Dagblaðið - 26.01.1980, Qupperneq 1
6. ÁRG. — LAUGARDAGUB 26. JAN. 1980 — 22. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALStMI 27022.
heimsmetíö
áístandi
íhaust
Tékkneski stórmeistarinn W. Hort
hefur tekið mjög liklega i þá hug-
rnynd Skáksambands íslands að hann
komi hingað til lands siðar á árinu og
endurheimti heimsmct sitt í fjöltefli.
Eins og menn muna setti Hort
heimsmet i fjöltefli í Valhúsaskóla
23.—24. april 1977 er hann tefldi við
550 íslendinga.
Svisslendingurinn Werner Hug
bætti svo þetta mct á siðasta ári er
hann tefldi fjöltefli við 560 menn.
Vinningshlutfall hans var þó langt í
frá eins hátt og hjá Hort og ekki
tefldi hann heldur við eins marga í
einu. Engu aðsiður hefur Hort fullan
hug á að cndurheimta þetta met og lét
hann þá ósk i ljós í samtali við Einar
S. Einarsson, forseta Skáksambands-
ins, að af þessu gæti orðið næsta
haust. Það voru Dagblaðið og Skák-
samband íslands sem stóðu fyrir fjöl-
tefli Horts i Valhúsaskóla á sínum
tima. -GAJ.
Sjálfstæðismenn
jákvæðir
gagnvart Benedikt
— Benedikt vill hætta en sumir alþýðuflokks-
menn vilja að hann reyni betur
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins
voru á þingflokksfundi í gær sam-
mála um að það væri skylda stærsta
flokksins að taka þátt í stjórnar-
myndun. Fundurinn var jákvæður
gagnvart tilraun Benedikts Gröndals
og tilbúinn til viðræðna á grundvelli
tillagna Benedikts eða öðrum grund-
velli. Þingflokkurinn hafði þó ýmis-
legt við sum atriði í tillögum Bene-
diktsaðathuga.
Benedikt Gröndal mun vilja skila
umboði sínu en sumir aðrir
forystumenn Alþýðuflokksins vilja
að hann reyni betur. Fundur í þing-
flokki Alþýðuflokksins í dag mun
ákveða hvort Benedikt hættir
„Styð Guðlaug”
— segir Reynir
Ármannsson
„Það er engin leynd yfir því að
ég styð Guðlaug Þorvaldsson
rikissáttasemjara í forseta-
kosningunum,” sagði Reynir
Ármannsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, í samtali við
Dagblaðið.
„Ég hef staðið fyrir söfnun
fyrir hann og mun leggja mig all-
an fram við að afla honum aukins
fylgis,” sagði Reynir. -GAJ.
— Sjá einnig stuðningsmannalista
Péturs Thorsteinssonar bls. 7.
tilraunum sínum eða ekki.
Það kom alþýðuflokksmönnum á
óvart, að sögn þeirra, að Framsókn
skyldi vísa tillögum Benedikts á bug
eins afdráttarlaust og raunin varð.
Sumir alþýðuflokksmenn sögðu að
synjun Framsóknar hefði byggzt á
áhuga þeirra á að Steingrímur
Hermannsson yrði forsætisráðherra
en ekki Benedikt. Framsóknarmenn
sögðu hins vegar að tillögur Bene-
dikts hefðu sýnt óbilgirni.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
vísaði i gær á bug tillögum Benedikts
og taldi mörg atriði í þeim „ýmist
óframkvæmanleg eða stórhættuleg. ”
-HH.
Ráðherrar í
utanþingsstjórn?
Þingmenn velta fyrir sér í
spjalli í setustofu Alþingis hverjir
muni líklegastir til að verða
ráðherrar í utanþingsstjórn. Mest
hafa verið nefndir Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri, sem
sennilega yrði forsætisráðherra,
Jón Sigurðsson þjóðhagsstjóri,
SÍS-mennirnir Erlendur
Einarsson og Valur Arnþórsson
og bankastjórarnir Helgi Bergs og
Jónas Haralz.
-HH.
Seppi horfir spekingslega á endurnar á Tjörninni. Hann og húsmóðir hans hafa vœntanlega farið
tilþess að gefa öndunum eins og margir aðrir gera þegar kalt er í veðri og ís á Tjörninni. Þá veitir
öndum ekki af einhverju góðu í kroppinn. Kannski vaknar í seppa veiðieðlið þegar hann sér
fuglana fyrirframan sig, en hann sigrast á freistingunni. Þetta er máltíð andanna en ekki hans.
DB-mynd Magnús Hjörleifsson.
Hús flutt frá Akranesi
til Reykjavíkur
— í fylgd lögreglumanna fjögurra umdæma
Gamalt timburhús á Akranesi sem
þar bar nafnið Jörvi og stóð við
Vesturgötu 89 lagði i gær af stað á
vagni til Reykjavíkur. Þar er húsið
búið að fá pláss í vesturborginni.
Svona flutningur húsa úr öðrum
kjördæmum mun næsta fátíður.
Á ferð sinni til höfuðborgarinnar
fékk húsið nokkurs konar þjóð-
höfðingjafylgd. Lögreglumenn úr
fjórum lögsagnarumdæmum áttu að
fylgja því. Lögreglan á Akranesi
fylgdi því út fyrir bæinn þar sem lög-
reglumenn sýslumannsins i Mýra-
sýslu tóku viö og fylgdu þvi rúmlega
inn i Hvalfjarðarbotn. Þar tóku iög-
reglumenn úr Hafnarfirði við og
fylgdust með húsflutningnum að
bæjarmörkum Reykjavikur nálægt
Korpu þar sem Reykjavíkurlögreglan
tók við. Minnir þetla nokkuð á
boðhlaup FRÍ i sumar.
Húsið verður til bráðabirgða sett
.á svæði nálægt BÚR á Meistara-
völlum en mun síðar fá sinn fram-
tíðarstað cins og önnur gamalmenni
sem til höfuðborgarinnar flytja.
-A.Sl.