Dagblaðið - 15.11.1979, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1979.
Merkingar á kjöti og afurðum eru margbrotnar. Þvl betur sem neytandinn er
heima á þvi sviði þeim mun betri vöru tryggir hann heimilisfólki sinu. —
Skrokkurinn á myndinni er svokallaöur „stjörnuskrokkur”, eða afburðagott
kjöt. DB-mynd Ragnar Th.
Merking á vet-
urgömlu og
fullorðnu fé
Hagstæð útkoma hjá stærstu fjölskyldunni:
VIKULEGINNKAUP OG
FISKURINN ÓKEYPIS
Loksins kemur hér bréf frá hús-
móður sem er með einstaklega lága
meðaltalsupphæð, eða ekki nema
18.825 kr. á mann. Seðillinn er frá
septembermánuði. Þetta er líka ein-
hver mannflesta fjölskyldan sem
hefur verið með í könnun okkar á
kostnaði við heimilishaldið, eða 12
manna. Hún er búsett í Garðabæ. í
bréfinu segir m.a.:
„Við erum tólf í heimili, þar af
fimm í skóla. Fjórir fullorðnir vinna
úti og koma ekki í mat í hádeginu en
þá er haft nesti meðferðis. Tveir hafa
mat á vinnustað.
Við vorum að klára úr frystikist-
unni í ágúst, en tókum tíu slátur í
september. Við eigum eftir að kaupa
kjöt. Við reynum að jafna stórút-
gjöldum á mánuðina, kaupum þá
stærri skammta í þeim mánuðum,
sem ekki þarf að greiða stórar upp-
hæðir, t.d. rafmagn, síma og hita.
Við kaupum vikulega inn, nema
mjólk og brauð og förum þá í Fjarðar-
kaup eða Kostakaup. Kartöflur og
rófur höfum við úr heimagarði. Eins
fáum við fisk á veturna, þar sem tveir
synir okkar eru á vertíð og koma með
fisk heim, sem oft dugar i marga
mánuði. Á haustin kaupum við 1/4
hluta úr nauti og stundum tek ég fryst
slátur eftir áramótin, eftir að farið
var að pakka fimm saman í kassa.
Um miðjan september fóru tveir að
heiman svo í vetur verðum við tíu t
heimili. Aftur á móti koma hingað
tvö börn eftir skóla á daginn og eru
hér í 2—3 tíma. Fá þau drykk og aðra
aðhlynningu, því foreldrar þeirra
vinna úti.
Ég læt þetta nægja núna en það
verður fróðlegt að fylgjast með
næstu mánuðum.
Með beztu kveðjum, Elínbjörg
Kristjánsdóttir.”
Það er sannarlega orðið langt síðan
seðill hefur verið með jafn lága eða
lægri meðaltalstölu og septemberseð-
ill þessarar fjölskyldu, sem er jafn-
framt stærsta fjölskyldan „okkar”.
Þar er svo sannarlega vel á málum
haldið. Að sjálfsögðu sparar það
heilmikil útgjöld að fá stóra skammta
af fiski gefins og eins sparar það
mikil útgjöld (fyrir utan hugarangur)
aðeiga kartöflur úr eigin garði.
Vikuleg innkaup eru einnig áreið-
anlega til þess að minnka útgjöldin.
Við þekkjum öll freistinguna þegar
farið er út í búð eftir einu sápustykki
en komið heim með fullan poka af
tómum „óþarfa”.
- A.Bj.
Síðasti söludagur
núeinnigálagmetið
Nú eiga allar viðkvæmar lagmetis-
vörur, bæði kjöt og fiskur, að vera
merktar með síðasta leyfilega sölu-
degi. Og frá og með áramótum á
einnig að skrá pökkunardagsetningu
á umbúðirnar. — Lagmetið var und-
anþegið þessum ákvæðum með reglu-
gerð frá 1977. Nú hefur ráðuneytið
breytt þessari reglugerð þannig að nú
á síðasti söludagur að vera skráður á
allt lagmeti.
Ekki verður betur séð en að mjög
góðar merkingar séu orðnar á unnum
kjötvörum, osti og ýmsum fleiri
matartegundum.
- A.Bj.
VI —- Kjöt af veturgömlu geldfé,
gimbrum og geldingum, þegar
skrokkar eru holdmiklir og fallegir en
vega minnst 18 kg. Aðrir skrokkar
eru metnir og merktir í ær- og hrúta-
flokka. Kr. 1478.-pr. kg.
