Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 27.08.1979, Qupperneq 14

Dagblaðið - 27.08.1979, Qupperneq 14
14 DAGBLAÐÍÐ. MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 1979. LeeN^ils Brotnar neglur. stuttar neglur. eru ekkert vandamál lengur Að gera vió brotna nogl, eða lengja stutta nögl, tekur aðeins tiu mínútur. Fæst i snyrtivöruverslunum STEFAN JÓHANNSSON H/F Tryggvagötu6 Sími 27655 Atvinna Verkfræðistofan Hnit hf., Síðumúla 34 R, óskar eftir að ráða stærðfræðideildarstúdent eða nem- anda í verkfræði til starfa við mælingar og önnur skyld verkefni frá 1. sept. nk. Upplýsingar veittar á skrifstofunni og í síma 84755. UMFN FÉLAGSFUNDUR Félagsfundur verður haldinn 30. ágúst nk. í félagsheimilinu Stapa, litla sal kl. 8. Stjómin. ■ray^M ■ lywrlhl OPID KL. 9-9 JUtar tauwytlngar unnar af fag- mðnnum. Na| kltaitoM a.n.k. é kvéldla >mo\UA\ixriR HAFNARSTRÆTI Slmi 12717 Vélhjólasendill Vantar sendil á vélhjóli strax hálfan eða allan daginn. Upp- lýsingar í síma 27022. HMEBIADID m gMmi ÞVERHOLTI II Tiisöiu BMW 316 árg. '78 Renault16TL árg. '76 Renault 12TL árg. '75 Renault 12 station árg. '75 Renault 12 árg. '73 Renault 4 sendibíll árg. '74 Renault 4 sendibíll árg. '76 Renault 4 sendibíll árg. '77 Renault 4 sendibíll (lengri) árg. '77 Renault 4 sendibíll (lengri) árg. '79 Kristinn Guðnason hf. og varahlutaverzlun, Suðurlandsbraut 20, sími 86633. (Dansflokkur JSBhálfsárs: „Við eigum núna hálfs árs starfsaf- mæli og erum mjög ánægð með hvað okkur hefur gengið vel,” sagði Bára Magnúsdóttir danskennari í samtali við DB. Bára er kennari og stjórnandi dansflokks JSB sem sýnt hefur á sunnudagskvöldum á Hótel Sögu i sumar, á meðan Hæfileikakeppni Dagblaðsins og hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar stendur y fir. „Starf dansflokksins byrjaði eftir diskókeppnina í Klúbbnum fyrir hálfu ári. Þásigruðum við í parakeppni, hóp- keppni og unglingakeppni. Siðan hefur starfið þr.óazt og núna erum við farin að hafa nokkuð mikið að gera. Dansarar flokksins eru 11 og hafa æft svo að segja stanzlaust þetta hálfa ár. Þetta er allt fólk sem er í fullri vinnu og leggur siðan dansinn á sig i sjálfboðavinnu. Það sem við fáum fyrir sýningu nægir okkur aðeins til búningakaupa og þess sem þarf að kaupa, en það er mjög dýrt að reka svona dansflokk.” Eins og þeir hafa séð sem horft hafa á sýningar flokksins, er dansflokkur JSB mjög góður og vel æfður hópur. Enda er strangt æft fyrir hverja sýn- ingu. Dansað í sjálf- boðavinnu og eftiispumin eykst stöðugt Eftir stanzlausar æfingar öll kvöld og allar helgar er atríðið sýnt við gffurlegar vin- sældir. Hér er flokkurínn að sýna atríði úr West Side Story á Hótel Sögu. Diskódans. Flokkurinn kemur tvisvar fram á Hótel Sögu á hæfileikakvöldi og alltaf með ný atriði. Blaðamaður fékk að fylgjast með æfingu hjá dansflokknum á laugardag og virðist ekki tekið út með sældinni að æfa slíkt prógramm sem dansflokkur- inn býður upp á. Ellefu dansarar eru í flokknum og eru það Ari Hjörleifsson, Sigríður Guðjohnsen, Sigurður Einarsson, Dagný Þórólfsdóttir, Sigurður Sigurðs- son, Guðbergur Garðarsson, Fanný Gunnlaugsdóttir, Edda Georgsdóttir, Bryndís Bragadóttir, Ómar Aðalsteins- son og Haukur Clausen. Dansflokkurinn hefur sýnt á Hótel Sögu á sunnudagskvöldum