Dagblaðið - 27.08.1979, Page 20

Dagblaðið - 27.08.1979, Page 20
20 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. ÁGÚST 1979. I) Iþróttir Iþróttir I Iþróttir Iþróttir Framkvæmdastjórasonurínn skaut Norwich í efsta sætið skoraðibæðimörkiníZ-lsigriyfirLeeds. Liverpool fór í gang með stórgóðum 3-1 sigri yf ir WBA á Anfield uavio jonnson skoraoi rnvegis tynr Liverpooi gegn WBA og hann nerur nu ioks nao að festa sig i aðalliðinu eftir langa baráttu. Meistarar Liverpool fóru heldur belur í gang á laugardag er þeir fengu West Bromwich Albion, liðið sem talið er liklegast til að ógna einokun Liver- pool og Forest, i heimsókn. Liverpool var mun sterkari aðilinn frá upphafi til enda og vann 3-1 eftir að hafa um tíma leitt 3-0. Framlina Liverpool, sem var svo dauf gegn Bolton fyrr i vikunni, fór nú á kostum og tengiliðirnir Ray Kenn- edy, Graeme Souness og Terry McDer- motl notuðu hvert tækifæri til þess að komast í sóknina. Þess á milli mötuðu þeir Dalglish og David Johnson hvað eftir annað með snilldarsendingum. Leikmenn Albion léku alls ekki illa en þeir höfðu einfaldlega ekkert að segja í Liverpool í þessum ham. Cyrille Regis lék ekki með WBA, en það sem gerði gæfumuninn að mati fréttamanna BBC var að Len Cantello er ekki lengur með liðinu. ‘Albion seldi hann til Bolton i sumar. „Miðjan hjá Albion er ekki nógu virk þrátt fyrir að Gary Owen hafi mikla yfirferð. í fyrra var Len Cantello dríffjöðrin í leik liðsins og það vantar mikið þegar hann er ekki lcngur með,” sagði Brian Jones, frétta- þulur BBC. David Johnson skoraði fyrsta mark Liverpool og Terry McDermott bætti öðru við áður en Johnson skoraði sitt annað mark og þriðja fyrir Liverpool. Peter Barnes skoraði eina mark WBA á 63. mín. — fallegt mark — en það dugði skammt og leikmenn Albion voru heppnir að fá ekki á sig fleiri mörk. Tvívegis heimtaði „The Kop” vitaspyrnu er Dalglish var brugðið inn- an vítateigs, en dómarínn lokaði aug- unum. Ray Kennedy þrumaði yfir i dauðafæri og David Johnson klúðraði á ótrúlegan hátt dauðafærí á lokamín- útunni. Albion átti fá færí og sigur Liverpool var sanngjarn. Norwich í efsta sœti Norwich City er nú ofar í stigatöfl- unni en nokkru sinni i sögu félagsins, en vart er við þvi að búast að félagið tolli þarna lengi. John Bond hefur tekizt að gera ótrúlega hluti með þenn- an hóp sem hann hefur i höndunum og á sjðasta keppnistímabili vildu margir útnefna hann „framkvæmdastjóra árs- ins”_fyrir að ná jafnmiklu út úr liðinu ograun barvitni. Það var sonur framkvæmdastjórans, Kevin Bond, sem skoraði bæði mörk Norwich. Fyrra markið kom úr vita- spyrnu, en Paul Hart jafnaði metin fyrir Leeds. Síðara mark Bond var hreinasta perla. Hann fékk þversend- ingu fyrir framan vitateig Leeds, um 40 metra frá marki, og lét þegar í stað skot ríða af. Þetta var „bananabolti” sem skrúfaðist upp í vinkilinn án þess að David Harway i marki Leeds