Dagblaðið - 25.08.1979, Side 3
DAGBLADIÐ. LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 1979.
3
SIGRÚN ER MIKIL-
Spurning
HÆFUR STJÓRNANDI
Markús B. Þorgeirsson, Hafnarfirði,
skrifar:
Einar Jónsson, Hraunbæ 182,
skrifar í Dagblaðið miðvikudaginn
22. ágúst. Hann gerir þar að umtals-
efni umræðuþátt um Jan Mayen.
Hann ræðst þar á stjórnandann, Sig-
rúnu Stefánsdóttur, á þann hátt, að
ég1mig tilneyddan að taka upp
hanzkann fyrir stjórnandann. Sigrún
Stefánsdóttir er að mínu mati mikil-
hæfur stjórnandi slikra þátta og
gefur ekkert eftir oft á tíðum Ólafi
Ragnari Grímssyni, er hann stjórnaði
umræðuþáttum í sjónvarpinu á
sínum tíma og vakti landsathygli.
Það er sama hvar Ólafur Ragnar
Grímsson fer hverju sinni. Orð hans
og gerðir vekja landsathygli. Sigrún
er beinskeytt í spurningum ul aðila.
Hún á líka að vera það, svo þessi
þáttur nái tilgangi sínum. Hún á
ekki að svara. Ég hef frá öndverðu
hlustað á Kastljósþættina flesta, og
ég held að enginn einn þátttakandi
þeirra eigi þar fleiri mínútur til svara
en Geir Hallgrímsson fv. forsætisráð-
herra. Um hina hófsamlegu fram-
komu Kjartans Jóhannssonar sjávar-
útvegsráðherra má segja í stuttu máli.
Hún er ekki betri músin sem læðist en
sú sem stekkur. Ennfremur er til kín-
verskur málsháttur, sem stendur fyrir
sínu víða i dag. (Heimildarmaður
minn var Eyjólfur Konráð Jónsson,
fv. ritstjóri Morgunblaðsins, nú al-
þingismaður). Byltingin étur börnin
sín.
Svo ódrengileg var framkoma al-
þýðuflokksmanna i Reykjaneskjör-
dæmi gagnvart Jóni Ármanni Héð-
inssyni fv. alþingismanni á sínum
tíma, að kínverski málshátturinn á
eftir að sannast á byltingarmönnum
jafnréttis- og bræðralagshugsjónar-
innar i Reykjaneskjördæmi. Það er
maður með mér, hann sér lengra en
þú og ég. Því þótt Kjartan sé greindur
og enginn frýi honum vits, þá vantar
hann æðimikið í þekkingu sína í sjáv-
arútvegsmálum. Þar hefur hann
aðeins þá lífsreynslu að hafa ferðast
með skipum sem túristi eða hafa,
tekið myndir af skipum, þegar þau
eru að fara frá heimahöfn eða koma í
höfn. Hins vegar hefði ég haft meiri
trú á Kjartani Jóhannssyni sem heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra en
í því hlutverki sem hann gegnir nú í
dag, vegna frammistöðu hans sem
formanns útgerðarráðs Bæjarútgerð-
ar Hafnarfjarðar ásínum tíma.
Nú að lokum þetta. Sigrún Stef-
ánsdóttir er að mínu mati frábær
fréttamaður. Ólafur Ragnar Gríms-
son er persónuleiki, sem vekur at-
hygli hvar sem hann kemur og fer.
Umdeildur að vísu en á réttri leið.
Austfjarðagoðinn, Lúðvík Jóseps-
son, hann stendur fyrir sínu hverju
sinni. Hann þarf því ekkert að óttast,
þó skotið sé á hann einu og einu feil-
skoti af aðilum úr Árbæjarhverfinu.
Ég beini svo að lokum til Kjartans
Jóhannssonar ráðherra orðum sem
Jón heitinn Baldvinsson fv. alþingis-
maður sagði á fundi í Sjómannafé-
lagi Reykjavíkur, sem haldinn var í
Báruhúsinu gamla. Vökulögin voru
þar til umræðu, þetta var árið 1921.
Þá lá fyrir Alþingi frumvarp til laga
um 6 tíma hvíld togarasjómönnum
til handa. Þá sagði Jón: „Svo lengi
sem íhaldið skammar okkur þá er
Alþýðuflokkurinn á réttri leið.” Því
er það ekki góðs viti, þegar Geir
Hallgrímsson fer að hæla þér,
Kjartan Jóhannsson sjávarútvegs-
ráðherra.