í sumar eins og áður er sagt og verður þar fram i september er hæfileikakeppninni lýkur. Einnig hefur flokkurinn sýnt i Tónabæ við góðar undirtektir. Eflaust verður nóg að gera hjá flokknum í vetur því þaðer einmitt skemmtun eins og sýning dansflokks JSB sem fólk vill sjá og skemmtistaðirnir vilja geta boðið upp á. - ELA VEIÐIVON umsjón Gunnar Bender Ékki sama Jón og séra Jón DB-mynd GB. Að fá veiðileyfi í góðri laxveiðiá er erfitt verk. íslendingar ganga ekki lengur fyrir, þeir eru núll. Útlend- ingar eru alls staðar númer eitt. íslendingar eru heppnir að hafa enn- þá nokkrar ár handa sér. Ein af þeim er Leirvogsá. Stangaveiðifélag Reykjavikur hefur ána á leigu. Hver félagsmaður hefur á hverju sumri fengið einn dag i ánni. En sumir í félaginu hafa meiri völd en, aðrir. Frétti umsjónarmaður þáttarins að einn af þessum stærri í félaginu hefði verið við veiðar í ánni. Hann var i tvo daga með sex stengur. Þetta sýnir það bezt, að ekki gengur jafnt yfir alla í þessu félagi. 16 laxar í sama hylnum á klukkutíma Veiðin i Leirvogsá það sem af er hefur verið sæmileg. Komnir eru á land um 330 laxar, sem þó er heldur lélegra en á sama tima í fyrra. Stærsti laxinn sem veiðzt hefur i sumar var 16 pund. Veiddist hann þriðjudaginn 21. ágúst. Aðeins einu sinni áðui hefur veiðzt 16 punda lax þar. Laxinn veiddi Dagur Sigurðsson i Rauð- bergshyl. Þessi hylur er inni í Gljúfrum. Laxinn veiddi Dagur á flugu, en i sumar hafa aðeins veiðzt 3 laxar á flugu. Það bar til tiðinda i sumar að í einum hylnum veiddust 16 laxar á klukkutíma. Það má að lík- indum telja heimsmet. Þessa laxa veiddi Sverrir Kristinsson. „Flotholt" Reykvíkingur einn skrapp fyrir' skömmu í Þorleifslæk. Og þar sem þessi náungi hafði aldrei séð þvílíka á áður ákvað hann að skoða hana nánar. Sér til mikillar furðu sér hann að eitthvað brúnt flýtur hér og þar á ánni. Laxinn stekkur I Elliðaánum fyrír helgina. Hvað getur þetta verið? hugsar maðurinn með sér. Þetta er nú eitt- hvað skrítið. Hvergerðingur einn átti leið fram- hjá fm"V. Reykvikingurinn sér mann- inrl og sp'yr hann hvað þetta sé eigin- lega þarna i ánni. „Þetta eru flotholt,” var svarið. „Jæja, það eru þá margir að veiða!” Veiðivörð strax Stóra-Laxá er án efa einhver hrika- legasta veiðiá landsins. Og þar má fá stóra laxa. Veiðin í ánni í sumar hefur þó ekki verið neitt sérstök. Fyrir nöíkru ,var. ég ,við veiðar á svæði fjögur.^Þdð sem vakfi áthygli mina var að engipn veiðivörður sást við ána. Við svona’stóra á verður að hafa veiðivörð. Þetta er líka mikið öryggisatriði þar sem stórslys gætu hæglega átt sér stað við hana. Gilin við ána eru hættuleg sums staðar. Einrúg gæti hver sem er stolizt til að veiða í ánni. Ég frétti af einum sem náði sér i 35 laxa inni i Gljúfrum í fyrra. Þessu verður SVFR að kippa í lag hið snarasta. Veiðivörður við Stóru-Laxá í Hreppum er nauðsyn. 1007 laxar á land Á laugardaginn voru komnir á land 1007 laxar í Elliðaánum. Stærsti laxinn var 16 pund. Lítið af fiski hefur sézt neðst í ánni enda ekkert skrítið. Laxinn annaðhvort kominn eða hann kemur ekki. Menn reyndu að renna fyrir laxinn þó hann væri ekkert sérstaklega gráðugur, en veiði- veður var ágætt. 3916 laxar eru komnir í gegnum laxateljarann. -gb

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.