Dagblaðið - 15.11.1979, Page 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1979.
3
Athugasemd við baksíðuf rétt Dagblaðsins:
BOEING 727 vinsæl-
asta þotan á markaðnum
—verðurframleidd til ársloka 1985
Misskildi
skýrsluna
Hr. ritsljóri:
„Vegna skrifa A. J. í Dagblaðinu
9/11 ’79 um „áróður óábyrgs
embættismanns” vill landlæknir taka
eftirfarandi fram:
Sá „áróður” sem hér um ræðir og
eignaður er undirrituðum er skýrsla
iandlæknis, Heilbrigðiseftirlits ríkis-
ins, Matvælarannsókna ríkisins, yfir-
dýralæknis og nokkurra sérfræðinga
er starfa við rannsóknastofur.
Áður en skýrslan var birt var hún
borin undir fleiri aðila og enginn
lagði þann skilning í skýrsluna er
fram kemur í bréfi A. J. Megin-
atriði er að A.J. hefur algjörlega mis-
skilið skýrsluna og er honum því
boðið að ræða við mig á skrifstofu
minni í Arnarhvoli eða hvern þann
siarfsmann framangreindra stofnana
er hann kýs. Vona ég að hann hafi
nægan hug til þess.
Ólafur Ólafsson
landlæknir.
Reiknistofnun
bankanna:
Sliku er ekki til að dreifa í Dag-
blaðinu 8. nóvember, þar sem reynt
er að læða því inn hjá lesendum að
Flugleiðir kaupi nýja flugvél sem sé
nánast verðlaus að nokkrum tíma
liðnum. Einnig að verð flug-
vélarinnar sé óeðlilega hátt. Fram-
leiðsla þessara flugvéla sé brátt úr
sögunni o. fl. þessu líkt.
Allt er þetta rangt.
Boeing 727 þotur eru þær
vinsælustu sem nokkru sinni hafa
verið framleiddar. Þær eru ennþá í
fullri framleiðslu. Engin gerð af
þotum hefir verið framleidd í þvíliku
magni. Flugvél sú sem Flugleiðir eiga
nú i smiðum er sú 1622. i fram-
leiðsluröðinni. Samkvæmt upplýs-
ingum sem stöðugt berast um flug-
vélakaup og pantanir er ekkert lát á
því að flugfélög viða um heim panti
þotur af gerðinni Boeing 727. Þannig
hafa aðeins nú í október og nóvem-
ber verið pantaðar fjölmargar flug-
vélar. Þar má nefna flugfélögin
Eastern Airlines, sem pantaði 10
þotur, Air France fjórar og Air
Canada, sem fær 14 þotur af þessari
gerð. Afhending fer fram 1980 til
1983 og gert er ráð fyrir að Boeing
727 verði i framleiðslu að minnsta
kosti til ársloka 1985.
Alls er Boeing 727 i notkun hjá 96
flugfélögum og öðrum aðilum, sem
stunda flugrekstur. Svo afkastamikl-
ar eru Boeing verksmiðjurnar við
smíði 727 þotanna að ein slik flugvél
er framlcidd á tæplega tveim dögum.
Ekki er undirrituðum kunnugl um
hvaðan upplýsingar Dagblaðsins i
„Baraaðsnapa
sératvinnu”
Pétur Pétursson, Selfossi hringdi:
Mig langar til að kvarta undan því,
hve bankaþjónusta hefur versnað
hér. Siðan Reiknistofnun bankanna
tók að sér að gera yfirlit yfir ávisana-
og hlaupareikninga hefur þessi þjón-
usta stórlega versnað. Núna tekur
10—15 daga að fá þetta yfirlit en
áður afgreiddu bankarnir þetta sjálfir
beint. Reiknistofnunin póstleggur
þessi yfirlit í stað þess að notfæra sér
daglegar ferðir sem bankinn er með
til stofnunarinnar. Ef sá háttur væri
hafður á gæti maður gengið að þessu
vísu í bankanum og það kæmi í veg
fyrir þessa löngu bið.
Þetta ástand er fyrir neðan allar
hellur og að mínu mati er Reikni-
stofnunin bara að snapa sér atvinnu.
FÖT
MEÐ
VESTI
átiERRA
W3URINN
AöALSTRfETI
REYKdAVlK
SÍMI12834
Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi
Fiugleiða, skrifar:
Stundum er sagt að tilgangslaust
sé að mótmæla óhróðri í blöðum og
röngum og villandi fréttaflutningi.
Sérstaklega ef leiðrétting eða
mótmæli komist ekki í sama eintak
blaðsins.
Vandaðri blöð hafa jafnan þann
hátt á, er þau skrifa um málefni sem
orka tvímælis, að leita umsagnar
beggja málsaðila. Hlaupa ekki
eingöngu eftir gróusögum og þó þær
séu birtar að einhverju leyti, gefa þá
mótaðila tækifæri til þess að koma
skoðunum sínum að i sama blaði.
„Boeing 727 þotur eru þær vinsælustu sem nokkru sinni hafa verið framleidd-
ar,” segir bréfritari.
téðri grein eru enda slíkt sjálfsagt
einkamál blaðsins. Það breytir hins
vegar ekki því, að með kaupum á
þessari nýju þotu, svo og annarri
viðbót flotans, stefna Flugleiðir að
bættri þjónustu við farþega félagsins.
Nýja flugvélin verður búin
fullkomnustu tækjum og fer verð
hennar að sjálfsögðu eftir því. Vara-
hlutakaup með vélinni eru einnig
eðlileg.
Vegna breyttrar fargjaldastefnu
Bandaríkjastjórnar, hækkandi
verðlags á eldsneyti og af fleiri á-
stæðum eiga ýmis flugfélög nú í vök
að verjast. Nýjar og fullkomnari
flugvélar eru, ásamt aðhalds- og
varnarráðstöfunum, þau ráð sem
flugfélög hafa gripið til. Þótt Dag-
blaðinu þyki sýnilega fátt fréttir
nema þær neikvæðu, fá landsmenn
vonandi samt sem áður nýjan og
glæsilegan farkost afhentan i maí
1980.
Að gefnu tilefr\j skal þeim
sem senda Dagblaðinu les-
endabréf bent á að þau eru
ekki birt nema nafn og
heimilisfang ásamt nafn-
númeri sendanda fylgi með.
Raddir
lesenda
Viltu fá sjónvarp
á fimmtudags-
kvöldum?
Guðriður Bjarnadóttir: Endilega! Ég
hlusta mikið á útvarp á fimmtudags-
kvöldum en það er allt í lagi að l'á sjón-
varp þá lika.
Vilhelm Guömundsson sendibilstjóri:
Nei, það vil ég ekki. Ég horfi litið á
sjónvarpið. Þeir scm hafa nóg með fri-
tima sinn aðgera þurfa ekki sjónvarp.
Haukur Hauksson í Bilasölunni Braul:
Já, það vil ég. Þcir sem eiga litasjón-
vörp hörfa á allt alltaf. Stillimyndina
sem annað!
Berta Bragadóttir húsmóðir: Nei. Ég
horfi litið á sjónvarpið en hlusta oft á
útvarp á fimmtudögum, til dæmis á
lcikritin.
Hafdis Jónsteinsdóttir verzlunarstjóri:
Þvi ekki það? Annars vil ég ckki siður
lengri sjónvarpsdagskrá um helgar.
Margrét Karlsdóttir, vinnur hjá bæjar-
fógetanum í Keflavik: Nei, þaðersjálf-
sagt mál að hafa cinn dag sjónvarps-
lausan.