Dagblaðið - 26.10.1979, Page 1
5. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1979 — 236. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
SighvaturBjörgvinsson, fjármáiaráðherra:
I
OUUMOL GJALDÞROTA
verkefnaskortur og fyrirsjáanlegur taprekstur upp á hundruð milljóna
,,Það fer ekki á milli mála, Olíu-
möl hf. er gjaldþrota þar sem mjög
mikið fé vantar inn í reksturinn,”
sagði Sighvatur Björgvinsson fjár-
málaráðherra í morgun.
„Ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar
óskaði eftir því við Framkvæmda-
stofnun ríkisins, þegar ég var þar for-
maður stjórnar, að stofnunin gerði
tvennt: í fyrsta lagi að leggja sjálf
fram hlutafé í Olíumöl hf. og í öðru
lagi að lána sveitarfélögunum fé,
þannig að þau gætu aukið hlutafé sitt
í fyrirtækinu. Þarna var um að ræða
100 milljónir frá Framkvæmdastofn-
un og 200 milljóna kr. lán til sveitar-
félaganna.
Eftir að Framkvæmdastofnun
hafði lagt fram sitt fé og gerzt hlut-
hafi var fyrirtækið tekið til betri
skoðunar. Þá kom tvennt í Ijós: Bæta
hefði þurft við hundruðum milljóna
króna til viðbótar og fyrirsjáanlegur
var mikili hallarekstur áfram nema
hægt væri aðstórauka verkefni fyrir-
tækisins. Við fórum því hægt í að
lána sveitarfélögunum fé til hluta-
fjáraukningar þar sem við töldum
það vafasama ráðstöfun af Fram-
kvæmdastofnun að verja miklu fé í
mjög áhættusaman rekstur.
Við létum ríkisstjórnina hins vegar
vita og óskuðum eftir því að hún at-
hugaði málið og tæki ákvörðun um
það hvort hægt væri að útvega verk-
efni. Ólafur Jóhannesson, þáverandi
forsætisráðherra, skrifaði Fram-
kvæmdastofnun síðan bréf á síðustu
dögum þeirrar ríkisstjórnar, þar sem
hann komst að þeirri niðurstöðu að
ekki væri unnt að tryggja Olíumö!
verkefni og þar með áframhaldandi
rekstur. Fé Framkvæmdastofnunar
var því dregið til baka.
Það er síðan eignaraðila Olíumalar
hf. að taka afstöðu íil þessarar niður-
stöðu ríkisstjórnarinnar. Ljóst er að
ef þessi staða fyrirtækisins hefði
verið Ijós í vor, hefðu sveitarfélögin
ekki verið ánægð að fá þetta fé og
ráðstafa því á þennan hátt, þar sem
þau hefðu þá tapað hundruðum
milljóna króna. Framkvæmdastofn-
un hefði hins vegar ekki tapað því fé,
sem sveitarfélögunum hefði verið
lánað, þar sem þau hefðu orðið að
ábyrgjast endurgreiðslu á þvi.”
- JH
—sjánánarábaksíöu
Haukur Morthens var fundarstjóri á Hótei Loftleiðum (gærkvöldi. Nokkuð á þriója hundrað manns sóttu fundinn. Dr. Bragi er hér / rœðustóli. DB-myndBj.Bj.
„Flokks-
formenn
eru ekki
heilagir”
— sagðidr. Bragi
„Það hryggir mig, að vinur minn’
Benedikt Gröndal hefur ekki séð
ástæðu til þess að mæta á þennan
fund,” sagði dr. Bragi Jósepsson
meðal annars á fundi, seni hann
boðaði til á Loftleiðahótelinu i gær-
kvöldi. Nokkuð á þriðja hundrað
mannssóttu fundinn.
,,Á Spáni er það nautaat, i Banda-
ríkjunum hanaslagur, hér opin próf-
kjör,” sagði dr. Bragi, er hann lýsti
mismunandi aðferðum, sem bcitt
væri til þess að ná sér niðri á and-
stæðingum og keppinautum. Fór
hann allt aftur til vopnaburðar
Sturlungaaldar i samlíkingu sinni.
Jón Baldvin Hannibalsson, rit-
stjóri og frambjóðandi i prófkjöri
Alþýðuflokks í Reykjavík sagði að
það væri ekki sigurstranglegt fyrir
flokk þeirra Braga að láta nú fara
fram opinbera aftöku á formanni
flokksins, Benedikt Gröndal, —
manninum, sem slitið hafi stjórnar-
samstarfinu. Hvatti hann menn til
þess að styðja Bencdikt.
Dr. Bragi sagðist myndi fclla
Benedikt i prófkjörinu um alþingis-
framboð i Reykjavík. Til þess væri
prófkjör haldin að menn segðu
meiningu sina á mönnum og mál-
efnum. Flokksformenn og forsætis-
ráðherrar væru ekki heilagir. -BS.
Hvemigáhárið
aðveraívetur?
— Sjá myndirog
frásögnbls.4
Vestfirðir:
Indælt strið hjá
Sighvatí og Karvel
______ — sjá bls. 13
Þvottahús ríkisspítal-
anna er dýrast í bænum
— sjábls.7
Pólitískur
snjómokstur?
Skrípalæti
eru þetta!
— segir Matthías
Bjarnason —bis.á
NÚ MÁ K0MAST ÞANGAÐ
ÁN BiÐRAÐA 0G HÆTTU
— nýjar slauf ur leysa vandann—sjá bls. 6