Dagblaðið - 12.10.1979, Blaðsíða 1
5. ÁRG. — FÖSTUDAGUR12. OKTÓBER1979. — 224. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022.
UKUR FYRIR SYNJUN
sjAlfstæðismanna
—á minnihlutastjóm Aiþýðuf lokksins
—Síbreytileg afstaða alþýðuf lokksmanna til stjómarmyndunar
„Mestar líkur eru fyrir þvi, að
þingflokkur sjálfstæðismanna hafni
kröfum Alþýðuflokksins um að sjálf-
stæðismenn styðji minnihlutastjórn
Alþýðuflokksins,” sagði einn þing-
maður Sjálfstæðisflokksins í viðtali
við DB i morgun. Þingflokkur sjálf-
stæðismanna hóf kl. 10 að ræða
þessi tilmæli sem komin voru frá
meirihluta þingflokks Alþýðuflokks-
ins.
* Afstaða Alþýðuflokksins til
stjórnarmyndunar hefur verið mjög á
reiki og breytzt dag frá degi,” sagði
þingmaðurinn. „Einn daginn treysta
þeir sér ekki til að taka að sér ríkis-
stjórn. Annan daginn vilja þeir það. í
þingflokki Sjálfstæðisflokksins eru
margir sem vilja að Sjálfstæðis-
flokkurinn axli þessa byrði og myndi
sjálfur minnihlutastjórn. Alþýðu-
flokkurinn hefur hafnað þvi. Lítil
hrifning er í þingflokki sjálfstæðis-
manna á stuðningi við minnihluta-
stjórn Alþýðuflokksmanna.”
Sjálfstæðis- og alþýðuflokksmenn
ræddust við í gærkvöld og skyldu i
„pattstöðu” eins og segir á skákmáli.
Alþýðuflokksmenn vildu fá stuðning
við minnihlutastjórn sína og sjálf-
stæðismenn stuðning við sína
minnihlutastjórn. Ekki gekk saman á
fundinum, sem var stuttur.
Vindáttin hefur verið síbreytileg á
fundum þingflokks Alþýðuflokksins,
enda skoðanir skiptar um hvort
stefna eigi að minnihlutastjórn
Alþýðuflokks eða utanþingsstjórn,
eins og DB hefur skýrt frá. Afstaðan
var í fyrradag frekar með utanþings-
stjórn en breyttist á þingflokksfundi
um hádegið í gær og hallaðist
meirihluti þá að minnihlutastjórn
Alþýðuflokksins, og tók tillit til
þeirra röksemda sem fram hafa
komið, um að flokknum beri skyida
til þess vegna þess að hann sleit
stjórnarsamstarfinu.
Þingflokkur Alþýðuflokksins átti
að koma saman klukkan ellefu i
morgun og fjalla um niðurstöðu
fundar þingflokks sjálfstæðismanna.
-HH.
MÁLA-
MIÐLUN
UM UTAN-
ÞINGS-
STIÓRN?
„Það er jafnlíklegt að
hvorugur kosturinn verði val-
inn, hvorki minnihlulastjórn
Alþýðuflokks né Sjálfstæðis-
flokks, heldur verði utanþings-
stjóm málamiðlun,” sagði einn úr
þingliði „viðreisnarflokkanna” i
viðtali við DB í morgun. En
skoðanir eru mjög skiptar í
báðum þessum flokkum um
spurninguna, hvort utanþings-
stjórn væri æskileg.
í báðum flokkunum voru
fylgismenn utanþingsstjórnar í
minnihluta i gær. Einn þing-
maður Alþýðuflokksins sagði í
viðtali við DB, að ekki mundi
takast að koma utanþingsstjórn
saman nægilega fljótt svo að
kosningar gætu orðið 9.
desember. Of seint yrði að kjósa
16. desember, vegna veðráttu og
nálægðar jólanna. Eins og DB
skýrði frá i gær var hins vegar
„stemmning” með utanþings-
stjórn á þingflokksfundi Alþýðu-
flokksins í fyrradag. -HH.
„ÓBEINT
MYRTUR?”
í Þjóðviljanum i morgun er grein
eftir „Frey Njarðarson” þar sem lýst er
láti manns í fangageymslu lögreglunnar
15. september. Að þvi er látið liggja að
maðurinn hafi verið „óbeint myrtur og
lögreglunni auðsjáanlega alveg sama,”
eins og þar stendur.
