Dagblaðið - 07.02.1980, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980
DB á neytendamarkaði
MEDALTAL ÞRJÁTÍU 0G ÁnA
SVEITARFÉLAGA 42.112 KR.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Sími 15105
ódýrast í Garðabæ en langdýrast á Hvammstanga
Upplýsingaseðlar bárust í desem-
bermánuði frá þrjátiu og átta sveitar-
félögum á landinu. Ef tekið er meðal-
tal allra staðanna án tillits til fjöl-
skyldustærðar veröur upphæðin
42.112 kr. á mann. — Gríðarlega
mikill munur er á meðaltalstölum
hinna ýmsu staða. Langlægsti staður-
inn var Garðabær með 27.882 kr. að
meðaltali á mann. Næst á eftir var
Húsavík með 28.013 kr. á mann og
þriðji lægsti staðurinn var Selfoss
með 28.549 kr. á mann.
Hæsta meðaltalið var frá
Hvammstanga, 70.786 kr. á mann.
Næsthæstur var Tálknafjörður með
64.581 kr. og þriðji hæsti Njarðvík
með 58.666 kr. á mann.
Frá öllum þessum sex stöðum kom
að þessu sinni aðeins einn upplýs-
ingaseðill. í desember bárust mun
færri upplýsingaseðlar en mánuðina
á undan. Frá mörgum stöðum
vantaði seðla frá ýmsum sem höfðu
sent áður í marga mánuði.
T.d. vantaði áberandi seðla frá
Akranesi, Akureyri, Bolungarvík,
Garðinum, Hafnarfirði, Kópavogi,
Mosfellssveit, Selfossi og Njarðvík.
Seðlar frá Reykjavik skiluðu sér
nokkuð vel miðað við nóvember.
Mikið vantaði þó upp á, að seðlar úr
höfuðborginni væru jafnmargir og
þeir voru í október.
Hinsvegarer jafnan meiri hreyfing
á milli fólks í Reykjavík heldur en á
smærri stöðunum.
Landsbyggðin —
höfuðborgin
Við tókum að gamni saman töflu
með samanburði á meðaltalstölum
frá öllu landinu annars vegar og
höfuðborgarsvæðinu hins vegar og
síðan á meðaltali frá höfuðborginni
einni sér sl. þrjá mánuði.
Dreifbýlið og höfuðborgársvæðið
kemur svipað út, landsbyggðartöl-
urnar aðeins hærri en á Stór-Reykja-
víkursvæðinu. Hins vegar eru meðal-
talstölur úr Reykjavík einni sér lang-
hæstar.
-----------------------
Mosfellssveitin er með hæsta
meðtaltalið af Stór-Reykjavikursvæð
inu, þ.e. Reykjavik, Kópavogur,
Garðabær, Hafnarfjörður og Mos-
fellssveit. Meðaltalið á þessum fimm,
stöðum var eftirfarandi:
Reykjavík..............44.637
Mosfellssveit......... 54.074
Kópavogur..............39.146
Garðabær...............27.882
Hafnarfjörður..........43.456
Ekki skal lagður dómur á það nú
frekar en áður hvers vegna meðal-
talið er svona hátt á suðvesturhorn-
inu. Við höfum áður getið okkur til
um að það sé vegna þess að á því
svæði er vöruúrvalið mest, hreyfingin
mest og fleira sem freistar neytenda
heldur en i hinum dreifðu byggðum
um landið. Þar er aftur á móti hærra
vöruverð á flestum nauðsynjavörum,
i það minnsta þeim sem fluttar eru
frá höfuðborginni.
- A.Bj.
ALLT LANDH) 0G
STÓR-REYKJAVÍK
Meðaltal á mann, allt landið Meðaltal. landiðán S-Rvíkur Meðaltal á Stór-R- svæðinu Meðaltal á mann í i Rvík
Des. 42.112,- 42.153.- 41.839,- 44.637,-
Nóv. 36.064. 36.257,- 35.022,- 37.920,-
Okt. 35.398,- 35.334,- 35.781. 35.185,-
Sept. 32.045,- 32.045,- 29.984,- 31.424,-
1 —
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sjólax í „sauma-
Sími
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi i upplýsingamiðlun
meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og .vðar. Þar að auki eigið
þér von i að fá nytsamt heimilistæki.
Kostnaður í janúarmánuði 1980.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annaö
Alls kr.
m nit i v
Fjöldi heimilisfólks
vélaolíu”?
,,Ég keypti sjólax frá Eldeyjar-
rækjunni á dögunum,” sagði Ema
Valdimarsdóttir vegna fréttar um
ágæti sjólax í DB4. febrúar.
„Það virtist vera allt i lagi með
innihald dósarinnar, sjólaxinn leit
prýðilega út, en engu líkara var en að
hann hefði verið látinn i saumavéla-
oliu. Engin lykt var af innihaldi
dósarinnar en olían var nánast hræði-
legá bragðið.”
Það mætti e.t.v. ráðleggja fólki að
láta oliuna renna duglega af sjólaxin-
um áður en hann er borinn á borð.
Tekið skal fram að við gerðum
ekki bragðprufur á sjólaxinum sem
við höfðum til rannsóknar á dögun-
um.
-A.Bj.
Medaltal hinna
ýmsu sveitarfélaga
Des. Nóv. Okt. Sept.
Akranes 43.650 38.648 38.173 31.761
Akureyri 34.068 32.550 34.390 26.406
Blönduós *) 42.495 44.947 34.311 28.301
Borgarnes *) 36.840 32.547 41.945 33.301
Bolungarvík 48.166 38.054 37.978 45.183
Dalvík *) 47.468 40.010 36.689 54.649
Egilsstaðir *) 46.998 29.436 31.169 31.723
Garðabær *) 27.882 24.242 27.254 18.825
Garður *) 30.667 — 26.544 25.000
Eskifjörður *) 34.775 31.457 51.943 41.034
Flateyri *) 31.411 — — 22.281
Hafnarfjörður 43.456 28.539 31.857 39.758
Patreksfjörður *) 43.297 — 46.031 28.768
Siglufjörður *) 43.060 43.705 35.614 —
Hella *) 44.964 35.885 25.141 25.981
Hólmavík *) 46.000 — — 38.369
Hveragerði ♦) 31.295 17.999 44.071 22.541
Húsavík *) 28.013 30.460 38.163 48.701
Höfn 37.126 38.677 45.331 34.262
Hvammstangi *) 70.786 52.845 34.628 26.076
Kópavogur 39.146 38.086 37.346 27.269
Keflavík 33.449 37.831 24.743 27.441
Mosfellssveit *) 54.074 46.322 47.262 25.646
Raufarhöfn *) 36.704 28.676 31.438 34.048
Selfoss *) 28.549 32.856 30.450 39.718
Stöðvarfjörður *) 55.187 — — —
Seyðisfjörður *) 44.931 39.716 — —
Sauðárkrókur *) 29.679 23.475 38.067 25.828
Stykkishólmur *) 45.485 — 50.019 34.960
Tálknafjörður *) 64.581 44.937 32.654 34.473
Vestmannaeyjar 47.237 32.711 33.351 31.096
Vogar *) 37.870 35.091 30.279 34.881
Vopnafjörður *) 43.605 36.135 44.950 39.439
Þorlákshöfn 41.908 35.721 35.375 25.028
Njarðvík *) 58.666 41.309 38.813 32.210
Ísafjörður 38.458 43.780 31.762 —
Sandgerði 43.666 39.472 36.993 23.164
Reykjavík 44.637 37.920 35.185 31.424
*) Aðeins einn seðill.