Dagblaðið - 26.10.1979, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1979.
^4
Hártízkan:
GREIÐSLAN Á AÐ VERA KVENLEG OG
MEST ÁHERZLA LÖGD Á HNAKKANN
„Stutta hárið sem er i tízku núna er
klippt í styttur og haft styttra að
framan. Lögð er mikil áherzla á
hnakkann. Sitt hár er einnig í tízku.
„Stríðs-linan” sem byrjaði í fyrra-
vetur er enn efst á baugi i síða hár-
inu,” sögðu þær Pálína Sigurbergs-
dóttir og Helga Jóakimsdóttir hár-
greiðslumeistarar í samtali við DB.
Þær eru nýkomnar heim af mikilli
hárgreiðslusýningu i P’arís, Festival
de la coiffure. Á sýningunni sýndu
öll helztu samtök hárgreiðslumeistara
í Frakklandi og auk þess margir ein-
staklingar, einnig utan Frakklands.
Má t.d. nefna meistara bæði frá
Ítalíu og Japan.
Nú á stutta hárið að vera líkt og
vindblásið, kvenlegt og ekki í föstum
skorðum. Það er ekki amalegt fyrir
konur á íslandi þar sem alltaf er rok.
— Greiðslurnar á siða hárinu þola
hins vegar ekki rokið. Nú er enginn
með túperað hár lengur, eins og sjá
má á meðfylgjandi myndum. —
Ljósi liturinn er mikið í tízku og
mikið um strípur. Nú eiga þær helzt
LJOSMYNDIR
BJARNLEIFUR
BJARNLEIFSSON
að vera gylltar, en ekki gráar eins og
áður. Permanent er algjör nauðsyn i
dag, en það á umfram allt að vera
létt, eins og lagningin. Á sýningunni
voru allar samkvæmisgreiðslurnar
sýndar á síðu hári. Áberandi var
mikil notkun alls kyns kamba.
Alltaf tekið mark
á Frökkum
„Það er einhvern veginn svo að
alltaf er tekið mikið mark á Frökk-
um, hvort sem er í fatatízku eða hár-
tízkunni. Um leið og einhver lína
kemur fram hjá þeim er hún á auga-
bragði komin út um allan heim,”
sagði Helga. — Þeim kom einnig
Hárgreiðslan á að vera kvenleg. Mödelin okkar þrjú eru, talið frá vinstri, Vala
Jónsdðttir, Yrsa Bergmann og Halla Hialtested.
saman um að franskar konur væru
áberandi vel snyrtar, bæði hvað
varðar hárgreiðsluna og andlits- og
handsnyrtingu.
Pálínu og Helgu kom saman um að
samkeppni meðal hárgreiðslustofa
færi nú mjög harðnandi hér á landi
og töldu að það væri mjög gott bæði
fyrir iðnina og viðskiptavinina. Hár-
greiðslufólk leggur sig fram um að
fylgjast vel með því sem er að gerast
úti í hinum stóra heimi, til þess að ís-
lenzkar konur geti jafnan verið vel og
smekklega greiddar samkvæmt nýj-
ustu tizku.
Það getur kostaðallt að 17 þúsund
kr. að fá permanent „með öllu” hér
á landi. Þá er innifalinn þvottur,
klipping, blástur eða lagning auk þess
lagningarvökvar og lakk. Verðið
getur verið mismunandi eftir stofum
og tegundum permanentsins sem
notaðer.
KlippingJiér kostar frá 3500—4000
kr. Verðið fer dálitið eftir þvi hvort
hárið er klippt í nýja línu eða hvort
það er rétt aðeins sært að neðan. Það
kostar frá 2.800 kr.
Þær Pálína og Helga höfðu báðar
látið klippa sig og fengið blástur í
París. Klippingin þar kostaði 150
franka sem svarar 15 þúsund ísl. kr.,
en gat farið upp í 200 franka. Blástur
(og þvottur) kostaði sem svaraði 9000
ísl. kr. Samsvarandi þjónusta hér
kostar frá 4860kr.
- A.Bj.