Dagblaðið - 25.01.1980, Blaðsíða 24
fijálst, úháð dagblað
„Stefanía” fjariægist:
FRAMSOKN HAFNAR
TILLÖGUM BENEDIKTS
„Þessar tillögur eru stórt spor
aftur á bak miðað við tillögur
Alþýðuflokksins í vinstri viðræðun-
um,” sagði Tómas Árnason alþingis-
maður (F) í viðtali við DB i morgun
um tillögur Benedikts Gröndal. Á
fundi framkvæmdastjórnar og þing-
flokks Framsóknar, sem stóð fram
yfir miðnættið, var samþykkt að
hafna tillögum Benedikts sem
umræðugrundvelli að myndun meiri-
hlutastjórnar.
í samþykktinni segir að
Framsóknarflokkurinn sé reiðubúinn
að leggja fram endurskoðaðar tillög-
ur, ef það gæti orðið til að auka líkur
á stjórnarmyndun.
Framsóknarmenn fetta helzt fingur
út í tillögur Benedikts í landbúnaðar-
málum og byggðamálum. í land-
búnaðarmálum stefna tillögurnar að
minnkun útflutningsbóta og styrkja
til landbúnaðarins. Framsóknarmenn
lita svo á að í tillögunum felist að
Byggðasjóður verði lagður niður.
Framsóknarmenn telja einnig að i
tillögum Benedikts sé stefnt að meiri
rýrnun kaupmáttar en nokkur leið
verði að ná samstöðu um á vinnu-
markaðinum.
„Menn eru nú lengra frá þvi að
mynda stjórn en var áður en tillög-
urnar komu fram,” sagði einn
forystumaður Framsóknar í morgun.
„Líkurnar á utanþingsstjórn hafa
vaxið mikið.. Viðbrögð sjálfstæðis-
manna við tillögunum skýrast á þing-
flokksfundi þeirra í dag.
'4Eins og DB sagði í gær dró
Alþýðubanðálágið sig út úr viðræð-
unum.
-HH.
FÖSTUDAGUR 25. JAN. 1980.
Fnmvörp sam-
þykkt og fisk*
verð fæddist
Samhljóða samþykktu alþingismenn
þrenn lög til grundvallar nýs fiskverðs í
gærkvöldi og þá stóð ekki á yfirnefnd
Verðlagsráðs sjávarútvegsins að semja
um nýtt fiskverð. Það átti að liggja
fyrir um áramót en vegna óvissu um
framgang frumvarpa um olíugjald,
útflutningsgjald og Aflatrygginga-
sjóð, fékk nefndin itrekaðan frest til
afgreiðslu.
Heildarhækkunin varð um 15% að
frádregnu 9% olíugjaldi og hækkar
hráefniskostnaður fiskvinnslunnar um
7,3%. Skiptaverð til sjómanna hækkar
um 11 % og hlutur útgerðar i fiskverði
hækkar um 5,5%. Olíugjald var
ákveðið 5%. Meðaltalshækkun skipta-
verðs helstu botnfisktegunda var 11%.
Kaupendur, seljendur og oddamaður
samþykktu þessa lausn samhljóða.
-GS.
Fargjald fullorðinna með strætó er
frá og með deginum i dag kr. 170.
Barnafargjald 12 ára og yngri er
kr. 40.
Ríkisstjórnin lagði blessun sína yfir
hækkunarbeiðnir margra opinberra
stofnana og fyrirtækja í gær. Strætó-
gjöld hækka um 13%, taxtar
Rafmagnsveitunnar um 12%, taxtar
Skipaútgerðar ríkisins um 9%, síma-
gjöld um 13% taxtar Landsvirkjunar
um 27% og hitaveitunnar um 20% Þá
verður 16% dýrara að sækja leikhús og
sinfóníutónleika.
30 miða spjöld fullorðinna með
strætó kosta nú kr. 4000. Áður fengust
36 miðar fyrir þá upphæð. Minni
spjöld, 6 miðar, kosta 1000 kr. 26
barnamiðar kosta 500 kr. og 30 miða
spjöld aldraðra kosta kr. 2000. -ARH.