DB-mynd: Árni Páll.
Eiga oliufélögin hlutabréf I Svavari?
Eiga olíufélög-
in Svavar?
Hafnfirðingur hringdi:
Ég vil bera fram þá fyrirspurn til
Svavars Gestssonar viðskipta-
ráðherra, hvort hann sé búinn að
gleyma öUum stóryrðum sínum í garð
olíufélaganna. í sjónvarpsþætti
sagðist hann m.a. -ætla að gera
einhver ósköp til aðsparaí dreifingar-
kerfi oiiuvara. Svo þegar oliufélögin
hóta stöðvun dreifingar, þá þegir
Svavar og gerir ekkert. Fólk spyr því
eðlilega: Er Svavar orðinn eign
olíufélaganna?
„Sigrún gaf Olafi Ragnari ekkert undir fótinn með að tala meira en aðrir”
Sigrún er sjarm-
erandi og röggsöm
3108—1076hringdi: en aðrir. Heldur fór milliveginn og
Það er hreinn dónaskapur að skíta gaf öllum jafnt tækifæri til að segja
Sigrúnu Stefánsdóttur fréttamann út sinar skoðanir. Ég er mjög ánægður
fyrirstjómKastljóssþáttarinsum Jan með Sigrúnu í sjónvarpinu. Hún er
Mayen. Hún gaf Ólafi Ragnari sjarmerandi og röggsöm.
ekkert undir fótinn með að tala meira
Að vera flott f
skattskránni
og lata aætla a sig tugmilljona tekjur til að
losna við óþægilegar athugasemdir
Skattborgari hringdi:
Mig langar að benda ykkur á, að
þegar þið tókuð út úr skattskránni
nokkur nöfn bílasala, þá varð ykkur
á í messunni.
Blaðið dró það út úr, að bílasalarn-
ir í Braut væru hæstu skattgreiðend-
urnir í þeim hópi með liðlega niu
milljónir á mann, ef ég man það rétt.
Það þarf ekki mikla skattspekinga
til að sjá, að auðvitað létu báðir
áætla á sig — talan sem gengið er út
frá er um 20milljónir.
Það leika þetta sumir. Eitt árið
voru nokkrir kraftaverkamenn fram-
sóknar og Vængja nánast skattlausir.
Það vakti ýmsar spurningar. Þessir
sömu menn svöruðu þeim árið eftir,
þegar þeim var ætlað að borga mynd-
arleg gjöld til ríkisins samkvæmt
skattskrá. Það var bara ekkert að
marka skattskrána — því þeir forð-
uðust meira umtal með því að skila
einfaldlega ekki framtalinu!
Greenpeacemenn:
Úrkynjaðir Bretar?
„Greenpeace á sér engan tilgang.” Myndin er tekin um borð I skipi samtakanna,
Rainbow Warrior.
Guömundur hringdi: stórþjóðir sem stunda hvalveiðar, en
Mig langar til að skamma taka íslendinga í gegn af því þeir eru
Greenpeacesamtökin. Þau hafa eng- fáir og smáir. Það eru örugglega úr-
an tilgang og allra sizt hvalfriðun. kynjaðir Bretar sem að samtökunum
Þau treysta sér ekki til að ráðast á standa.
Ætlar þú að sjá
vörusýninguna í
Laugardalshöllinni?
Hrannar Baldvinsson blaðsölustrákur:
Kannski, ég veit það nú ekkí ennþá.
Mig langar að fara og ef mamma og
pabbi fara þá fer ég með þeim.
Haraldur Blöndal prentari: Það veit
ég ekki, ég er ekki búinn að ákveða
það ennþá. Ég ætla bara að sjá til.
Ragnar Haraldsson verzlunarmaður:
Ég hugsa það. Ég sá sýninguna þegar
hún var síðast og hún var þá að mörgu
leyti góð.
Hafdis Birna Baldursdóttir, 9 ára: Já,-
ég er alveg ákveðin í því. Mamma ætlar
að farameðmig.
Þorbjörg Pálsdóttir húsmóðir: Ég veit
ekki. Ég hef áhuga á að fara, ég sá sýn-
inguna síðast.
Linda Birgisdóttir: Ég veit það ekki,
mig langar að sjá hana svo það getur
vel verið. Ég hef aldrei farið á slíka sýn:
ingu.