Dagblaðið - 06.10.1979, Qupperneq 2
2 DAGBLAÐIÐ. LAUGARBAGUR 6. OKTÓBER 1979
' , ' ...................................................... ' —'
Skemmdarfýsn kommúnista
Þorleifur skrifar:
Ef við komumst ekki lengra með
góðu, þá beitum við valdi, er kjörorð
kommúnista. Myndin í DB 29. sept-
ember í sumar sýnir það mjög vel
þegar Jónas Árnason alþingismaður
er að klippa sundur girðinguna við
Keflavikurflugvöll.
Ég hélt ekki að þingmaðurinn
Jónas Árnason legði fyrir sig að
fremja skemmdarverk eins og óviti.
Ég hef alltaf haft svolitið álit á
Jónasi, þó hann hafi kosið sér að
vera förunautur kommúnistaflokk-
sins. Nú er það álit að engu orðið.
Það hefði litið betur út ef þessi
villuráfandi hópur hefði haldið fund
sinn við vallarhliðið án skemmdar-
verka. Þarna kemur fram bara eitt
andlit kommúnismans. Við erum
komin hér á hæltustig í stjórnmálum.
Kommúnistum hefur tekizt að
komast langt í völdum hér á landi.
Þeir beita verkalýðshreyfingunni
þannig að stefnumót annarra flokka
ná ekki fram að ganga, þó það sé
henni (verkalýðshreyfingunni) fyrir
verstu. Frá þeirra sjónarmiði má ekk-
ert takast sem aðrir flokkar hafa
fram að færa til lagfæringar á núver-
andi efnahagsástandi þjóðarinnar.
Þeirra stefna er að koma á efnahags-
öngþveiti og skella svo skuldinni á
aðra. Þetta er ein af aðferðum þeirra
til að ná völdum.
Þegar það hefur tekizt sjáum við
fyrst hið rétta andlit þeirra. Þá er það
bara of seint fyrir okkur sem viljum
vera frjáls og ekki undir þeirri ógnar-
stjórn sem kommúnisminn er.
Virðing fyrir cignarrétti annarra er
enginn og mér er nær að halda að
skemmdarfikn barna sé sprottin frá
þeirra áróðri að mörgu leyti. Þau
slæðast inn í kröfugöngur af ýmsu
tagi og þykir mikið sport í, þar heyra
þau tóninn, i þeim hópum.
Það hefur sýnt sig að lögum Al-
þingis hefur ekki verið hlýtt og kemur
þar fyrsta visbending þess, að nú
skuli fara að beita valdinu gegn
að þeir kunna að vera fleiri en komm-
únistar en það breytir engu. Varnar-
liðið er hér okkur algjörlega að skað-
lausuog ýmislegt höfum við gott af
þeim að segja. Þeir sækjast ekki eftir
völdum hér enda væru þeir þá löngu
búnir að taka okkar litla hólma. Því
vil ég bæta við að væru Rússar hér
með varnarlið þá væri litið orðið eftir
af okkar sjálfstæði og frelsi. Alltaf er
verið að þrengja upp á Bandarikja-
menn að þeir séu heimsvaldasinnar.
Hvernig er nú hægt að bjóða fólki
upp á svona áróður sem hvergi á sér
stoð í veruleikanum? Ég skal benda á
eitt dæmi. Dettur nokkrum í hug að
Bandaríkjamenn hefðu látið bylting-
una á Kúbu afskiptalausa ef þeir
væru í landvinningahug. Ekki kem ég
auga á það land sem þeir hafa brotið
undir sig með valdi. Kjörorðið er
málstaðurinn. réttlætisins vegna.
Ekki ofbeldi og kúgun.
(Aths. DB: Mynd sú er um er rætt i
bréfinu hefur aldrei birzt i I)B).
Jónas Árnason alþingismaður ræðir her við herstöðvaandstæðinga.
DB-mynd R.Th.Sig.
ákvörðunarrén i frjáls meirihluta Nú var ég i upphafi að benda á að-
þegar þeim hentar. gerðir varnarliðsandstæðinga. Ég veit
Um þrengingar í Amarbakka
Andrés Sighvatsson, Skriðustekk,
hringdi:
Ég vil koma athugasemd á fram-
færi vegna viðtals við gatnamála-
stjóra í DB 2. október um þrengingu
á einum af þremur gangbrautum við
Arnarbakka í Breiðholti.
Ég tel heppilegast að setja þreng-
ingar við allar gangbrautirnar þrjár,
svipað og hefur verið gert í Vestur-
bergi og gefizt vel.
íbúar hverfisins norðan Arnar-
bakka þurla að sækja svo til alla
þjónustu, skóla og annað yfir þessar
gangbrautir. Eftir að Fálkabakki var
opnaður hefur umferð verið gifurlega
hröð og mikil til og frá efra Breið-
holti um Arnarbakka, gegnum
íbúðarhverfi neðra Breiðholts.
Eðlilegast er að þessi umferð fari
um Stekkjarbakka norðan hverfisins,
jafnvel þó ekki sé búið að tengja
hann beint við Breiðholtsbraut, og
um Álfabakka vestan hverfisins.
Einnig má notast við Blesugróf og cr'
það betra en öll þessi umferð fari yfir
þessar fjölförnu gangbrautir við
Arnarbakka.
Byggð er mjög litil norðan
Stekkjarbakka og þvi litil umferð
gangandi fólks yfir götuna. Fálka-
bakki á aðeins að vera opinn SVR
eins og upphaflega var gert ráð fyrir.
1»
Þrengja ætti vcginn við allar gang-
hrautirnar þrjár við Arnarbakka,
telur bréfritari.
DB-m>nd R.Th.Sig.
berklavamadagurinn, sunnudag 7 október
Merkja- og blaðasala til ágóða fyrir starf sem styður sjúka til sjálfs-
bjargar, starfsemina að Reykjalundi og Múlalundi.
Sölubörn óskast kl. 10 árdegis, sunnudag. Góö sölulaun.
Foreldrar - hvetjiö börnin til að leggja góðu málefni lið.
Merkin eru númeruð og gilda sem happdrættismiði.
Vinningur er litsjónvarpstæki.
Merkin kosta 300 kr. og blaðið Reykjalundur 700 kr.
Afgrefðslustaðir í Reykjavík og nágrenni:
S. í. B. S., Suðurgötu 10, s. 22150
Mýrarhúsaskóli, Seltjarnarnesi
Melaskóli
Austurbæjarskóli
Hlíðaskóli
Hrísateigur43, sími 32777
Vogaskóli
Álftamýrarskóli
Hvassaleitisskóli
Breiðagerðisskóli
Skriðustekkur 11, sími 74384
Árbæjarskóli
Fellaskóli
Hólabrekkuskóli
ölduselsskóli
Kópavogur:
Kársnesskóli
Kópavogsskóli
Digranesskóli
Garðabær:
Flataskóli
Hafnarfjörður:
Lækjarkinn 14
Rey kjavíku rvegu r 34
Þúfubarð 11