Dagblaðið - 21.09.1979, Qupperneq 5

Dagblaðið - 21.09.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1979. Skrifstofustjórí embættis ríkisskattstjóra telur: 5 Verðbótaauki vaxtaaukalána frádráttarbær til skatts Á sama hátt er hann skattskyldur fyrír þann er fær hann sér til tekna „Það hefur komið fram í svari frá embætti ríkisskattstjóra við fyrir- spurn að .vérðbólguþáttur vaxta er skattskyldur til tekna fyrir þann er hann fær og þá á sama hátt frádrátt- arbær á skattskýrslu fyrir þann sem gert er að greiða slíkan verðbóta- þátt,” sagði Kristján Jónasson skrif- stofustjóri ríkisskattstjóraembættis- ins. Ríkisskattstjóri var i frii og vara- skattstjóri úti á landi. Kristján kvaðst ekki á annan hátt geta svarað fyrirspurn DB um skatta- lega meðferð verðbótaþáttar vaxta á skuldabréfum og vaxaaukalánabréf- um. Vextir vaxtaaukalána og annarra skuldabréfa hafa verið ofarlega á baugi að undanförnu vegna tilkomu verðbótaþáttar i vaxtagreiðslum af slíkum lánum. í gildi er sú regla að vextir með verðbótaþætti séu frá- dráttarbærir á skattskýrslum. Virðist því eðlilegt að svo verði einnig þótt verðbótaþátturinn leggist við höfuð- stól. Skrifstofustjóri rikisskattstjóra- embættisins vísaði til áður gefins svars sem var við fyrirspurn fast- eignasala í Reykjavík til skattstjóra. DB ræddi við umræddan fast- eignasala og taldi hann upplýst að seljendur íbúða, sem eignuðust bréf þar sem notuð væru ný ákvæði um verðbótaþátt vaxta, væru skatt- skyldir gagnvart verðbótum. Hann taldi ríkið komið i hreina sjálfheldu gagnvart þeim ákvæðum sem væru í skuldabréfum ríkissjóðs ihti skattfrelsi verðbótanna. Tók hann sem dæmi tvo menn sem ættu hvor um sig 10 milljónir. Annar keypti rikistryggð skuldabréf og nyti verðbóta þeirra með skattfríðindum. Hinn keypti íbúð en sæi sig litlu siðar um hönd og seldi hana, án nokkurrar útborgunar, en gegn skuldabréfum með vaxtaaukalánskjörum. Sá yrði að greiða skatt af verðbótum á sinar 10 milljónir en hinn ekki. En sé fenginn verðbótaauki skuldabréfa skattskyldur má tclja öruggt að hann sé einnig heimilaður til frádráttar hjá þeim sem gert er að greiða hann. Sú telur skrifstofustjóri rikisskattstjóra að raunin sé. - ASt. Hólakapp imönnum —Vélhjólaíþróttaklúbburinn heldur motocrosskeppni við Sandfell ásunnudag Vélhjólaklúbburinn heldur moto- cross-keppni á sunnudaginn og verður keppt við Sandfell við Þrengslaveg. Keppt verður um bikar sem Dagblaðið hefur gefið til keppn- innar. Fjórtán keppendur keppa í flokki stórra mótorhjóla, þ.e. með vélar- stærð 125 —500 cc. Einnig verður keppt í flokki skellinaðra. Þrjár um- ferðir verða og er hver umferð sjö hringir. Öll hjólin eru ræst á sama tima og sigrar sá sem er fyrstur i mark. Gefin eru stig eftir röð kepp- enda og stigin lögð saman el'tir hverja umferð. Kcppt er í þessari grein íþrótta viða um heim en motocross er talið með crfiðustu keppnisíþróttum. Þeir vél- hjólamenn nota alþjóðaorðið moto- cross yfir íþróttagreinina en einnig hafa menn reynt að finna íslenzkt orð í stað þess. Nefnt hefur verið orðið hólakapp en það hefur þó ekki náð festu. - JH Keppni f motocross, eða hólakappi, er erfiö og menn fijúga gjarnan vængjalaust nokkru ofar fósturjörðinni á reiðskjótum sinum. Æðislegt stuð í verbúðinni Þær voru i ævintýraleit, stelpurnar sem biaðamaður DB hitti í verbúð á Suðureyri við Súgandafjörð og höfðu því brugðið sér í fiskvinnu. Þær eru allar frá Reykjavík og liklega komnar aftur til sama lands nú, þegar tekið er að hausta. Þær eru vonandi rikar eftir sumarið og örugglega reynslunni ríkari. „Verbúðin hér heitir Pallurinn,” sögðu stelpurnar, ,,og hér er æðislegt stuð. Við vinnum i Fiskiðjunni Freyju, „bara” frá 7—7. Við viljum fá að vinna frá 7—11. Það er nánast ekkert hægt að gera hér nema vinna og fara i bió. En það er fjör í verbúðinni en fer þó nokkuð eftir því hvaða vikudagur er. Maður þarf að vinna hratt til þess að fá gott kaup,” sögðu stelpurnar. Þær hafa líklega komizt upp á lag með það ög hver veit nema Súgfirðingar sjái þessar hressu stelpur aftur er vorar. - JH Dansflokkur JSB hefur komið fram á hverju hæfileikakvöldi f sumar. Hann lætur sig að sjálfsögðu ekki vanta á sunnudags- kvöldið. DB-mynd Árni Páll. Hæf ileikakeppni Dagblaðsins og hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar: MIKIL AÐSÓKN Á ÚRSUTAKVÖLDIÐ Uppselt er í Súlna^al Hótel Sögu á sunnudagskvöldið far sem úrslita- keppni hæfileikaralls Dagblaðsins og hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar fer fram. Vegna mikillar eftirspurnar eftir miðufti hefur verið ákveðið að gefa fólki kost á sætum í einum hliðarsala Súlnasalarins. Þaðan er hægt að fylgj- ast með keppninni og skemmtiatriðum af tveim sjónvarpsskermum. Hæfileikakeppnin hefur nú staðið yfir síðan 24. júni síðastliðinn. Sigur- vegarar hvers riðils leiða saman hesta sina á úrslitakvöldinu og keppa um sólarlandaferð að verðmæti 340 þús- und krónur. Alls koma fram tiu atriði. Dagskrá lokakvöldsins er i stuttu máli sú að að loknu borðhaldi um klukkan níu hefst keppnin sjálf. Þar á eftir kemur Dansflokkur JSB fram og skemmtir góða stund. Þá fer fram blómaafhending og að henni lokinni verður stiginn dans til klukkan tvö eftir miðnætti. Úrslit í hæhleikakeppninni verða tilkynnt eins fijótt og auðið verður. — Inn á skemmtun þessa kostar sjö þúsund krónur. Þeir sem þegar hafa pantað sér borð á hæfileikakeppnina eru beðnir um að staðfesta pantanir sínar í síma 20221 sem allra fyrst. Vissara er að gleyma ekki staðfestingunni því að biðlistinn eftir borðum er langur. - ÁT Stelpurnar hressu f verbúðinni. Frá vinstri: Ásta, Brynja, Gugga og Emma. DB-mynd JH

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.