Dagblaðið - 07.02.1980, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. FEBRUAR 1980.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1980.
I
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Keegan lék á þá írsku
Kevin Keegan, knalCspyrnumaöur
ársins í Evrópu, var í miklum ham
þegar England og írland léku i 1. riöli
Evrópukeppninnar í knattspyrnu á
Wembley-leikvanginum í Lundúnum í
gærkvöld. England sigraöi 2—0 og
Keegan skoraði bæöi mörk enska liðs-
ins. England sigraði meö miklum yfir-
burðum í riölinum — tapaöi aðeins
einu stigi. Þaö var bezti árangur
einstaks liðs í riðli fyrir úrslitakeppnina
á Ítalíu í sumar.
Leikurinn í heild var heldur rólegur
— en klassaleikur á milli. Fyrrum
Liverpool-félagar Keégans, Mc-
Dermott og Johnson, unnu vel að
fyrsta markinu, sem skorað var á 34
mín. McDermott gaf á Johnson, sem
skallaði knöttinn fyrir fætur Keegans.
Síðara markið var skorað á 74. mín.
Það var einstaklingsframtak Keegans
— einlék mjög áður en hann lyfti knett-
inum yfir írska varamarkvörðinn Ron
Healey. Fleiri mörk voru ekki skoruð.
Healey kom í stað Gerry Peyton, sem
meiddist í samstuði við Johnson á 59.
mín. Báðir urðu að yfirgefa völlinn.
Steve Coppell, Man. Utd. kom í stað
Johnson. Að öðru leyti var ekki gerð
breyting á enska liðinu í leiknum. Þar
lék Brian Róbson, WBA, sinn fyrsta
landsleik. Hjá írum var sú breyting
gerð að David O’Leary, Arsenal, yfir-
gaf völlinn en í stað hans kom bróðir
hans Peter O’Leary.
Lokastaðan í riðlinum var þannig.
England 8 7 10 22—5 15
N-írland 8 4 13 8—14 9
írland 8 2 3 3 9—8 7
Búlgaría 8 2 1 5 6—14 5
Danmörk 8 12 5 13—17 4
Þrír leikir voru í ensku knattspym-
unni. Úrslit urðu þessi.
3. deild
Oxford — Swindon 2—2
4. deild
Lincoln — Hereford 2—0
Wigan — Bournemouth 2—I
Kevin Keegan á fslandi — hann skoraði
bæði mörk Englands.
6. tbl. 42. áru. 7. IVh. 19X0 Kr. 1200
I
Steingrímur
Hermannsson
í VIKU-viðtali:
Ég ætlaði
mér I
ekki að '
gerast
stjórnmála-
maður
Jónas Kristjansson
skrifar um Esjuberg
TAUGALYF
TIL GÓÐS
EÐA ILLS?
Verndarengill
vitskertra
Hvaða persónu
sögunnar vildir þú
helst bjóða út?
\
Ef andlitið
væri eins
báðum megin
Ekki tókst Haukum
að stöðva Víkinga
— Víkingur vann sinn níunda sigur í röð í 1. deildinni í
handknattleiknum, Haukar-Víkingur 20-24
Víkingar bættu tveimur stigum í
stigasafniö sitt dýrmæta í 1. deildinni i
‘handknattleiknum, þegar þeir unnu
öruggan sigur á Haukum í íþrótlahús-
inu í Hafnarfirði í gærkvöld. Loka-
tölur 24—20 fyrir Víking og sigur liðs-
ins var aldrei í hæltu. Þrátt fyrir það
var oft mikið fjör í leiknum — bráð-
skemmtilegur handknattleikur á köfl-
um en ýmislegt líka, sem miðúr fór.
Eftir þennan sigur hafa Víkingar 18 stig
— hafa sigrað í öllum leikjum sínum á
mótinu — og eru komnir sjö stigum á
undan FH, sem er í ööru sæti. FH
hefur leikiö tveimur leikjum færra.
