Dagblaðið - 27.08.1979, Síða 5

Dagblaðið - 27.08.1979, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 1979. Noregur: Kosningamar kaffæra Jan Mayen- deiluna Jan Mayen deila Norðmanna og íslendinga er nú alveg horfin af síðum norsku dagblaðanna, enda aðeins mán- uður til kosninga þar í landi. Blöðin eru full af kosningafréttum og þessi deila veldur ekki ágreiningi meðal norskra stjórnmálaflokka. Þær fréttir sem komust í hámæli í Noregi, um meiri háttar loðnuveiðar Færeyinga og fleiri við Jan Mayen, virðast allar úr lausu lofti gripnar, þegar betur er að gáð. Eru þær upp- runnar frá þeim stöðum sem norsku bátarnir hafa landað á, enginn sérstak- ur borinn fyrir þeim og virðast því græskufullt gaman norskra loðnusjó- manna. Þeir eru nú farnir að veiða loðnu í Barentshafi, en þar er afli enn tregur. - SJ, Osló / GS Helgi P. Bríem fyrrum sendiherra: Röng aðferð við mót- mælin við Norðmenn Helgi P. Briem fyrrum sendiherra gagnrýnir þá aðferð sem notuð var þegar rikisstjórn íslands mótmælti við sendifulltrúa Norðmanna hér, að norska stjórnin frestaði veiðibanni á loðnu við Jan Mayen. „Það sjá allir að sú aðferð að af- henda sendiherra erlends ríkis mótmæli er röng, enda hefur hann engaskyldu til að koma þeim á fram- færi og hefur fullan rétt til að senda hana með venjulegum stjórnar- pósti,” segir Helgi. ,,Er hún kemur í utanríkisráðu- neyti erlendis er alveg óvíst að hún komi fyrir augu réttra aðila ...” Helgi segir að sé um stórmál að ræða sé það venja að sendiherra beri fram mótmæli við utanríkisráðherra hins erlenda ríkis en á samri stundu af- hendi utanrikisráðherra heimalands erlendum sendiherra orðsendingu um málið, til áherzlu. ,,Ég hefði ekki farið að gera þetta að blaðamáli, nema af þvi svo stóð á, að svipað gerðist í öðru -landhelgisstríðinu,” segir Helgi P. Briem. ,,Ég var þá scndiherra í Þýzkalandi, en í stað þess að ég ræddi málin við utanríkis- ráðið þar, kallaði utanríkisráðherra fyrir sig sendiherra Þýzkalands til að koma málstað íslands á framfæri. Þar sem þeir töluðu ekki sama mál, varð málflutningurinn undarlegur og ekki okkur til sóma, enda taldi sendi- herrann sér ekki koma málið við. Skrifaði ég ráðuneytinu því þá um rétta málsmeðferð. Nú mun ráðu- neytisstjórinn erlendis og hefur þvi sótt í sama horf . . .” -HH PYLSUAT ÍSLENDINGA ALDRQ MEIRA EN NÚ — suðrænar sauðfjárgamir fluttarinn tilað brúabiliðframað haustslátrun ,,Við urðum að kaupa erlendar garnir til þess að fleyta pylsugerðinni fram undir slátrun,” sagði Vigfús Tómasson, sölumaður hjá Sláturfélagi Suðurlands, í viðtali við DB. Hann kvað þetta vera í fyrsta skipti, sem SS hefði þurft að kaupa garnir erlendis frá, eftir þvi sem hann vissi bezt. „Pylsusalan hjá okkur hefur aukizt svo stórkostlega að við urðum að gripa til þessa ráðs,” sagði Vigfús. „Við pylsugerðina er margt fólk í vinnu hjá okkur og við höfum skyldur við við- skiptavini okkar,” sagði hann. „Allar garnir voru búnar og við urðum að grípa til þessa ráðs.” Lesendur DB vöktu athygli á þessu. Fannst þeim sem fréttamaður talaði við að nýlega keyptar pylsur væru seigari en venjulega. ,,Já, þessar garnir eru heldur sterkari og þvt leiðinlegri að því leyti,” sagði Vigfús Tómasson. „íslenzku garnirnar eru þynnri. Við erum vön þeim og þær eru betri.” Þessar erlendu garnir eru keyptar frá Danmörku, en úr sauðfé á suðlægari stöðum. Þar er fóðrið þurrara og þess vegna verða garnirnar sterkari. Þær eru gerlaprófaðar til þess að ganga úr skuggaum 100% hreinlæti. „Þegar gerviefnum fjölgaði töldu menn að þau myndu leysa garnir af hólmi í pylsugerð. Ennþá hefur ekkert komið í þeirra stað,” sagði Vigfús. „Við keyptum eins lítið og við þorðum en þó vonandi nóg til að mæta þessu stóra stökki í pylsuneyzlunni.” - BS Munið glæsilegu húsgagnaverzlunina að Skaftahlíð 24 Húsgagnamiðstöðin Skaftahlið 24, Rvík. Simi31633 Lánið semihanka; , stiorarmr raðaenguum Það er IB-lán. - Þú ræður upphæðinni og hvenær hún er til reiðu. Vantar þig 450 þúsund eftir þrjá mánuði? Eða 917 þúsund eftir hálft ár? Meira - minna? Gerðu upp hug þinn og líttu við hjá okkur. Dæmlum valkDSti sem mteiö emnotaöir. Enþeir em maigfelt íleiil. SPARNAÐAR- MÁNAÐARLEG SPARNAÐUR BANKINN RÁÐSTÖFUNAR- MÁNAÐARLEG ENDURGR. TÍMABIL INNBORGUN í LOKTÍMAB. LÁNARÞÉR FÉNIEÐ VÖXTUM ENDURGR. TÍMABIL 3 20.000 60.000 60.000 120.800 20.829 40.000 120.000 120.000 241.600 41.657 IXL&iIT. 75.000 225.000 225.000 453.375 78.107 man. fi 30.000 180.000 180.000 367.175 32.197 fi 50.000 300.000 300.000 612.125 53.662 V-/ „ nráii. 75.000 450.000 450.000 917.938 80.493 man. BanMþeiim sem hyggja aó framtíöinni Iðnaðarbankinn AóalbanM og útíbú

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.