Dagblaðið - 30.10.1979, Side 1
5. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1979 — 239. TBl,. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVF.RHOLTI 11— AÐALSÍMI 27022.
,
Geir, Albert og Birgir efstír íprófkjöri Sjálfstæöisflokksins:
NU ER EKKITIL ~ segir Birgir ísleifur, semnúferáþingog hveturflokksmenn tíldáðaíkomandi kosningum —sjá baksiðu
SETUNNAR BOÐIÐ
„Vid treystum á að
íslendingar sjái okkur
fyrirnægum fiski”
— Segja Fleetwoodbúar, sem þarfnast fisks frá
íslandi. Sjá heimsókn DB til Fleetwood á bls. 8-9
Sjátfstæðismenn í Suðurlandskjördæmi:
BAKKA EYJAMENN
ÚR ÖDRU SÆÍINU?
— óttast fylgi sérframboðs Eggerts Haukdal og
tap atkvæða til uppbótarsætis
Ólgan innan Sjálfstæðisflokksins á
Suðurlandi virðist enn vera að taka
nýja stefnu í kjölfar þess að Rang-
æingar og V-Skaftfellingar una ekki
3. sætinu og vilja 2. sætið, er kjör-
dæmisráð hefur sett Eyjamann í og
Árnesing í I. sætið.
Svo sem DB hefur skýrt 'frá, hefur
Rangæingurinn Eggert Haukdal
staðfest að hann uni aldrei 3. sætinu
og látið í veðri vaka að hann efni til
sérframboðs ef ekki verði látið undan
kröfu hans um 2. sætið.
Framundir það síðasta hafa Eyja-
menn ekki viljað hvika frá 2. sætinu,
en nú síðustu daga er að renna á þá
tvær grímur, skv. heimildum DB úr
Sjálfstæðisflokknum á Suðurlandi.
Reikna þeir nú dæmið svo, að fari
Eggert í sérframboð og komist inn, sé
maöurinn í 2. sæti flokksins i fall-
hættu, enda hafði flokkurinn aðeins
2 menn á þingi siðast. Fari jafnvel
svo að Eggert komist ekki inn, þykir
sýnt að hann muni ná allverulegu at-
kvæðamagni frá flokknum, jafnvel
það miklu að 2. maður komist ekki
inn, og síðast en ekki sizt, verða
atkvæði Eggerts flokknum dauð í
baráttunni um uppbótarsæti.
Þá telja Eyjamenn það muni efla
tryggð flokksmanna þar að setja
heimamann í vafasæti, því lengi
hefur þótt loða við að Vestmanna-
eyingar hafa skipt atkvæðum þannig
á milli flokka að þeir eignuðust sem
flesta þingmenn sjálfir og hafa þá
litið framhjá flokkslinunni í þeim til-
gangi.
-GS.
og brunaliðsbillinn kom æðandi að:
Reykur í Slippnum
— verið að gufuhreinsa Hval 8
Slökkviliðið var i nótt kallað að Slippnum I Reykjavlk. Þar var í klössun Hvalur 8,
bútur Hvals hf. Míkinn reyk lagði upp af hútnum og töldu menn að um eld vœri að
rœða. Þegar til kom var hins vegar aðeins verið að hreinsa bútinn með gufu og
slökk viliðið sneri til baka. DS-DB-mynd: Sv. Þorm.
Tvötýndsíðaná
föstudagskvöld:
Engin vfs-
bending um
hvarþaueru
Mikil leit hefur staðið yfir frá
því í gær að tveimur Þorláks-
hafnarbúum, 26 ára konu og 21
árs karlmanni.
Ekkeri hef • : -rrn spurzt
síðan á föstudagskvöld ,-n þá
sáust þau saman i etl.ció í Þor-
lákshöfn. Hin týndu heita Katrín
Sigrún Ólafsdóttir, Reykjabraut 3
og Ómar Berg Ásbergsson, Eyja-
hrauni 18. Katrín var klædd í
bláar gallabuxur og bláa ullar-
úlpu en Ómar var klæddur i
svartar flauelsbaxur og græna
mittisúlpu. Bifreiðin sem þau
sáust síðast i er gul Lada 1500
með skrásetningarnúmerinu X—
4905.
Að sögn Jóns Guðmunds-
sonar, yfirlögreglumanns á
Selfossi, hefur engin vísbending
komið fram um hvað kunni að
hafa orðið af fólkinu. í gær var
skipulögð viðtæk leit af lög-
reglunni í Árnessýslu og SVFI . Þá
tók þyrla Landhelgisgæzlunnar
einnig þátt i leitinni, og kafarar
leituðu i höfninni. Auglýsingar i
útvarpi hafa verið með qIIu á-
rangurslausar til þessa.
í dag hefur verið skipulögð
víðtæk leit af hálfu lögreglunnar
og Slysavarnafélagsins.
Það eru eindregin tilmæli lög-
reglunnar á Selfossi að þeir er
hafa orðið bílsins eða fólksins
varir síðan á föstudagskvöld hafi
tafarlaust samband við
lögregluna. -GAJ-
2 mánaða deyfð í atvinnulrfinu á Rateyri vegna óvæntrar vélarbilunar í skuttogaranum Gylli:
Á ANNAÐ HUNDRAÐ
Gyllir við bryggju á Flateyri.
DB-mynd; JH.
MILUONA TJON AF
VÉLARBILUNINNI
orsakir
enn óljósar
Deyfð heft.f .verið yfir atvinnu-
lifinu á flateyíri síðan I ágústlok er
skyndilfg og meiri háttar vélarbilun
varð i skuttogaranum' Gylli. Þessa
dagana er verið að reynslusigla
togaranum eftir að aðalvél hans var
rifin alveg niður, endurnýjuð
verulega og byggð aftur upp hjá Vél-
smiðju Hafnarfjarðar.
Bilunin var með ólíkindum marg-
þætt með tilliti til þess að skipið og
vélin eru ekki ncma fjögurra ára
gömul.
Að sögn Hinriks Matthíassonar, i
Samábvrgð íslands á fiskiskipum, er
beðið niðurstöðu þýzks sérfræðings,
sem dvaldi hér og hafði yfirumsjón
með verkinu.
Lauslega áætlaði hann að bcint
tap útgcrðarinnar, með vaxtatjóni og
öllu, næmi talsvert á annað hundrað
milljóna króna.
Meðal þeirra ástæðna sem DB
hefur heyrt nefndar fyrir þcssu tjóni,
eru handvömm vélstjóra, fratn-
leiðslugallar á vélinni, eða áhrif
svartoliunotkunar siðustu mánuðina
fyrir bilunina.
-GS.