Dagblaðið - 06.10.1979, Side 2

Dagblaðið - 06.10.1979, Side 2
2 DAGBLAÐIÐ. LAUGARBAGUR 6. OKTÓBER 1979 ' , ' ...................................................... ' —' Skemmdarfýsn kommúnista Þorleifur skrifar: Ef við komumst ekki lengra með góðu, þá beitum við valdi, er kjörorð kommúnista. Myndin í DB 29. sept- ember í sumar sýnir það mjög vel þegar Jónas Árnason alþingismaður er að klippa sundur girðinguna við Keflavikurflugvöll. Ég hélt ekki að þingmaðurinn Jónas Árnason legði fyrir sig að fremja skemmdarverk eins og óviti. Ég hef alltaf haft svolitið álit á Jónasi, þó hann hafi kosið sér að vera förunautur kommúnistaflokk- sins. Nú er það álit að engu orðið. Það hefði litið betur út ef þessi villuráfandi hópur hefði haldið fund sinn við vallarhliðið án skemmdar- verka. Þarna kemur fram bara eitt andlit kommúnismans. Við erum komin hér á hæltustig í stjórnmálum. Kommúnistum hefur tekizt að komast langt í völdum hér á landi. Þeir beita verkalýðshreyfingunni þannig að stefnumót annarra flokka ná ekki fram að ganga, þó það sé henni (verkalýðshreyfingunni) fyrir verstu. Frá þeirra sjónarmiði má ekk- ert takast sem aðrir flokkar hafa fram að færa til lagfæringar á núver- andi efnahagsástandi þjóðarinnar. Þeirra stefna er að koma á efnahags- öngþveiti og skella svo skuldinni á aðra. Þetta er ein af aðferðum þeirra til að ná völdum. Þegar það hefur tekizt sjáum við fyrst hið rétta andlit þeirra. Þá er það bara of seint fyrir okkur sem viljum vera frjáls og ekki undir þeirri ógnar- stjórn sem kommúnisminn er. Virðing fyrir cignarrétti annarra er enginn og mér er nær að halda að skemmdarfikn barna sé sprottin frá þeirra áróðri að mörgu leyti. Þau slæðast inn í kröfugöngur af ýmsu tagi og þykir mikið sport í, þar heyra þau tóninn, i þeim hópum. Það hefur sýnt sig að lögum Al- þingis hefur ekki verið hlýtt og kemur þar fyrsta visbending þess, að nú skuli fara að beita valdinu gegn að þeir kunna að vera fleiri en komm- únistar en það breytir engu. Varnar- liðið er hér okkur algjörlega að skað- lausuog ýmislegt höfum við gott af þeim að segja. Þeir sækjast ekki eftir völdum hér enda væru þeir þá löngu búnir að taka okkar litla hólma. Því vil ég bæta við að væru Rússar hér með varnarlið þá væri litið orðið eftir af okkar sjálfstæði og frelsi. Alltaf er verið að þrengja upp á Bandarikja- menn að þeir séu heimsvaldasinnar. Hvernig er nú hægt að bjóða fólki upp á svona áróður sem hvergi á sér stoð í veruleikanum? Ég skal benda á eitt dæmi. Dettur nokkrum í hug að Bandaríkjamenn hefðu látið bylting- una á Kúbu afskiptalausa ef þeir væru í landvinningahug. Ekki kem ég auga á það land sem þeir hafa brotið undir sig með valdi. Kjörorðið er málstaðurinn. réttlætisins vegna. Ekki ofbeldi og kúgun. (Aths. DB: Mynd sú er um er rætt i bréfinu hefur aldrei birzt i I)B). Jónas Árnason alþingismaður ræðir her við herstöðvaandstæðinga. DB-mynd R.Th.Sig. ákvörðunarrén i frjáls meirihluta Nú var ég i upphafi að benda á að- þegar þeim hentar. gerðir varnarliðsandstæðinga. Ég veit Um þrengingar í Amarbakka Andrés Sighvatsson, Skriðustekk, hringdi: Ég vil koma athugasemd á fram- færi vegna viðtals við gatnamála- stjóra í DB 2. október um þrengingu á einum af þremur gangbrautum við Arnarbakka í Breiðholti. Ég tel heppilegast að setja þreng- ingar við allar gangbrautirnar þrjár, svipað og hefur verið gert í Vestur- bergi og gefizt vel. íbúar hverfisins norðan Arnar- bakka þurla að sækja svo til alla þjónustu, skóla og annað yfir þessar gangbrautir. Eftir að Fálkabakki var opnaður hefur umferð verið gifurlega hröð og mikil til og frá efra Breið- holti um Arnarbakka, gegnum íbúðarhverfi neðra Breiðholts. Eðlilegast er að þessi umferð fari um Stekkjarbakka norðan hverfisins, jafnvel þó ekki sé búið að tengja hann beint við Breiðholtsbraut, og um Álfabakka vestan hverfisins. Einnig má notast við Blesugróf og cr' það betra en öll þessi umferð fari yfir þessar fjölförnu gangbrautir við Arnarbakka. Byggð er mjög litil norðan Stekkjarbakka og þvi litil umferð gangandi fólks yfir götuna. Fálka- bakki á aðeins að vera opinn SVR eins og upphaflega var gert ráð fyrir. 1» Þrengja ætti vcginn við allar gang- hrautirnar þrjár við Arnarbakka, telur bréfritari. DB-m>nd R.Th.Sig. berklavamadagurinn, sunnudag 7 október Merkja- og blaðasala til ágóða fyrir starf sem styður sjúka til sjálfs- bjargar, starfsemina að Reykjalundi og Múlalundi. Sölubörn óskast kl. 10 árdegis, sunnudag. Góö sölulaun. Foreldrar - hvetjiö börnin til að leggja góðu málefni lið. Merkin eru númeruð og gilda sem happdrættismiði. Vinningur er litsjónvarpstæki. Merkin kosta 300 kr. og blaðið Reykjalundur 700 kr. Afgrefðslustaðir í Reykjavík og nágrenni: S. í. B. S., Suðurgötu 10, s. 22150 Mýrarhúsaskóli, Seltjarnarnesi Melaskóli Austurbæjarskóli Hlíðaskóli Hrísateigur43, sími 32777 Vogaskóli Álftamýrarskóli Hvassaleitisskóli Breiðagerðisskóli Skriðustekkur 11, sími 74384 Árbæjarskóli Fellaskóli Hólabrekkuskóli ölduselsskóli Kópavogur: Kársnesskóli Kópavogsskóli Digranesskóli Garðabær: Flataskóli Hafnarfjörður: Lækjarkinn 14 Rey kjavíku rvegu r 34 Þúfubarð 11

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.