Dagblaðið - 10.10.1979, Side 13
12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1979.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 1979.
13
Tvískipt
2. deild!
Hinn mikli ferðakostnaður sem fylgir þátttöku í 2.
deild hefur valdið forráðamönnum félaga höfuðvcrk
undanfarin ár, ekki sizt eftir að tvö Austfjarðalið
komust upp i 2. deild. Ég vil hér með konia á framfæri
hugmynd minni um breytt fyrirkomulag á deildakeppn-
inni sem ætti að minnka ferðakostnað og gæti aukið
áhuga. Hún er á þá leið að skipta 2. deild I tvennt með'
10 liðum í hvorum hluta; lið frá Suður- og Vesturlandi
annars vegar og lið frá Norður- og Austurlandi hins
vegar. Sigurvegari í hvorri deild flyttist siðan upp í
fyrstu deild, eða þá að í lokin færi fram úrslitakeppni 4
liða, þar sem 2 efstu lið frá hvoru svæði tækju þátt, um
tvö lausu sætin i 1. deild. Tvö neðstu lið á hvoru svæði
féllu þá niður í 3. deild. Tvö lið af S/V-svæðinu og tvö
lið af N/A-svæðinu kæmust þá upp í 2. deild ár hvert.
Víðir Sigurðsson. i
Hamburger
gegn Dynamo
Í 2. umferð f Evrópubikarnum i knattspyrnu, keppni
meistaraliða, leika þessi lið saman.
Nottm. For., England, — Pitesti, Rúmeníu.
Celtic-Skotlandi, — Dundalk, írlandi
Ajax, Hollandi, — Omonia, Kýpur.
Dynamo Berlin, AÞ, — Servette Genf, Sviss.
Dukla Prag, Tékk. — Strasbourg, Frakklandi.
Hamburger SV — Dynamo Tblisi, Sovét.
Porto-Portúgal, — Real Madrid, Spáni.
Vejle, Danmörku, — Hadjuk, Júgóslavíu.
Yfirleitt hafa sterk lið dregizt gegn liðum frá minni
þjóðunum í þessari umferð og má þar nefna Evrópu-
meistara Forest, Celtic, Ajax Amsterdam og Hadjuk
Split. Langmesta athygli munu viðureignir Hamburger
SV og Dynamo vekja. Hamborg sigraði Val í 1. umferð-
inni en sovézka liðið gerði sér lítið fyrir og sló Englands-
meistara Liverpool út. Þá verður hörð keppní milli
meistaraliðanna af Pyrenea-skaganum, Porto og Real
Madrid. Meiri likur eru þó á aðí |..inskaliðið fræga, sem
unnið hefur Evrópubikarinn oftar en nokkurt annað
félag, komist i 3. umferðina. Leikirnir i 2. umferð verða
i marz á næsta ári.
Ásgeir Sigurvinsson — 25. landsleikur-
inn
Árni Sveinson — 25. landsleikurinn
„Það verður ekkert
gefið eftir í dag”
sagði Helgi Daníelsson, formaður landsliðsnefndar, ísamtali
við DB í morgun. Evrópuleikur Póllands og íslands hefst
kl. 16,45 í dag í Krakow
„Það er mikil og góð stemmning í
landsliðshópnum — það verður ekkert
gefið eftir i dag í Evrópuleiknum við
Pólverja hér I Krakow, sem hefst kl.
16.45 að íslenzkum tima. Við búum hér
á frábæru hóteli, Holiday Inn, og það
hefur farið vel um piltana. Að vísu
urðu tveir íslenzku atvinnumannanna
fyrir áföllum í leikjum sínum í Belgíu á
sunnudag. Karl Þórðarson meiddist
það illa i leik La Louviere að hann kom
ekki hingað til Póllands — og Ólafur
Sigurvinsson meiddist einnig. Hann
kom þó en meiðsli hans reyndust það
slæm að engar líkur eru á að hann geti
tekið þátt í leiknum,” sagði Helgi
Daníelsson, aðalfararstjóri íslenzka
landsliðsins, þegar DB ræddi við hann í
morgun.
„Það er búið að velja liðið — við
gerðum það seint í gærkvöld, en
íslenzku leikmennirnir hafa þó ekki
fengið að vita hvernig liðsskipan
verður. Það verður gert núna á eftir,
þegar við höfum fengið okkur morgun-
mat.