Blessun lögð yfir ótal
hækkunarbeiðnin
Veður var skaplegt I höfuðborginni i gœr og hœgt að þvo blla. Margir voru ordmr IItt
fýsilegir til aksturs vegna fósturjarðarinnar sem safnaðist utan ó lakkió. Frost og
hvassviðri hafa hjólpazt að undanfarna daga við að sklta út ökutœkin ogþví erþað
kœrkomið ef hægt er að skola burt óhreinindin. DB-mynd Hörður.
Þingmenn úr öllum flokkum vilja stórhækka olíustyrkinn:
„Fólksf lótti vofir yfir”
„Verð á oliu skal greitt niður scm
nægir til að oliukostnaður við kynd-
ingu húsa verði eigi hærri en sem
nemur 2,5 földu vegnu meðalverði
hjá hitaveitum landsins, sem hafa
jarðvarma að orkugjafa.” Svo segir i
frumvarpi fjögurra þingmanna, úr
ölltim tlokkum, sem var lagt fram í
gær.
„Hér er ekki einungis unt sann-
girnismál að ræða heldur hagsmuna-
mál þjóðarheildarinnar. Ef ekkert er
aðhafzt og ekki skjótt við brugðið,
vofir yfir brottflutningur fólks frá
oliuhitunarsvæðunum og stórfelld
byggðaröskun i landinu, öllum til
óntælanlegs tjóns,” segja þingmenn-
irnir í greinargerð. Verð á gasolíu til
húshitunar hcfur 29,3 faldazt en olíu-
styrkur hins opinbera aðeins tífaldazt
síðan 197f
Flutningsmenn segja, að i frum-
varpinu felist, að niðurgreiðsla á
verði oliu til húshitunar verði 59
prósent. Þeir nefna sem dæmi, að
styrkur, sem nú er 288 þúsund á ári,.
mundi hækka i 576 þúsund. í þvi
dæmi mundi raunvcrulegur
kyndingarkostnaður lækka um
50prósent.
Flutningsmennirnir eru: Þorvaldur
Garðar Kristjánsson (S), Tómas
Árnason (F), Stefán Jónsson (AB) og
EiðurGuðnson(A).
-HH.
Einn skjólstæðinga Félagsmálastofnunar Reykjavíkur:
Barði starfsstúlku niður
— Félagsmálaráð íhugar hvort ástæða sé til sérstakra öryggisaðgerða
fyrír starfsfólkið
Kona, sem á undir Félagsmála-
stofnun Reykjavikur að sækja með
afkomu sina, sýndi af sér mikinn
dólgshátt innan stofnunarinnar fyrir
skömmu, sem endaði með þvi að
hún réðst á eina starfsstúlku þar og
barði hana niður. Rannsóknar-
lögregla ríkisins hefur málið nú til
meðferðar eftir að starfsstúlkan
kærði konuna.
Áður hefur hurð skollið nærri
hælum að skjólstæðingar stofnunar-
innar sýni starfsmönnum þar ofbeldi.
í ljósi þessa siðasta atburðar sá
Félagsmálaráð borgarinnar ástæðu
til að ræða þetta mál sérslaklega á
síðasta fundi sínum. Var þar í alvöru
velt fyrir sér þeirri spurningu hvort
nauðsyn bæri til að vernda starfs-
menn stofnunarinnar fyrir skjól-
stæðingum hennar með einhvers
konar veggjum eða öryggisglerjum.
Á fundinum kom m.a. fram að i
hópum norrænna starfsmanna við
slikar stofnanir hefur þessi mál oft
borið á góma og hefur sums staðar
þótt ástæða til að grípa til sérstakra
öryggisráðstafana. -GS..
Pósthúsránið í
Sandgerði:
Rannsókn enn
án árangurs
Pósthúsránið í Sandgerði 2. janúar
er ennþá með öllu óupplýst. Að málinu
er þó hugað daglega og að rannsókn-
inni starfa bæði menn frá Rannsóknar-
lögreglu ríkisins og rannsóknar-
lögreglumaður af Suðurnesjum. F.ngar
yfirheyrslur hafa átt sér stað í málinu
síðustu daga en rannsóknarlögreglu-
menn endurskoða nú gögn málsins og
huga að hverju því sem upp kemur og
gæti snert málið.
-A.Sl.
LUKKUDAGAR:
'25. JANÚAR 353
Vöruúttekt að eigin vali hjá’
Liverpool fyrir kr. 10.000.
Vinningshafar hringi
ísíma 33622.