tækist að verja. Nottingham Foresi gefurekkert eftir fremur venju og er nú eins og Norwich með 6 stig að loknum þremur leikjum. Trevor Francis lék ekki með Forest um helgina en það var ekki að sjá að það háði liðinu nokkuð gegn fremur daufu liði Coventry. Gamla kempan John McGovern var á skotskónum og skoraði tvö marka Forest, en þeir John Robertson (viti) og Tony Woodcock skoruðu hin tvö. Eina mark Coventry skoraði ungur nýliði, Tom English. Þetta var hans annað mark í jafnmörg- um leikjum. Áður en lengra er haldið er ekki úr vegi að renna yfir úrslitin. 1. deild Arsenal — Manchester United 0-0 Aston Villa — Bristol City 0-2 Bolton — Southampton 2-1 Derby County — Everton 0-1 Liverpool — West Bromwich 3-1 Manchester City — Brighton 3-2 Middlesbrough—Crystal Palace 1-1 Norwich -rLeeds 2-1 Nottingháfh Förest — Coventry ■ - 4-J. Stoke — Tottenham 3-1 Wolves — Ipswich 3-0 2. deild Bristol Rovers — Shrewsbury 2-1 Burnley — Notts County 0-1 Cambridge — Watford 2-2 Cardiff — Birmingham 1-2 Charlton — Newcastle 1-1 Chelsea — Wrexham 3-1 Luton — Orient 2-1 Preston — Swansea 1-1 QPR — Leicester 1-4 Sunderland—Fulham 2-1 West Ham — Oldham 1 -0 3. deild Barnsley — Reading 2-0 Carlisle—Bury 1-0 Chester — Sheffield Utd. 1-1 Exeter — Mansfield 2-1 Gillingham — Millwall 1-1 Grimsby — Blackpool 4-3 Hull — Oxford 2-2 Rotherham — Colchester 3-0 Sheffield Wed. — Blackburn 0-3 Swindon — Brentford 4-0 Wimbledon — Southend 0-1 4. deild Crewe — Torquay United 2-2 Rochdale — Hartlepool 1 -0 Aldershot — Port Vale 3-1 Boumemouth — Newport 3-2 BradfordC — TranmereRov. 2-0 Hereford — Darlington 1 -0 Huddersfield — Doncaster 3-0 Northampton — Walsall 1 -2 Peterborough — Halifax 2-1 Portsmouth — Scunthorpe 6-1 Stockport—Wigan 1-2 York — Lincoln 0-2 Óvœnt byrjun Úlfanna Úlfarnir beinlínis slátruðu Ipswich — liði sem talið er að muni verða á meðal fimm efstu liða i vor — og mörk- in hefðu hæglega getað orðið 6 eða 7 talsins. Úlfarnir sköpuðu sér fjöldann allan af tækifærum drifnir áfram af stórgóðum leik fyrrum Liverpoolkapp- ans Emlyn Hughes. Willie Carr skoraði loks fyrir Úlfana á 34. mínútu eftir að framherjar liðsins og þá einkum Bill Rafferty hafði farið illa með góð færi. Strax i upphafi síðari hálfleiks — á 53. min. — bætti Peter Daniel öðru marki við og þar með var mesti vindur- inn úr Ipswich. Mel Eves skoraði þriðja markið á 86. mínútu eftir að Úlfarnir höfðu beinlínis tætt í sig vörn Ipswich. Þessi góði árangur Úlfanna í upphafi tímabilsins kemur mjög á óvart en liðinu hafði verið spáð einu af botnsæt- unum. Kaupin á þeim Latchford og Thomas frá Everton eru ekki ennþá gengin í gegn þar sem þeir hafa ekki viljað fara til Úlfanna, en eftir þessa góðu byrjun þeirra er ólíklegt annað en að þeir samþykki söluna. A.m.k. gengur Everton ekki hóti betur þrátt fyrir sigurinn gegn Derby á Baseball Ground. Derby sótti nær látlaust allan leikinn og