Dagblaðið - 07.02.1980, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 07.02.1980, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980. Frelsi (bjór), jafnrétti (smjörflíki), bræðralag (réttlæti): BUA BRAUDAFRAMLEIDENDUR VK> VDSKIPTAÞVINGANR? Það vakti sérstaka ánægju mína, að í þessu máli var boðberi réttlætis- ins og jafnréttisins matvælaframleið- andinn Davíð Sch. Thorsteinsson. Ég starfa einnig að matvælaframleiðslu og virðist því einsýnt að hagsmunir okkar tveggja fari saman. Og ekki er að efa að hugsað verður um að lands- lýður njóti alls réttlætis. Mér finnst með öðrum orðum rökrétt að álykta, að D.Sch.Th. sé fús að beita sér fyrir jafnrétti og réttlæti á þeim vígstöðv- um, sem við matvælaframleiðendur. berjumst á, eins og hann hefur beitt sér fyrir „réttlæti” í bjórinnflutningi landsmanna. Það er risavaxið mál að fara ofán í saumana á því, hvernig staðið er að innflutningi á hráefni til þeirrar framleiðslu, sem ég starfa við. Á ég þar bæði við öflun hráefnis til brauða og kökugerðar og innflutning hráefn- is til smjörlíkisgerðar. Til að almenningur og ráðamenn átti sig á, hvað átt er við, er rétt að upplýsa á þessu stigi, að á sama tíma og innflutningur á kökum, kexi og brauðum er frjáls til landsins er brauðaframleiðendum meinað að flytja inn ýmsar vörur sem til fram- leiðslunnar þarf, en gert að kaupa vöruna á íslandi, þóað hún fáist mun ódýrari erlendis (t.d. egg og mjólkur- duft). Og þá vefst fyrir venjulegu fólki að skilja jafnréttið og réttlætið i málum smjörlíkisframleiðslunnar. Hvernig er staðan varðandi innflutning og framleiðslu smjörlíkis? Er innflutn- ingur á fullunnu smjörlíki og hráefn- um til smjörlikisgerðar frjáls? Getur verið að framleiðendum og innflytj- endum sé mismunað? Getur verið að þeir verði jafnvel að búa við við- skiptaþvinganir? Ef svo illa vildi nú til að ekki væri allt í þessu máli eins og best væri á kosið eygir maður loksins von, að við höfum eignast okkar Davíð, eins og ísraelsmenn forðum, og muni sá berjast fyrir rétt- lætinu. Ég veit, að ég tala fyrir munn allra starfsbræðra minna, íslenskra bak- ara, er ég segi, að við fögnum því, að okkur hefur bæst þessi ötuli og öflugi liðsmaður í sveit þeirra er fortaks- laust berjast fyrir réttlætinu og jafn- rétti allra þegna í landinu. Þar er að sjálfsögðu ekki undanskilin jöfn að- staða til innflutnings hvers konar, þ.m.t. innflutningur á fullunnu smjörlíki og hráefnum til smjörlíkis- gerðar. Miðað við það sem á undan er gengið og myndin af undirskrift bjór- blaðsins sýndi er ekki að efa að rétt- lætið mun enn sigra. Með baráttukveðjum í nafni rétt- lætisins. Jón Víglundsson, bakarameistari. Miklar eru hugsjónir manna og misjafnt er hvaðeina er menn gamna sér við. Nýlega birtu blöðin myndir af „fjármálaráðherra” Sighvati Björg- vinssyni og Davíð Sch. Thorsteins- syni, forstjóra Smjörlíkis hf. Eru mennirnir tveir harla kátir að siá, enda afrekin eigi alllítil. Þegar myndin er tekin hefur „ráðherra” rétt lokið við að undirrita reglugerð er leyfir innflutning áfengs öls og réttir „ráðherra” D.S.Th. reglugerð- ina til yfirlestrar. Samkvæmt þessari reglugerð.getur nú hver sá sem kemur frá útlöndum og fer um Keflavikur- flugvöll borið áfengt öl í vissu magni meðsér inn í landið. Að sjálfsögðu eru viðhorf manna til áfengismála misjöfn og ekki til umræðu hér. Hitt ættu allir að vera sammála um, að þegnarnir eiga að búa við sem jafnastan rétt og er það fagnaðarefni, þegar unnt reynist að draga úr eða jafna misrétti sem óvart eða af ásettu ráði viðgengst í þjóð- félaginu. Ekkert er því eðlilegra en þetta sameiginlega átak þeirra — „Samkvæmt þessari reglugerð getur nú hver sá sem kemur frá útlöndum og fer um Keflavikurflugvöll borið áfengt öl i vissu magni með sér inn i landið.” DB-mynd Höröur. Frá Moskvu. Hringið í síma 27022 millikl. 13 og 15, eða skrifið Ég spyr: Eru verkefni „ráðherra” svo yfirþyrmandi stór og alvarleg, að hann þurfi að verða sér úti um smá- mál, til þess að þjóðin fái að sjá a.m.k. einhvern afrakstur starfsins? Hvaðan eiga Rússar að flytja inn kora jafnaðarmannsins og „ráðherrans” Sighvats og forstjóra Smjörlíkis hf„ Davíðs — kalli fram í hugann fjöl- margar spurningar, bæði varðandi jafnrétti hvers konar og afköst ráða- manna, þar með talinna ráðherra, sem eru, þegar betur er að gætt, starfsmenn okkar, skattborgaranna. „Ráðherra” varð frægur fyrir það á sinum tíma að spyrja — spyrja í þaula — og endurtók hann i þingsöl- um: „Ég spyr” — Nu spyr ég þennan starfsmann minn: Hvernig ákveður þú forgang mála? Ég spyr: Hvort skiptir þjóðina meiru máli, að ferða- menn geti borið áfengan bjór inn í landið eða hitt, að við fáum t.d. nýti- ieg skattalög? þegar búið er að koma á sameignarskipulagi á Vesturlöndum? mannkynsins með hliðsjón af þeirri staðreynd, að ríki sósialismans lifa á korni frá heimi kapitalismans, einkum hinum hötuðu Bandarikjum? Og hver fæðir þær milljónir manns, sem sósíalistar Þriðja heimsins hrekja á haf út eða flæma úr landi með öðrum hætti, er þeir gera að veru- leika drauminn um „frelsi, jafnrétti og bræðralag”? Reynslan þar og í austantjaldsrikjunum sýnir, að sósíalisminn er öruggt meðal til að eyðileggja landbúnað. Þessi ríki mundu öll líða skort, ef ekki kæmi til korn- og matvælainnflutningur frá Vesturiöndum, sem eru að kafna í offramleiðslu landbúnaðarafurða. Og hér kemur litil gestaþraut fyrir Rúnar Sigurðsson, Jón Óskar skáld og aðra draumlynda menn: Hvaðan eiga Rússar að flytja inn korn, þegar búið er að koma á sameignarskipu- lagi á Vesturlöndum? Svar óskast. HEWLETT hp PACKARD HEWLETT-PACKARD-einkaumboö 6 íslandi STÁLTÆKI Bankastræti 8. Sími 27510. Guðmundur Bjarnason skrifar: í kjallaragrein um bókina „Kommúnistahreyfingin á íslandi” eftir Þór Whitehead tekur Rúnar G. Sigurðsson undir þá skoðun Jóns Óskars skálds, að það verði „aldrei ráðin bót á hungrinu í heiminum meðan auðvaldið ræður ríkjum”. Sósíalisminn einn geti fætt mannkyn- ið. Nú er mér spurn: Hvernig getur sósíalisminn séð fyrir fæðuþörf ll' Í i

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.