn af leikvelli fyrir slagsmál ásamt þremur öðrum. Willie Johnston úr Vancouver Whitecaps, en hann lék áður með WBA, hóf slagsmálin eins og honum einum er lagið og innan skamms var allt logandi í slagsmálum. Fram- kvæmdastjórar, varamenn og þjálfarar ásamt áhorfendum tóku þátt í látunum og þeim lauk með því að tveimur úr hvoru liði var vikið af leikvelli. Johnston og Craven úr Whitecaps og Chinaglia og Eskandrian úr Cosmos. Af öðrum liðum er það að segja að Minnesota Kicks eru i banaformi þessar vikurnar og hafa unnið 7 leiki í röð og þurfa 23 stig til viðbótar til að tryggja sér sæti í úrsUtakeppninni. í USA fá liðin 6 stig fyrir sigur og 1 stig fyrir hvert mark upp að þremur. Það er þvi hægt að fá 9 stig fyrir sigur í leik og ennfremur 3 stig, þótt liðið tapi. Jafn- tefU er ekki til hjá Bandaríkjamönnum. LAUGARDALSVÖLLUR í KVÖLD KL. 20 Bikarkeppni K.S.Í. — átta liða úrslit. KR — Valur Komið og sjáið skemmtilegan leik. Óþekktur kylfingur í efsta sæti f British Open Óþekktur brezkur kylfingur, Bill Longmuir, er efstur á opna brezka meistaramótinu i golfi — British Open — eftir fyrsta dag keppninnar með 65 högg — 6 undir pari. Hann hefur þrjú högg í for- skot á næsta mann, sem er Hale Irwin frá USA. Mjög slæmt veður var í gær í Lytham St. Annes — stólpa- rok og fremur kalt og það gerði hinn 6.200 metra ° langa völl að algerri „martröð kylfingsins”. Vind- hraðinn jókst stöðugt er á leið daginn og undir lok keppninnar var komið hifandi rok. Það sýndi sig líka að aðeins þrir menn léku undir pari. Þriðji kylfingurinn sem lék undir pari var Gerry Pate, en hann lék á 69 höggum. Jupaninn Isako Aoki var á 70. Margir frægir kappar urðu að láta i minni pok- ann fyrir vindinum og á meðal þeirra var „gull- björninn” Jack Nicklaus. Hann lék á 72 höggum í gær þrátt fyrir að fara holu í höggi á 5. braut. Sú braut er um 200 metra löng þannig að kappinn er enginn auli. Margir frægir kappar náðu afleitum árangri í rokinu í gær. Peter Oosterhuis lék á 75 höggum og það gerði Simon Owne einnig. Johnny Miller var á 77, Tom Weiskopf á 79, Hubert Green var á 77 og meistarinn frá í fyrra á þessu móti, Andy North, lék á 82 höggum! Meðal þeirra sem voru rétt ofan við parið eða á því má nefna Lee Trevino (71), Jack Nicklaus (72), Ben Crenshaw (72), Tom Watson (72), Tom Kite (73), Tony Jacklin (73), Severiano Ballesteros (73), Nick Faldo (74) og Sandy Lyle (74). Meðal annarra var Manuel Ballesteros á 74 höggum, en ekki vitum við hvort hann er bróðir Severiano. Vorum að fá nokkra SAAB 99 G.L. 1979 bíla, 2ja dyra í„Alabaster“-lit. Önnur sending væntanleg fljótlega, en viljirðu SAAB — STRAX þá gildir að hringja v eða koma núna. Sýningarbíll á staðnum TOGGURHF. SAAB UMBODIÐ BÍLDSHÓFÐA 16 — SIMI 81530

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.