Þrátt fyrir tapið eru mikil og greini-
leg batamerki á Hauka-liðinu. Hörður
Harðarson er aftur kominn á skrið eftir
daufa leiki lengstum á mótinu. Hann
skoraði mörg falleg mörk í leiknum og
Víkingum gekk illa að stöðva hann. Þá
átti Gunnar Einarsson stórsnjallan ieik
i marki Hauka — eins og hér á árum
áður, þegar hann var fastur maður í ísl.
landsliðinu. Gunnar varði 18 skot í
leiknum — þrjú víti. Margir aðrir í
Haukaliðinu sýndu góða takta og
bjartari framtið er greinilega fram-
undan hjá liðinu.
Hins vegar mættu Haukar ofjörlum
sinum þar sem Vik ingsliðið var.
Víkingar léku þennan leik skynsamlega
og yfirvegað — mjögsterkir ogsnöggir
i vörn fyrsta stundarfjórðunginn og
komust þá oft inn í sendingar Hauka.
Náðu þá góðu forskoti, sem þeir misstu
niður aftur. En Vikingar voru fljótir að
ná sér á strik á ný og þegar sigurinn
blasti við liðinu fóru leikmenn þess
rólega í sakirnar. Fyrir mestu að halda
fengnum hlut. Landsliðsmaðurinn Þor-
bergur Aðalsteinsson fór á kostum í
leiknum — átti stórleik, sem Haukar
réðu ekki við og það var sama þó þeir
reyndu að taka hann úr umferð. Einn
bezti leikur, sem isl. handknattleiks-
maður hefur sýnt i vetur. Margir aðrir
leikmenn Víkings léku vel — vörnin
lengstum sterk og markvarzla Jens
Einarssonar góð. Hann varði 17 skot í
leiknum.
Framan af benti flest til þess að Vík-
ingar myndu vinna stórsigur. Varnar-
leikur liðsins var mjög góður og fyrsta
stundarfjórðunginn varði Jens flest,
sem á markið kom. Eftir 17 mín. var
staðan orðinn 7—2 fyrir Víking. Flest
markanna skoruð úr hraðaupphlaup-
um. En þá hljóp snurða á þráðinn hjá
Haukar-Víkingur 20-24 (8-12)
Itlandsmótið I handknattlsik. 1. delld karla, Haukar - Vfkingur 20-24 (8-12) I iþrótta-
húsinu i Hafnarfiröi 6. fabrúar.
Baztu loikmenn: Þorbergur Aöalsteinsson, Vfkingi, 9, Gunnar Einarsson, Haukum, 8, Höröur
Harðarson, Haukum, 8, Jens Einarsson, Vikingi, 7, Páll Björgvinsson, Vikingi, 7.
Haukar Gunnar Einarsson, Gunnlaugur Gunnlaugsson, Andrós Kristjénsson, Höröur Sig-
marsson, Stefén Jónsson, Ámi Sverrisson, Höröur Haröarson, Þorgeir Haraldsson, Slgurgeir
Marteinsson, Ámi Hermannsson, JúKus Pólsson, Ingimar Haraidsson.
Vikingur Jens Einarsson, Kristjén Sigmundsson, Péll Björgvinsson, Ámi Indriöason, Ólafur
Jónsson, Eriendur Hermannsson, Steinar Birgisson, Þorbergur Aöalsteinsson, Siguröur
Gunnarsson, Magnús Guðmundsson, Guðmundur G uömundsson, Gunnar Gunnarsson.
Dómarar Gunnar Kjartansson og óli Olsen. Haukar fengu 6 vítakösL Nýttu fimm. Höröur H.
ótti eitt stangarskot Vfkingur fékk 9 vftaköst. Nýtti sex. Gunnar varöi fré Sigurði, Péli og Por-
bergi. Einum leikmanni Hauka var viklö af valli, Haröi H. - þremur Vtkingum, Steinari, Péli og
Eriendi.
Fara einnig tveir f rá
Vestmannaeyjum
í viðbót til Svía?
Ottó Laufdal kominn frá Gautaborg til
að semja við íslenzka knattspymumenn
Ottó Laufdal, Islendingurinn sem
býr í Gautaborg og hefur áður kotnirt
til íslands í sambandi við knattspyrnu-
menn, kom hingað til lands i gærkvöld.
