Dagblaðið - 30.10.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 30.10.1979, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1979. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÖBER 1979. 13 Þrjú mörk íra á f jórum mínútum Þrjú mörk irska landsliösins á fjórum minúlum björguöu ándlilinu í lcik þess viö bandaríska landsliðið sem fram fór í Dublin í gær. Bandarikja- mennirnir sýndu mjög góða knattspyrnu ofl á líðum 0(> komust í 2—0. Fyrra markið skoraði Dibernardo á 12. mínútu og síðan bælli Greg Villa við öðru marki á 63. mínútu. írarnir lóku þá mikinn kipp og skoruðu þrivef*is á aðcins fjórum mínúlum. Fyrst skoraði Tony Grealish á 65. mín. Þá bætli Don Givcns öðru við mínúlu síðar — hans 20. landsleikjamark — og lokaoröiö átli svo bakvörðurinn Anderson er hann skoraði á 68. minútu. Bandaríkjamennirnir hafa komið mjög á óvarl i ferð sinni um Evrópu og þeir lögðu l.d. lið Ungverja 2—0 í Búdapest fyrir helgina. Þess má )>ela að i lið íra í )>ær vantaði þá Frank Staplelon, I.iam Brady o)> David O'Leary. Sigurður Sverrisson Nokkur lið sektuð af UEFA í gær Aganefnd UF.FA kom saman í gær og voru þá mörg kærumál tekin fyrir og fengu ófá félög að finna fyrir refsivcndinum. Porlúgalska liðið Sporling frá Lissabon var dæml í 12.000 punda sekl fyrir ólæli sem urðu á leik liðsins gegn Kaiserslautern. Liðið má ekki leika næsla UEFA leik sinn á heimavelli að auki. Verður næsli heimaleikur liðsins að fara fram í a.m.k. 100 km fjarlægö frá Lissabon. Þá var Paulo Roberto Meness, sem var rekinn úl af í áðurnefndum leik fyrir að slá mólherja, dæmdur i þriggja UEFA-leikja bann. Markvörður liðsins, Hidalgo, var einnig dæmdur og fékk Iveggja UF.FA- leikjabann. Þá fékk þjálfari liðsins alvarlega viðvörun. Þá var ilalska liðið Napólí sektað um 4.500 slerlingspund fyrirslæma hegðun leikmanna liðsins i leiknum gegn Slandard Liege í síöustu viku. Tveir leikmanna liðsins, Cclcstini og Capone (ekki er vilað hvort hann er á einhvern háll tengdur undirhcima- foringjanum fræga frá kreppuárunum í Banda- ríkjunum) voru reknir af leikvelli. Dómur yfir þeiin var ekki kvcðinn upp i gær en er væntanlegur l'ljól- lega. Metvinningur í Getraunum í 10. leikviku Getrauna kom fram cinn seðill með 11 rétlum og er vinningurinn fyrir hann kr. 1.813.500.-, sem er hæsli vinningur, sem Gctraunir hafa greitl úl. Eigandinn er verzlunarmaður i Keykjavík, og virðisl hann hafa veriö svona lús- hcppinn, þar sem á 8-raða seðli hans var ein röð með engum leik réttum og Ivær raðir mcð einn réllan leik. í 2. vinning koma kr. 43.100.-, en 18 raöir reyndust með lOrélta leiki. Hirsihmann Útvarps-oé sjörvvarpsloftnet fyrir litsjónvarpstæki,' magnarakerfi og tilheyrandi' loftnetsefni. Ódýr loftnet og gód. Áratuga reynsla. Heildsala Smasala. Sendum i póstkröfu. Radíóvirkinn Týsgötu 1 - Sími 10450 Taugatitringur blaðamannsins —svar Helga Bjarnasonar úr Borgarnesi í viötali við Dagblaðið 22. þessa mánaöar viðhefur Gylfi Krisljánsson, formaður mótanefndar KKI, stór orð þegar hann fjallar um félög sem hafa orðið að draga flokka úr keppni ís- landsmótsins. Gylfi Kristjánsson hcfur orðið: „Þelta cr nállúrlega fyrir neðan all- ar hellur hjá félögunum að haga sér svona . ..” ,,Ég geri fastlega ráð fyrir að þau félög, sem í hlut eiga, verði beill fjár- seklum fyrir þelta uppálæki." ,,Þaö verður að refsa liðum grimmi- lega