Alþýðublaðið - 13.12.1921, Page 1

Alþýðublaðið - 13.12.1921, Page 1
1921 Þ/iðjudaginn 13. desember. 287 tölubí. Ijvai kemœr aaest? Alþýðuféiagsskapurinn hér í bæðum er orðinn tnjög sterkur. Þetta veit auðvaldið. Það veit að það er ómögulegt að þröngva mjög ósanngjörnum launakjörum upp á verkalýðinn. Hér þarf ný ráð. Og hvað gerir auðvaldið? Það stofnar hér heriið af trúum fylgifiskum sfnum og heimtar handa því landssjóðslaun. Og allir sjá hvernig á að nota þetta herlið. Næst þegar kaupdeila verður, á að safna mönnum upp um sveitir — mönnum sem eng- ann skilning hafa á málefnum al þýðunnar — og fá þá til þess að vinna undir kauptaxta verklýðs- félaganna. Og svo á að kalia á herliðið, gefa því skipunarbréf sem lögreglu, útnefna einhvern skipstjóra „lög- rvglustjórá f Reykjavík', úthluta berliðinu skotfærum og brennivíni, svo því gangi betur að „haida uppi lögum og reglu* svo það skirrist ekki við ad skjóta niður verkamenn, ef þeir reyna að hindra það, að menn vinni undir kaup- laxta, En kannske þarf ekki að bfða eftir kaupdeiiú; kannske hvfta her> liðið með tilheyrandi skotfærum, skipstjórum, veiðarfærakaupmönn am og brennivíni, verði notað nú þegar við næstu bæjarstjórnar- kosningar? Það er fullyrt, að hvíta her- iiðið, sem hrifsaði til sfn völdin þacn 23. nóv. sfðastl, hafi ætlað sér að handtaka 300 manns. Eins og kunnugt er gafst það upp áð- ur en komnir voru 30, en hver veit hvað það finnur upp á að handtaka marga við næstu kosn- ingar? Ólátadaginn voru ýmsir menn sóttir beint til vinnu sinnar og farið með þá beina leið upp í tugthús; menn sem ekkert höfðu til saka unnið. Vttanlcga var það hin mesta lögleysa, eins og fjöldi anna verka, sem hvftliðar frömdu þennann dag. Við hverju má þa ekki búast við naestu kaupdeilu, eða við næstu kosningar? Alþýðan vill engan vopnaðann fiokk eiga yfir höfði sér, hún er búin að iýsa því yfir, og hún mun halda þeirri kröfu fast fram. Þess vegna: Niður með herkóngana! Niður með hvftu hersveitina, sem úthiutað er til skotvopnum og brennivíni! Niður með óvitaskap auðvalds ins, að halda að það brjóti rétt- mætar kröfur alþýðunnar á bak aftur með því að stofna til manndrápa I Niður með morðtólasveitinal €rtenð sinskeyti, Khöfn, 12. des. Sinn-Fein stjórnin klofln. Frá London er símað, að Sinn- Fein stjórnin sé klofin. Fylgir meiri hlutinn Griftith. Minni hlut inn, sem fylgir de Valera, eru eins ákveðnir skiinaðarmenn og áður. Lloyd George aftnr á stúiana. Hoyd George hefir farið fram á það við Briand forsætisráðherra Frakka, að hann ræði við sig til- Iögur er Englendingar ætla að gera til fjárhagslegrar viðreisnar Evrópu. Friðarverðlaun Nóbels. Frá Kristjaníu er símað, að norska Stórþingið hafi veitt sænska forsætisráðherranum, jafnaðar- manninum Branting og aðalritara Aiþjóða þingmannafélagsins Chr. Lange friðarverðlaun Nóbels fyrir árið 1921, sinn helminginn hvorum. Eyrrahafsmálin. Frá Washington (höfuðborg Bandarikjanna) er'símað, að full- trúa Englendinga, Bandaríkjam. og Japana bafi Iokið^við^uppkast að samningi um Kyrrahafsmálin. Útienðar jréttr. Loftsiglingariti. Franska stjórnin hefir nýlega látið reisa geysimikinn loftsiglinga- vita á Africafjalli rétt hjá Dizon. í vitanum er ljóskastari með I milj. kerta Ijósi, sem kastar ljós- inu 50 mflur á alla vegu. Nýr forsætisráðherra í Japan. í stað Hara íorsæt sráðherra Japana, er myrtur var um daginn, hefir Takahashi greiá tekið við völdum. Hann er 54 ára gamaii og var aðlaður sfðasta ár. Japan- ar eru sem kunnugt er einhver hin mesta hervaldsþjóð í heimi. Hara var afturhaldsmaður, en þó ekki af allra verstu tegund; út- lend blöð telja, að hinn nýi for- sætisráðherra muni sfzt verða frjáls- lyndari en fyrirrennari hans. Friðnr saminn milli I'jóðverja og Bandaríkjamanna. Um cniðjan sfðasta mánuð var að lokum saminn fullnaðarfriður milli Þjóðverja og Bandarikja- manna. — Bandarfkjamenn komu rúmum 2 árum sfðar í stríðið en flestir hinir, og nú semja þeir frið rúmum 2 árum eftir að flestir hinir höfðu samið frið. Lítur helzt út fyrir, að þeir hafi ekki viljað vera minni menn en hinir í þessu. Uppreisnin í Indlandi. Hion heimsfrægi foringi ind-

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.