Þetta er síðasti leikur íslands í riðla-
keppni Evrópukeppni landsliða að
þessu sinni og þessir leikmenn hefja
leikinn.
Þorsteinn Bjarnason, La Louviere,
Örn Óskarsson, Vestmannaeyjum,
Trausti Haraldsson, Fram, Dýri
Guðmundsson, Val, Jóhannes
Eðvaldsson, Celtic, fyrirliði, Marteinn
Geirsson, Fram Ásgeir Sigurvinsson,
Standard, Árni Sveinsson, Akranesi,
Atli Eðvaldsson, Val, Teitur Þórðar-
son, Öster og Pétur Pétursson, Feye-
noord. Varamenn eru því Ársæll
Sveinsson, Vestmannaeyjum, Sigurlás
Þorleifsson, Vikingi, og Sigurður
Halldórsson, Akranesi — en eins og
áður segir getur Ólafur Sigurvinsson
ekki leikið,” sagði Helgi ennfremur.
Pólverjar hafa valið sitt lið og það er
skipað þessum leikmönnum. Zygmunt
Kukla, Stal Mielec, Marek Dziuba,
Lodz, Pawel Janas, Legía Varsjá,
Antoni Szmanowski, Gwardia Varsjá,
Wojoiech Rudy, Sosonowiec, Adam
Nawalka, Wisía Krakow, Zbigniew
Boniek, Lodz, Leszek Lipka, Wisla,
Roman Ogaza, Bytom, Stanislaw
Terlecki, Lodz, og Grezgorz Lato, Stal.
Sterkt lið en þó varla eins sterkt og
pólsku landsliðin hafa verið undan-
farin ár. Margir af þekktustu leik-
mönnum Póllands síðustu árin komnir
til ára sinna og hafa verið að „detta
út” síðustu mánuðina.
Teitur kom
síðar
„Landsliðshópurinn kom saman í
Kaupmannahöfn á sunnudag — og
þaðan var haldið til Póllands síðdegis á
mánudag. Teitur Þórðarson missti þó
af okkur í Kaupmannahöfn. Hann
kom ekki hingað til Krakow fyrr en síð-
degis í gær, þriðjudag, rétt fyrir lands-
liðsæftnguna. Það á enginn hér við
meiðsli að stríða nema Ólafur Sigur-
vinsson. Við æfðum á mánudagskvöld
og aftur í gær og höfum kynnt okkur
leikvanginn hér í Krakow. Hann er
prýðilegur — rúmar um 25 þúsund
áhorfendur og reikna Pólverjar með að
leikvangurinn verði þéttsetinn áhorf-
endum. Veður er hér prýðilegt — um
20 stiga hiti og állar aðstæður fyrir leik-
inn er eins og bezt verður á kosið,”
sagði Helgi Daníelsson ennfremur.
Leikurinn hefst klukkan 17.45 að
pólskum tíma eða 16.45 að íslenzkum
og verða flóðljós sennilega á frá
byrjun. Hermann Gunnarsson, frétta-
maður, er með landsliðinu og mun lýsa
síðari hálfleiknum beint. Lýsing hans
hefst kl. 17.30 í dag.
„Eftir því, sem maður hefur heyrt,
leggja Pólverjar mikla áherzlu á
þennan leik. Þeir hafa verið með leik-
menn sína í sérstökum æfingabúðum
síðustu vikuna — og þeir verða áfram
saman eftir leikinn í dag, því síðasti
leikur Póllands í riðlinum verður við
Hollendinga næsta miðvikudag. Þá
leika þeir í Hollandi. Á laugardag leika
Austur-Þjóðverjar við Sviss í riðlinum
og verður sá leikur í Austur-Þýzka-
landi. Staðan í riðlinum er nú sú að
Holland hefur 10 stig, Austur-Þýzka-
land og Pólland níu stig. Öll löndin
hafa leikið sex leiki í riðlinum. Við
sjáum engin dagblöð hér á hótelinu en
Pólverjarnir, sem eru hér með okkur,
hafa sagt okkur, að pólska liðið muni
leika stífan sóknarleik gegn okkur í
dag. Markamunur þeirra er miklu
lakari en Hollands og ef Pólland á að
hafa einhverja möguleika á þvi að
komast í efsta sætið í riðlinum, verða
leikmenn þeirra að reyna að laga
markatöluna í leiknum í dag.
