Dagblaðið - 15.11.1979, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1979.
Húsgagna- og innréttingaf ramleiðendur ásaka banka og ráðuneyti:
420 milljónir vantar
á innborgunarreikninga
húsgagnainnflytjenda
Innborgunarskylda af innflutlum hú$f!(>f)num hcfur ekki verifl innl af hendi nema ad hlula. ad mali hús-
gannaframleidenda hérlendis. Scnja þcir art i seplemher sl. hafi vanfad 420 milljónir króna á þessa
rcikninga i Seólubankanum. l>R-mvnd: Bjarnleifur.
í upphafi þessa árs auglýsti
viðskiptaráðuneytið reglur um
innborgun vegna innflutnings á hús-
gögnum, innréttingum, gluggum og
hurðum. Þar var innflytjendum gert
að greiða 35% af innlausnarverði
vöruskjala og var gjaldeyrisbönkum
falið að greiða innborgunarféð
jafnóðum inn á reikninga við Seðla-
bankann, þar sem það væri bundið í
90 daga með almennum sparisjóðs-
vöxtum. Reglur þessar gilda til 31.
desember 1980.
Innborgunarskylda þessi er
hugsuð sem verndaraðgerð fyrir
innlendan húsgagnaiðnað. Það er
hins vegar skoðun forráðamanna
Félags húsgagna- og innréttingafram-
leiðenda, að innborganir þessar hafi
ekki verið inntar af hendi nema að
hluta og viðskiptaráðuneytið og
viðskiptabankarnir hafi brugðizt
hlutverki sínu í þessu máli.
Samkvæmt tölum frá Hagstofu
íslands hal'a verið flutt inn húsgögn,
innréttingar, gluggar og hurðir fyrir
2.195.4 milljónir króna á timabilinu
frá janúar til september. Félag hús-
gagna- og innréttingaframleiðenda
hefur reiknað út, að i september sl.
hafi vantað um 420 milljónir króna
inn á innborgunarreikningana, sent
innflytjcndur hafi komizt hjá að
greiða.
Húsgagnaframleiðendurnir segja
að nánast ekkert eftirlit sé með
þessum innborgunum og mönnum í
sjálfsvald sett hvort þeir borga 35%
geymsluféð í viðkomandi gjaldeyris-
banka.
Þá segja framleiðendurnir einnig,
að innflytjendur komi sér hjá
reglunum um innborgunina með því
að flytja húsgögn og innréttingar inn
ósamanseit og kalla það húsgagna-
hluti á pappírum.
Verndunarreglur fyrir húsgagna-
iðnað voru settar vegna inngöngu
okkar í Efta en aðlögunartími var 10
ár, eða út þcnnan áratug, scm er að
liða. Húsgagnaframleiðendur segjast
hafa þurft lengri aðlögunartíma, þar
sem í upphafi Efta inngöngunnar
hafi nánast verið um handverk að
ræða, sem síðan hefði breytzt í
vélvæddan vcrksmiðjuiðnað.
Aðstöðumunur hérlendis og í ná-
grannalöndunum sé stórkostlegur,
þar sem um niðurgreidda vöru sé að
ræða þar. Það sé þvi erfitt að keppa
á jafnréttisgrundvelli við hina
innfluttu vöru. I.ánafyrirgrciðsla er
líiil og rekstrarlánakerft nánast
óþckkl.
Yfirvöld yrðu þó að gera sér grein
fyrir því, að alls ynnu 1860 manns i
tréiðnaði og bólstrun. Það yrði þvi að
,,Ég hef ekki frétt af þessu máli
fyrr en i dag og málið hefur þegar
verið sett i athugun,” sagði Þór-
hallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri í
viðskiptaráðuneytinu í gær, er DB
bar undir hann stórvöntun á
innborgun húsgagna og innréttinga-
innflytjenda á geymslureikninga i
Seðlabankanum.
„Það verður að kanna, hvort mis-
tök hafi átt sér stað i framkvæmd
þessara reglna, sent viðskipta-
ráðuneytið setti. Það er
— viðskiptaráðu-
neytið oggjald-
eyrisbankamir
fylgjast ekkert
með, hvort
geymsluféð
er inntaf
hendi, segja
framleiðendumir
taka ákvörðun um það hvort
íslenzkur húsgagna- og innréttinga-
iðnaður ætti að lil'a eða deyja. Ol't
hefði verið rætt urn offjárfcstingu i
þessum iðnaði en þegar málið væri
skoðað kæmi i Ijós, að fjárfcsting
nænii svo sem einum skutlogara.
viðskiptabankanna að sjá um það að
greitt sé inn á reikningana i Seðla-
bankanum.
Við viljunt að staðið sé fast á þeim
reglum sem ráðuneylið setur og rætl
verður við bankana og málið yl'ir-
farið og þvi kippl i lag, Itali misiök
átt sér siað. Málið cr þó ckki einlall
viðureignar, þar sem fcð er aðcin-.
þrjá ntánuði inni á rcikningumim i
einu og þvi er ekki goil aðsegjaum
slöðuna nú.”
-Jll.
-.1II.
Þórhallur Asgeirsson ráðuneytisstjóri:
MÁLIÐ RANNSAK-
AÐ ÞEGAR í STAÐ
Félag ungra lækna:
Vandinn ekki leystur
með einföldu lagaboði
,, Héraðsskyldan er i raun ekki
nám eftir embæltispróf og hluti af
kandidatsári, heldur eins konar þegn-
skylduvinna, sem á sér ekki
hliðstæðu meðal annarra hérlendra
starfsstétta,” segir i ályktun sent
samþykkt var á aðalfundi Félags
ungra lækna 10. nóvember
síðastliðinn.