Guðmundur Hermannsson yfir-
lögregluþjónn gerði skyndikönnun á
fangaskrá á umræddu tímabili og fann
•engan með nafni greinarhöfundar
Þjóðviljans eða líku nafni. Taldi
Guðmundur að hér væri um sögu að
ræða uppspunna frá rótum.
DB fékk þær upplýsingar á
Hagstofunni í morgun að enginn
íslendingur bæri nafnið Freyr Njarðar-
son samkvæmt skráningu í þjóðskrá.
-A.St.
Þeir voru þungbrýndir, foringjar sjálfstæðis- og framsóknarmanna, þegar þeir komu af einkafundi sínum í einu flokksherbergjanna í
A Iþingishúsinu í gœr áður en þingfundur hófst þar. DB-mynd: Ragnar Th.
„Alþýðuflokkurinn
fór á taugum”
„Ástæðan fyrir þvi að við sjálf-
stæðismenn viljum þingrof og
kosningar er sú, að við ætlumst til
þess að Alþýðuflokkurinn skili okkur
þeim þingmönnum sem hann fékk að
láni síðast. Og það má segja Alþýðu-
flokknum til hróss að hann er viljug-
ur til þess að skila. þeim,” sagði
Haraldur Blöndal i atmennum um-
ræðum á liflegum fundi Stúdenta-
félags Reykjavikur í gærkvöldi.
Þar leiddu saman hesta sina
talsmenn allra flokka.
Ragnar Arnalds gerði harða hrið
að Alþýðuflokknum í máli sínu:
„Þetta er áróðursflokkur sem byggir
tilveru sina á útblæstri í fjölmiðlum.
í raun og veru var hann aldrei fær um
stjórnarsamstarf af einu eða neinu
tagi.”
Steingrimur Hermannsson talaði
um „ótrúleg illindi og óheilindi” í
samstarfí A-flokkanna i ríkisstjórn.
„Alþýðuflokkurinn fór fyrr á
taugum. Ef til vill hefði þannig farið
fyrir Alþýðubandalaginu siðar.”
Geir Hallgrimsson ságði rikis-
stjómina versta af þeim þremur
vinstri stjórnum sem hér hafa rikt
undanfarna áratugi. „Allt er þá
þrennt er. Þessi síðasta er þeirra
skammlífust og viðskiinaður hennar
allra verstur. Aldrei, aldrei meir
vinstri stjórn.”
Eiður Guðnason sagði árangurinn
,af rikisstjórnarstarfinu minni en
ætlunin hafi verið. „Það var ekki
samkomulag um neitt sem máli skipti
í stjórn efnahagsmála. Bezti
kosturinn er að ganga til kosninga í
dcsember.”
-ARH
Stjórnar aldurs-
forsetinn áf ram?
„Ef ekki iiggja fyrir niðurstöður sagði þingmaður Alþýðuflokksins.
um viðræður um stjórnarmyndum Hann bætti við: „Fr.ðjón Þórðar-
fyrir kl. 2 í dag, hlýtur þess að verða son er maður sem við gælum alveg
óskað, að Oddur Ólafsson verði um eins failizt á. Um hæfni hans efast
sinn forseti Sameinaðs alþingis," enginn. Hann er jafnvcl líklegastur i
sagði einn þingmaður Alþýðuflokks í embættið.”
viðtaliviðDBímorgun. Viðmælandi DB úr Sjálfstæðis-
„Við höfum hugsað okkur að val flokknum sagði, að meiri vafi léki á
þingforseta og myndun stjórnar yrði i um val deildarforscta, enda skiptu
einum pakka,” sagði annar þing- þeir öðru máli. Þeir gætu allt eins
maður Alþýðuflokks. orðiö úr Alþýðubandalaginu eða
„Fari svo, að samkomulag náist Framsóknarflokknum, enda þoi'
milli þessara tveggja fiokka, er óvíst sé að Alþýðufiokkurinn ti
enginn vafi á, að Sjálfstæðismenn fá sig við Ingvar Gislason, scm venð
forsetaSameinaðsþings. Þeireigaá hefur forseti neðri deildar. „Þar
að skipa mönnum, sem Alþýðu- kæmi Eðvarð Sigurðsson alveg. eins
flokkurinn getur vel fallizt á. Þar má til mála,” sagði hann.
nefna Friðjón Þórðarson og Þorvald Um þingforseta verður þvi að
Garðar Kristjánsson, sem varð fyrsti öllum líkindum samið um leið og
forseti efri deildar þcgar Bragi Sigur- stjórnarmyndun. hvernig sem til tekst
jónsson sagði þeirri stöðu af sér,” um hana. -BS.