Dagskipunin hjá þeim er því að
skora eins mikið af mörkum og mögu-
legt er. Það verður keyrt á fullu allan
leikinn. Þetta er auðvitað staðreynd,
sem við vissum um fyrirfram — og
íslenzku strákarnir eru ákveðnir i að
gefa ekkert eftir. Við erum með sterkt
lið og það getur verið hættulegt fyrir
þá pólsku að leggja ofurkapp á sókn-
ina. Þeir Teitur Þórðarson og Pétur
Pétursson eru skæðir sóknarmenn og
miklir markaskorarar — og við gerum
okkur vissulega von um að skora mark
eða mörk i Evrópuleiknum í dag,”
sagði Helgi.
Leikurinn í dag verður merkisleikur
Marteinn Geirsson — jafnar lands-
leikjamet Matthíasar Hallgrímssonar.
Leikurinn sinn 45. landsleik i dag.
fyrir Martein Geirsson. Fram. Hann
leikur þá sinn 45. landsleik og jafnar
þar með landsleikjamet Matthíasar
Hallgrknssonar, Akranesi. Þá leika
þeir Árni Sveinsson og Ásgeir Sigur-
vinsson í 25. sinn hvor í íslenzka lands-
liðinu. Þeir fá þvígullúr KSÍ.
„Það er ekki alveg vitað hvernig
heimferðinni verður háttað —
einhverjar breytingar frá því sem upp-
haflega var ákveðið. Ég veit ekki annað
en að við leggjum af stað snemma í
fyrramálið — og verður flogið til
London. Ef allt gengur að óskum
ættum við að verða komnir heim til
Islands rétt fyrir miðnætti á fimmtu-
dag,” sagði Helgi Daníelsson að lokum
og var hress og kátur að vanda.
-hsím.
AUSTFJARÐAANNALLIKNATTSPYRNU1979
Austfirðingur hafa undanfarin tvö ár átt
tvö lið í 2. deild í knattspyrnu, lið Þróttar
Neskaupstað og Austra Eskifirði, og héldu
þau bæði sínum hlut á nýloknu keppnis-
tímabili. Það þurfti þó vítaspyrnukeppni
norður á Sauðárkróki til að sæti Austra
væri tryggt. Sumarið 1978 kom Austri
mjög á óvart sem nýliðar í 2. deild, koll-
vörpuðu öllum hrakspám og höfnuðu um
miðbik deildarinnar. Þegar nýafstaðið
keppnistímabil var hálfnað blasti 3. deildin
við Eskfirðingum sem þá höfðu einungis
hlotið 3 stig úr 9 fyrstu leikjunum. Aftur
komu Austramenn á óvart. Þeir hiutu 12
stig úr seinni umferðinni og héldu sæti
sínu, naumlega þó, eins og að ofan greinir.
Lið Austra þótti leika betri knattspyrnu en
í fyrra en slæma byrjun í sumar má vafa-
lítið rekja til hinna miklu mannaskipta sem
áttu sér stað frá því að kcppnistímabilinu
1978 lauk. Hvað um það, félagið horfir nú
fram til síns þriðja árs í 2. deild, árangur
sem fæstir bjuggust við þegar Austri vann
sig upp úr 3. deild haustið 1977.
Bezti árangur Þróttar
Þróttur N. náði í sumar sinum bezta ár-
angri i deildakeppninni. Þegar upp var
staðið voru þeir í 4. sæti 3. deildar, þrátt
fvrir að fallhætta hafi verið fyrir hendi
lengi vel. Samt skoruðu Þróttarar fæst
1 2 3
1. Einherji • 3—1 0—1
Vopnafirði 2—1 0—0
2. Leiknir 1—3 • 1—0
Fáskrúðsfirði 1—2 1—2
3. Sindri 0—0 2—1 •
Hornafirði 1—0 0—1
4. Hrafnkell 1—1 1—3 1—0
Breiðdal 2—3 0—4 1—8
5. Huginn 0—3 2—2 2—1
Seyðisfirði 2—4 1—0 1—1
6. Súlan 0—3 0—2 1—1
Stöðvarfirði 0—3 0—0 0—0
7. Valur 1—2 1—4 t — 2
Reyðarfirði 4—13 1—9 (;
mörk allra liða i deildinni og voru furðu-
lega mistækir i leikjum sinum. Nægir þar
að nefna jafntefli við UBK í Kópavogi, 0—
6 tap fyrir austan gegn ÍBÍ (sem tapaði 9—
0 fyrir UBK) og sigur gegn FH, cn FH og,
UBK unnu sér einmitt sæti í 1. deild;
Þróttur byggði minna á aðkomumönnum i
sumar en oft áður, reyndar léku aðeins,
tveir með liðinu að þjálfara meðtöldum.