það var því vægast sagt þvert gegn gangi hans þegar Andy King komst inn fyrir vörnina, tók knöttinn á brjóstið og sendi hann siðan í boga yfir John Middleton í marki Derby. Sigur Everton var afar ósanngjarn og liðið lék langt í frá sannfærandi. En það eru fleiri en Everton i vandræðum jtessa dagana. Fall blasir við Tottenham með slíku áframhaldi Byrjun Tottenham á þessu keppnis- timabili hefur ekki verið beint gæfuleg. Fyrst tap gegn Middlesboro á heima- velli 1-3, þá skellur í Norwich 0-4 og loks tap aftur á laugardag fyrir nýlið- um Stoke 1-3 á Victoria Ground. Vörnin hjá Tottenham er ein alls- herjar flóðgátt hvar sem á hana er litið og kaupin á Terry Yorth hafa greini- lega ekki gert mikið til að þétta varnar- lekann. Stoke hefur ekki ýkja sterku liði á að skipa en nýliðanir fengu næg- an tima til að athafna sig á auðu svæð- unum er mynduðust í vörninni og auð- vitað hlaut Tottenham að bíða ósigur með slikri frammistöðu. Garth Crooks skoraði tvivegis fyrir Stoke og Brendan O’Callaghan einu sinni en eina mark Spurs skoraði Steve Perryman, en þá var Stoke komið í 3-0. Brighton, nýliðar ásamt Stoke og Crystal Palace, virðast eiga langan og erfiðan vetur fyrir höndum. Liðið tapaði sinum þriðja leik i röð, — nú fyrir Manchester City á Maine Road. Ekkert gekk liöinu í hag og 7 mínútum fyrir leikslok brenndi Horton af víta- spyrnu er staðan var 3-2 fyrir City. Nýja stjarnan hjá City, Mick Robin- son, sem félagið keypti frá Preston fyrir 765.000 pund i sumar sællar minn- ing'ar, skoraði tvö markanna i sjón- varpinu á laugardag sáum við að City hefur ágætu liði á að skipa. Mick Channon bætti þriðja marki City við en fyrir Brighton skoruðu þeir Teddy Maybank og Peter Ward. Óvæntur skellur VUIa Bristol City kom heldur betur á óvart með þvi að leggja Aston Villa á Villa Park á laugardag. Kevin Mabbutt kom Bristol yfir á 19. minútu og siðan bætti Tom Ritchie við marki úr vitaspyrnu og fyrsti sigur Bristol á keppnistimabilinu var í höfn. Þeir Andy Gray og John Gidman voru hvorugir gegn Bristol. Tottenham er reiðubúið til að greiða eina milljón sterlingspunda fyrir Gray en hefur til þessa ekki tekizt að afla þeirrar fjárhæðar. Middlesbrough hafði tögl og hagldir gegn Palace lengst af og það kom þvi eins og skrattinn úr sauðarleggnum þegar Swindlehurst skoraði fyrir Palace. Middlesbrough lék oft á tíðum stórvel og byrjun liðsins hefur vakið mikla athygli. Stan Cummins jafnaði metin fyrir Boro í síðari hálfleiknum. Bolton vann góðan sigur á Southampton. Þeir Neil Whatmore og Neil McNab skoruðu fyrir Bolton áður en Charlie George svaraði fyrir Dýrlingana. Bolton hefur einnig byrjað prýðilega og m.a. náð jafntefli á An- field gegn Liverpool, en slíkt afrekuðu aðeins tvö lið í fyrra — Leeds og Ever- ton. Leikur Arsenal og Manchester United þótti leiðinlegur á að horfa og litið var um almennileg marktækifæri. Þó fékk Steve Coppell dauðafæri á lokamínútu fyrri hálfleiks en brást þá illa bogalistin og skaut framhjá. 