Dagblaðið - 15.11.1979, Síða 28
28
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1979
Félag viöskiptafræðinga
og hagfræðinga
Almennur félagsfundur verður haldinn í stofu 3,
Háskóla íslands (aðalbyggingu), í dag,
fimmtudag 15. nóv., kl. 20.30.
Efni: Horfur í efnahagsmálum.
Frummælendur: Jón Sigurðsson forstjóri Þjóð-
hagsstofnunarinnar, Jónas Sveinsson hagfræð-
ingur Vinnuveitendasambands íslands og
Jóhannes Kr. Siggeirsson hagfræðingur Alþýðu-
sambands íslands.
Stjórnin.
Styrkir til háskólanáms í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði fram í löndum sem aðild eiga
að Evrópuráðinu tiu styrki til háskólanáms í Sviþjóð háskólaárið 1980—
81. — Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma i
lilut islendinga. — Styrkir þessir eru eingöngu ætlaðir til framhaldsnáms
við háskóla. Styrkfjárhæðin er 2.040.- sænskar krónur á mánuði i níu
mánuði en til greina kemur í einstaka tilvikum að styrkur verði veittur til
allt að þriggja ára.
Umsækjendur skula hafa lokið háskólaprófi áður en styrktímabil hefst.
Umsóknir uni styrki þessa skulu sendar til:
SVENSKA ÍNSTITUTET, P.O. Box 7434
S-103 91 Stockholm, Sverige,
fyrir 15. febrúar 1980. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
12. nóvember 1979.
HVER ER FRAMTÍÐ OKKAR
OG BARNA OKKAR?
Betty Reed álfuráðgjafi frá Skotlandi mun flytja fyrirlestur
og svara fyrirspurnum í ráðstefnusal Hótel Loftleiða kl.
20.30 í kvöld, erindið verður þýtt af Sveini Magnússyni.
Svæðisráð Bahá'ía Reykjavík
Styrkir til háskólanáms í Danmörku
Dönsk stjórnvöld bjóða frani fjóra styrki handa Islendingum til háskóla-
náms í Danmörku námsárið 1980—81. Einn styrkjanna er einkum
ætlaður kandidat eða stúdent. sem leggur stund á danska tungu. danskar
bókmenntir eða sögu Danmerkur og annar er ætlaður kennara til náms
við Kennaraháskóla Danmerkur. Allir styrkirnir eru miðaðir við 8 mán
aða námsdvöl en til greina kemur að skipta þeim ef henta þykir. Styrkfjár
hæðin er áætluð um 2.251.- danskar krónur á mánuði.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðuneytisins.
Hverfisgtöu 6, 101 Reykjavík. fyrir 15. janúar 1980. — Sérstök um
sóknareyðublöðfást í ráðuneytinu.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
12. nóvember 1979.
Styrkur til háskólanáms í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa Íslendingi til háskólanáms i Sví
þjóð námsárið 1980—81. Styrkurinn miðast við átta mánaða námsdvöl
og nemur styrkfjárhæð 2.040,- s.kr. á mánuði. Til greina kemur að skipta
styrknum ef henta þykir.
Umsóknum um styrk þennan skal koniið til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík fyrir 15. janúar nk. og fylgi staðfest afrit
prófskirteina ásamt meðmælum. — Sérstök umsóknareyðublöð fást i
ráðuneytinu.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
12. nóvember 1979.
í kvöld kl. 20:30
,,Kristiania-bohemen — borgerskabets
uskikkelige sonner”. Norski bókmennta-
frœðingurinn Willy Dahl flytur fyrirlestur
um bók Hans Jægers „Kristiania-
bohemen.
Allir velkomnir
N0RRÆNA HÚSIÐ
0B
■ ■ ■ ■
Þrír af drengjunum sem reknir voru úr skóla fyrir að hafa klippt háríð á sér of stutt. Annað hvort er háríð of sitt eða of stutt.
slikum stað.
Reknir úr skólanum
fyrir of stutt hár
Timarnir breytast oa mennirnir
með er oft sagt og það á örugglega
við um skólastjóra einn i Bretlandi
sem rak nokkra af nemenöum sinum
úr skóla fyrir að vera meö of stutt
hár.
Elzti drengurinn af þeim sem
reknir voru, sem er fimmtán ára,
sagði í samtali við blað eitt i Bret-
landi að skólastjórinn hefði sagt þeini
að hypja sig og koma ekki aftur fyrr
en hárið væri farið að tíkka aftur.
Drengurinn sem heitir Kevin
Ovenden sagði aftur á móti að
honum líkaði vel að hafa hárið svona
stutt og langaði hreint ekki til að láta
það vaxa.
Móðir hans sagði við sama blað að
þegar drengurinn hafi komið heim úr
skólanum og sagt henni frá atburðin-
um hefði hún alls ekki trúað honum.
(Kannski ekkert skrýtið ). Þegar
faðirinn kom heim varð hann aftur á
móti öskureiður og gekk strax á fund
skólastjórans.
„Ég sagði honum,” sagði faðir
drengsins, „að mér fyndist hárið á
drengnum bæði snyrtiiegt og fint,
auk þess sem hann mætir alltaf i
skólabúningnum sínum.”
Skólastjórinn sjálfur heldur þvi
fram að hann sé ekki á móti stuttu
hári heldur hafi þetta ægilega stutta
hár verið komið í tízku í skólanum
og hann vildi bara með þessu móti
stoppa það.
Saltaðar
lambabríngur
KJÚTBÚÐ
SUÐURVERS
STIGAHLÍÐ - SÍMI35645
PlnstiM lif SZE0
PLASTPOKAR
ö 82655
CASIO töh/uúr
á hagstæðu verði.
einkaumboð ð íslandi
Bankastræti 8. Simi 27510
Poppsöngkona á
ferð um England
Popp súperstjaman frœga, Shirley Bassey, kom til Englands á dögunum til að
halda tónleika I London, Birmingham og Manchester. Shirley hefur vakið mikla
athygli og eryfirleitt talin merkilegur kvenmaður. Hún hefur oft komizt á vin-
sœldalista. Shirley Bassey býrl Sviss og ergift Italanum Sergio Novek.