Félagið hefur oftast haft nokkra „útlend-
inga” innan sinna vébanda en nú sýndi,
Þróttur að lið að austan nær eingöngu
skipað heimamönnum getur staðið fyrir
sinu i 2. deild. Þess má geta að 3. flokkur
Þróttar komst í úrslit íslandsmótsins í ár
svo nægur efniviður virðist vera fyrir hendi,
og Þróttarar áforma að senda 2. flokk til
leiks eftir 2 ár. Mjög athyglisvert þar sem
Þróttur þarf að standa ;traum af meiri,
ferðakostnaði vegna þátttöku mfl. en flest \
ef ekki öll önnur íslenzk lið. Verði af þessu |
verður það í fyrsta sinn sem austfirzkt lið
sendir 2. flokk í íslandsmót.
Fjörugt í F-riðli
Austfjarðariðill 3. deildar, F-riðill, var
hinn fjörugasti i sumar eins og lesendur i
íþróttasíðu DB hafa án efa tekið eftir. I
Markaskorun var töluverð og að flestra
dómi er knattspyrnan á svæðinu á uppleið.
í heildina voru liðin í F-riðli fremur jöfn að
4 5 6 7 stig
3—2 4—2 3—0 13—4 20
1 — 1 3—0 3—0 2-1
4—0 0—1 0—0 9—1 14
3-1 2—2 2—0 4—1
8—1 1 — 1 0—0 2 14
0—1 1—2 1—1 2—1
• 2—1 2—2 3—1 2—0 10—0 3-2 14
2—2 1—2 • 3—0 1—2 11—1 1—1 12
0-2 2—1 • 7—1 9
1—3 0—3 3—2
2—3 1—1 2—3 • 1
1—10 1—11 1—7
styrkleika og enginn leikur var unninn
fyrirfram. Greinilega var lögð ríkari
áherzla á að leika góða knattspyrnu en oft
áður og æ meiri rækt lögð við yngri flokk-
ana. í ljós hefur komið að munurinn á 2.
og 3. deildarliðum hefur minnkað verulega
og breiddin innan svæðisins hefur aukizt
mjög. Einherji Vopnafirði, sigurvegari
riðilsins, var hársbreidd frá sæti í 2. deild
annað árið í röð og þó var síður búizt við
afrekum af þeirra hálfu i úrslitunum í ár en
í fyrra þegar flestir höfðu bókað þá upp í 2.
deild. Það er ekki ætlun mín að varpa rýrð
á frammistöðu Einherja, sem sennilega
höfðu á að skipa jafnsterkasta liði riðilsins,
en samt vil ég benda á að Vopnfirðingar
högnuðust mjög á að þurfa hvorki að
sækja Leikni né Hrafnkel heim; bæði þessi
lið þurftu að leika báða leiki sína gegn Ein-
herja á Vopnafirði.
Markakóngur íslands
, Leiknir Fáskrúðsfirði hafnaði í 2. sæti
riðilsins. Rétt eins og í fyrra kom slæm
byrjun í mótinu í veg fyrir frekari árangur.
í upphafi stefndi allt í glötun, aðeins 4 stig
áunnust í fyrstu 7 leikjunum. Þá tóku
fiestir leikmanna upp á því að draga veru-
lega úr æfingasókn með þeim afleiðingum
að þeir 5 leikir sem eftir voru unnust allir
og 2. sætið varð staðreynd enda þótt á
tímabili væri naumast fræðilegur mögu-
leiki á að svo gæti orðið. Enda varð einum
Leiknismanni að orði í vertíðarlok: „Við
hefðum unnið riðilinn ef við hefðum æft
minna.” Leiknir státar af markakóngi
íslandsmótsins 1979. Það er 18 ára piltur,
Ólafur Ólafsson, sem skoraði 16 af 28
mörkum liðsins i 3. deild, enn athyglisverð-
ara þar sem hann lék í fyrsta sinn í franr-
línu í sumar. Þegar leikmenn Leiknis hafa
lært að taka vitaspyrnur er aldrei að vita
hvað framtiðin ber i skauti sínu.
