Dagblaðið - 17.10.1979, Blaðsíða 1
5. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979 - 228. TBL. RITSTJÓRN SjÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022.
Miklar taf ir á New York-f luginu:
LEIGUFLUGVEL FLUGLEIBA
NAUBLEKTIÁ AZOREYJUM
DCS þotan enn íhreyfilfestingarviðgerð
Það cr helzt sem ekki eigi af Flug-
leiðum að ganga um þessar mundir.
Vegna bilana og óhappa er flugvéla-
kostur Flugleiða svo Iítill þessa
dagana að New York flug varð að
feila niður bæði í gær og í morgun og
afgreiðslufólk svarar fyrirspumum
þannig til að áætlað sé að fljúga til
New York kl. 4 í fyrramálið.
DC—10 vél Flugleiða er nú í píla-
grimafluginu og hefur DC 8 vél
annazt Ameríkuflugið. Á dögunum
kom í ljós bilun í hreyfilfestingu þess-
arar Flugleiðavélar og var þá tekin
leiguvél.
Er sú leiguvéf var að fara frá
Bahama á sunnudagskvöldið stóð
yfir viðgerð á flugvellinum og gat
vélin ekki hafið sig til flugs með full-
fermi af bensini. Var henni gert að
lenda á St. Thomas eyju og fyila
geyma sína. I flugtaki frá St.
Thomas-eyju varð það óhapp að
bilun varð í vængjaflöpsum.
Voru nú góð ráð dýr þvi brautin á
flugvellinum á St. Thomas er svo
stutt að vélin gat ekki lent þar aftur
að vörmu spori. Var nú fiogið á
vélinni með vængflapsana að ein-
hverju leyti fasta til Azoreyja, þar
sem er herflugvöllur með löngum
brautum. Þar var nánast nauðlent
aðfaranótt þriðjudags. Þarvarleigu-
vélin komin í strand og af þessu urðu
hinar miklu tafir á Amerikufluginu-JH
Deilan á Neskaupstað:
Sætztámála-
miðlunígær
,,Málið er leyst, þó ekki alveg
á þann hátt sem við vildum,”
sagði Stella Steinþórsdóttir,
trúnaðarmaður í Síldarvinnslunni
í Neskaupstað í morgun.
Á vinnustaðnum kom tvivegis
til skyndiverkfalla í síðustu viku
vegna óánægju verkafólksins
með eftirlitskonu í frystihúsi.
Krafa fólksins var að konan yrði
færð til í starfi.
Málamiðlun sem sætzt var á í
gær felur í sér, að konan hefur á-
fram eftirlitsstörfin í sínum hönd-
um. Hins vegar mun hún ekki
hafa afskipti af verkafólkinu né
taka ákvarðanir sem snerta
fólkið.
Var annar starfsmaður settur
yfir skoðunardeildina. -ARH.
Gylfi Jónsson varðstjórí með út-
búnað bensínþjófanna I morgun.
DB-mynd Sv. Þorm.
Bensínþjófnaður
við Höllina
Tveir ungir piltar, en þó svo
gamlir að þeir voru umráðamenn
eða eigendur bíls, voru staðnir að
verki við bensínþjófnað af bílum
við Laugardalshöllina í gær-
kvöldi.
Fóru þeir með tvo 25 1 brúsa
og slöngu inn á bílastæði
hallarinnar meðan landsleik-
urinn stóð yfir. Höfðu þeir náð
góðum slatta í brúsana er lög-
reglan sá til þeirra.
Strákarnir hlupu og hurfu út í
myrkrið þó eltir væru. Litlu síðar
nálguðust þeir höllina aftur til að
huga að bíl sínum. FéU þá grunur
á þá en þeir neituðu unz
sönnunargögnin sáust, bensín á
höndum þeirra. -A.St.
„ Við erum að btða eftir skammtinum okkar, "sögðu hrollkaldir myndlistarnemar á
Austurveili i gœr. Þeir tóku upp á þvi að mœta á völlinn og útdeila öndvegis kjötsúpu
viðfótskör Jóns forseta Sigurðssonar.
Hressingin nefhdist kreppusúpa í tilefni af versnandi árferði i landi voru. Litii
krepputeikn sáust þó á súpunni, en myndlistarnemar bjuggust við að súpan myndi
þynnast eitth vað þegar kreppti enn meira að. A RH/DB-mynd: Bjarnieifur.
Forsetahjónin skoöa söfn
oggamlar byggingar í dag
Forsetahjónin dr. Kristján Eldjárn
og frú Halldóra heimsækja í dag 300
þúsund manna borg, Tournai, i
suðurhluta Belgíu. Þar eyða þau deg-
inum við að skoða söfn og dómkirkj-
una. Hádegisverð snæddu þau í boði
borgarstjórnarinnar.
í kvöld verða þau gestir belgísku
ríkisstjórnarinnar i Egmont-höll,
skammt frá Brússel. Verður Martens
forsætisráðherra og frú hans gest-
gjafar í þeirri veizlu.
Á morgun, fimmtudag, sem er síð-
asti dagur opinberu heimsóknar for-
setahjónanna til Belgiu, fær forsetinn
tækifæri til að ræða smástund við
Luns, aðalframkvæmdastjóra
Atlantshafsbandalagsins, skoða
fornleifar frá dögum Rómaveldis og
ræða við fornleifafræðinga.
Fengu forsetahjónin hlýjar mót-
tökur er þau komu til Belgíu í gær og
tóku konungshjónin á móti þeim á
flugvellinum. Mikill viðbúnaður var
og mannfjöldi veifaði íslenzkum og
belgiskum fánum.
- A.Bj.
MissirSólnes
fyrstasætið?
— sjá baksíðu
•
Herferðgegn
utanbæjar-
mönnumíRvík
— sjábls.5