Dagblaðið - 30.10.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1979.
3
Sagan endurtekur sig:
A VILMUNDUR AND-
STÆÐINGUNUM
SIGURINN AÐ ÞAKKA?
Vilmundur íívlfason cr ad álili hréfrilara sá sljúrnntálamaAur sem liæsl her <>(■
artriróllasl mesl. DB-mvnd Raynar.
Raddir
lesenda
Ingólfscafé fráhrindandi
„Þyrfti hlífð-
arskó til að
ganga fram-
hjá salerni'"
Ein sem skilur ekki hvernig þella
hcfur gengið svona lengi skrifar:
Ég vil eindregið taka undir með
konu þeirri er skrifaði uni snyrtiað
slöðuna í Ingólfscafé. Svo lengi sem
ég man eftir hefur Alþýðuhúskjallar-
inn, eins og þessi skemmtislaður er
vanalega nefndur, engum breytingum
tekið til batnaðar.
Þegar komið er þar inn er gengið
inn í forstofu sem er cins og mjög illa
um gengin sameign í fjölbýlishúsi.
Þar er smáborð þar sem aðgöngu-
miðar eru seldir. Síðan þarf sérstak-
lega að greiða fyrir fatageymslu gjald
sem yfirleitt er innifalið i aðgöngu-
miðaverði á öðrum skemmtistöðum.
Þetta veldur óþægindum fyrir gesti.
A palli þeim sem hljómsveitin
leikur á er eldgamalt pianó sem tekur
helming af plássinu enda meðlimir
hljómsveitarinnar i einum hnapp.
Söngvarinn þarf stól til þess að
komast upp og niður af pallinum.
Milli þess sem hann er að þessum
æfingum situr sparibúið fólk á þess-
um stól.
Dansgólfið er stórt og gott en illa
hirt eins og annað þarna. Sömu bekk-
irnir eru búnir að vera við veggina í
20—30 ár. Innri salur er mjög óvist-
legur.
Uppi er líka salur, þannig að þarna
er mjög gott húsrými.
Ef staðnum yrði breytt, settir góðir
stólar, hljómsveitapallur stækkaður,
komið upp skemmtilegri ljósaskreyt-
ingu, innri salur teppalagður og
settur á dúkur í skemmtilegum litum
uppi og þar settir sófar og komið upp
kaffi- og brauðsölu eins og á öðrum
veitingastöðum; yrði hann einn bezti
staðurinn í bænum. Alveg er svo skil-
yrði að söngvari og hljómsveit fylgd-
ust með timanum og spiluðu ný lög
sem hægt er að dansa gömlu dansana
eftir.
Snyrtiaðstaða er svo óskapleg í
Ingólfscafé að enginn myndi trúa þvi
sent ekki hefur komið þar. Þar er
einn vaskur, stiflaður og brotinn.
Lítill brotinn spegill og engin sápa
eftir kl. 11.30. Búið er að eyðileggja
hana og handklæðið orðið að gólf-
tusku og ófært er orðið inn á salerni.
Ef bréfrúlla er ástaðnum er hún strax
rifin niður. Það er leiðinlegt að þurfa
að lýsa umgengni kynsystra sinna
þannig, en því miður satt.
Inn á salerni karlanna hef ég ekki
komið. En oft hefur þurft hlifðarskó-
fatnað til að ganga þar fram hjá.
Eitt enn er sérstakt við Ingólfscafé.
Þjónustustúlkur, dyraverðir og
hljómsveitarmenn taka þátt í dansin-
um svo oft stendur á að fá veitingar,
þaðeröl, annaðerekki til á borðin.
Ég tek undir með þeirri sem áður
hefur skrifað um þetta. Er ekki
kominn tími fyrir heilbrigðisyfirvöld
að gera eitthvað í þessu og eins fyrir
háttvirtar nefndir að gcfa út almenn-
ar reglur um skemmtistaði.
Aðalbjörn Arngrímsson frá Hvammi
skrifar:
Eftir nýafstaðið þingrof og
stjórnarmyndun ætti engum að dylj-
ast hvern einstakan alþingismanna
ber hæst og aðrir óttast mcst. Á ég
þar við Vilmund Gylfason núverandi
dómsmálaráðherra.