Þegar upp var staðið var Sindri Horna-
firði i 3. sæti. Lítið bar þó á þeim og fram-
línunni sem skoraði að meðaltali 3 mörk í
leik sumarið áður. Fyrir síðasta leikinn
gegn Hrafnkeli hafði hún aðeins skorað 8
mörk í deildinni en í þeim leik bætti hún 8
við og bjargaði andlitinu. Vörnin stóð sig
betur og fékk aðeins 9 mörk á sig. Sindri
tók 3 stig af Einherja og er eina liðið í 3.
deild sem farið hefur með 2 stig frá Vopna-
firði sl. 2 sumur. Ekki þurfa Hornfirðingar
að kvíða framtíðinni því mikið og gott
starf er unnið með yngri flokka félagsins
sem eru að verða þeir allra sterkustu á
Austurlandi. Vonandi fá hinir efnilegu
piltar veglegri völl til að leika á en þann
sem notazt er við nú.
í 4. sæti kom Hrafnkell úr Breiðdal.
Liðið kom mjög á óvart í upphafi móts og
hafði forystu framan af en sprakk síðan og
fékk slæma skelli í síðustu leikjunum gegn
leikni og Sindra. Nokkrir aðkomumenn
léku með liðinu enda erfitt fyrir jafnfá-
mennt bygðarlag og Breiðdalsvik að halda
uppi liði, sérstaklega eftir að Stöðfirðingar
sviku þá i tryggðum. Reyndar fór álika
fyrir Breiðdælingum nú og árið 1977. Þá
byrjuðu þeir með miklum látum en síðan
datt botninn úr þegar líða tók á mótið.
Ærið umhugsunarefni fyrir félagið þetta.
f 5. sæti var hið seinheppna lið Hugins
Seyðisfirði. Huginsmenn eru af mörgum
taldir hafa haft bezta liðinu á að skipa en
óheppni og mannamissir komu í veg fyrir
umtalsverðan árangur. Þeir hafa yfir
miklum mannskap að ráða og eru bjart-
sýnir á komandi ár. Seyðfirðingar eru stór-
huga og í sumar gerðu þeir stóran auglýs-
ignasamning við GROHE svo sem áður
hefur verið greint frá í DB. Einnig komu
þeir upp öflugu hátalarakerfi við völl sinn
og kynna nú leikmenn liðanna fyrir leiki og
þá skiptir ekki máli hvort meistaraflokkur'
eða 5. flokkur er að leika. Skemmtileg nýj-
ung og ég hvet þá til að gera enn betur og
róa hina kjaftforu aðdáendur sína. Þeir
setja þvi miður svartan blett á hið blóm-
lega starf félagsins.
í 6. sæti var Súlan Stöðvarfirði. Þetta
var frumraun þeirra i 3. deild eftir aðskiln-
aðinn við Breiðdælinga og þó að lengra
yrði ekki náð að þessu sinni mega Stöð-
firðingar vera ánægðir með frammistöðu
sinna manna á leikvellinum. Þeir léku oft á
tíðum ágætis knattspyrnu undir stjórn
Gunnlaugs Kristfinnssonar og voru langt
frá þvi að vera auðveld bráð. Með betri
nýtingu marktækifæra gæti liðið náð mun
lengra. Þess má geta að Stöðfirðingar eru
fullir áhuga og nú æfir hluti liðsins saman
á höfuðborgarsvæðinu.
Síðast en ekki síst kom lið Vals frá
Reyðarfirði, einstakur kapituli í 3. deild í
ár. Nægir því til rökstuðnings að bera
saman úrslit heima- og útileikja Vals-
manna. Heima: 2—3, 2—3, 1—2, 1—2,
1 — 1, 1—4, meira að segja forysta í hálf-
tíma gegn Einherja. Úti: 1 —II, 1—9, 0—
10, 1 —7, 4—13 og einn leikur gefinn. Vals-
menn tóku lífinu létt og virtust ekki hafa
miklar áhyggjur þótt illa gengi. Alla vega
þótti sumum leikmanna liðsins drepfyndið
að fá á sig 9. markið i einum leiknum. Ekki
slæmur „mórall” það. En vonandi gefast
Valsmenn ekki upp þótt móti blási og gera
bara betur næst, dýrmæt reynsla hefur
fengizt.