fyrir slíka framkomu og svona lag- að á ekki að liöast," sagði Gylfi og var ómyrkur í máli. „Ekkert hefði verið auðveldara fyrir þessi lið en að draga sig úr mólinu með góðum fyrirvara þannig . . .” „Þessi framkoma félaganna gagn- varl KKÍ er hrein og bein móðgun við sambandið og íþróllina í heild og á ekki að líðast átölulausl." Hvaða tilgangi þjóna slík stóryrði? varð mér á að hugsa við lestur þessa viðlals, vitandi það að mótaskráin var illa unnin í marga staði. Viðtalið hér að ofan snerti ekki UMFS beint en gat ekki verið ástæða þess að félögin höfðu dregið flokka úr keppni væri slæleg frammistaða mótanefndar við niður- röðun leikja sem m.a. hefði i för með sér margfaldan ferðakostnað? Mér fundust þessi ummæli Gylfa Kristjánssonar ekki við hæfi, þegar sú nefnd sem hann er formaður fyrir gerði ýmis afdrifarík mistök við niðurröðun mótsins, og lét nokkur orð um þetta falla í DB þann 24. þessa mánaðar. Líklegast hef ég komið citthvað við kaunin á Gylfa Kristjánssyni því hann fer á kostum i grein á iþrótlasiðu DB 25.10. Þar hellir hann úr skálum reiði sinnar, að því er virðist til að draga at- hyglina frá kjarna málsins, það er mis- tökunum hjá mótanefnd i niðurröðun íslandsmólsins. Skyldi maðurinn vcra blaðamaður? „Réllur þeirra er ekki slór.” Skyldu þessi ummæli vera ástæðan fyrir slæ- legri niðurröðun hvað varðar UMFS? Ætli eftirfarandi cigi aðeins við um UMFS eða er víðar pottur brotinn? 1. Niðurröðun meistaraflokks var þannig að fyrslu fimm leikirnir voru heimaleikir og á 'seinni hluta keppnistímabilsins áttu allir útileik- irnir að vera. Ljóst er að þarna er hallað rnjög illa á leikmenn UMFS, þ.e. þegar mótið væntanlega harðnar eru allir útileikirnir eftir. Þetta fyrirkomulag er brot á grundvallarreglum um jafnrétti iþróttafólks í keppni, auk þess sem þetta hefði þýtt tekjutap fyrir UMFS sem næmi hundruðunt þúsunda króna í minni aðsókn að leikjum. Nei, þetta virðist ekkert hafa verið hugsað við niðurröðun mótsins. 2. Svæðisriðill fyrir Vesturland i 3. og 4. flokki var Iagður niður án nokk- urs samráðs við þau félög sem meslra hagsmuna hafa að gæta vegna kostnaðar. Undanfarin ár hefur Vesturlandsriðill verið hafður og eðlilegast hefði verið að hafa hann líka í ár enda tilkynntu a.m.k. þrjú félög þátttöku í mótinu á þeim forscndum. Þessi fyrirkomulags- breyting hefur i för með sér marg- faldan kostnaðarauka fyrir UMFS og leikmenn. Svo talar Gylfi Krist- jánsson um hótanir þegar allar for- sendur fyrir þátttöku i mótinu hala breytzt, m.a. af hans völdum. En um þetta virðist ekki hafa vcrið hugsað í mótanefnd. 3. UMFS leikur 13 leiki í íslandsmót- inu á Reykjavíkursvæðinu, á Reykjanesi og Akureyri, i fyrstu deild, 3. flokki og 4. flokki. Árlega hefur verið óskað eftir þvi að leitazt verði við að samræma ferðir hinna einstöku flokka i keppni á keppnis- ferðum til Reykjavíkur. í einni ferð er mögulegt að sameina flokka á keppnisferðalagi en ekki í fleiri ferðum. Fyrirkomulagsbreyting á riðlum yngri flokkanna hefði þó verið ærin ástæða fyrir samræm- ingu af þessu tagi. Þetta hefur í för með sér mjög mikinn kostnaðar- auka sem hægt hefði verið að minnka með smáviðleitni. En alls ekkert hefur verið um þetta hugsað við niðurröðum mótsins. 