Hann ræddi litillega við þá Einar
Ásbjörn Ólafsson og Rúnar Georgsson
en engar líkur eru á að þeir skrifi undir
samning nú við Örebro. Það verður
gert í Sviþjóð síðar en Örebro hefur
boðið þessum piltum samning.
Það kom mjög á óvart, að Ottó
Laufdal mun einnig hafa Ivo leikmenn
úr liði íslandsmeistara Vestmanna-
eyinga i sigtinu. Ekki tókst þó að fá
nöfn þeirra uppgefin í gærkvöld. Tveir
Eyjamenn hafa þegar gert samninga í
Svíþjóð, Ársæll Sveinsson og Örn
Óskarsson. Þá munu þeir Sigurbjörn
Gústafsson og Gísli Grétarsson, ÍBK,
halda tii Trollháttan síðustu vikuna i
febrúar. Þeir eru með samning frá
félaginu en það er ekki á vegum Ottós
Laufdal. Þá getur Hilmar Hjálmarsson
farið til Hjaras í Svíþjóð hvenær, sem
hann vill — en hann er enn að hugsa
rnálið. — emm
Víkingum. Gunnar gerði sér litið fyrir
og varði víti Sigurðar Gunnarssonar —
síðan var Steinari Birgissyni vikið af
velli. Haukar skoruðu á fimm mintuna
kafla fimm mörk án svars frá
Víkingum og staðan var alit i einu
orðin 7—7. En þær sjö mínútur sem
eftir voru af hálfleiknum léku Vikingar
vel. Þorbergur frábær og Víkingar
skoruðu fimm mörk í röð. Þó varði
Gunnar aftur víti — nú frá Páli. Á
síðustu sekúndu hálfleiksins skoraði
Stefán Jónsson fyrir Hauka og staðan í
hálfleik því 12—8 fyrir Víking.
í byrjun siðari hálfleiksins juku Vík-
ingar forskot sitt í fimm mörk — síðan
sex, 16—10. Úrslit virtust ráðin en
Haukar tóku góðan kipp og minnkuðu
muninn í þrjú mörk, 17—14. Það var
það næsta sem þeir komust Víkingum.
Víkingar settu aftur á fulla ferð og
innan skamms var iiðið komið með
vinningsstöðu. 21 —15 og'tólf mínútur
til leiksloka. Lokakafla leiksins reyndu
Haukar að taka allt að þrjá Víkinga úr
umferð — oftast tvo og komu mjög á
móti Vikingum í vörninni. Það breytti
engu — Víkings-sigurinn öruggur og
einhvern veginn fannst manni að Vík-
ingar gætu bætt við ef á hefði þurft að
halda. 24—20 urðu úrslit leiksins í
fjörugum leik og áhorfendur settu
mikinn svip á hann með fjörlegum
hvatningarhrópum sínum. Slikt er
reyndar ekkert nýtt í íþróttahúsinu í
Hafnarfirði.
Mörk Hauka skoruðu Hörður H.
9/4, Árni Hermannsson 4, Stefán 3,
Andrés 2, Árni Sverrisson 1 og Júlíus 1.
Mörk Víkings Þorbergur 9/2, Páli 5/2,
Sigurður 4/2, Árni 2, Ólafur 2,
Erlendur2.
-hsím.
Gunnar Einarsson Haukamarkvörður
varði 18 skot í leiknum í gærkvöld.
Þorbergur Áðalsteinsson, Víkingi — fór
á kostum gegn Haukum f gærkvöld.
Rono góður
Heimsmethafinn mikli, Henry Rono,
Kenýa, náði fimmta bezta tímanum,
sem náðst hefur i 10000 m hlaupi á
móti i Melbourne i Ástralíu í gær.
Hljóp á 27:31.68 mín. Heimsmel hans
er 27:22.5 mín. og eftir hlaupið sagði
Rono að hann mundi fljótt bæta það
heimsmet.
„Var bezti
drátturinn”
„Þetta var bezti drátturinn — gefur
okkur mesta möguleika til að komast
í úrslit Evrópukeppni meistaraliða i
handknattleiknum," sagði Jón H.
