Dagblaðið - 30.10.1979, Síða 2
2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1979.
Vilmundurlyklalaus:
Þannig sýnir Steingrímur
starfi sínu virðingu
Kristján Karl Sigmundsson skrifar:
Jóhann Óli Guðmundsson skrifaði
í lesendabréfi sl. laugardag um það
sem hann kallar „þverrandi siðferðis-
þrek æðstu manna”.
Hann talar um þverrandi virðingu
fólks fyrir Alþingi. Ástæðuna telur
hann sök þingmanna sjálfra.
„Hegðun þeirra öll á stundum og at-
hafnir ber vott um fádæma
virðingarskort fyrir starfi sínu og
þjóðfélagsstöðu,” segir hann og sem
dæmi um þetta nefnir hann þá
ákvörðun Steingrims Hermannssonar
að afhenda Vilmundi Gylfasyni ekki
lyklana að dómsmálaráðuneytinu.
Hér er nú hlutunum heldur betur
snúið á haus. Með þessari ákvörðun
sinni hefur Steingrímur Hermanris-
son þvert á móti sýnt hve mikla
virðingu hann ber fyrir starfi sínu.
Með þessu hefur hann sýnt reisn
sem lengi verður munuð og sem
flokksmenn hans og allir sem vilja
verja virðingu Alþingis og stjórnar-
farsins í landinu kunna að meta.
Vilmundur Gylfason er sá maður
sem næst hefur höggvið virðingu
Alþingis. Hann er sá maður sem með
mestum svívirðingum hefur ráðizt á
Hæstarétt og nýleg ummæli hans
bera með sér að hann ber ekki skyn á
einföldustu umgengnisreglur fram-
kvæmdavalds og dómsvalds. Hann er
uppvís að því að hafa staðið í nánu
sambandi við mann sem með ólögleg-
um hætti átti þátt í handtöku annars
manns.
Hvernig í ósköpunum gat nokkur
maður með virðingu fyrir sjálfum sér
og starfi sínu afhent Vilmundi lykl-
ana að dómsmálaráðuneytinu?
Fyrir formann Framsóknarflokks-
ins er það að minnsta kosti ómögu-
legt. Ýmsir menn hafa setið í dóms-
málaráðuneytinu á undanförnum
áratugum fyrir Framsóknarflokkinn.
Allir þessir menn komu fram mjög
miklum umbótum á sviði dómsmála
og ber þar e.t.v. hæst starf Ólafs
Jóhannessonar á því sviði. Enginn
maður hefur þó á síðari árum mátt
þola aðra eins rógsherferð og hann
varð fyrir á árinu 1977. Þar stóð
fremstur í flokki hinn sami „Vil-
mundur iyklalausi”, sem Sjálfstæðis-
flokkurinn er nú búinn að gera að
dómsmálaráðherra.
Og nú þegar Vilmundur er farinn
að snudda í möppum dómsmálaráðu-
neytisins hefur sá maður sem hann
rægði mest, Ólafur Jóhannesson,
verið tilnefndur hæfasti stjómmála-
leiðtogi landsins af lesendum þessa
dagblaðs.
Vilmundur og Baldur Möller morguninn fræga er Vilmundur mætli lykillaus i
dómsmálaráðuneytið. l)B-mynd Hörður.
Enn skemmtilegri pólitík:
KJÓSUM HALLA 0G
LADDA Á ÞING
Suðurnesjamaður skrifar:
I leiðara Dagblaðsins í gær er kom-
izt þannig að orði að Óli Jóh. sé eini
íslenzki pólitíkusinn sem rísi upp úr
meðalmennskunni. Sennilega er þetta
hárrétt. En hvað skal þá gera við þá
59 sem eftir eru á þinginu í innbyrðis
samkeppni um meðalmennsku? Er
ekki hægt að fríska rækilega upp í
þessu liði þannig að þjóðin geti haft
ærlega skemmtun af?