Ég vil að Iokum þakka öllum þeim sem
ég hef haft samskipti við vegna fréttaöfl-
unar fyrir DB 2 sl. ár og vona að hin góða
samvinna haldist þegar mætt verður til
leiks að nýju.
- Víðir Sigurðsson.
Víðir Sigurðsson — DB-mynd Hörður.
Meistarar Uverpool jöfn-
uðu 10 mín. fyrir leikslok
—Dýrlingamir léku sér að Crystal Palace, sem þar með tapaði sínum fyrsta leik í
1. deildinni ensku íhaust
Boyer, Southampton — þrenna.
Arsenal—
Magdeburg
í2. umferð
í 2. umferð Evrópukeppni bikarhafa
í knattspymu leika þessi lið saman.
Arsenal, Englandi, -Magdeburg,
Austur-Þýzkalandi, Aris Bonnevoie,
Luxemborg, -Barcelona, Spáni. Panei-
mios Aþenu, Grikklandi, -Gautaborg,
Sviþjóð, Lokomotiva Kosice, Tékkó-
slóvakíu, -Rijeka, Júgóslavíu, Nantes,
Frakklandi, -Steua, Búkarest,
Rúmeníu, Dinamo Moskvu, Sovétríkj-
unum, -Boavista Porto, Portúgal,
Stara Zagora, Búlgaríu, -Juventus,
talíu, Valencia, Spáni, -Glasgow
Ranges, Skotlandi.
Englandsmeistarar Liverpool lentu
enn í hinu mesta basli í 1. deildinni
ensku í gærkvöld. Þá var leikinn nær
heil umferð i ensku deildakeppninni —
nokkrir leikir verða i kvöld — og
leikmenn Liverpool héldu hina örstuttu
leið til Bolton. Bæði liðin í Lancashire.
Bolton tók stig af Liverpool i fyrstu
umferðinni í ágúst, markalaust
jafntefli á Anfield í Liverpool, en í gær
leit lengi vel út fyrir að Liverpool
mundi ekki einu sinni hljóta stíg. Neil
Whatmore náði forustu fyrir Bolton og
það var ekki fyrr en tíu minútum fyrir
leikslok að Kenny Dalglish tókst að
jafna fyrir meistarana.
Lundúnaliðið Crystal Palace, sem
komst upp úr 2. deild í vor, tapaði
sínum fyrsta leik á leiktímabilinu. Það
lék þá gegn Dýrlingunum í
Southampton. Phil Boyer reyndist leik-
mönnum Palace mjög erfiður. Skoraði
þrennu í leiknum og það er í annað
skipti í röð, sem hann skorar þrennu í
heimaleikjum Southampton. Þá átti
Boyer og allan heiður af fjórða marki
Southampton, sem Nick Holmes
skoraði. Eina mark Palace í íeiknum
skoraði Paul Hinshelwood. Við tapið
missti Crystal Palace af möguleikanum
að komast á ný í efsta sætið í I. deild —
efsta sætið, sem liðið missti siðastliðinn
laugardag.
Einn leikur var í enska deilda-
bikarnum í gær. Everton og Aston
Villa léku og sigraði Everton 4—1. Bob
Latchford lék á ný með Everton og
skoraði tvö af mörkum liðsins. Þeir
Andy King og Brian Kidd skoruðu hin
mörkin fyrir Everton. Þetta er fyrsti
leikur Latchford á leiktímabilinu —
hann hefur átt í deilu við fram-
kvæmdastjórann. Vill komast frá
Everton og þá helzt til einhvers liðs í
Niðurlöndum.
í 4. umferð deildabikarsins leika
þessi Iið saman
Brighton-Arsenal
Bristol City-Nottm. Forest
Grimsby-Everton
Liverpool-Exeter
QPR-Wolves
Sunderland-West Ham
WBA-Norwich
Wimbledon-Swindon
Leikirnir fara fram 30. og 31.
október næstkomandi og þau lið, sem
sigra komast áfram í 5. umferð. Ekki
léjkið heima og að heiman eins og í
tjfeimur fyrstu umferðunum. En við
skulum þá líta á úrslitin i deilda-
keppninni í gær.
