Dagblaðið - 27.08.1979, Page 18

Dagblaðið - 27.08.1979, Page 18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST1979. iþróttir______________iþróttir____________________jþrót tir Iþróttir Iþrc Tvöfalt hjá Hólmbert Það var stór dagur hjá Hólmbert Friðjónssyni, þjálfara Fram i gær. Lið hans varð bikarmeistari i úrslitaleikn- um við Val og um kvöldið ól eiginkona hans 13 marka strák. Þau Hólmbert og frú voru nýkomin á sigurhátið Fram í Þórskaffi i gærkvöld, þegar konan veiktist og fór strax á sjúkrahús. Þar gekk allt með hraði — og 13 marka strákur og tilvonandi knattspyrnu- kappi var borinn i heiminn. Þæraustur- þýzku beztar Austur-Þýzkaland sigraði i heims- bikarkeppni kvenna í frjálsum íþróttum í Montreal um helgina. Hlaut 105 stig. Sovétríkin urðu í öðru sæti með 97 stig. Lið Evrópu hlaut 96 stig. Bandaríkin urðu i fjórða sæti með 75 stig. Þá lið Ameriku með 67 stig. í sjötta sæti kom Oceania með 46 stig. Afríka hlaut 29 stig og Asía rak lestina' með 25 stig. Marita Koch, A-Þýzkalandi, sigraði i 400 m hlaupi á 48.97 sek., en átti hins vegar enga möguleika gegn Evelyn Ashford, USA, i 200 metrunum. Þar sigraði bandaríska stúlkan á 21.83 sek. en Koch hljóp á 22.03 sek. Marlies' Göhr, A-Þýzkalandi, á heimsmetið 21.71 sek. í 100 m hlaupinp sigraði Ashford einnig. Hljóp á 11.06 sek., en Göhr varð önnur á 11.17 sek. Þá kom mjög á óvart að Rosemarie Acker- mann, A-Þýzkalandi, varð aðeins í fjórða sæti í hástökki. Stökk 1.87 m. Debbie Brill, Kanada, sigraði með 1.96 og Sara Simeoni, Ítalíu, önnur með 1.94 m. UÍA í2. deild UÍA sigraði með yfirburðum í 3. deild i bikarkeppni FRÍ á laugardag. Keppt var að Breiðabliki á Snæfells- nesi. UÍA hlaut 89 stig, HSH varð í öðru sæti með 69,5 stig. Þá USAH með 60 stig, UDN varð i fjórða sæti með 38.5 stig og USVH hlaut 24 stig. Pétur Pétursson, UÍA, varpaði kúlu 14.35 m.kastaði kringlu 40.45 og spjóti 53.06 m. Þórður Njálsson, USAH, sigraði óvænt i hástökki — stökk 1.85 m. Stefán Friðleifsson, UÍA, varð annar með sömu hæð. Helga Unnarsdóttir setti Austfjarða- met í kringlukasti, kastaði 32,11 og sigraði. Hún sigraði einnig i kúluvarpi með 10.78 m. PáimiíÞór Pálmi Pálmason, landsliðsmaðurinn snjalli úr Fram hér á árum áður, mun leika með Þór á Akureyri i 2. deild á ís- landsmótinu i vetur. Pálmi tilkynnti fé- lagaskipti i Þór á föstudag. Hann hefur um tima verið á Húsavík og lék þar með Völsungi — en einnig með Fram. Léztaf skotsárum Tarig Mohamed Mughal, 25 ára spretthlaupari frá Kenýa, lézt af skot- sárum í Nairobi á laugardag, sex vikum eftir að hann varð fyrir árás á heimili frænda sins, sem lézt i árásinni ásamt tveimur öðrum. Mughal átti bezt 10.2 i 100 m og átti að keppa á ólympfuleik- unum í Montreal. Kenýa hætti þar við þátttöku eins og svo margar Afriku- þjóðir. Þríðji sigur Jonesíröð Alan Jones, Ástraliu, sigraði i hol- lenzka grand-prix kappakstrinum i Zandvoort i gær. Sigraði á 1 klst. 41.19.7. Meðalhraði 196.94 mílur. Jody ScheckterT S-Afríku, varð annar 1:41.41.6. og Jacques Laffite, Frakk- landi, þríðji. Scheckter er stigahæstur með 44 stig, Laffite annar með 36 stig og Alan Jones er nú kominn í þriðja sætið eftir þrjá sigra i röð. Hefur 34 stig. Sigurreifir Framarar hlaupa heiðurshring með bikarinn etnrsotta. Pessa stundina héldu þeir Hafþór Sveinjónsson og Rafn Rafnsson á bikarnum en síðan tóku aðrir leikmenn i VÍTASPYRNA MARTI Marteinn Geirsson skoraði eina mark bikarúrslitaleiksins úr vítaspymu á 8 Viti! Víti! hrópuðu stuðningsmenn Fram og allir leikmenn liðsins og víti var það. Þegar aðeins ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma tókst Guð- mundi Steinssyni, hinum eldsnögga og knáa framherja Fram, að snúa á