Dagblaðið - 06.03.1980, Side 2

Dagblaðið - 06.03.1980, Side 2
2 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980. Hvar er nú stórlæti og sómatilf inning bænda? Sultarjamiurínn berst nú yfír a//a landsbyggðina Herdís Hermódsdóltirskrifar: Það verður ekki annað sagt en hann ætli að verða nokkuð langur ómagahálsinn á þyngsta ómaga þjóðarinnar, bændastéttinni. Forkólfar bænda ganga nú um á Alþingi eins og fjárhópur sem ryðst að garðanum og biður eftir að gefið sé og sultarjarmurinn berst yfir alla landsbyggðina. Það hefur dugað þeim vel til þessa enda hefur Alþingi verið rekið í áraraðir eins og eitt alls- herjar útibú frá SÍS og bændum með góðum árangri. Raddir lesenda Þar hafa þeir haft í seli og mjólkað skattgreiðendur sem hafa látið srnala sér til mjaltanna þegjandi (að sauða hætti) þó einn og einn hafi verið bágrækur. Og nú heimta þeir þrjá milljarða til viðbótar við 28 milljarðana sem þeim voru veittir á síðustu fjárlögum (búnaðarmál 10 milljarðar, niður- greiðslur 18 milljarðar), sem þeir ætla að greiða framleiðslu sína ofan í erlenda neytendur með, því vitanlega dettur erlendum neytendum ekki i hug að sæta þeim kjörum sem hér- lendir láta bjóða sér. Á sama tima eru enn boðaðar stór- felldar verðhækkanir á framleiðslu- vörum bænda eftir stanzlausar hækkanir með nokkurra vikna milli- bili sl. ár. Kannski er ekki að undra að bændur, sem nú sitja á þingi sinu, hafi kotnið því svo fyrir, með aðstoð ríkisvaldsins, að al- menningur fæði þá á nieðan á þing- haldi stendur. Hvar er svo stórlæti og sómatilfinning bænda, sem lúta svo lágt? Ég bara spyr. En þó tekur nú fyrst steininn úr er þeir heimta að við, sem neydd erum til að hlíta ríkisvernduðu einokunar- okri þessara framleiðenda, séum látin Selfossekkimeðliðí2.deild: 1 FURDULEG ÁKVÖRÐUN —og Selfyssingum til mikillar minnkunar Gamall Selfyssingurskrifar: Alveg var ég gáttaður þegar ég las um þá ákvörðun Selfyssinga að senda ekki lið i 2. deildarkeppnina í knatt- spyrnu i sumar. Ákvörðun sem þessi er Selfyssing- um til mikillar minnkunar og verður að teljast furðuleg. Að kaupstaður sem telur á fjórða þúsund íbúa skuli ekki treysta sér tiK að senda lið í íslandsmótið i knattpyrnu sökum manneklu fær hreinlega ekki staðizt. Árangur Selfyssinga i 2. deildinni í fyrra var vel við unandi og á tímabiii voru þeir með í baráttunni um sæti í I. deild. Auðvitað ætti kaupstaður á stærð við Selfoss að keppa að sæti í l.deild ef einhver metnaður væri þar fyrir hendi í stað þess að leggja upp laupana. Bæjaryfirvöld ættu að gera sér grein fyrir því að íþróttaliðin eru oft andlit bæjanna út á við. Þau ættu þvi að reyna að styðja við bakið á íþróttamönnum sínum og veita þeim hvatningu í formi fjárhagsstuðnings. Knattspyrnulið Selfoss hefur lengi hjakkað í sama farinu og kann að vera að leikmönnum sé farið að leiðast þófið, þar sem góður árangur lætur á sér standa. Réttu viðbrögðin við því eru að sjálfsögðu ekki þau að fa'ra i fýlu og draga sig út úr keppni. Knattspyrnudeild Selfoss hefði að sjálfsögðu átt að vinna að því að fá 2—3 leikmenn úr Reykjavík til styrktar liði sínu og til að veita liðinu nýtt blóð. Þetta gera flest lið úti á landsbyggðinni, t.d. á Austfjörðum, og þykir ekki tiltökumál. Slíkt geta menn kallað hálfatvinnumennsku ef þeir vilja. Ef það heitir hálfatvinnu- mennska þá er hún hreinlega orðin staðreynd á íslandi og Selfyssingar verða þá eins og aðrir að fylgjast með tímanum ef þeir ætla að vera samkeppnisfærir. A.m.k. geta Selfyssingar ekki verið þekktir fyrir að draga sig út úr keppninni meðan mun smærri bæjar- félög eins og t.d. Eskifjörður tefla fram sterku liði. greiða vinnumönnum þeirra kaup ef þeir verða lasnir eða þykjast þurfa að taka sér frí til skemmtunar. Nú er sannarlega mál að linni. Nú hlýtur að vera komið að Neytenda- sámtökunum að láta málið til sín taka og vernda sina félaga. Til þess eru neytendafélög stofnuð og til þess er ætlazt af þeim. Geri þau það ekki kafna þau undir nafni enda ekki lengur til þeirra traust að leita frekar en til þingmannanna sem jafnfrek- lega misbjóða trausti kjósenda sinna og raun ber vitni. Neytendur. Rekum af okkur slyðruorðið og hættum að Iáta reyta okkur eins og dautt fiðurfé. K ,,Enda hefur Alþingi verið rekið i áraraðir eins og eitt allsherjar útibú frá SÍS,” skrifar Herdís Hermóðs- dóttir. DB-mynd: RagnarTh. Hringekja úr ferðativoliinu sem Kaupstefnan hf. mun fá til landsins i haust i sambandi við heimilissýninguna. Tívolíá Islandi íhaust: Gott framtak hjá Kaupstefnunni hf. K. J. hringdi: ,,Ég vil lýsa yfir ánægju minni með það framtak Kaupstefnunnar hf. að ætla að fá ferðatívoli til landsins næstkomandi haust í sambandi við heimilissýninguna. Það var sannarlega kominn tími til að einhverjir aðilar gerðu eitthvað til að lifga upp á bæjarlífið. Ég vona bara að þetta framtak Kaupstefn- unnar verði til þess að Reykvíkingar og aðrir Íslendingar geti i framtið- inni átt aðgang að tivolí hér heima yfir sumartímann. Slæmt form á uppboðum Hringið ísíma 27022 miilikl. 13 og 15, eða skrifið I.esandi hringdi: Siðastliðinn laugardag var haldið uppboð hjá tollstjóra og voru þar margs konar vörur boðnar upp. Margir eru mjög óánægðir með hvernig að þessum uppboðum er staðið. Menn sem koma þarna og hafa áhuga á vissum vörum þurfa að bíða timunum saman eftir þvi að þær séu boðnar upp. Mikið er talað um hve þetta fyrirkomulag er leiðinlegt. Ekki er vafi á þvi að þessu ætti að vera hægt að breyta í viðunandi form. Viða erlendis er þessu þannig fyrir komið að menn geta mætt á auglýstum tima og bent á þá hluti sem þeir hafa áhuga á. Þeir eru þá boðnir upp strax. Þannig má koma í veg fyrir að fólk sem aðeins hefur áhuga á einhverjum einum hlut þurfi að hanga klukkustundum saman yftr uppboðinu i óvissu um hvenær við- komandi hlutur verður boðinn upp.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.