í ályktuninni segir einnig, að
vegna þessarar þegnskylduvinnu
verði „ungir læknar að taka á sig
óbættan aukakostnað vegna
flutninga milli landshluta, auk þess
sem hún veldur röskun á heimilis-
högum. Einungis verulega bætt
starfsaðstaða getur stuðlað að lausn
vanda þessara héraða til langframa.
Félagið er sem fyrr reiðubúið til
viðræðna við yfirvöld um þessi mál
og lýsir öllum drætti á lausn mála á á-
byrgð stjórnvalda.” í ályktuninni er
einnig lögð á það áherzla, að læknis-
skortur i afskekktum einmennings-
héruðum verði ekki leystur með
einhliða lagaboði yfirvalda um
skylduvinnu nýúlskrifaðra, reynslu-
litilla lækna. -GAJ
16% laxveiði-
leyfa 78 voru
seld eriendis
I átján beztu laxveiðiám á íslandi
nota útlendingar 5442 stangardaga urn
hásumarið, en íslendingar 8301 stang-
ardag, aðallega vor og haust. Þetta er
niðurstaða nefndar er fyrrverandi land-
búnaðarráðherra skipaði til að kanna
aðstöðu íslenzkra stangaveiðimanna til
að fá aðgang að laxveiðiám i landinu
og hvort veiðileiga og afnot erlendra
manna hér á landi eru þess eðlis að
innlendir veiðimenn fái þann aðgang
að veiðiám landsins sem eðlilegt niá
telja.
í greinargerð um nýtingu veiðileyfa
árið 1978 kom fram að erlendis voru
seld 16% Ieyfanna, eða 5442 stangar-
dagar. Á innlendum markaði voru seld
51 % leyfanna eða 17.479 stangardagar.
14% veiðileyfanna voru ekki á almenn-
um markaði vegna einkanota eigenda
eða leigjenda. 11% leyfanna eða 3600
stangardagar voru ekki boðin til sölu
vegna friðunaraðgerða, eða litillar
veiðivonar á þeim tíma. 8%
veiðileyfanna, eða 2700 stangardagar
seldust ekki.
Allar þessar upplýsingar komu frarn
i skvrslu stjórnar Landssambands
stangaveiðifélaga, sem flutt var af
Karli Ómari Jónssyni, formanni sam-
bandsins á aðalfundi þess um siðustu
mánaðamót.
Á fundinum var einnig skýrð þings-
ályktunartillaga Árna Gunnarssonar
alþm. o.fl. um sérstakt gjald á
veiðileyfi útlendinga, sem veiða i
islenzkum ám, og þeim umræðum, sem
um hana fóru fram á Alþingi.
Stjórn Landssambands stangaveiði-
félaga hefur á undanförnum árum
unnið að þvi að koma á útboðsreglum
um útleigu á veiðirétti og leitar sam-
vinnu við Landssamband veiðifélaga
þar um.
Stjórn LS skipa nú Friðrik Sigfús-
son Keflavík, form., en Karl Ómar
gaf ekki kost á sér. Varaformaður er
Birgir Jóh. Jóhannsson Rvík, rilari er
Rósár Eggertsson Rvík, gjaldkeri
Sigurður í. Sigurðson, Hafnarfirði, og
Benedikt Jónmundson, Akranesi,
meðstjórnandi. -A.Sl.
Hjálparstofnun kirkjunnar:
AUKIN ÁHRIF DREIFBÝUSINS
mánuði i sameiginlegri landssöfnun
Hjálparstofnunarinnar og Rauða
krossins til handa flóltafólki i SA-Asiu.
-(. A .1.
... og gras af sedlum...
Starfsmenn Hjálparstofnunar
kirkjunnar hafa á þessu hausli heimsótt
héraðsfundi prófastsdæmanna og
kynnt starfsemi Hjálparstofnun-
arinnar, svo og breytingu á reglugerð
þess efnis að prófastsdæntin Itafa rétt
á að kjósa fulltrúa i stjórn Hjálpar-
stofnunarinnar. Hafa héraðsfundirnir
fagnað þessu og kosið sina fulltrúa.
Mun stjórnin þá verða skipuð fólki alls
staðar að af landinu sem er mikill liðs-
auki og styrkur Hjálparstofnuninni í
því margþætta starfi er hún vinnur.
Um 30 milljónir söfnuðust í sl.'
Á Ijórða timanum i fyrradag kom
náungi einn inn i Sólningu i Kópavogi.
Fór hann aftur út áður en afgreiðslu-
maður sem var að tjaldabaki gat sinnt
honum. í gærkvöldi er farið var að
telja úr kassanum virtist vanta í hann
um 300 þúsund krónur. Settu ntenn
komu náungans i búðina fyrr um
daginn í samband við peningahvarfið.
RLR-menn fóru nú á stúfana og
fundu líklegan rnann. Var hann tneð
unt 190 þúsund kr. i fórum sínum og
hafði auk þess lengið sér ný föt og
komið sér upp birgðum áfengis.
Reyndist þaðallt keypt fyrir le Sólning-
ar. -A.St.
INTERNATIONAL
S-SERIES
IH Diesel 160 og 210 hö.
10,0 og 22,5 t heildarþyngd.
Framdrif fáanlegt.
Afgreiðslufrestur 4—5 mánuðir.
CARGOSTAR
IH Diesel 170 og 210 hö.
CO 1850 13,5 t heildarþyngd.
CO 1950 16,5theildarþyngd.
Sjálfskipting. 7/7 afgreiðslu strax.
Véladeild
Sambandsins
AUGLÝSINGASTOFA SAMBANDSINS
Armúla 3 Reykjavik Simi 38900