Magnús Bergs úti í vinstra horninu. Magnús gafst ekki upp og náði Guð- mundi aftur inni í vitateignum. Guð- mundur gerði sér þá Iftið fyrir og lék aftur á Magnús og var þá snarlegá brugðið. Fremur slakur dómari þessa leiks, Þorvarður Björnsson, dæmdi umsvifalaust vítaspymu. Úr henni skoraði Marteinn Geirsson af geysilegu öryggi, 1-0 og Framarar fögn- uðu innilega, sem von var. Nokkru síöar flautaði dómarinn til merkis um að leiknum væri lokið og Framarar þar með bikarmeistarar árið 1979. Það er e.t.v. hart að þurfa að segja það hér, en leikurinn i heildina reis aldrei undir nafni — á það geta leikmenn beggja liða svo og aUir áhorfendur fallizt. Langtímum saman gerðist bókstaflega ekkert markvert og það var eins og leik- menn væru hræddir við að reyna eitt- hvað á eigin spýtur. Leikurinn fór rólega af stað eins og titt er um bikarúrslitaleiki en þessi leikur var frábrugðinn að því leytinu til að sami doðinn hélzt nær ailan leikinn. Á 17. min. náðu Valsmenn einni falleg- ustu sókn leiksins. Hálfdán lyfti mjög skemmtilega yfir þrjá varnarmenn Fram inn í vinstra hornið þar sem Hörður Hilmarsson náði knetdnum. Hörður lék áfram þvert fyrir framan vítateiginn og renndi síðan knettinum til Guðmundar Þorbjörnssonar, sem skaut miklu þrumuskoti rétt yfir þver- slá Frammarksins. Segja má að þetta hafi verið eina hættulega færið framan af leiknum. Upphafskaflinn var slakur en þó reyndu Valsmenn sýnu meir að nota kantana og dreifa spilinu. Vinstri kant- urinn var ekkert notaður hjá Fram, hvernig sem á því stóð, og gerði það Valsmönnum vömina mun auðveldari en ella. Framarar reyndu mjög hásend- ingar inn í vítateiginn en þar var Dýri eins og kóngur í ríki sínu og gaf aldrei höggstað ásér. Eina færi Framara að heitið gat í fyrrj hálfleik var þegar Ásgeir Elíasson renndi knettinum snarlega til Péturs Ormslev sem hafði laumazt á bak við vörn Fram. Skot hans úr erfiðri að- stöðu hafnaði i hh'ðarnednu. Þar með var fyrri hálfleikurinn upptalinn og ekki er hægt að segja að leikmenn hafi hrifið áhorfendur upp úr skónum með frammistöðu sinni- Síðari hálfleikurinn varð mun líflegri enda var annað ekki hægt eftir jafn- slakan fyrri hálfleik. Sævar Jónsson varð að yfirgefa völlinn á 50. mín. vegna meiðsla og kom Vilhjálmur Kjartansson í hans stað og stóð sig prýðilega. Á 55. minútu gaf Rafn Rafnsson lúmska sendingu fyrir mark Vals og Sigurður Haraldsson mátti hafa sig all- an við til jæss að forða frá marki. Mínútu síðar lék Hálfdán laglega upp vinstri kantinn og gaf fyrir en Atli náði ekki nógu vel til knattarins með hausn- um og boltinn þaut af höfði hans og út af. Rétt á eftir fengu Valsmenn auka- spyrnu rétt utan vítateigs. Knettinum var rennt til Magnúsar Bergs en þrumu- fleygur hans hafnaði framhjá markinu. Valsmenn virtust greinilega vera að taka leikinn í sínar hendur og sóttu mun meira og skipulegar en Framarar. Fram átd sínar skyndisóknir en þær voru ekki margar. Á 65. mínútu vildu margir halda fram að knötturinn hefði farið í hönd Marteins Geirssonar innan vítateigs, og er undirritaður á þeirri skoðun, en dómarinn sá enga ástæðu dl að flauta á brotið. Tveimur mín. síðar þrumaði Albert Guðmundsson rétt yfir mark Fram og mark Vals virtist liggja í loft- inu. Á 70. mín. fékk Ólafur Danivalsson ágætt færi en hikaði um of, ædaði síðan að leika á varnarmann, en brást illa bogalistin þar. Skömmu síðar skaut Marteinn yfir Valsmarkið og var þetta fyrsta marksskotdlraun Framara i langan tima, en á 76. minútu fékk Atli Guðmundur Baldursson, marKvórður Fram, greip on mjög skemmtilega inn i leikinn og átti ekki Iftinn þátt í sigri Fram. FÆRDIFRAM BIKAF

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.