2. deild Watford, liði Elton John, hefur gengið frekar brösulega í upphafi tímabils en krækti þó i stig á útivelli gegn Cambridge. Það var markadúett- inn Ross Jenkins og Luther Blissett sem skoraði fyrir Watford en Tom Finney skoraði bæði mörk Cambridge. Cardiff, sem margir spáðu velgengni i vetur, eftir mögur ár lengi vel, fór illa að ráði sínu gegn Birmingham á Ninian Park. Stevens náði forystunni fyrir Cardiff en Birmingham svaraði tvivegis fyrir sig og hélt heim með bæði stigin. Chelsea hefur byrjað vel þrátt fyrir miklar hrakspár og Wrexham féll á Stamford Bridge. Harris og Bumstead voru á meðal skorara fyrir Chelsea. Ricky Hill og Bob Hatton skoruðu fyrir Luton gegn Orient en Margerrison skoraði mark jjeirra. Preston fékk óskabyrjun gegn Swansea er einn varnarmanna liðsins skoraði sjálfs- mark. Alan Waddle jafnaði fyrir hlé og þar við sat. Leicester gersigraði QPR á Loftus Road. Andy Peake skoraði á 12. mín. fyrir Leicester og siðan bætti May marki við á 42. mín. með skalla. Allen minnkaði muninn fyrir QPR úr víti á 77. minútu en fimm min. siðar bætti PeakéöQru marki sinu við og Goodwin innsíglaði góðan sigur á lokamínút- unni. ? *.. . Það gekk rniklð á á Roker Park í Sunderland. Kevin Árnott skoraði fyrst fyrir Sunderland, en þegar 3 min. voru til leiksloka jafnaði Fulham. Gamla kempan „pop” Robson var ekki á því að gefa sig og hann skoraði sigurmark Sunderland úr vítaspyrnu strax í næstu sókn. West Ham vann loks sigur og þá var það ekki á merkara liði en Oldham. Pat Holland skoraði eina mark leiks- ins. Staðan i 1. deild: Norwich 3 3 0 0 10-3 6 Nottingham F. 3 3 0 0 6-1 6 Middlesbrough 3 2 1 0 7-2 5 Wolves 2 2 0 0 4-0 4 Stoke 3 2 0 1 6-4 4 Manch. Utd. 3 1 2 0 3-1 4 Bolton W. 3 1 2 0 3-2 4 Arsenal 3 1 1 1 4-2 3 Liverpool 2 1 1 0 3-1 3 Leeds 3 1 1 1 5-4 3 Bristol City 3 1 1 1 5-5 3 Crystal Palace 3 0 3 0 1-1 3 Aston Villa 3 1 1 1 3-4 3 Manch. City 3 1 1 1 3-5 3 Southampton 3 0 2 1 2-3 2 Coventry 3 1 0 2 6-8 2 Ipswich 3 1 0 2 2-4 2 Everton 3 1 0 2 3-6 2 Derby County 3 0 I 2 0-2 1 WBA 3 0 1 2 1-5 1 Brighton 3 0 0 3 3-9 0 Tottenham 3 0 0 3 2-10 0 2. deild Leicester 3 2 1 0 7-2 5 Notts County 3 2 1 0 6-2 5' Preston 3 2 1 0 5-1 5 Chelsea 3 2 1 0 4-1 5 Sunderland 3 2 1 0 4-1 5 Swansea 3 1 2 0 3-1 4 Bristol R. 3 2 0 1 5-5 4 Wrexham 3 2 0 1 5-5 4 Fulham 3 1 1 1 5-5 3 Luton 3 1 1 1 5-5 3 Cambridge 3 0 3 0 4-4 3 Newcastle 3 1 1 1 3-3 3 Burnley 3 0 2 1 3-4 2 Orient 3 0 2 1 3-4 2 West Ham 3 1 0 2 1-2 2 Birmingham 3 1 0 2 5-7 2 QPR 3 1 0 2 3-5 2 Watford 3 0 2 1 2-4 2 Cardiff 3 1 0 2 3-6 2 Charlton 3 0 2 1 2-5 2 Shrewsbury 3 0 1 2 2-5 1 Oldham 3 0 0 3 3-6 0 -SSv. Erum íluttir meö allt okkar haf urtask! Núerumviði AuÖbrekku 53 Varmi Bílasprautun Auóbrekku 53. Sími 44250. Box180. Kópavogi.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.