Dagblaðið - 06.03.1980, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 06.03.1980, Blaðsíða 2
16 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980. 10% af nafnverði hvers einstaks hluta- bréfs eða hlutar sent arður er greiddur af. Frádráttur þessi má þó aldrei vera hærri en 250.000 kr. hjá einhleypingi en 500.000 kr. hjá hjónunt. Hántarks- ákvæðin unt arðsfrádrátt breytast ekki vegna barna. Athygli er einnig vakin á því að hlutabréf í Flugleiðum hf. eru skv. sérlögum ekki eignarskattsskyld og. ber því að tilgreina fjárhæð hlutafjár innan sviga án þess að hún teljist með í samtöludálki. Arðurinn er hins vegar skattskyldur á sama hátt og arður frá öðrum hlutafélögum. E 5. Innlendar innstæður o. fl. Eignfærsla Hér skal telja fram allar innstæður i innlendum bönkum, sparisjóðunt og innlánsdeildum samvinnufélaga, eins og þær standa í árslok. Sömuleiðis færast hér verðbréf scm hliðstæðar reglur gilda unt skv. sérlögunt. Vgrðbréf þessi skal telja til eignar á nafnverði að viðbættum áföllnum vöxtunt og verðbótum á höfuðstól. Hér nteð teljast verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs en upplýsingar um verðgildi þeirra eru birtar i töflu um verðgildi spariskirteina ríkissjóðs. Innstæður í erlendum gjaldmiðli í innlendum bönkunt teljasl hér með og færast í islenskum krónum miðað við kaup- gengi í árslok. (Innstæðut í erlendunt bönkum færast I lið E 6). Einnig fær- ist hér nafnverð innstæðna á sérstökum reikningi hjá ríkissjóði (skyldu- sparnaður 1978), sbr. lög nr. 77/1977, um skyldusparnað og ráðstafanir i ríkisfjármálum. Samtala þessara eigna færist í reit (II). Skyldusparnaðarskirteini 1975 og 1976 eru franttalsskyld og skal færa á nafnverði i þar til gerðan reit en ekki teljast með í samtöludálki þar sent þcssi skírleini eru alltaf skattfrjáls. Hringvegshappdrætti ríkissjóðs eru Itvorki franttalsskyld né skattskyld. (Santa gildir um skyldusparnaðarinni- stæðttr sent ungmennum á aldrinttm 16—25 ára er skylt aðspara.) Sérstök athygli er vakin á þvi að ef börn á framfæri framteljenda eiga eignir skv. þessum lið(E 5) skulu þær færðar, ásamt vöxturn, í lið E 8 i fram- tali eða á sérframtal barns. Athygli er einnig vakin á þvi að eignir sk\. þessum lið (E 5) geta verið eignarskattsfrjálsar. Skattfrelsið ræðsl af skuldastöðu framteljanda um ára- ntót, sbr. leiðbeiningar við „Ákvörðun eignarskaltsstofns” bls. 20. Vaxtafærsla Vaxtatekjur þ.m.t. verðbótaþáttur og gengishagnaður af innstæðunt skal færa í vaxtadálk. Sama gildir um vaxtatekjur, gjaldfallnar verðbætur og gengishagnað á afborganir og vexti af verðbréfum, öðrunt en verðtryggðum spariskirteinunt ríkissjóðs, sem telja ber til eignar i þessum lið (E 5) enda sé verðbréfaeign þessi ekki tengd alvinnu- rekstri eða sjálfstæðri starfsemi fram- tcljanda. Samtala þessara vaxtatekna, sbr. reit [12] færist einnig sent tekjur í reit [73[ á 4. síðu framtals (C-tekjur). Vaxtatekjur, þ.m.t. verðbætur á höfuðstól og vexti, spariskírteina rikis- sjóðs ber ekki að telja fram semvaxta- tekjur fyrr en þær fást greiddar. annað hvort við innlausn eða sölu spariskirteinanna. Vaxtatekjur, þ.m.t. verðbætur á höfuðstól og vexti, af innleystum eða seldum spariskírteinum rikissjóðs á árinu 1979 ber að tilgreina að fullu í vaxtadálk þessa liðar (E 5) innan sviga en skal ekki teljast með í samtölu vaxtatekna i reit [12] Vaxtatekjur skv. þessunt lið geta verið tekjuskattsfrjálsar. Skattfrelsið ræðsl af vaxlagjöldum á árinu, sbr. leiðbeiningar við „Útreikningur vaxtatekna til frádráttar” bls. 17. Vaxtatekjur, þ.m.l. verðbætur, af innleystum skyldusparnaðarskírteinum áranna 1975 og 1976 eru Undanþegnar skattskyldu, en þeirra ber að gela i liðnum „Greinargerð um eigna- breytingar” á 4. siðu framtals. Enn fremur ber þar að gera grein fyrir innlausn skyldusparnaðarinnstæðu ungmenna, bæði höfuðstól, vaxta- tekjum og verðbótum af henni. Sama gildir um vinninga í Hringvegs- happdrætti ríkissjóðs (Happdrættis- skuldabréf ríkissjóðs). E 6. Verðbréf o. fl. Eignfærsla Hér skal sundurliða allar verðbréfa- eignir, sem ekki ber að telja fram undir lið E 5, t.d. veðskuldabréf, víxla o. fl., einnig þótt þessar eignir séu geymdar í bönkurn eða séu þar til innheimtu. Einnig skal færa hér allar útistandandi skuldir, stofnsjóðsinneignir, stofnfjár- eignir, inneignir orlofsfjár o. fl. Eignir þessar skal telja til eignar á nafnverði, að viðbættum