Dagblaðið - 29.10.1979, Qupperneq 1
5. ÁRG. — MÁNUDAGUR 29. OKTÓBER 1979 — 238. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022.
* : ttz :
Doktor Bragi lýsti
sigsigraðan:
^■SIGUR BENEDIKTS
MEIRIEN ÉG RIÓST V»”l
„Benedikt Gröndal er yfirburða-
sigurvegari. Það er ánægjulegt þegar
stjórnmálaleiðtogi fær afdráttarlausa
stuðningsyfirlýsingu sem þessa. Sigur
Benedikts er meiri en ég bjóst við. Ég
bauð mig fram af því ég var og er
ekki ánægður með ýmislegt sem hann
hefur gert. Þið hafið hafnað mínu
framboði. Þannig er lýðræðið og nú
heiti ég á þingmenn Alþýðuflokksins
að standa að baki foringja sínum.
Á þessa leið mælti dr. Bragi
Jósefsson þegar hann viðurkennd
ósigur sinn i prófkjör
Alþýðuflokksins í Reykjavik
Sigtúni í gærkvöldi.
Bragi fékk 689 atkvæði en Bene-
dikt 2900 atkvæði. Auðir seðlar og
ógildir voru 23.
Benedikt Gröndal forsætis-
ráðherra sagði í samtali við Dag-
blaðið eftir að úrslitin lágu fyrir, að
hann hefði búizt við jafnari leik. ,,Ég
lýsti því yfir fyrr í vikunni að mjög
tvisýnt væri um úrslitin og að ég
kynni að detta út af þingi. Fólk hefur
sýnilega tekið við sér. Reynslan sýnir
að lýðræðislegar kosningar á borð
við prófkjör hafa orðið til að styrkja
okkur og veita flokknum mikilvæga
lyftingu. Ég vona að þetta verði góð
generalprufa fyrir desember-
kosningarnar ”
Allt frá því talning hófst var ljóst
að Bragi myndi ekki ógna formanni
Alþýðuflokksins i prófkjörinu.
Fyrstu tölur sýndu hvað verða vildi
og var tekið með fögnuði miklum af
mannskapnum í salnum. Þar var
Benediktsliðið greinilega í miklum
meirihluta. Bragi Jósefsson stormaði
i salinn þegar talning var rúmlega
hálfnuð og lýsti Benedikt sigur-
vegara. Hann stóðstutt við i Sigtúni.
-ARH.
Allf um prófkjör
á framboðslista
stjómmálaflokkanna
—sjá bls. 8,9,12 og baksíðu
Sáu snjó í
fyrsta sinn á
ævinm
— sjábls.8
Snjórinn kom-
innog
vetrardekkin
undir -sjábis.6
Sameinaðir stönuum vér, sundraðir föilum vér. Eftir öll stóru orðin og baráttuna undanfarna daga tókust þeir i hendur dr.
Bragi Jósefsson og Benedikt Gröndal forsætisráðherra. Þetta var dagur Benedikts.
DB-mynd Hörður.
Minning um Hauk Gröndal og
Sinf ónían og Schneiderhahn
— sjá tónlistargagnrýni Eyjólfs Melsteð bls. 13
•
íslenzka unglingalandsliðið á meðal
8 beztu á HM ef tir f rækilega sigra
um helgina _ sjá ll)róttir bis 18 19 29,
21,22 og 23
V ..................-■■■■■■■. /
Akureyri:
Eldur í gömlu
Akraborginni
Eldur kom upp í hádeginu í gær í
gömlu Akraborginni sem legið hefur
óhreyfð um lengri tíma i höfninni á
Akureyri. Skipið'sem er um 200 tonn
hefur verið ónothæft og er talið að hér
hafi verið um íkveikju að ræða. Eld-
urinn kom upp í káetu og breiddist inn í
vélarhús, brú og ganga skipsins sem er
undir brúardekki. Eldurinn var
töluverður um tíma, en greiðlega gekk
að slökkva hann.
-ELA.
Akraborgin brennur á Akureyri. Báturinn var orðinn að kennileiti f höfninni eftir
langa legu.