Þótt nú einhverjir skuggasveinar
sleiki sár sin undan vendi Vilmundar
er það með ólikindum hvað óttinn
við hann á hærri stöðum er mikill og
mun honum verða haldið við fram að
kosningum ef að líkum lætur.
Ekki get ég hugsað mér að Vil-
mundur Gylfason gæti haldið svo
magnaða framboðsræðu að hún afl
aði honum nema brots af því fylgi
sem örvæntingaróp óttans hjá and-
stæðingum hans sjá honum fyrir með
fálmkenndri auglýsingastarfscmi
sinni. Hvort hann festist i þeim gildr-
um sem fyrir hann verða lagðar á hin-
um stutta ráðherraferli skal engu um
spáð. Þar hefur þó verið nefnt
Hauksmál sem á sínttm tima orkaði
tvimælis um hvernig að var staðið frá
dómsyfirvalda hálfu og flcira mun
koma á eftir.
Sagan endurtekur sig. Langt er nú
siðan einn mesti stjórnmálaskör-
ungur sem ísland hefur alið mætti
svo hatrömum ofsóknum að nær
gekk heimilishelgi og -friði til starfa.
Sérstaklega væri framsókmumönn-
um gott að minnast þess að enn ntuna
gamlir samherjar Jónasar frá Hriflu
þær skefjalausu ofsóknir sem á hon-
um dundu seint og snemma og við
munum einnig hvernig hann kom
stærri og sterkari undan hverju
höggi.
Væri nú ekki hugsanlegt að Vil-
mundur gerði það lika og ætti þá
sigur sinn andstæðingum sinum að
þakka.
Við teljum
að notaðir VOL VO bílar séu betri en nýir bílar af
ódýrari gerðum.
VOLVO 244 DL, 1979,
sjálfskiptur, m/vökvastýri, ekinn 12 þús.
skiptum fyrir ódýrari bíl
VOLVO 244 DL, 1978,
sjálfskiptur, ekinn 30 þús. I skiptum fyrir bein-
skiptan VOLVO árg. 73—75
VOLVO 244 DL, 1978,
ekinn 18 þús., beinskiptur, skipti á VOLVO
árg. 72—74
VÖLVO 245 DL, 1977,
sjálfskiptur, ekinn 36 þús. Skipti á eldri
VOLVO
VOLVO 244 DL, 1977,
beinskiptur, ekinn 36 þús. Skipti á VOLVO
árg. 73—75
VOLVO 244 DL, 1976,
ekinn 60 þús., beinskiptur, skipti á nýrri
VOLVO 5.0 millj.
VOLVO 244 GL, 1976,
beinskiptur, skipti á VOLVO árg. 72—74 5.5 millj.
VOLVO 244 DL, 1975,
beinskiptur, ekinn 59 þús. 4.5 millj.
VOLVO frá VELTIRHF
Suðurlandsbraut 16, R.
Sími 35200.
7.2 millj.
6.6 millj.
6.0 millj.
6.0 millj.
5.3 millj.
HVAÐ &EN&UR Á 3
HVER...HVER ER
retta ?
kkaxílík,
mm
r,
'/77
Varstu spennt(ur)
fyrir úrslitum í próf-
kjörum flokkanna?
Rúna Knútsdóllir skrifstofumaður:
Nei, alls ekki. Ég hef engan áhuga á
þessu.
Spurning
dagsins
Niels Gislason, bilsljóri hjá Mjólkur-
samsölunni: Jú, ég var ntest spenntur
l'yrir að sjá hvort Bcnedikt Gröndal
yrði i I. sæti hjá Alþýðuflokknum. Það
var svo mikill áróður l'yrir keppinautn-
um.
Halldóra Jónsdóllir húsmóðir: Já, ég
er spennl fyrir þessu. Ég hef ekki ennþá
tekið þátt í prófkjöri sjálf en l'er
kannski í dag (mánudag).
Gísli Júlíusson verkfræðingur: Já, ég
fylgdist með prófkjörunum og tók
sjálfur þátt i cinu.
Sigrún Sigurðardóttir húsmóðir: Ekk-
ert sérstaklega. Mér er nokkuð santa
hvernig þelta fcr. Allt cr i óreiðu hvort
sem er! -.
Ingimundur Ingimundarson skipsljóri:
Ég fylgist með og er spcnntur fyrir öll-
unt úrslitum í prófkjðr.um.