Dagblaðið - 25.08.1979, Síða 9

Dagblaðið - 25.08.1979, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 1979. 9 Ungur Reykvíkingur eftir að hafa barízt við skæruiiða í Ródesíu í4 ár: Ægilegast var að svífa í fallhlíf niður í myrkríð, kúlnahríðina og óvissuna — sama hvar ég berst gegn yf irgangi kommúnista heima og fékk atvinnuleyfi sem þjónn í Ródesíu, með varanlega land- vist í huga. Að hálfu ári liðnu innrit- aði hann sig í herinn þar sem honum þótti sýnt að hann yrði hvort sem er kallaður í hann og gerði 3 ára samn- ing um herþjónustu. Að henni lok- inni hélt hann áfram í rúmt ár, en er nú hættur og dvelur hérlendis til hvíldar. ,,Ég fann ekki fyrr en ég kom hingað í vor og fór að slappa af, hversu hvíldarþurfi ég var orðinn,” sagði hann. „Það er geysilegt andlegt og líkamlegt álag að lenda í bardög- um, jafnvel svo dögum skiptir, á ókunnum slóðum.” Umhverfíð f ramandi „Umhverfið er allt mjög framandi við n-austur landamærin, þar sem ég var aðallega. Þar eru holt og hæðir, líkt og hér, en mjög grýtt, hátt gras sem er illt yfirferðar og lágt kjarr. Engir skógar( eins og íslendingar imynda sér. Hitinn kemst niður undir frostmark, þegar kaldast er, sem er í júlí og ágúst, en algengur daghiti er upp undir 40stig. Betra að berjast með svertingjum Yfirleitt var betra að berjast með svertingjum í Ródesíuher. Þeir þekktu landið eins og lófana á sér. Þeir voru yfirleitt mun harðari eða grimmari en hvítu hermennirnir. Kann það að stafa af því að stundum komum við til þorpa, þar sem skæru- liðar höfðu t.d. smalað öllum íbúum inn í einn kofa, brennt hann svo með öllum í eða skotið fólkið niður. i þeirra hópi voru skyldmenni her- mannanna. Þegar ég byrjaði í hern- um gátu svertingjar sáralítið unnið sig upp en það er nú gjörbreytt þar eins og á fleiri sviðum. Almennt held ég að staða blökkumanna í Ródesíu sé betri en í flestum öðrum Afríku- rikjum, a.m.k. þeim, sem ég hef komið til.” Tvöfaldur dauðadómur „Skæruliðarnir myrða fólk um- svifalaust ef það hefur aðstoðað stjómarherinn eða þá grunar það um slíkt. Dauðarefsing liggur einnig við ef fólk verður uppvíst að aðstoð við skæmliða. Við höfum aldrei af mála- lokum slíkra mála að segja, því kæmist slikt upp var haldinn réttur og var málið þar með úr okkar hönd- um. Nú er farið að girða þorpin af og hafa þar varðmenn, sem torveldar skæruliðum mjög starfsemi sína. Þeir koma nefnilega matarlausir inn í landið frá búðum sínum í Zambíu og Mosambik til skyndiárása og treysta á að gera vistir óbreyttra borgara upptækar sér til viðurværis. Berjumst eins og skæruliðar „Við áðurnefndar aðstæður verð- um við að berjasi eins og skærulið- arnir sjálfir, ekki dugir að beita skipulögðum hernaði gegn þeim. Eitt af herbrögðum þeirra er að koma fyrir jarðsprengjum í moldartroðn- ingum þar sem von er á bílum okkar um. Þegar sprengjurnar springa stöðvast lestin og þeir hefja skothríð. Maður stekkur út úr bílunum og byrjar að skjóta. Reyni maður að leita skjóls við vegkantinn, er eins lik- legt að þar séu raðtengdar sprengjur, sept þeir setja af stað. Eftir villta skothríð af beggja hálfusvosemí mínútu, leggja þeir á fléjtta og eftir- förin er hafin fótgangandi. Alltaf í eldlínunni „Norð-austurhéruðin eru aðal eld- linan í bardögunum og hef ég aðal- lega verið þar. Skæruliðarnir eru þjálfaðir í Zambíu og Mósambik og koma þar yfir landamærin til árása. í einni heiftarlegri slíkri árás féllu 13 af tæplega 40 manna hópi sem ég var í. í slíkum bardögum kemur einnig fyrir að menn brotni saman andlega. Til þess að bæta okkur upp álagið njót- um við mikilla friðinda í leyfum okk- ar frá bardögum.” Berst fyrir málstað en ekki skotgleði „Þar sem ég hef alltaf verið mót- fallinn yfirgangi kommúnista er mér alveg eðlilegt að berjast gegn þeim í Ródesíu, þótt ég sé íslendingur. Af ferðum mínum um slóðir skæruliða er mér fullljóst að þeir standa undir stríðsrekstri skæruliða. Þar eru að verki bæði Kúbumenn og Sovét- menn, sem ekki taka beinan þátt í f Lík skæruliða umhverfis rúss- neskan bryndreka eftir árás Ródesíuhers á skæruliðabúð- ir. átökum, en skipuleggja þau og þjálfa skæruliðana. Hergögn skæruliða eru líka rússnesk og kínversk. Annars er ótrúlegt hvað víða við höfum fundið hluti í þeirra fórum, svo sem matvaéli og lyf, hvort sem þeim hafa borizt þau beint eða með smygli undir fölsku flaggi. M.a. frá Danmörku, Svíþjóð og Vestur-Þýzkalandi. Sumt af matvælum þeirra er ótvírætt ætlað sveltandi almenningi, en ekki til að efla skæruhernað. Hélt að mér yrði sparkað til baka „Satt að segja kveið ég fyrir að koma hingað heim í sumar, það hafði frétzt af mér úti og ég hélt að fólk skildi ekki hvað gengi þarna á. En sem betur fer hefur sú ekki orðið raunin og ég hef hvilt mig vel á ferða- lögum um landið. Ekki vildi ég skipta á íslandi og Ródesíu þótt margt gott sé um Ródesíu að segja, hún væri dýrðleg ef þar ríkti friður. En þvi miður óttast ég að hann sé ekki í sjónmáli. Ég álít að séra Sitole hefði orðið vænlegasti leiðtogi blökkumanna af þeim, sem völ var á, en hann féll í þessum ómerku kosn- ingum. Svo er yfirvofandi að Rússar .og Kúbumenn taki beinan þátt í hem- aði skæruliða á hverri stundu og þá ná þeir landinu á nokkrum mánuð- um. Eins og að fara á eftirlaun Haraldur er óráðinn í hvort hann sezt hér að og einnig hefur hann ekki gert upp hug sinn gagnvart atvinnu- grein hér. Kunningi hans, sem hann barðist með í Ródesíu og býr nú á Nýja-Sjálandi, leggur hart að honum að koma í herinn þar. Sá her á ekki I neinum átökum: „Hálfvegis finnst mér eins og það væri að fara á eftir- laun eftir það sem á hefur gengið,” segir Haraldur og heldur áfram að sleikja sólina á Lækjartorgi. - GS * „Það verður eins og að fara á eftirlaun að ganga í her, sem ekki á í átökum.” DB-mynd Bj.Bj. Vegna alþjóðlegu vömsýningarinnar 5% aukaafsláttur eða 15% staðgreiðsluafsláttur af gullfallegum sófaborðum og homborðum. Víðartegundir: Palesander og dökkbæsuð eik. AÐEINS Á MEÐAN Á SÝNINGUNNISTENDUR ögn ÁRMÚLA44-SÍMI32035

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.