Karlsson, landsliðskappinn kunni i
Val, þegar hann frétti að Valur hefði
dregizt gegn Atletico Madrid í undan-
úrsiitum Evrópukeppninnar. Spánska
liðið sigraði Fredericia, Danmörku, í 8-
liða úrslitum. 17—17 í Danmörku —
19—17 á Spáni, þar sem Danir stóðu
lengi vel í Spánverjum.
Fyrri leikur Atletico og Vals verður í
Madrid á timabilinu 24. febrúar til 2.
marz — sennilega sunnudaginn 24.
febrúar.
HAUKA-STULKURNAR HEFNDU STRAKANNA
Stúlkurnar úr Haukum hefndu fyrir
tap strákanna gegn Vikingi, þegar þær
sigruðu Víkingsslúlkurnar í 1. deild i
síðari leiknum í Hafnarfirði í gær-
kvöld. Hauka-stúlkurnar byrjuðu mjög
vel. Skoruðu fimm fyrstu mörkin í
leiknum en sigruðu siðan með þriggja
marka mun, 19—16 — eftir 8—6 í hálf-
leik. Hauka-liðið var ívið betra með
Margréti Theódórsdóttur óstöðvandi
og verðskuldaði sigur. Vikingar voru
seinir i gang — skoraði sitl fyrsta mark
Haukar«¥ftyjggiir 19-16 (8-6)
islandsmótið I hsndknattlslk. 1. dalld kvanna. Haukar - Vikingur 19-1* (8-8) I iþrittahúa-
inu i Haf narfiröl 6. fabrúar.
Baztu laikmann: Margrðt Thaódóradóttir. Haukum, 9, iria Þrálnadótdr, Vikingi, 8, Halldóra
Mathiaaan, Haukum, 7, Jóhanna Guðjónadóttir, Vikingi, 7, Sólvaig Indriðadóttir, Haukum, 7.
Haukar Hulda Haukadóttk, Sólay Indriðadótdr, Sassalia Frióþjófadóttk, Margrét Thaó-
dóradóttk, Kolbrún Jónadóttk, BJötg JAnatanadöttk, Halkióra Mathieaan, Hin Hermanna-
dóttk, Svana Guðlaugadóttk, Halga Haukadóttk, Hsfdts Stafknsdóttk, SJöfn Haukadóttir.
Vlkingur Jóhanna Guöjónsdóttk, Ama Vignk.Eirika Aagrimsdóttk, Sigunóa BJömadóttk,
Sigrún Olgakadóttk, iris Þrkinadóttk, Svainfajörg Haldóradóttk, Sigriður HkðinadAttk, Ing-
unn Bamódusdóttk, Anna BJÖmsdóttk, Guðrún Stguröatdöttk, VHborg Balduradöttk.
Dómarar Guðmundur Magnúason og Ingvar Viktorsson. Haukar fangu aax vftí. Nýttu flmm,
Margrkt ktd atangarskot úr atnu. Vtkingur fkkk 3 vM - nýttí tvð. Eltt stangarakot. Elnnl Vik-
ingaatúHtu var vHdð af veRI, Ingunni.
eftir J1 mín. en þá komu fjögur í röð,
5—4. Eftir það höfðu Haukar oftast
eins til tveggja marka forustu — en
komust þó fimm mörkum yfir á ný
undir lokin.
Mörk Hauka skoruðu Margrét 12/5,
Sesselja 2, Halldóra 2, Björg, Svana og
Helga eitt hver. Mörk Víkings iris 7/2,
Ingunn 4, Eirika 3, Sigurrós og Sigrún.
-hsim.
VEiZLUMATUR!
Látið okkur sjá um
veizluna. Matur fyrir
öll samkvæmi eftiryðar
óskum.
VEIZLUELDHÚSIÐ
Pantið í tíma
Símar 53716 og 74164.