1. deild
Bolton-Liverpool 1 — 1
Bristol City-Coventry 1—0
Ipswich-Arsenal 1—2
Southampton-C. Palace 4—1
Wolves-Derby 0—0
2. deild
Birmingham-Sunderland I—0
Charlton-Burnley 3—3
Luton-Bristol Rov. 3—1
Notts Co.-Shrewsbury 5—2
Orient-Fulham 1—0
QPR-Cardiff 3—0
Swansea-Watford 1—0
3. deild
Barnsley-Chesterfield 0—1
Grimsby-Chester 0—2
Hull-Sheff. Wed. 1 — 1
Plymouth-Millwall 1 — 1
Sheff. Utd.-Colchester 1—2
Wimbledon-Exeter 2—2
4. deild
Darlington-York 2—1
Doncaster-Halifax 2—1
Hartlepool-Scunthorpe 3—2
Huddersfield-Wigan 4—0
Newport-Aldershot 4—2
Rochdale-Stock port 0—1
Walsall-Bournemouth 0—0
Úlfarnir sóttu nær stanzlaust i leikn-
um við Derby County en tókst ekki að
skora. Dave Thomas, sem keyptur var í
síðustu viku frá Everton, lék með
Úlfunum. Átti mjög góðan leik þó ekki
nægði þaðtilsigurs.
Arsenal vann góðan sigur í Ipswich.
Þeir Alan Sunderland og Graham Rix
skoruðu fyrir Lundúnaliðið í sitt
hvorum hálfleiknum en Alan Brazil
eina mark Ipswich mínútu fyrir leiks-
lok. í 2. deild komst Luton Town í
efsta sætið eftir góðan sigur á Bristol
Rovers. Efsta liðið i 3. deild —
Sheffield United — tapaði óvænt á
heimavelli og í 4. deild tapaði Halifax,
liðGeorgeKirby.
Enski landsliðseinvaldurinn, Ron
Greenwood, valdi í gær enska lands-
liðið, sem leikur gegn Norður-Irlandi í
I. riðli Evrópukeppninnar næsta
miðvikudag. Laurie Cunningham, Real
Madrid, áður West Bromwich Albion,
sem nú er aðalskorari spánska liðsins,
er í hópnum. Einnig Kevan Keegan,
Hamburger SV. Af öðrum leik-
mönnum má nefna Clemence, Neal,
McDermott og Thompson, Liverpool,
Wilkins og Coppeli, Man. Utd.,
Francis, Nott. For., Barnes, WBA,
Kenny Sansom, Crystal Palace, og
Trevor Brooking, West Ham.
-hsím.
„Til stórskaða fyrír
körfuboltann að binda
hann við Hagaskólann”
—sagði Stefán Ingólfsson, formaður KKÍ við DB í gær
í gær boðaði stjórn Körfuknattleiks-
sambands Islands til blaðamannafund-
ar í tilefni þess að körfuknattleiksdeild-
ir Vals og KR eru ekki sáttar við þann
fjölda leikkvölda sem þeim var út-
hlutað í Laugardalshöllinni í vetur.
Munu Valsmenn hafa farið fram á 9
ieikkvöld í Höllinni en KR-ingar 8.
Félögin fengu hins vegar aðeins
úthlutað 4 leikkvöldum hvort og vildu
ekki una við þá lausn mála og töldu sér
freklega misboðið.
Það varð þvi að ráði að KR og Valur
sneru sér til Körfuknattleikssambands-
ins, sem síðan skrifaði forseta borgar-
stjórnar hr. Sigurjóni Péturssyni, bréf.
í bréfinu var farið fram á leiðréttingu
mála og rök færð fyrir óskum
félaganna um flutning leikja sinnaúr
Hagaskóla yfir í Laugardalshöllina.
Bréfið fer hér á eftir.
Reykjavík 4. október 1979.
Tvö af stærstu iþróttafélögum
Reykjavíkur, Knattspyrnufélag
Reykjavíkur og Knattspyrnufélagið
Valur, hafa snúið sér til Körfuknatt-
leikssambands íslands vegna úthlut-
unar keppnistíma í íþróttahúsum
borgarinnar fyrir komandi íslandsmót.
