Dagblaðið - 15.11.1979, Page 2
2
/■
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1979.
Nokkur orð vegna pist-
is Jóns Skúksonar
Vcgna greinar Jóns Skúlasonar, póst-
og simamálastjóra, um hvar eöliiegt
sc art leita þekkingar i sambandi við
byggingaráætlanir á íslenzkum póst-
húsum viljum viö undirritaðir taka
fram eftirfarandi:
Á seinni hluta ársins 1973 skipaði
þáverandi póstmálaráðherra, Hanni-
bal Valdimarsson, nefnd „ . . . til að
gera tillögur um skipan húsnæðis-
mála póstþjónustunnar í Reykjavík,
með tilliti til þess að starfsemin svari
kröfum timans og verði framkvæmd
á hagkvæman hátt fyrir landsmenn
Raddir
lesenda
alla. . . ” í nefndinni eiga sæti
Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytis-
stjóri, sem er formaður, Jón Skúla-
son, póst- og símamálastjóri, Hörður
Bjarnason, húsameistari rikisins,
Matthías Guðmundsson póstmeistari
og Tryggvi Haraldsson, póstútibús-
stjóri sem fulltrúi Póstmannafélags
íslans.
Árið 1974 fékk þessi nefnd leyfi frá
ráðherra til að senda fulltrúa í 6 daga
ferð til Noregs, Svíþjóðar og Dan-
merkur til upplýsingaöflunar en áður
hafði byggingarnefndin komizt að
þeirri niðurstöðu að á þessum slóðum
væri helzt fyrirmynda að vænta.
Fararstjóri sendimanna var Jón
Skúlason. Þá var og með í ferðinni
arkitekt á vegum embættis húsa-
meistara ríkisins sem annazt hefur
teikningar síðan og lagt þær fyrir
nefndina ásamt líkani af fyrirhugaðri
byggingu. —
Væntanleg pósthúsbygging við
Suðurlandsbraut, sem Jón ræðir um í
grein sinni, var við upphaf þess máls
skilgreind af honum sjálfum sem
tiltölulega einföld bygging með hag-
stæðu verði sem nota mætti til bráða-
birgðalausnar vegna húsnæðis
Bögglapóststofunnar og Tollpóst-
stofunnar.
Okkur vitanlega liggur lausn þessa
máls ekki fyrir á nægjanlega skil-
merkilegan hátt enda nefndarmenn
(vinnuhópur) þessara framkvæmda
nýkomnir heim úr 10 daga ferðalagi
til Frakklands og Englands. Það er
þó ljóst, að þessi bygging er hafin þar
sem grunnur hefur v^rið tekinn — og
teikningar komnar á borðið fyrir
hina viðtæku ferð. —
Samkvæmt þeim frumteikningum
sem við höfum séð af umræddri póst-
húsbyggingu við Suðurlandsbraut er
Ijóst, að hér er um varanlega stór-
Úr afgreiðslu Pósthússins i Reykjavik.
DB-mynd Hörður.
byggingu að ræða sem gengur að
okkar dómi á alvarlegen og óeðlileg-
an hátt inn á störf þeirrar byggingar-
nefndar sem ráðherra skipaði á sín-
um tíma — svo ekki sé meira sagt.
Væntanlega skýrast þessi sérkenni-
legu mál innan tíðar svo úr því fáist
skorið hvert stefnir í byggingar-
máluni póstsins á höfuðborgar-
svæðinu.
Matthías Guðmundsson,
póstmeistari
Tryggvi Haraldsson,
póstútibússtjóri.
Höfindi Hagkeðjunnar
var hafnað í Framsókn
Aöalbjörn Arngrimsson frá Hvammi
skrifar:
Nú þegar ríkisstjórnir liðinna ára
hafa unnið það afrek að binda þjóð-
inni skuldabagga svo þunga að eng-
inn af bindingshetjunum mundi
koma þeim hálfa leið til klakks þótt
þeir kæmust yfir einhverja tröllameri
sem líkleg væri til að standa undir
hinum blýþungu klyfjum, finnst
okkur, hinum óbreyttu vesalingum,
að hlusta beri á hvert bjargráð sem
býðst og taka til rækilegrar at-
hugunar ef verða mætti til að grynna
lítilsháttar það fjandafen sem óðum
nálgast að verða botnlaust.
Nú vill svo til að framsóknarmenn
eiga í herbúðum sínum mann sem um
árabil hefur fylgzt með þróun mála i
þjóðfélaginu og árum lengur varað
við hinni seigdrepandi þróun sem nú
eraðríðaöllu á slig.
En Kristján Friðriksson hefurekki
aðeins varað við þeirri framvindu i
atvinnu- og efnahagsmálum sem allir
ættu nú að sjá, hvert muni leiða með
óbreyttri stefnu, heldur hefir hann
verið óþreytandi við að benda á ráð
til úrböta. Á eigin kostnað hefur
hann ferðast um landið til að kynna
tillögur sínar, hagkeðjuna o.fl., og
verður því ekki neitað að hið fórn-
Kristján Friöriksson, höfundur
Hagkeöjunnar.
fúsa fræðslu- og hvatningastarf
Kristjáns hefur vakið verðskuldaða
alhygli hjá miklum fjölda manna
nema ef vera skyldi háttvirtum al-
þingismönnum.