Dr. Ingjmar Jónsson 7. grein
Tæknileg fullkomnun
í Squaw Valley USA
— Besti árangur íslendings
— Saga vetraróiympíuleikanna
,! Vetraróly mpíuleikarnir
í Squaw Valley 1960
Vetrarólympíuleikarnir í Squaw Valley
Kaliforníu árið 1960 voru með einstökum
'glæsibrag. Skipulagning þeirra var meistaraleg
og tæknilega séð voru þeir fullkomnir. Glæsi-
' leikinn kom mjög á óvart þvi að fimm árum
áður, þegar Alþjóðaóiympíunefndin tók
1 Squaw Valley fram yfir Innsbruck, var þar
, aðeins eitt ferðamannahótel en ekkert íþrótta-
‘ mannvirki. Aldrei áður hafði verið valinn staður
,sem enginn þekkti til. Valið á Squaw Valley
sætti líka nokkurri gagnrýni vegna þess að
I staðurinn er i 2000 m hæð yfir sjó og loftið því
þunnt þar. Töldu margir að göngumennirnir
I myndu þola þunna loftið illa. Á þessum leikum
var í fyrsta sinn keppt i skautahlaupi kvenna
j og biathion, tvíkeppni í skíðagöngu og skot-
fimi.
' Tilkomumikil
I setningarathöfn
Leikarnir hófust 18. febrúar og stóðu til 28.
febr. Þeir voru settir með tilkomumikiili at-
höfn. Þar fluttu 1000 hljómlistarmenn og 2650
1 söngvarar ólympiuóðinn og leikarinn frægi,
I Charles Laughton, fór með ólympiska lof-
' gjörð. Síðan setti Nixon varaforseti Bandaríkj-
, anna leikana og skautadrottningin Carol Heiss í
' sór eiðinn fyrir hönd allra keppenda. Stuttu
, siðar var ólympiueldurinn tendraður. Hann
hafði verið sóttur til Noregs þar sem hann var
tendraður i Morgedal eins og 1952 og fluttur
flugieiðis til Los Angeles. Þaðan báru 600
háskólanemar eldinn til Squaw Valley en
síðasta spölinn var hann borinn af Andreu
Mead-Lawrence, sem fræg var fyrir frammi-
stöðu sínaá leikunum í Osló 1952.
Sovétríkin
i héldu forystunni
Sovétrikin höfðu sterkasta liðinu á að skipa
1 eins og i Cortina og hlutu flest stig öðru sinni.
Svíþjóð og Bandaríkin fengu jafnmörg stig í 2.
sæti. Norðurlandabúar voru ekki eins sigur-
sælir nú eins og oft áður og máttu þola ósigur i
greinum sem þeir höfðu unnið frá upphafi leik-
anna.
I fótspor
bróður síns
Fjórir íslendingar voru sendir til Squaw
Valley. Þeir voru Eysteinn Þórðarson sem
keppti nú öðru sinni á ólympíuleikum, Jóhann
Vilbergsson, Kristinn Benediktsson og Skarp-
héðinn Guðmundsson. Eysteinn, Jóhann og
Kristinn kepptu i alpagreinum en Skarphéðinn
i skíðastökki. Hann fór þar í fótspor bróður
sins, Ara Guðmundssonar, sem keppti í skíða-
stökki í Osló átta árum áður.
Undirbúningur íslensku keppendanna fyrir
leikana var með betra móti. Skíðasambandið
fékk m.a. austurríska garpinn Egon Zimmcr-
mann til að liðsinna svigmönnunum og
Eysteinn og Kristinn áttu kost á því að dvelja
erlendis við æfingar. Nokkru áður en leikarnir
hófust æfðu þeir um tíma í Aspen í Colorado
og Skarphéðinn í Steamboat Springs.
Enginn bilbugur
á Hakulinen
Eins og i Cortina létu Sixten Jernberg og
Veikko Hakulinen mjög að sér kveða í skíða-
göngunni. Jernberg vann 30 km og varð annar
i i 15 km á eftir Norðmanninum Hakon Brus-
veen. Hakulinen, sem orðinn var 35 ára, varð
hins vegar 3. í 15 km og annar i 50 km, sem
landi hans Kalevi Hamálainen vann. í boð-
| göngunni átti hann svo stóran þátt i sigri
finnsku sveitarinnar, því hann vann heilar 20
| sek. af Brusveen i lokasprettinum. Þar með
[ vann hann sin sjöundu verðlaun á ólympíu-
| leikum. Sovésku stúlkurnar unnu 10 km fjór-
falt en urðu aftur af sigri í boðgöngunni. Nú
I voru það sænsku stúikurnar sem hrepptu
gullið.