4. Niðurröðun mótsins kom með pósti i Borgarnes 10.10. (póstlagt í Rvík laugardaginn 6.10. Það gefur auga- leið að bréf sem póstlagt er á laugar- degi ler ekki af stað fyrr en á mánu- degi og skrif sem reyna að réttlæta seinagang mótanefndar á kostnað póstsamgangna falla um sjálf sig). Þá hafði mótanefndin haft 40 daga til að raða niður mótinu og senda frá sér en i reglugerð fyrir móta- nefnd cr henni gefinn 20 daga frestur til þessa. Og er þá gert ráð fyrir seinkun vegna trassaskapar UMFS og allra hinna félaganna i fyrstu deild sem hér verður ekki rcynt að réttlæta. í þessu plaggi er okkur í fyrsta skipti tilkynnt unt breytingu á svæðaskiptinu yngri flokkanna og þar með að fyrstu leikirnir fari fram 14.10. Fleiri aihugasemdir voru gerðar við niðurröðunina þar sem larið var fram á sanngirnisleiðrétlingar án þess að brjóta rélt annarra félaga. Mótanefnd- in sá að sér í niðurröðun meistara- flokks skv. fyrsta lið hér að ofan og frestaði fyrstu leikhelginni eftir kröfu UMFS, en halnaði öðrum óskum UMFS. Taugatitringur Gylfa Kristjánssonar cr skiljanlegur, hann er að verja störf sín sem formaður mótanefndar og mótanefndin hefur gert afdrifarík mis- ,!ök. En réttara væri hjá honum að hætta að berja hausnum við steininn, leiðrétta mistökin og hugsa málið til cnda þegar raðað verður niður næst. Útrás vcrður hann að fá í öðru. Geð- illskuskrif hans dæma sig sjálf. Störf áhugamanna i íþróttum eru oft dæmd hart, gerðar rniklar kröfur, svo er einnig um mótanefnd KKÍ. Móta- nefndin er ein mikilvægasta stofnunin í KKÍ-kerfinu en henni er ekki vorkunn með framkvæmdastjóra KKÍ sem' starfsmann nefndarinnar. Gylfi Kristjánsson virðist vera við- kvæmur fyrir blaðaskrifum um mál- efni mótanefndar sem Itann er for- maður fyrir. Ástæðuna hefur hann ekki gcfið upp cn gæti hann verið hræddur um að fleira skritið kænti fram um störf ntótanefndarinnar, cða hver er ástæðan? Skrif sem þessi tel ég gagnleg og jafn- vel einu leiðina til að ná eyrum þessara háu hcrra i Reykjavík og til að koma i veg fyíir sömu mistökin aftur. En erfitt er að standa í slíkum skrifum þegar maður i ábyrgðarstöðu innan KKÍ getur ekki skipzt á skoðunum æsinga- laust. Borgarncsi 26.10 1 979. Helgi Bjarnason. Bikarmeistarar Caen frá þvi i fyrra. Undirbúningur fyrir 0L í Moskvu langt kominn — Samvinnuferðir/Landsýn með ferðir á leikana héðan Sem kunnugt er verða Óiympiuleik- arnir haldnir i Moskvu í júlí á næsta ári og slendur undirbúningur fyrir leik- ana nú sem hæst. Geysilegum fjármun- um hefur verið varið til byggingar alls kyns mannvirkja en mestur mun kostnaðurinn hafa verið við byggingu aðalkeppnishallarinnar enda óvenju glæsileg bygging. í siðustu viku boðaði ferðaskrifstof- an Samvinnuferðir/Landsýn til blaða- mannafundar þar sem kynntar voru ferðir á leikana. Mjög takmarkaður fjöldi fólks á þess kost að komast á leikana héðan og lætur nærri að alls geti um 250 áhugamenn séð alla leikana eða hluta þeirra. Samvinnu- ferðir/Landsýn hafa yfir að ráða 150 gistirúmum í Moskvu meðan á leikun- um stendur og fer hver að verða síð- astur að bóka sig því fresturinn til að skrá sig rennur úr 15. nóvember. Eltir þann tima geta menn ekki búizt við að hægt sé að tryggja þeim miða. Aðsókn- in að ferðunum til Moskvu hefur verið mikil, og greinilegt er að áhugafólk lætur ekki póliliskan áróður aftra sér frá því að fara. Ferðir á vegum Samvinnuferða/Landsýnar eru afar ódýrar og kostar sú ódýrasla þeirra kr. 337 þús. Í dag kostar flugfar til Moskvu um 300 þús. þannig