Nú hefði mátt ætla að forystu-
menn framsóknar, sem nú reyna al'
öllum mætti að rífa flokkinn upp úr
þeirri lægð sem hann féll í við siðustu
kosningar, settu það á oddinn að
tryggja þessum manni öruggt sæti og
fá hann inn á þing þar sem hann
hcfði getað barizt með þeim og þeir
með honum til sigurs þeim stórkost-
legu ' hugmyndum sem Kristján er
þekktur fyrir og sem, ef rétt væri að
staðið, ættu að skila í þjóðarbúið
svimandi háum upphæðum án þess
að krefjast verulegra fórna.
Vonandi er þjóðin ekki orðin svo
heilaþvegin að hún skilji ekki hvað
hér er að ske. Einhverjum mikilhæf-
asta manni sem gefur sig að stjórn-
málum í dag, manni sem árum saman
hefur fórnað sér i leit að úrræðum
með hagsmuni fjöldans fyrir augum,
er skákað til hliðar í stað þess að velja
honum beina braut til þeirrar að-
stöðu sem þjóðin þarf að fá hann í.
Um þetta hefði ég getað farið
mörgum fleiri oðrum en að sinni held
ég að þess gcrist ekki þörf. Kristján
frá Éfri-Hólum þarf ekki að kynna
frekar. Það hefur hann sjálfur gert
með verkum sinum.
Ekkert mjólkur-
þambástefnuskrá
Valgaröur Guöjónsson, í 2. sæti á
lista Sólskinsflokksins, hringdi og
sagði það ranghermt i frétt Dagblaðs-
ins að flokkurinn hefði aukið
mjólku'rþamb á stefnuskrá sinni.
„Þetta er svo langt frá okkar
hugsunargangi,” sagði Valgarður.
Bruninn íKópavogi:
62 þúsund kr.
hafa borizt
Alls hafa nú borizt 62 þús. krónur
til gjaldkera Dagblaðsins vegna söfn-
unar fyrir einstæða tveggja barna
móður í Kópavogi sem missti nánast
allt sitt innbú óvátryggt i bruna
aðfaranótt I. október. sl. Eftirtaldir
aðilar hafa látið fé af hendi rakna.
EÞ 5000 kr„ SJ 7000 kr„ EG
10.000 kr„ NN 5000 kr., Ásta og Alli
10.000 kr„ Gísli Jónsson & co.
25.000 kr.
Gjaldkeri DB í Þverholti 11 mun
taka við framlögum fram að næstu
helgi.
INNKAUPASTJÚRAR
Mikið úrval af:
Gjafavörum — leikfongum —
jólatrésskrauti — spilum
og snyrtivörum.
Heildverzlun Suðurgötu 14 Reykjavik
Peturs Peturssonar ^21020-25101
SKARTGRIPIR
við öll tœkifœri
SIGMAR Ó. MARÍUSSON
Hverfisgötu 16A — Sími 21355.
Bfréfritara þykir of mikið af fimleikum i iþróttaþáttum sjónvarpsins.
Of mikið af
fimleikum
íþróttaunnandi hringdi:
Mig langar til að kvarta undan
iþróttaþáttum sjónvarpsins. Stjórn-
andi þeirra þátta virðist ekki hafa
neinn metnað lil að gera sjónvarps-
áhorfendum til hæfis. Þar gengur
allt út á fimleika, skautasýningar og
þess háttar. Mér finnst sérstaklega
sem fimleikarnir skipi alltof háan sess
i þessum þáttum.
Ég geri mér grein fyrir þvi að þessi
þáttur þarf að taka tillit til mismun-
andi áhugamála áhorfenda en hann
verður líka að fara eftir því hvaða
iþróttagrcinar eru vinsælastar hér á
landi. Það eru knattleikirnir en ekki
fimleikar. Einnig eru frjálsar iþróttir
mjög heppilegt sjónvarpsefni.
Bréfritarí óttast, aö það sé kvalarfullr fyrir fiskinn þegar hrognin eru kreist
úr honum. DB-mynd Árni Páll.
Finnur f iskurinn til?
Guörún Á. Runólfsdóttir skrifar:
Ég var að horfa á fréttatima sjón-
varpsins sunnudagskvöldið 4.
nóvember. Var þar sagt frá silungs-
'og laxeldismálum og sýndar aðferðir
við að ná hrognunum úr fiskinum.
Ég hef auðvitað minna en ekki neitt
vit á þessum málum og langar þvi
að fá svar við eftirfarandi: Finnur
ftskurinn til — og ef svo — er það
ekki kvalafullt fyrir hann þegar
hrognin eru kreist úr honum á þann
máta sem gert er? Ég er viss um að
þetta hefur eitthvað verið rannsakað
og þvi langar mig til að beina þessari
spurningu til þeirra sem vitneskju
hafa til að svara. Ég vonast eindregið
eftir svari og vil þakka fyrirfram fyrir
upplýsingarnar.