Telja félögin að við úthlutun leik-
kvölda í íþróttahöllinni í Laugardal
hafi þeim verið freklega mismunað á
kostnað annarra íþróttagreina. JEnn-
fremur telja þau sig ekki fá leiðréttingu
mála sinna eftir venjulegum leiðum.
Fyrir komandi íslandsmót sóttu
áðurnefnd félög um 20 leikkvöld fyrir
heimaleiki sina i íþróttahöllinni. Önnur
iþróttafélög hafaekki sótt um keppnis-
tima í höllinni fyrir körfuknattleiki í
íslandsmótinu en alis verða leiknir tæp-
lega 100 leikir í meistaraflokki karla og
kvenna í Reykjavik.
Félögin tvö fengú úthlutað 8-átta —
leikkvöldum i höllinni en öðrum leikj-
um var vísað í íþróttahús Hagaskóla.
Körfuknattleikssamband íslands vill
í þessu tilefni vekja athygli á eftirfar-
andi:
1. íþróttahús Hagaskóla rúmar um
300 áhorfendur með góðu móti þó
koma megi hátt í 400 manns í húsið
ef vel er troðið.
2. Meðalaðsókn á alla leiki Úrvals-
deildar í fyrra var um 300 áhorf-
endur. Áðurnefnd félög nutu
mestra vinsælda og áhorfendur að
leikjum þeirra voru þvi' talsvert
fleiri.
3. Yfirstandandi Reykjavikurmót er
mun betur sótt en mót síðasta árs.
Þetta bendir til enn vaxandi áhuga á
körfuknattleik í borginni.
4. Meðalsókn að leikjum Úrvals-
deildar í körfuknattleik og I. deild í
handknattleik var áþekk síðasta
keppnistímabil en allir leikir í
meistaraflokki í þeirri íþrótt fara
fram í höllinni auk þess að félögin
æfa í höllinni.
5. Sjónvarpið hefur nýverið tilkynnt
KKÍ að þar sem upptökuaðstaða og
lýsing í íþróttahúsi Hagaskóla sé
ófullnægjandi muni ekki unnt að
sýna leiki þaðan framvegis.
Með hliðsjón af framansögðu verður
stjórn Körfuknattleikssambands
fslands að taka undir kvartanir fyrr-
nefndra íþróttafélaga.
Stjórn sambandsins vill því beina
þeim eindregnu tilmælum til hinnar
háttvirtu borgarstjórnar Revkjavíkur
að hún hlutist til um að körfuknatt-
leiksmenn í höfuðborg íslands njóti
jafnréttis á við aðrar íþróttagreinar og
sé ekki búin lakari aðstaða en í öðrum
sveitarfélögum.
Virðingarfyllst
F. h. stjórnar Körfuknatt-
leikssambands islands
Stefán Ingólfsson,
formaður.
Á fundinum i gær tjáði Stefán
Ingólfsson, formaður KKÍ, blaða-
mönnum að sambandið hefði kosið að
ræða ekki við ÍBR um lausn á ntálinu
þar sem reynsla knattspyrnufélaga í
svipaðri deilu í sumar hefði sýnt að það
bæri ekki mikinn árangur. Því var sú
leið farin að skrifa forseta borgar-
stjórnar beint og vonaðist Stefán til að
félögin fengju leiðréttingu mála.
„Staðreyndin er sú,” sagði Stefán
„að smæð Hagaskólans er farin að
fæla áhorfendur frá okkur og það
verður körfuknattleiknum til stórskaða
aðbindahannviðHagaskólann! Vissu-
lega orð að sönnu hjá Stefáni og undar-
legt hvernig greinum er mismunað í
Laugardalshöllinnj. f fyrra sottu að
staðaldri fleiri áhorfendur leiki í
körfuknattleiknum en i handknattleik
og því varla stætt á því að neita
körfuknattleiksmönnum um leikkvöld í
vetur. Fleiri félög en Valur og KR hafa
ekki farið þess á leit við KKÍ að sam-
bandið beiti áhrifum sínum til að fá
fleiri leikkvöld í Höllinni en ÍR og
Fram bíða átekta eftir niðurstöðu í
máli Vals og KR.
-SSv.
ÞJÁLFARAR
Knattspyrnudeild Breiðabliks óskar eftir
að ráða þjálfara fyrir alla yngri flokka
deildarinnar næsta keppnistímabil.
Uppl. í síma 44577.