að um mjög hagstætt verð er að ræða. Hægt að velja um þrenns konar hólel og farnar verða þrjár mismunandi ferðir. í fyrsta lagi er boðið upp á ferð sem nær yfir alla leikana, þá ferð sem tekur fyrir fyrri hluta þeirra og loks ferð sem nær yfir síðari hlutann og úrslitin. Allar nánari upplýsingar er að fá hjá ferða- skrifstofunni og umboðsmönnum hennar. Greinilegt er á ölluni undirbúningi að Moskvubúar og Sovétmenn alntennt leggja allan sinn metnað i að leikarnir takist sem bezt. Enda vissara þvi augu alheimsins munu hvila á Moskvu þá 17 daga sem leikarnir standa yfir. Ekkcrt má fara úrskeiðis án þess að veður verði gert út af því á Vesturlöndum og Sovétmenn gera sér lulla grcin fyrir í hvaða aðstöðu þeir eru. Ferðamönnum hefur verið heitið þvi að aðeins verði farið fram á vegabréfs- skoðun við komuna til landsins og er það óvenjulegt þvi venjulega hafa ferðir til Sovétrikjanna einkcnnzl af ntiklum töfum við tolleltirlit. Það mun hins vegar verða fclll niður og ferða- menn geta gengið bcint inn á hótel sin eftir vegabréfsskoðun. Það sem Sovétmenn leggja greinilcga mesta áherzlu á er að gera blaða- og fréttamönnum vinnu sina sem auðveld- asta. Allt símakerfi landsins hefur vcrið Hin gríðarlega mikla byggingu. b.vgging þar sem allar helzlu iunigreinarnar fara fram, hefur tekið ntrúlega skammán tima í endurnýjað að miklu leyti og eftir breytinguna á að vera hægt að hringja beint til allra helztu stórborga heims. Fyrir þá blaðamenn sem þurfa að panta simtöl verður öll áherzla lögð á að hraða þeim eins og frekast er kostur. Byggð hefur verið gríðarlega mikil síma- og telexmiðstöð i Moskvuborg cr cr henni ætlað að sjá fyrir allri Irétla- þjónustu i sambandi við ólympíuleik- ana. Allir blaðamenn, sem munu verða um 7500 talsins, dvelja á sama hótelinu og mikil áherzla er lögð á að frétta- menn hafi allt til alls í starfi sínu. Eitt atriði, sem er ákaflega óvcnju- legt, er að Sovétmenn hyggjast láta ferðamönnum alla læknaþjónustu ókeypis í.té nema ef um sjúkrahúsvist cr að ræða. Þetta er nýnæmi en undir- strikar það enn frekar að Sovétmenn hyggjasl gera allt sem i þeirra valdi stendur til að breyta hugsunarhætti Vcslurlandabúa i þcirra garð. „Þetta er leikur sem við ætlum okkur að vinna” —sagði Dakarsta Webster um leik KR og Caen í Evrópukeppni bikarhafa í kvöld „Þetta er leikur sem við ætlum okkur að vinna, hvað sem við kunnum að þurfa að leggja á okkur til þess," sagði KR-ingurinn Dakarsta Webster á blaðamannafundi sem körfuknattleiks- deild KR boðaði til í síðustu viku. KR leikur í kvöld gegn frönsku bikarmeist- urunum Caen i Evrópukeppni bikar- hafa og þar er við ramman reip að draga svo ekki sé meira sagt. í liði Frakkanna eru eigi færri en fimm leik- menn sem eru meira en 2 metrar á hæð og aðeins þrír leikmanna liðsins ná ekki 1,90 m. Til samanburðar má geta þess. að KR á aðeins þrjá menn sem eru tveir metrar eða meira og 5 leikmanna liðs- ins ná ekki 1,90 metra. Það er því grcinilegt að Frakkarnir munu leika á annarri hæð en KR-ingar eru þekktir fyrir flest annað en að gefast upp. „Við erum í rauninni með þrjá Ameríkana,” sagði Webster einnig. „Jón Sigurðsson er frábær leikmaður og hann gefur atvinnumönnum úti i heimi ekki neitt. eftir. Jón er ótrúlega baráttuglaður leikmaður sem aldrei gefst upp og hann drífur hina leik- mennina mikið áfram. Ég er sann- færður um að