Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 27.08.1979, Qupperneq 12

Dagblaðið - 27.08.1979, Qupperneq 12
Skálatúnsheimilið í Mosfellssveit vill ráða starfsfólk nú þegar eða frá 1. september. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 66249. Óskum að ráða strax nokkra menn til starfa til frambúðar í verksmiðju okkar. Upplýsingar gefnar á staðnum af verkstjóra. UMBUÐAMIÐSTÖÐIN HF HÉÐINSGÖTU 2. Félagsstof nun Stúdenta Herbergi - íbúðir óskast Félagsstofnun Stúdenta óskar eftir herbergjum og íbúðum fyrir námsfólk við Háskóla íslands. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Félagsstofnunar Stúdenta, sími 16482 næstu daga kl. 10—16. Rakarastofan Klapparstig Sími 12725 Hárgreiðslustofa Klapparstíg Tímapantanir 13010 rSkallinn, -það er staðurinn Otal tegundir af ís. Gamaldags ís, shake og banana-split. Mjólkurís meó súkkulaöi og hnetum. Ummm.... nomoMonc íc U, 'jargötu8, Hraunbæ102 Fykjavíkurvegi 60 Hf. __________DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27, ÁGÚST 1979. MAÐURINN OGLANDK) Um sýningu Alberto Cameiros í Gallerí Suðurgötu 7 Meðan fasistastjórnir voru við lýði í Grikklandi, á Spáni og í Portúgal, fór lítið fyrir nýlistum þai og þeir sem höfðu einhvem metnað í þeim efnum tóku sér búsetu í öðrum lönd- um og biðu átekta. >ó var merkilega mikið að gerast á Spáni sl. 20 ár, en þar voru listamenn látnir í friði svo framarlega sem þeir létu vera að gagnrýna þjóðskipulag og stjórn- málamenn. í Portúgal er nú talsvert mikið að gerast í nýlistum ef marka má tíðindi úr alþjóðlegum listatimaritum og þótt margt af því sé hrein eftiröpun og fálm, þá er annað byggt á grunni portúgalskra hefða og nútímaveru- leika, rétt eins og nýlist á íslandi. Einn af þeim sem beint hefur nýlist inn á athyglisverðar brautir þar í landi er Alberto Carneiro, en nokkur sýnishorn af þankagangi hans hanga nú uppi í Gallerí Suðurgötu 7. Af bændaættum En eins og oft vill verða með sýn- ingar þar fylgja henni engan veginn nægileg gögn til aðstoðar þeim sem vilja komast til botns í þeim hug- myndum og hugmyndatengslum sem listamaðurinn beitir í verkum sínum. Verður sá sem þetta ritar því að setja sig í spámannlegar stellingar og ráða af teiknum þeim sem frammi liggja. Ef skipa ætti Carneiro í flokk mundi hann vera í námunda við hvoru- tveggja, þá sem tjá sig með eigin búki og Ijósmynda niðurstöðurnar og þá sem umbreyta landslagi á ýmsa vegu, þ.e. búk- og láðlist. En þetta segir í raun ekki nóg um áhugamál Carneir- os og úrvinnslu. Sjálfur er hann af bændaættum og þekkir af eigin raun hið nána samband sem myndast milli bóndans og landsins sem hann yrkir og það er sú vitneskja sem m.a. litar verk hans. Náttúran umsköpuð Sýning Carneiros í Suðurgötu 7 hefur að einkunnarorðum eftirfar-' andi texta: „Náttúran umsköpuð í ist á úti í náttúrunni og eru þetta bæði mannanna verk og móður Nátt- úru. Hann ljósmyndar steinvörður, gljúfur, hæðir stallaðar og girtar, gömul verkfæri og jarðvinnslutæki, girðingar o.fl. og við þessar myndir skeytir Carneiro spjöld sömu stærðar. Þau eru dökk og á þeim saman” sérstakt verk til tjáningar á ákveðnum kenndum eða hugsana- mynstri, heldur megi finna í náttúr- unni og samneyti mannsins við hana, ýmiss konar sköpunarverk sem með lögun sinni og innbyrðis gerð geti komið í staðinn fyrir og samsvari hugmyndum listamannsins — og geti Galleri Suðurgata 7 komið því til skila sem honum liggt áhjarta. Alberto Carneiro .iody Ai1 • Art Body 17. agusl - 27.águst 1979 Plakat sýningar Carneiros líkingu okkar og mynd: viö í henni og hún miðpunktur fegurðarskyns okkar” og síðan er henni skipt í tvennt. Á neðri hæð eru fallegar svart/hvítar ljósmyndir af ýmsum fyrirbærum sem Carneiro hefur rek- Nature re^created in our likeness and image: we in it. and it as polariser of our aesthetic feelings. Nátturan umskopuó i likingu okkar og mynd við i henm og hún miðnunktiir fenurrtarskvns nkkar stendur stórum stöfum: ART. Lista- maðurinn virðist því í fljótu bragði vera að segja að það sé ekki nauðsyn fyrir hinn skapandi aðila að „setja Mér sýnist samsetning sýningarinn- ar í Suðurgötu 7 geta stutt þessa skýr- ingu, þvi á efri hæðinni hefur, sam- kvæmt forskrift Carneiros, verið komið fyrir sömu myndum og á þeirri neðri.'en með þeim breytingum að á þær fellur skuggi manns og gerir þær þokukenndar útlits. Mundi þetta ekki undirstrika hve mjög maðurinn túlkar náttúruna í samræmi við eigin tilfmningar og hugsanir, en ekki sem hlutlausa umgjörð utan um tilveru okkar? Nú má svosem segja að með því að gera fallega hlaðinn varða að samnefnara eða holdgervingi (stein- gervingi?) persónulegra listrænna ígrundana, þá sé listamaðurinn að stytta sér leið á ódýran hátt. En má ekki einnig líta þannig á málið að hann sé að fara beinustu leið að upp- sprettu innblástursins? Síðan má spyrja hvað það sé sem Carneiro vilji miðla á þennan hátt og verða þá svör- ia varla óljósari en þau sem venjuleg- ir landslagsmálarar geta gefið. Allt um það má kalla listamanninn einn af rómantíkerum nýlistarinnar og er viðleitni hans ekki allsendis óskyld því sem er að gerast í verkum nokk- urra nýlistarmanna íslenskra. Hann á því nokkurt erindi hingað á norður- hjarann. Myndíis AÐALSTEINN INGÓLFSSON

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.