Dagblaðið - 07.02.1980, Síða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980.
mínícare
RAFGEYMIR Sterkastur í sínum stærðarflokki f0 mm x 220 mm m/pólum. 15 amp. wið — 18°C ðrir betur iar um þennan frábœra raf- i hjá okkur. JLL H.F. kjavík — S. 84450.
Sonnenschein Utanmál 260 mm x 1i 70 ampt. og 3 Geriai Allar nánari upplýsinc geym SMYR Ármúla 7 — Rey
PIPER - CHEROKEE
TILSÖLU
Upplýsingar í síma 74406og25643.
Fólag farstöðvaeigenda á íslandi
1970 - lOára — 1980
Tíu ára afmælisárshátið félagsins verður haldin 23. feb. í Festi Grindavik og hefst kl. 19.00 mcð horðhaldi. Aðgöngumiðar cru seldir á skrifstofu félagsins Siðumúla 2, simi 34100. Verð kr. 11.000. Sætaferðir verða á árshátiöina og er það ekki innifalið í miðaverði..
Stjómin.
Snyrtinámskeið
Námskeiðin hefjast að nýju á snyrtistofu
okkar að Laugavegi 19, 3. hæð, mánu-
daginn 11. febrúar. Hvert námskeið
stendur 2 kvöld. Kennt verður:
Handsnyrting, hvernig gera má við neglur
og lengja þær. Umhirða húðarinnar og
dagleg snyrting.
Kvöldsnyrting þar sem hver og ein fær
make up ásamt persónulegum leiðbeining-
um.
Guðrún Ó. Sveinsdóttir Kristin A. Thoroddsen.
LAUGAVEGI19 — REYKJAVÍK — SÍMI17445
Tortryggni yfirskoðunaimanna ríkisreikninga gagnvart
Ferðamálaráði vakin:
Reikningar ráðsins
duttu út úr kerf inu
Eru nú í gaumgæfilegrí athugun ásamt
— um árabil —
reikningum Sölustofnunar lagmetis
Reikningar Ferðamálaráðs eru nú
mjög undir smásjá hjá yfirskoðunar-
mönnum rikisreikninga. Lita að
minnsta kosti einhverjir yfir-
skoðunarmanna það alvarlegum
augum að reikningar ráðsins „duttu”
á enn óútskýrðan hátt út úr heildar-
reikningum ríkisins um nokkurra ára
tímabil. Er það mál nú í nákvæmari
skoðun. Samræmt álit yfirskoðunar-
manna liggur enn ekki fyrir, enda hjá
þeim verkaskipting og síðan umræða
um atriði sem upp konia og einnig
þær athugasemdir sem Ríkisendur-
skoðunin hefur gert.
Eitt atriðið, sem sagt er í sérstakri
skoðun, er að Halldór E. Sigurðsson
hafi meðal sinna síðustu embættis-
verka sem samgönguráðherra
ákveðið að formaður Ferðamálaráðs
skyldi ekki njóta launa sem starfandi
formaður. Ferðamálaráð lét ekki
verða af því að framkvæma þessa
ákvörðun ráðherra og var af ein-
hverjum ástæðum talið hjá ráðinu að
þessi ákvörðun héldist ekki eftir
stjórnarskiptin 1978.
Hermt er að eitthvert uppgjör hafi
farið fram milli ráðuneytis og for-
manns Ferðamálaráðs vegna þessara
ofgreiddu launa. Það atriði, ásamt
athugasemdum Ríkisendurskoðunar
við reikninga Ferðamálaráðs, er núí
sérstakri skoðun hjá yfirskoðunar-
mönnum ríkisreikninga svo og það
af hverju og hvernig það gat skeð að
reikningar Ferðamálaráðs „duttu”
út úr kerfinu um heildarreikninga
rikisins.
Reikningar Sölustofnunar lag-
metisins eru einnig í meðferð yfir-
skoðunarmanna, en samræmt álit
þeirra um þá liggur ekki fyrir. Ríkis-
endurskoðunin endurskoðar ekki
sjálfa reikninga Sölustofnunarinnar,
heldur aðeins reikninga þróunarsjóðs
stofnunarinnar. Yfirskoðunarmenn
skoða þá hins vegar alla í samhengi.
Munu einstakir kostnaðarliðir vegna
risnu svo og ferðakostnaður stjórnar-
manna hafa verið litnir tortryggnis-
augum. Yfirskoðunarmenn vilja hins
vegar ekki ræða einátaka liði fyrr en
samræmt álit þeirra liggur fyrir.
