Dagblaðið - 25.01.1980, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 1980.
Dómsmálaráðherra um ólöglegar leigumidlanir:
„VAKTIA1HYGU
RÉTTRAAÐILA
A MÁUNU”
í framhaldi af skrífum Dagblaðsins
„Dómsmálaráðuneylið hefur
vakið athygli réltra aðila á málinu í
framhaldi af skrifum Dagblaðsins.
Það er Rannsóknarlögreglu ríkisins
að ganga úr skugga um hvort hér er
um einhvers konar ólöglega starfsemi
að ræða. Að öðru leyti heyrir þetta
undir félagsmálaráðuneytið,” sagði
Vilmundur Gylfasbn dómsmálaráð-
herra í gær.
„Tvær ólöglegar leigumiðlanir
starfandi — óheimilt samkvæmt lög-
um að taka féaf fólki í húsnæðisleit”
var fyrirsögn fréttar á forsíðu DB sl.
miðvikudag. Þar var sagt frá ólög-
legri leigumiðlun sem starfrækt hefur
verið að Hverfisgötu 76. Atvinnu-
miðlun mun einnig hafa verið starf-
rækt á sama stað — nokkuð sem er
óheimilt lögum samkvæmt.
Jón frá Pálnrholti hjá Leigjenda-
samtökunum sagði DB að fjöldi
kvartana hafi borizt frá fólki sem
leigumiðlanirnar hafa hirt af pen-
inga. Leigjendasamtökin kærðu
Hverfisgötumiðlunina oftar en einu
sinni til lögreglu og félagsmálaráðu-
neytisins. Ekkert gekk fyrr en nú, að
Dagblaðið birti fréttir um hina ólög-
legu starfsemi. -ARH
Hluti af sporlbátum Isfirðinga.
Sjórall ’80:
DB-mynd JH
Þrír keppnisbátar
koma frá ísafirði
„Það er hugsanlegt að 3 bátar héðan
taki þátt í næsta sjóralli, allt bátar sem
eru fyrir hendi núna og vel búnir,”
sagði Jónas H. Eyjólfsson á ísafirði í
viðtali við DB i morgun. Hann, ásamt
Guðmundi Óla Lyngmó, er ákveðinn í
að keppa á 19 feta Sheltland báti. Daði
Hinriksson, núverandi eigandi Ingu,
sem Gunnar Gunnarsson og Ásgeir
Ásgeirsson kepptu á í fyrra, hefur
einnig fullan hug á keppni og sömu-
leiðis Tryggvi Tryggvason á 24 feta
Fjord báti.
Tryggvi og Daði eiga eftir að velja
sér aðstoðarmenn, eftir því sem Jónas
vissi bezt í morgun. Allir eru þessit
menn í Sæfara, félagi sportbátaeigenda
á ísafirði. -GS
NÍU KINDUR
DRÁPUST Á VEGUM
VIÐ REYKJAVÍK
— Ástandid batnar stöðugt varðandi
dýraslysa á vegum
Níu kindur voru drcpnar á stofn-
brautum þjóðvegakerfisins í grennd við
Reykjavík sl. sumar. Voru sjö þeirra á
Suðurlandsvegi en tvær á Vesturlands-
vegi. Á árinu 1978 drápust 12 kindur á
þessum sömu vegum.
Tryggvi Friðlaugsson, lögregluvarð-
stjóri i Árbæjarstöð, hefur haldið skrá
um slys á dýrum í umferðinni undan-
farin ár. Skrá Tryggva sýnir að
ástandið í þessum málum batnar
stöðugt. Sem dæmi má nefna að 1976
voru _I8 kindur drepnar af bílum á
vegum við Reykjavík og þrjú hross.
Á sl. ári er ekki vitað um nema eitt
hross sem bíll ók utan í. Var slysið ekki
talið ökumanni að kenna og hrossið
meiddist lítið.
Af þeim 9 skiptum, þar sem keyrðar
voru niður kindur á sl. sumri, gáfu bíl-
stjórar sig fram i 7 tilvikum. Tvær
kindur fundust niðureknar á Suður-
landsvegi og vissi enginn hver hafði átt
þarhlutað. -A.St.
Skákþing Reykjavíkur:
Jóhann og Haraldur
enn með „fullt hús”
Jóhann Hjartarson og Haraldur
Haraldsson eru efstir og jafnir að lokn-
um 6 umferðum á skákþingi Reykja-
víkur. Þeir hafa unnið allar sinar skákir
og hafa 6 vinninga.
í 6. umferð vann Jóhann Björn
Sigurjónsson og Haraldur vann Guð-
mund Ágústsson. Þeir Björn og
Guðmundur eru i 3.—4. sæti mcð 5
vinninga.
AIls eru keppendur 86 á mótinu og
tefldar verða 11 umferðir eftir Monrad-
kerfi. 7. umferð verður tefld í kvöld og
þá leiða þeir Jóhann og Haraldur
saman hesta sína.