VII — Veturgamlir hrútar eru
merktir VII ef þeir eru vöðvafylltir og
holdgóðir og ekki slátrað seinna en
10. október. Kr. 1290.- pr. kg.
Sl — Kjöt af sauðum 2ja og 3ja vetra
ef skrokkarnir eru vel holdfylltir og
hæfílega feitir. Rýrir og óhæfilega
feitir sauðaskrokkar fara i ærflokka
eftir gæðum. Kjöt af hrútum geltum
að vori, þrcvetrum og yngri hafnar
einnig í þessum flokki. Kr. 1478.- pr.
kg.
GI — Kjöt af geldum ám 2ja og 3ja
vetra ef skrokkarnir eru holdfylltir og
vel útlítandi. Kr. 1290.- pr. kg.
GII — Skrokkar af eldri geldám og
þeim sem missa lömb sín að vorinu
og ganga lamblausar yfir sumarið ef
holdfylling er góð. Rýrir skrokkar og
mjög feitir skrokkar af geldám hafna
í ærflokkum. Kr. 965.- pr. kg (heild-
söluverð).
ÆI — Kjöt af mylkum ám ef skrokk-
arnir eru holdgóðir og vel útlítandi.
Kr. 965.- pr. kg (heildsöluverð). Ef
þeir eru sæmilega holdugir og ekki
útlitsljótir fara þeir undir ÆII. Kr.
817.- pr. kg (heildsöluverð). Rýrir
skrokkar og ljótir hafna í ÆIII. Kr.
723,- Kr. pr. (heildsöluverð). Fallegt
og holdgott kjöt af mylkum ám, 3ja
vetra og yngri, er merkt ÆIZ. Kr.
1290.-pr. kg.
Fullorðnir hrútar og rýrir vetur-
gamlir hafna í þrem gæðaflokkum:
HI, ef skrokkarnir eru holdgóðir 2ja
til 4ra vetra og vel útlitandi. Kr. 965,-
pr. kg (heildsöluverð). HII. 5 vetra
og eldri með sæmilegt holdafar og
allgott útlit. Kr. 817.- pr. kg (heild-
söluverð). HIH er fyrir rýra skrokka
og Ijóta. Kr. 723.- pr. kg (heildsölu-
verð). Kjöt með heilbrigðisstimpil 2
er flokkað þannig: Kjöt af dilkum
fær DIV. Kr. 965.- pr. kg (heildsölu-
verð). Kjöt af fullorðnu fé og vetur-
gömlu og eldra fær: FIV. Kr. 817.-
pr. kg (heildsöluverð).
í næsta þætti tökum við fyrir ung-
kálfakjöt.
DJUPSTEIKT
LAMBAKJÖT
Rúmt kiló af lambakjöti er soðið Salt, pipar og brauðmylsnu eftir
þangað til það er orðið vel meyrt og þörfum
bein fjarlægð úr því. Kjötið er skorið *) Grænmetisjafningur. rvæ , þrjár
í hæfilega bita eða sneiðar og krydd- gulrætur, 1 laukur, 1/2 guirófa,
að meðsalti og pipar. Þvi er velt upp Smátt skorið hvítkál, eða annað
úr eggjum og brauðmylsnu. Djúp- handbært grænmeti er soðið unz það
steikt í feiti. Framreitt með græn- er vel meyrt. Soðið jafnað og græn-
metisjafningi*) og brúnuðu smjöri ^ metið skorið í bita og soðið í sósunni
eða brúnni sósu. Ætlað fjórum. Um stund. Bragðbætt með salti, pipar
og köldu smjöri.
Hráefni. Hráefniskostnaður er í kringum
1250 grömm af lambakjöti með bein- 3.433 kr. eða um 858 kr. á mann. Þá
um er að vísu ekki reiknað með steik-
2egg ingarfeitinni.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njólsgötu 49 - Sími 15105
Upplýsingaseöill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvaö kostar heimilishaldiö?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi i upplýsingamiðlun
meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stxrð og yðar. Þar að auki eigið
þér von í að fá fría mánaðarúttekt fvrir fjölskyldu yðar.
Kostnaður í nóvembermánuði 1979.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaó kr.
Alls kr.
m ifitiv
Fjöldi heimilisfólks