náum við góðum leik getum við unnið Frakkana,” sagði Webster í lokin. Greinilegt var á öllu máli Webster að hann hyggst leggja sig allan fram og svo munu allir aðrir i liðinu gera og ekki veitir af. Þetta franska lið er mjög sterkt og Ærakkar eru framarlega á körfuknattleikssviðinu i Evrópu, standa Itölum, Spánverjum og Júgó- slövum ekki langt að baki í iþróttinni. KR-ingar áttu ekki mikilli velgengni að fagna í Reykjavíkurmótinu og munaði þar mestu að Jón Sigurðsson meiddist og gat ekki leikið Irfo siðustu leiki KR. Þeir leikir töpyÁAist báðir og Dakarsta Wcbster. þar með fór öll sigurCon i mótinu. Webster hefur vcrið gagnrýndur harka- lega í flestum dagblöðunum fyrir hversu slakur leikmaður hann er en öll- um virðist haTa yfirsézt að hann er ekki sóknarmaður. Styrkleiki hans liggur fyrst og fremst í varnarlciknum. „Ég held að menn hafi dæmt mig á röngum forsendum," sagði þessi geðugi risi. ,,Ég er varnarmaður fyrst og fremst og styrkleiki minn felst í varnarleiknum. Ég bjóst ekki við því að stólað yrði á mig sem mikinn skorara og ég var þvi undir mikilli pressu í sókninni. Því er ég alls óvanur og þetta setti mig nokk- uð út af laginu.” Að sjálfsögðu þarf ekki að taka það fram að i kvöld gerist það í fyrsta skipti hér á landi að tveir blökkumenn leika með íslenzku félagsliði í meiriháttar leik. í fyrra léku þeir Dirk Dunbar og John Johnson með stúdentum gegn snillingum Barcelona en megnuðu ekki Rafferty til Newcastle Neweastle keypli fyrir helgina Billy Raflerly frá Ullunum fyrir 175.000 sterlingspund. Rafferty var keyptur til Úlfanna frá Carlisle en náði aldrei að festa sig i sessi og tók þvi fegins hendi tilboði Newcastle. Newcastle hefur um leið hætt við að kaupa Stam Cummins frá Middlesbrough. 2000 miðum á leik Liverpool og Wolves, sem fram á að fara á Anfield um helgina, hefur verið stolið. Miðarnir sem voru bæði í stúku og slæði eru metnir á tæp 4.000 pund. Barry Powell var lengi vel orðaður við Derby County en enn hefur ekki verið ákveðið hvort Coventry muni selja hann eður ei. Derby hefur boðið 300.000 pund fyrir Powell en Coventry vill fá meira. Strákamir í eldlínunni gegn Dðnunum í kvöld — sigur íþeim leik og jafntefli við Ungverja myndi nægja til leiks um 3. sætið Islenzka unglingalandsliðið í hand- knattleik, sem undanfarna viku hefur glatt handknattleiksunnendur hér heima með stórkostlegri frammistöðu sinni á HM-ungiinga i Danmörku, leikur að öllum likindum mikilvægasta leik sinn i kcppninni til þessa í kvöld. Þá mæta strákarnir Dönum, sem þcgar hafa 2 stig í milliriðlinum eins og Sovét- menn. Islendingar og Ungverjar hafa ekkert stig í milliriðlinum. Sigur í leiknum við Dani í kvöld og siðan jaln- tefli við Ungverja myndi að öllum likindum tryggja Islandi leik um 3. sæti keppninnar. Gert er þá ráð fyrir að Rússar vinni bæði Dani og Ungverja, sem verður að teljast ákaflega liklegt. E.t.v. er til of mikils mælzt að fara fram á sigur hjá strákunum en það er nú einu sinni svo að hinn frábæri árangur liðsins kallar á enn frekari afrek og vissulega yrði það stórbrotið að leggja Danina að velli í kvöld. Danir hafa verið að kvarta yfir i þvi í þarlendum fjölmiðlum að stór hluti leikmanna liðsins sé meiddur og úr leik en þrátt fyrir þessar fregnir unnu Danir mjög sannfærandi sigur á Ungverjum um helgina. 