Dagblaðið - 10.10.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1979.
REUTER
i
r
ÓLAFUR
GEIRSSON
OECD lönd:
Sameinuöuþjóðimar
i umsátursástandi
Verðlag
hækkar
Verðlag á neyzluvörum í vestrænum
iðnrikjum hækkaði um 0,6% í ágúst
síðastliðnum samkvæmt upplýsingum
frá OECD. í júlímánuði varð samsvar-
andi hækkun 1,2%. Á fyrri helmingi
þessa árs varð meðalhækkun á
neyzluvörum 12,7% í vestrænum
iðnríkjum. Ástæðan fyrir minni
verðhækkun í ágúst er einkum sögð
vera verðlækkun i Japan.
þegar Fidel Castro kemur til að ávarpa allsherjarþingið
Gífurlegur viðbúnaður er nú við
Sameinuðu þjóða bygginguna í New
York vegna komu Fidels Castros for-
seta Kúbu. Hann ætlar að ávarpa
allsherjarþingið i fyrsta skipti i nitján
ár. Gæzla fer þegar fram bæði á
landi, lofti og legi. Mikil leynd hvílir
yfir því hvenær og hvernig Castro
muni koma til þingsins. Heimildir,
sem taldar eru áreiðanlegar, sögðu þó
að þota forsetans mundi lenda
snemma í fyrramálið í New York.
Allur þessi viðbúnaður er vegna
margra hótana sem borizt hafa um að
Castro verði myrtur þegar hann
kemurtil Bandaríkjanna.
Þegar Castro kemur munu þyrlur
svífa yfir byggingum Sameinuðu
þjóðanna og lögregluverðir verða i
öllum götum New York borgar sem
liggja að Sameinuðu þjóða-
byggingunni. Gæzlubátar verða á
East-River.
Innan dyra verður líka mikil
gæzla. Minnast má þess, að árið
1964, þegar Che Guavara félagi
Castros ávarpaði allsherjarþingið
skutu skæruliðar flóttamanna frá
Kúbu sprengju að byggingunni. Hún
hitti að vísu ekki en lenti i fljótinu við
Sameinuðu þjóða bygginguna.
Að þessu sinni mun Castro bæði
ávarpa allsherjarþingið sem forseti
Kúbu og forustumaður i samtökum
óháðra eða hlutlausra rikja. Þing
þeirra var nýlega haldið í Havana á
Kúbu. Það eru samtök flóttamanna
frá Kúbu sem standa fyrir aðgerðum
til að gera Castro allt til miska.
Erlendar
fréttir
Norður-Kórea:
Guöinn
góði
Kimll
Sung
I Norður-Kóeru er eitt á
hreinu. Forseti landsins Kim II
Sung er algóður og gallalaus.
Kkki er verið að tvínóna neitt með
að gera uppvaxandi æsku lands-
ins þessa staðreynd Ijósa. Litla
stúlkan á myndinni sem er þriggja
ára var nýlega látin romsa út úr
sér heilli þulu fyrir dgnska gesti,
sem voru á ferð í Norður-Kóreu.
Þulan fjallaði um æsku og
uppvöxt hins algóða landsföður
Kim II Sung. Að því loknu
klöppuðu hin börnin henni lof í
lófa.
Skákmötið í Rio de Janeiro:
Brasilíuundrið
með 7vinninga
Sunye er með bezta vinningshlutfallið
ámótinu
Jaime Sunye brasiliski undraskák-
maðurinn á millisvæðamótinu í Rio
de Janeiro er nú farinn að nálgast
fyrsta sætið. Hann lauk tveim
biðskákum sínum í gær og bar
sigurorð af báðum keppinautum
sinum, þeim Velimirovic frá
Júgóslavíu og Argentínumanninum
Luis Bronstein. Vekur frammistaða
þessa 22 ára verkfræðistúdents sífellt
meiri athygli. Hann er nú með betra
vinningshlutfall úr skákum sínum á
mótinu en sjálfur Portisch, sem hefur
flesta vinninga. Sunye hefur setið yfir
í tveim umferðum vegna skákmanna,
sem hætt hafa þátttöku en Portisch
ekki. Sunye hefur ekki enn tapað
skák á mótinu í Rio de Janeiro. Áður
en keppnin hófst, var hann talinn
næstveikastur þátttakenda og fékk
aðeins að taka þátt vegna þess" að
millisvæðamótið fer fram í heima-
landi hans.
Staðan eftir tólf umferðir er nú
þannig að Portisch er efstur með 8
vinninga, Hubner 7,5 og Sunye, og
Vaganian með 7 vinninga.
Tólfára
drengur
verðurfaðir
Tólf ára franskur drengur varð
faðir hinn 19. september síðastliðinn.
Móðirin, fjórtán ára, eignaðist
fimmtán marka dreng í sjúkrahúsi i
Poissy, útborg Parísar. Bæði barni og
móður liður vel.
Bandaríkin:
Glæpir
aukast
Ofbeldisglæpir eins og morð og
nauðganir jukust i Bandaríkjunum um
þrettán af hundaði á fyrri helmingi
þessa árs miðað við sama tima i fyrra.
Afbrot eins og innbrot, svik og bif-
reiðaþjófnaðir jukust um niu af
hundraði miðað við sama tíma.
NORRÆN
MENNINGARVIKA1979
Fimmtudag 11. okt. kl. 20:30
ELSE PAASKE m.
ERLAND HAGEGAARD (tenór)
FRIEDRICH GURTLER (píanó)
flytja:
R. Schumann: Liederkreis
P. E. Lange-Muller: Sulamith og Salomon
Peter Heise: 2 sönglög
Benjamin Britten: Abraham and Isaac, f. alt,
tenór og píanó
Aðgöngumiðar
í kaffistofu NH.
Verið velkomin.
Norræna húsið.