- GAJ
Kvennahátíð á laugardaginn:
Verðlaunaleikrit og
óvæntar uppákomur
Rauðsokkahreyfingin efnir til mik-
illar kvennahátíðar nú á laugardag-
inn. Hátíðin, sem er á tíunda starfs-
ári hreyfingarinnar, á að vera sú
fyrsta af árlegum slík um hátiðum.
Hátiðin hefst í Tónabæ klukkan 10
að morgni og lýkur henni klukkan
þrjú að nóttu í Fáksheimilinu. Í
Tónabæ verður ýmislegt gert til
skemmtunar og fróðleiks. Nefna má
sem dæmi að skáldkonur lesa úr
verkum sínum og flutt verður verð-
launaleikritið Vals eftir Jón Hjartar-
son. Þá syngja bæði rauðsokkar og
aðrir og bóndakona úr Ölfusinu
flytur ávarp. Á milli atriða verða svo
óvæntar uppákomur ef tími gefst til.
í Fáksheimilinu verður húsið
opnað klukkan níu. Klukkan tíu
hefst söngdagskrá en að henni lok-
inni verður dansað til klukkan þrjú.
Öllum er heimilt að koma bæði í
Tónabæ og Fáksheimilið. Miðar
verða seldir á staðnum og kostar 1500
fyrir daginn og 2000 fyrir kvöldið.
Barnagæzla verður á vegum fóstru-
nema í Tónabæ.
- I)S
UM UÓNSKÁLD
i gær komst einhver púki í fyrirsögn stað verður fantastiskur að fanatískur.
og nokkur orð greinar eftir mig um bók Við þetta breytast áherzlur greinarinn-
Guðbergs Bergssonar. Fyrirsögnin átti ar.
að vera UM LJÓNSKÁLD og á einum - Al
Föngulegur hópur kvenna fylgdi Olafi heitnum á Gilsbakka til grafar. Hér sjást nokkrar prúðbúnar skiptast á orðum undir
kirkjuvegg. Upptaka á jarðarfararatriðinu I Land og synir fór fram I Tjarnarkirkju I Svarfaðardal. DB-mynd: ARH
Land og synir frumsýnd í kvöld:
EF 30 ÞUS. MANNS
BREGÐA SÉR í BÍÓ
— þá er fyrírtækinu borgið
„Við þurfum að fá 30 þúsund
manns á sýningar til að fyrirtækið
standi örugglega undir sér. Miða-
verðinu er stiljt i hóf til að sem flestir
geti séð sér fært með góðu móti að
sjá myndina,” sagði Jón Hermanns-
son, framleiðandi kvikmyndarinnar
Land og synir.
Land og synir verður frumsýnd
samtímis í Austurbæjarbíói og á Dal-
vík í kvöld kl. 9. Á morgun er fyrir-
hugað að hafa 4 sýningar í viðbót á
Dalvik. Að þvi búnu hafnar það ein-
tak myndarinnar á Akureyri. Sýningar
þar i bæ hefjast á sunnudag. Sýn-
ingar í Austurbæjarbíói verða kl. 5, 7
og 9 á næstunni. Miðaverð er kr.
2500. Til samanburðar má geta þess
að leikhúsmiði kostar kr. 4000.
Að sögn Jóns er kostnaður við
gerð kvikmyndarinnar nálægt 65
milljónum króna. Hún var að mestu
tekin upp i Svarfaðardal sl. sumar á
35 mm litfilmu. Kvikmyndun stóð
yfir i tæpa tvo mánuði og sýningar-
tími myndarinnar er 94 mínútur.
- ARH
Ríkisstjóm Islands um mál Sakharovs:
„SKYLAUST BR0T A ALÞJOÐ-
LEGUM SKULDBINDINGUM”
„Aðgerðir sovézkra stjórnvalda
varða ekki aðeins borgara Sovétrikj-
anna. Þær eru skýlaust brot á alþjóð-
legum skuldbindingum og steinn i götu
þeirrar viðleitni að bæta sambúð rikja i
Evrópu og draga úr spennu i heimin-
um,” segir í yfirlýsingu íslenzku rikis-
stjórnarinnar frá í gær.
„Á undanförnum vikum og
mánuðum hafa fréttir borizt frá
Moskvu um handfökur og brottflutn-
ing margra þeirra hugrökku karla og
kvenna í Sovétríkjunum, sem leyft hafa
sér að gagnrýna þjóðfélagskerfi Sovét-
ríkjanna og virðingarleysi valdhafanna
fyrir almennum mannréttindum,” segir
i yftrlýsingunni. „Þessi herferð gegn
frjálsri hugsun hefur nú ná5 hámarki
með aðför sovézkra stjórnvalda að
merkisbera hennar, Andrei Sakharov,
sem hlaut friðarverðlaun Nóbels árið
1975 vegna baráttu sinnar fyrir aukn-
um mannréttindum í heimalandi sínu.”
- HH