Dagblaðið - 09.10.1979, Side 1
V
OLAFUR MUN
RIÚFA MNGID
EKKI
—Alþýðuf lokkurínn
dregur ráðherra sína
útúrstjómídag
„Ólafur Jóhannesson mun ekki
rjúfa þing, hvorki sem forsætis-
ráðherra í núverandi stjórn né sem
starfandi forsætisráðherra í bráða-
birgðastjórn,” sagði framkvæmda-
stjórnarmaður i Framsóknar-
flokknum í viðtali við DB í morgun.
„Alþýðuflokkurinn mun á ríkis-
stjórnarfundi í dag óska eftir þing-
rofi, og verði því hafnað, mun hann
draga ráðherra sína út úr ríkis-
stjórninni,” sagði aiþýðuflokksþing-
maður í morgun. Þá er gert ráð fyrir
að Ólafur Jóhannesson gangi á fund
forseta ísland og lýsi yfir að stjórn
hans hafi ekki þingmeirihluta á bak
við sig. Til greina kemur að Ólafur
biðjist þá þegar lausnar fyrir sig og
ráðuneyti sitt.
„Ólafur getur sagt af sér fyrir sig
og ráðuneyti sitt allt og veitt okkur
lausn,” sagði Magnús H. Magnússon
félagsmálaráðherra í viðtali við DB í
morgun. Magnús sagði, að til greina
kæmi að formlegar viðræður hæfust
um hvort grundvöllur væri fyrir aðra
ríkistjórn.
Steingrímur Hermannsson dónts-
málaráðherra mun á ríkisstjórnar-
fundinum í dag láta bóka sérstaklega
um tillögur Framsóknar um lausn
efnahagsvandans. Framsóknarmenn
segja, að þær hafi komið fram fyrir
hálfum öðrum mánuði. Hann mun
láta koma fram að Framsóknarmenn
hafi talið þær tillögur hafa hlotið
góðar undirtektir hjá Alþýðuflokkn-
um og skrýtið sé, að
Alþýðuflokkurinn vilji ekki við það
kannast. -HH.
Grindavík:
Hjálmar fékk
lausn og vill
i lögregluna
— skólastjóralaust um tíma eða annar skipaður
án augtýsingar
Menntamálaráðherra hefur veitt Skólanefndarfundurinn í dag mun
Hjálmari Árnasyni lausn frá skóla- gera tillögur til ráðherra i ljósi þeirrar
stjóraembættinu í Grindavík. Verður stöðu, að annaðhvort verður að aug-
ákvörðun ráðherra kynnt formlega á lýsa stöðuna með löglegum fyrirvara
fundi skólanefndar og fræðslustjóra eða skipa skólastjóra til eins árs án
siðdegis í dag. auglýsingar. Um þessar mundir
í kjölfar dcilnanna um stöðuveiting- stjórnar Gunnlaugur Dan Ólafsson,
una fór Hjálmar fram á að fá lausn, settur yfirkennari, skólanum.
þrátt fyrir vaxandi stuðning heima-
manna við hann. Meirihluti skóla- Hjálmar Árnason er nú atvinnulaus,
nefndar lýsti stuðningi við hann og' nema hvað hann les síðdegissöguna
fréttir herma að áformað hafi verið að „Fiskimenn” í útvarp. Söguna þýddi
halda 300 manna fund stuðningsfólks hann úr færeysku. Einna helzt mun
um síðustu helgi. Hætt var við hann hann leita eftir vinnu hjá lögreglunni í
þar sem Hjálmar sagðist vera Keflavík, þar sem hann hefur áður
ósveigjanlegur að breyta fyrri ákvörð- unnið við afieysingar.
un. -GS/ARH.
Friðrik Sophusson um tillögur þingfréttanef ndar:
Hagræði en ekki til-
burðir til ritskoðunar
— ætla að mótmæla ummælum fréttastjóranna
íútvarpsráði
„Ég mótmæli því alveg að tillaga
okkar sé túlkuð sem tilburðir til rit-
skoðunar. Ég og samnefndarmenn
minir álítum að hún feli í sér verulegt
hagræði fyrir þingfréttamenn þar sem
hún þýddi að þeir losnuðu m.a. við
hringingar þingmanna, sem ekki hafa
átt þess kost að hlýða á fréttir, en vilja
heyra fréttaflutning af þingi,” sagði
Friðrik Sophusson alþingismaður i
viðtali við DB í gær.
Kom þetta fram vegna fréttar þess
efnis í DB i sl.viku að fréttastjórar út-
varps og sjónvarps hefðu ritað útvarps-
ráði bréf og mótmælt hugmyndum
þingfréttanefndar þess efnis að allar
þingfréttir væru afritaðar handa þing-
mönnum. Slíkt væri i reynd tilburðir til
ritskoðunar.
Einnig segja þeir slíkt gefa slæmt
fordæmi, en Friðrik andmælti þvi
einnig og benti á að Alþingi væri sá eini
staður utan fréttastofanna, þar sem
þær hefðu fasta starfsmenn. Útskriftin
væri því fremur spurning um lipurð,
því strangt tekið gæti Alþingi hvenær
sem er óskað útskriftar. Hefðu
nefndarmenn talið eðlilegt að slíkt
gengi snurðulaust fyrir sig, til hagræðis
fyrir þing- og fréttamenn. Útvarps-
stjóri hefði strax í fyrra lýst sig sam-
þykkan þessari tilhögun.
Þá undraðist Friðrik einnnig við-
brögð útvarpsráðs gagnvart þeirri hug-
mynd að þingflokkarnir tilnefndu einn
mann hver til að vera tengiliður
umsjónarmanns hálftima þáttar hálfs-
mánaðarlega i sjónvarpinu frá Alþingi/
Alþingi.
Sagðist Friðrik ætla að mótmæla
ummælum fréttastjóranna á næsta út-
varpsráðsfundi sem hann sæti. -GS.
Sólbaö í októbersól
Blíðviðrið undanfarna daga hefur gefið tœkifœri til sólbaða og
útiveru. Þœr butu þess út í æsarþessar, sem voru í laugunum í
gœr.
DB-mynd: Hörður.
Óvístum
framboð
Ólafs
Forystumenn í Framsóknar-
flokknum segja, að alls óvíst sé
að Ólafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra verði í framboði í
komandi þingkosningum.
Eins og kunnugt er, hafa menn
vell vöngum yfir hvort Ólafur
Jóhannesson hy. ði 1 liætta sem
forsætisráðherra i haust, þótt
stjórnarslit hefðu ekki komið til.
og þá jafnvel draga sig út at
þingi.
Þá hefur sú spurning vaknað,
hvort Ólafur kynni að fara í for-
setaframboð, hætti dr. Kristján
Eldjárn, og hefur Ólafur ekki al-
gerlega neitað, að svo kynni að
verða. -HH
ElduríÁrbæ
og Breiðholti
Slökkviliðíð var tvívegis kallað
út í gær. í fyrra skiptið var um eld
í mannlausri íbúð að Hraunbæ 68
að ræða. Brauzt Iögreglan inn i
þá íbúð og hafði slökkt er
slökkviliðið kom. Hafði kviknað
i lepp á rafmagnsplötu, sem
straumur var settur á áður en
mæðgur í ibúðinni yfirgáfu hana.
Reykskynjari í íbúðinni gaf merki
um hættuna stuttu eftir að eldur-
inn kviknaði.
1 síðara skiptið varð reyks vart i
Breiðholtskjöri. Var kveikt i
ruslatunnu utandyra en reykur
komst lítillega inn gegnum loft-
ræsti kerfi að talið var. -ASl.