Dagblaðið - 17.10.1979, Síða 1

Dagblaðið - 17.10.1979, Síða 1
5. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 1979 - 228. TBL. RITSTJÓRN SjÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐALSÍMI 27022. Miklar taf ir á New York-f luginu: LEIGUFLUGVEL FLUGLEIBA NAUBLEKTIÁ AZOREYJUM DCS þotan enn íhreyfilfestingarviðgerð Það cr helzt sem ekki eigi af Flug- leiðum að ganga um þessar mundir. Vegna bilana og óhappa er flugvéla- kostur Flugleiða svo Iítill þessa dagana að New York flug varð að feila niður bæði í gær og í morgun og afgreiðslufólk svarar fyrirspumum þannig til að áætlað sé að fljúga til New York kl. 4 í fyrramálið. DC—10 vél Flugleiða er nú í píla- grimafluginu og hefur DC 8 vél annazt Ameríkuflugið. Á dögunum kom í ljós bilun í hreyfilfestingu þess- arar Flugleiðavélar og var þá tekin leiguvél. Er sú leiguvéf var að fara frá Bahama á sunnudagskvöldið stóð yfir viðgerð á flugvellinum og gat vélin ekki hafið sig til flugs með full- fermi af bensini. Var henni gert að lenda á St. Thomas eyju og fyila geyma sína. I flugtaki frá St. Thomas-eyju varð það óhapp að bilun varð í vængjaflöpsum. Voru nú góð ráð dýr þvi brautin á flugvellinum á St. Thomas er svo stutt að vélin gat ekki lent þar aftur að vörmu spori. Var nú fiogið á vélinni með vængflapsana að ein- hverju leyti fasta til Azoreyja, þar sem er herflugvöllur með löngum brautum. Þar var nánast nauðlent aðfaranótt þriðjudags. Þarvarleigu- vélin komin í strand og af þessu urðu hinar miklu tafir á Amerikufluginu-JH Deilan á Neskaupstað: Sætztámála- miðlunígær ,,Málið er leyst, þó ekki alveg á þann hátt sem við vildum,” sagði Stella Steinþórsdóttir, trúnaðarmaður í Síldarvinnslunni í Neskaupstað í morgun. Á vinnustaðnum kom tvivegis til skyndiverkfalla í síðustu viku vegna óánægju verkafólksins með eftirlitskonu í frystihúsi. Krafa fólksins var að konan yrði færð til í starfi. Málamiðlun sem sætzt var á í gær felur í sér, að konan hefur á- fram eftirlitsstörfin í sínum hönd- um. Hins vegar mun hún ekki hafa afskipti af verkafólkinu né taka ákvarðanir sem snerta fólkið. Var annar starfsmaður settur yfir skoðunardeildina. -ARH. Gylfi Jónsson varðstjórí með út- búnað bensínþjófanna I morgun. DB-mynd Sv. Þorm. Bensínþjófnaður við Höllina Tveir ungir piltar, en þó svo gamlir að þeir voru umráðamenn eða eigendur bíls, voru staðnir að verki við bensínþjófnað af bílum við Laugardalshöllina í gær- kvöldi. Fóru þeir með tvo 25 1 brúsa og slöngu inn á bílastæði hallarinnar meðan landsleik- urinn stóð yfir. Höfðu þeir náð góðum slatta í brúsana er lög- reglan sá til þeirra. Strákarnir hlupu og hurfu út í myrkrið þó eltir væru. Litlu síðar nálguðust þeir höllina aftur til að huga að bíl sínum. FéU þá grunur á þá en þeir neituðu unz sönnunargögnin sáust, bensín á höndum þeirra. -A.St. „ Við erum að btða eftir skammtinum okkar, "sögðu hrollkaldir myndlistarnemar á Austurveili i gœr. Þeir tóku upp á þvi að mœta á völlinn og útdeila öndvegis kjötsúpu viðfótskör Jóns forseta Sigurðssonar. Hressingin nefhdist kreppusúpa í tilefni af versnandi árferði i landi voru. Litii krepputeikn sáust þó á súpunni, en myndlistarnemar bjuggust við að súpan myndi þynnast eitth vað þegar kreppti enn meira að. A RH/DB-mynd: Bjarnieifur. Forsetahjónin skoöa söfn oggamlar byggingar í dag Forsetahjónin dr. Kristján Eldjárn og frú Halldóra heimsækja í dag 300 þúsund manna borg, Tournai, i suðurhluta Belgíu. Þar eyða þau deg- inum við að skoða söfn og dómkirkj- una. Hádegisverð snæddu þau í boði borgarstjórnarinnar. í kvöld verða þau gestir belgísku ríkisstjórnarinnar i Egmont-höll, skammt frá Brússel. Verður Martens forsætisráðherra og frú hans gest- gjafar í þeirri veizlu. Á morgun, fimmtudag, sem er síð- asti dagur opinberu heimsóknar for- setahjónanna til Belgiu, fær forsetinn tækifæri til að ræða smástund við Luns, aðalframkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, skoða fornleifar frá dögum Rómaveldis og ræða við fornleifafræðinga. Fengu forsetahjónin hlýjar mót- tökur er þau komu til Belgíu í gær og tóku konungshjónin á móti þeim á flugvellinum. Mikill viðbúnaður var og mannfjöldi veifaði íslenzkum og belgiskum fánum. - A.Bj. MissirSólnes fyrstasætið? — sjá baksíðu • Herferðgegn utanbæjar- mönnumíRvík — sjábls.5

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.