19—11. Annaðhvort er þetta sállræðibrella hjá Dönum eða þá að þeir hafa svona gcysilega sterku liði á að skipa. íslcnzka liðið helur sýnt það að það cr til alls liklegt og sigurlikur hljóta að vera talsverðar nái slrákarnir góðum leik. Áhyggjuefnið lyrir ferðina var varnarleikurinn cn hann hefur tekizl vel þegar mcst hefur lcgið við og vcrðum við að vona að svo vcrði cinnig i kvöld. Merki Heimsmeistarakeppni unglinga, sem nú stendur > fir i Danmörku og Svíþjóð Fari svo að strákarnir tapi fyrir Dön- unt er vonin um 3. sætið svo gott sem cndanlega úr sögunni. Hvcrn hefði annars órað lyrir þvi áður en liðið héll utan að 3. sætið væri ylirleitt nokkurn timann i sjónmáli? Mcð santslilltu átaki ætti sigur að gela náðst, en Danir hljóta að vera sigurstranglegri. Siðustu leikjununt i forriðlunum lauk utn helgina og varð þá cndanlega ljóst hvaða lið kæmust áfram. í hinum milliriðlinum eru lið Svia, Tékka, Júgóslava og A-Þjóðverja. Rússarnir eru taldir vera nteð langsterkasta liðið i keppninni og voru A-Þjpðvcrjar taldir fyrir keppnina cina þjóðin, scnt gæli hugsanlega ógnað sigri þeirra. Siðan gcrðist það. að Júgóslavar unnu A- Þjóðverjana alar sannfærandi, 21 — 15 á laugardag. Allar líkur eru þvi á að Júgóslavar og Rússar leiki um elsta sæti keppninnar. Lokastaðan i riðli islands varð þessi: Sovétríkin Íslattd V-Þýzkaland Holland Portúgal S-Arabia 5 5 0 0 154—75 5 4 0 1 121—88 5 3 0 2 101—76 5 2 0 3 74—104 5 10 4 81 — 122 5 0 0 5 59—125 Jón Sigurðsson. að standa i þeim, enda hæðarntunur gífurlegur á þeim liðum, enn meiri en á KR og Caen. Með góðum stuðningi áhorfenda og toppleik ætti KR að geta staðið vel í Frökkunum. Það er vafalítið til of mik- ils mælzt að ætlast til sigurs í kvöld en vist er að KR-ingar munu gera sitt bezta til þess að áhangendur þeirra fári ánægðir heim úr Höllinni í kvöld. Hér að neðan er listi yfir lcikmenn KR, aldur þeirra, hæð og leikjafjölda nteð KR. Talan á undan nafninu er núnteriðá búningi viðkontandi. Marvin Jackson. 4 Agúst Líndal 22/180/40 5 Jón Sigurðsson, fyrirl. 28/185/70 6 Birgir Guðbjörnsson 27/195/274 7 Árni Guðmundsson 23/180/121 8 Gunnar Jóakiinsson 27/186/124 9 Eirikur Jóhannesson 24/183/152 10 Geir Þorsteinsson 28/193/11 11 Þröstur Guðmundsson 26/190/40 12 Marvin Jaekson 25/202/ 13 Dakarsta Webster 24/212/6 14 Bjarni Jóhannesson 26/193/261 15 Garðar Jóhannsson 20/200/34. Það ætti ekki að þurla að taka það fram að leikurinn í kvöld hefst kl. 20:30 í Höllinni. Haraldur Magnússon, viðskiptafr. Til sölu m.a.: 2ja herb. íbúðir við Miðtún, Dvergabakka, Hraunbæ, Asparfell, Eiríksgötu. 3ja herb. íbúðir við Kjarrhólma, Bergþórugötu, Bjargarstíg og víðar. 4ra herb. íbúðir við Fífuhvammsveg, Vesturberg, Kapla- skjólsveg og í Fossvogi. Nýtt einbýlishús í Blesugróf. Nýlegt einbýlishús í Grund- arfirði. Viðlagasjóðshús í Þorlákshöfn, stórt og gott, fæst í skiptum fyrir 2ja-3ja herb. íbúð á Reykjavíkursvæðinu. Höfum fjársterka kaupendur að stórum ibúðum og einbýlishúsum. Mikil eftirspurn eftir öllum stærðum og gerðum fasteigna. Sfmi: 17374, til kl. 9ó kvöldin. Haimasimi: 31593. Gunnar Karlsson. Sigurður Benediktsson. FRÁ ÍTALIU Herraskór frá Sandra Hanzkaskinns mokkasínur Litur: brúnt Stœrðir: 7—10. Verð: 22.500.- Litur: svart og brúnt leður með slitsterkum sóla. Stœrðir: 40—46. Verð aðeins kr. 17.500.- Skóbúðin Suðurveri Stigahlíð 45-47 -Simi 83225.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.