Þess vegna legg ég til að Halli og
Laddi komi til liðs við „Prúðu leikar-
ana” við Austurvöll. Þeir hafa sýnt
það í verki að geta skemmt þjóðinni á
við a.m.k. 30 þingmenn. Eins og
stjórnmálaástandið er nú er heldur
enginn vafi á því að Halli og Laddi
yrðu kosnir á þing ef þeir fengjusk, til
að gefa kost á sér.
Og úr þvi að þessi hugmynd ér
komin á blað, hvers vegna kjósum
við ekki Jörund eftirhermu á þing i
leiðinni, hann gæti hermt eftir hinum
30 og væri þá þingið í fullum gangi
með aðeins 3 þingmönnum, mun
skemmtilegra og mun ódýrara. Það
væri jafnvel engin goðgá að leggja til
að Alþingi þríborgaði símreikninga
þessara skemmtikrafta og ef ein-
hverjum þeirra væri leyft að fikta við
að byggja upp Saltverksmiðjuna á
Reykjanesi er ekki að vita nema
honum tækist að byggja upp þrótt-
mikla bílaleigu í Keflavík í leiðinni og
renna þannig stoðum undir atvinnu-
lífið þótt saltið yrði lítið og lélegt.
.....
■ w , « n-u, -------------------------- - ............ " \
f/\ KRISTJfln
SIGGEIRSSOn Hfi
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870
„Þúœttir
czö prófa að
sitja í þeim
Björksaga húsgagnalínan einkennist af þæg-
indum, léttu yfirbragði, ásamt styrkleika oq qóðri
endingu.
Komdu og prófaðu Björksaga línuna — þú
getur valið úr 14 mismunandi gerðum borða og
stóla í Ijósum eöa dökkum viði með tau- eða
skinnáklæði.
V
Hét ekki lengur Straumfjörð
7860-3739 hringdi:
Um skeið var dr. Bragi Jósepsson
barnakennari i Vestmannaeyjum.
Kallaði hann sig Braga Straumfjörð.
Síðar fór hann til Bandaríkjanna til
náms. Þegar hann kom heim þaðan
hafði hann að því leyti breytt um
nafn að hann nefndi sig Braga
Jósepsson og var nú kominn með
doktorsgráðu.
Af þessu tilefni varð alkomanda
'Bólu-Hjálmars að orði:
Rosknirgeta mörgum mætt
manneskjum af ýmsu tæi.
Af hverju skyldi hafa hætt
að heita Straumfjörð þessi Bragi?
JÓNAS DAGBLAÐS-
RITSTJÓRIKRATI?
Valþór Stefánsson, Hjarðarhaga 62,
hringdi:
Dagblaðið hefur alltaf kallað sig
frjálst og óháð dagblað. Að flestu
leyti stendur það undir nafni. Þó ekki
alveg. Þá á ég við óháða hlutann á
viðheitinu.
í hvert skipti scm ég les forystu-
greinar DB eða hlusta á útdrátt þeirra i
útvarpinu heyri ég greinilega að þær
skrifar alþýðuflokksmaður. Og þá á
ég auðvitað við Jónas Kristjánsson.
Út af fyrir sig væri þetta í lagi ef
um væri að ræða aðrar greinar en
forystugreinar. Því þetta hlýtur að
draga til sin alþýðuflokksmenn til að
skrifa i DB frekar en menn úr öðrum
pólitískum flokkum. Enda hefur
blaðið ætið haft yfir sér nokkurs
konar alþýðuflokksblæ. Og finnst
mér það miður.
Væri ekki einhver leið til að hafa
forystugreinar blaðsins óhlutdrægari
og um leið óháðari þótt ekki væri
nema til þess að blaðið stæði undir
nafni?
Það yrði blaðinu til bóta en segja
má að DB sé að öðru leyti gott og
nauðsynlegt blað.