-A.St./ÓG.
Stjóm dr. Gunnars aö fæðast
Dr. Gunnar Thoroddsen hélt 1 gær áfram stjórnarmyndunarviðræðum sinum. Bjarnleifur tók þessa mynd síðdegis af dr.
Gunnari og væntanlegum samstarfsmönnum hans. Við borðið má einnig sjá Pálma Jónsson (D), Eggert Haukdal (L), Jón
Helgason (B), Tómas Árnason (B), Steingrim Hermannsson (B), Hjörleif Guttormsson (G), Ólaf Ragnar Grímsson (G) og
Svavar Gestsson (G).
Kviðdómur vinsældavals DB og Vikunnar:
35 AF 44 SKILUÐU
ATKVÆÐASEDLUNUM
„SamvaUnn hópur einstaks heiðursfólks,” sagði Sverrir Garðarsson, formaður
Félags islenzkra hljómlistarmanna (t.h.), um þátttakendur i kviðdómi Stjörnu-
messunnar þegar atkvæði voru talin á skrifstofu FÍH f gærkvöld. Með á myndinni
eru Stjörnumessustjórarnir Helgi Pétursson og Ómar Valdimarsson.
DB-mynd: Ragnar Th.
Af 44 þátttakendum í „kviðdómi”
vinsældavals Stjörnumessu Dag-
blaðsins og Vikunnar skiluðu samtals
35 atkvæðum sinum. Að verulegu
leyti voru þau í samræmi við niður-
stöður Iesenda blaðsins, en nær sex
hundruð þeirra sendu inn atkvæða-
seðla.
Þeir 44, sem fengu atkvæðaseðla
til nafrilausrar útfyllingar, voru eftir-
taldir: Birgir Hrafnsson verzlunar-
maður, Ásta R. Jóhannesdóttir dag-
skrárgerðarmaður, Aðalsteinn
Ingólfsson, menningarritstjóri DB,
Jónas R. Jónsson, hljóðupptöku-
maður Hljóðrita, Helgi Pétursson,
ritstjóri Vikunnar, Finnur Torfi
Stefánsson lögfræðingur, Gunnar
Gunnarsson verzlunarmaður, Ómar
Valdimarsson, fréttastjóri DB, Egill
Eðvarðsson dagskrárgerðarmaður,
Ásgeir Tómasson blaðamaður,
Eyjólfur Melsteð, tónlistargagnrýn-
andi DB, Þorgeir Ástvaldsson plötu-
snúður, Gunnar Salvarsson, tón-
listargagnrýnandi Vísis, Eiríkur S.
Eiriksson, tónlistargagnrýnandi
Tímans, Halldór Andrésson, tón-
listargagnrýnandi Mbl., Vilhjálmur
Ástráðsson plötusnúður, Gísli Sveinn
Loftsson plötusnúður, Jón Þór
Hannesson kvikmyndagerðarmaður,
Þórarinn J. Magnússon, ritstjóri
Samúels, Ólafur Hauksson, ritstjóri
Samúels, Þorsteinn Eggertsson texta-
höfundur, Ágúst Atlason tónlistar-
maður, Ólafur Laufdal veitinga-
maður, Örn Petersen verzlunar-
maður, Árni Þórarinsson ritstjóri,
Sigurður Árnason, hljóðupptöku-
maður Tóntækni, Gunnar Þórðarson
tónlistarmaður, Gunnar Smári hljóð-
upptökumaður, Guðmundur Árni
Stefánsson, blaðamaður v/Helgar-
póstinn, Björgvin Halldórsson tón-
listarmaður, Magnús Eiriksson tón-
listarmaður, Egill Ólafsson tónlistar-
maður, Björgvin Gíslason tónlistar-
maður, Magnús Kjartansson tón-
listarmaður, Reynir Sigurðsson tón-
listarmaður, Magnús Ingimarsson
tónlistarmaður, Pétur Kristjánsson
tónlistarmaður, Björn Vignir Sigur-
pálsson, ritstjóri Helgarpóstsins,
Rúnar Vilbergsson tónlistarmaður,
Sigurjón Sighvatsson kvikmynda-
gerðarnemi, Þórður Árnason tón-
listarmaður, Ásgeir Óskarsson tón-
listarmaður, Karl Sighvatsson tón-
listarmaður, Tómas Tómasson tón-
listarmaður.