Óslitin sigurganga
' rofin
Óvæntasta sigurinn á leikunum vann Þjóð-
verjinn GeorgThoma, „bréfberinn frá Svarta-
skógi” með því að vinna norrænu tvíkeppnina,
þá grein sem eingöngu Norðurlandabúar
I höfðu unnið fram að því. Thoma vann skíða-
stökkið enda góður stökkvari og í göngunni ,
) neytti hann ítrustu krafta til þess að halda for-
skotinu. Það tókst honum. Hann varð fjórði
|og það nægði honum til sigurs. Aftur á móti
Kom sigur Helmut Recknagel í skíðastökkinu
Norrtmarturinn Birger Ruud, hinn mikli
ólympíumeistari, í skíðastökki á leikunum
1932.
ekki á óvart því hann var einn af beslu
stökkvurum heims og hafði unnið hvert mótið
á fætur öðru fyrir leikana. Skarphéðinn átti
þarna litla möguieika enda lítt vanur stórum
stökkbrautum. Hann slökk 64 m í báðuni
stökkunum og varð 43. af 45 keppendum.
Enginn íslendingur hefur síðan keppt i skíða-
stökki á veitrarólympíuleikunum.
Besti árangur
íslendings
í alpagreinunum voru Austurríkismenn,
Þjóðverjar, Frakkar og Svisslendingar fremst-
ir. Jean Vuarnet frá Frakklandi vann brunið,
Ernt Hinterseer frá Austurríki svigið og Sviss-
leudingurinn Roger Staub stórsvigið.
Bestur islendinganna var Eysleinn. Hann
varð 17. í sviginu, 27. i stórsviginu og 37. i
bruni. Kristinn stóð sig einnig vel. Hann varð
23. í sviginu, 34. í stórsviginu og 36. i bruni.
Jóhann náði bestum tíma þeirra félaga í
bruninu (varð 33.) en var dæmdtir úr leik i
svigi og stórsvigi.
Árangur Eysteins er ef til vill sá besti, sem
íslendingur hefur náð á vetrarólympiuleikun-
um.
Ótrúlegt
heimsmet
Sovétmenn voru sem fyrr sigursælir i skauta-
hlaupinu. í annað sinn vann Jewgeni Grishín
tvenn gullverðlaun, í 500 m og 1500 m (í 1500
m ásamt Norðmanninum Roald Aas) eins og i
Cortina. Norski skautakappinn Knut
Johannesen mátti bíta i það súra epli að tajia
fyrir Sovétmanninum Viktor Kossitskín i 5000
m en í 10000 ni hlaupinu var hann svo sannar-
lega í essinu sínu. Þar bætti hann heinismetið
um 46 sek. og þótti það met með ólikindum.
Margir töldu að það metið yrði aldrei bætl.
í skautahlaupi kvenna sigraði Lydia
Skoblikova frá Sovétríkjunum í 1500 m og
;3000 m en landi hennar, Klara Gusséva, i 500
m. Helga Hasse sigraði hins vegar í 1000 m og
vann þar með fyrstu gullverðlaunin fyrir þýska
Alþýðulýðveldið (þýsku ríkin sendu santeigin-
legt lið til leikanna).
Yfirlið í
þunnu lofti
í listskautahlaupinu var keppnin afar tvisýn
en um síðir bar Bandaríkjamaðurinn David
Jenkins sigur úr býtum í karlaflokki eftir harða
'keppni við Tékkann Karol Divin og Carol
iHeiss í kvennaflokki. Mörgum stúlkum gekk
jilla i keppninni, margar duttu og tvær féllu i
jyfirlið meðan á keppninni stóð. Kenndu menn
; þunna loftinu um.
Bandaríkjamönnum hafði aldrei tekisl að
vinna gullið í íshokkí á vetrarleikunum en oft
verið nærri því. Nú voru þeir á heimavelli og
það tækifæri létu þeir sér ekki úr greipum
ganga. Þeir sigruðu Sovétmenn í úrslitaleikn-
;um og voru vel að sigrinum komnir. Baráttu-
aiidi þeirra var meiri og svo höfðu þeir frábær-
um markverði á að skipa.