áföllnum vöxtum og verðbótum á höfuðstól i árslok. lnnstæður i erlendum bönkurn, að viðbættum vöxtum, teljast til eignar í íslenskum krónum, miðað við kaupgengi hlutaðeigandi gjaldmiðils í árslok. Eignir barna teljast hér með. Samtala þessaraeigna færist i reit [13] Vaxtafærsla Vaxtatekjur, þ.nt.t. gengishagnaður og gjaldfallnar verðbætur og gengis- hagnaður á afborganir og vexti, af eignum þeim sem hér um ræðir, sent ekki eru tengdar atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi, svo og gengis- hagnað af peningaeign í erlendum gjaldntiðli, skal færa i vaxtadálk. Velja má milli tveggja aðferða við uppgjör vaxta (ekki veröbóta). Annars vegar að færa gjaldfallna vexti, hins vegar að færa reiknaða áfallna vexti ársins. Hvort sent notuð er fyrri eða síðari aðferðin verður að gætaþess að sömu aðferð sébeitt við allar eignir sem telja skal í lið E 6 og sömuleiðis allar skuldir. Ef notuð er aðferðin að reikna áfallna vexti, skal þess einnig gætt að ógreiddir, reiknaðir áfallnir vextir bætast við eign eða skuld, eftir því sem við á. Framteljendur sem skipta um uppgjörsaðferð vaxta frá fyrra ári skulu gæta þess að tekjufæra (eða gjaldfæra) ekki áfallna vexti frá fyrra ári, aftur í ár. Sérstök athygli er vakin á því að með vöxtum teljast gjaldfallnar verðbætur á afborganir og vexti (ekki á höfuðstó!) hvor aðferðin sem notuð er. Hafi maöur keypt verðbréf, vixla eða aðrar kröfur, með afföllum (undir nafnverði), skulu afföllin (mismunur nafnverðs og kaupverðs) færast til tekna í vaxtadálk með hlutfallslegri fjárhæð ár hvert eftir afborgunartíma. Sé krafan látin af hendi áður en af- borgunartíma er lokið telst sá hluti af eftirstöðvum affallanna, sem fæst greiddur, til tekna á afhendingar- eða söluári. Vaxtatekjur, þ.m.t. verðbætur, gengishagnaður og afföll samtals skt reit [14] færast sem tekjur 1 reú VM (C-tekjur). E 7. Aðrar eignir Hér skal færa skattskyldar eignir sem ekki hefur þegar verið getið unt hér að framan. T.d. hjólhýsi, tjaldvagn, bát, hesta sem ekki eru notaðir í búrekstri, o. fl. (fatnaður, bækur, húsgögn og aðrir persónulegir munir eru ekki framtalsskyldir). Eignir þessar skal færa á kaup-eða kostnaðarverði nema hesta og önnur húsdýr sem færast til eignar skv. ntats- verði rík isskattstjóra. E 8. Innstæður og verðbréf barna Hér skal færa innlendar innstæður barna, fædd l%4 eða síðar, sem eru á framfæri framteljenda, svo og spariskírleini ríkissjóðs, sbr. skýringu við lið E 5, ef ekki er þörf á að gera sérframtal fyrir barnið (sjá leiðbeining- ar um útfyllingu barnaframtals). Frant komi nafn barns og heildarfjárhæð þessara eigna, með vöxtum, i árslok. Innstæður skv. þessum lið skal ekki færa i samtöludálk og reiknast ekki með í eignarskattsstofni. T14. C-tekjur Reitur [71] Hafi framteljandi leigutekjur eða arð af skipum, loftförum og hvers- konar öðru lausafé, t.d. vélum og áhöldum, en tekjur þessar teljast þó ekki falla undir atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsenti hans skal hann skila rekstraryfirliti. Á þessu rekstrar- yfirliti er hvorki heimilt að telja til gjalda vaxtagjöld né fyrningar. I þennan reit skal framteljandi færa hreinar tekjur eða arð af eignum þessum skv. rekstraryfirliti. Reitur [72] Hafi framteljandi leigutekjur, arð eða landskuld eftir hvers konar fast- eignir eða fasteignaréttindi en tekjur þessar teljast þó ekki falla undir at- vinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi hans skal hann skila rekstraryfirliti. Á þessu rekstraryfirliti er hvorki heimilt að telja til gjalda vaxtagjöld né fyrning- ar. í þennan reit skal framteljandi færa hreinar tekjur, arð eða landskuld af eignum þessum. Heildarleigutekjur af einstökum íbúðum, sem telja ber hér til tekna mega þó aldrei lægri vera en sem nemur 2,7% af gildandi fasteignamati (í árslok 1979) hlutaðeigandi íbúðar- húsnæðis (þ.m.t. bílskúrs) og lóðar. Hundraðshluti þessi miðast við árs- leigu. Sé umrætt íbúðarhúsnæði látið i té án endurgjalds ber að telja leigutekj- ur af þvi til tekna á hátt. Heildarleigutekjur af ibúð- arhúsnæði ber, að telja til tékna á þennan hátt af öllu íbúðarhúsnæði í eigu framteljanda, að undanteknu því ibúðarhúsnæði sem hann hefur til eigin þarfa. Reitur [73] Hér skal færa vaxtatekjur skv. reit [12] á 1 síðu, eins og gerð hefur verið grein fyrir i lið E 5. Athygli skal vakin á því að vaxta- tekjur, þ.m.t. verðbætur á höfuðstól og vexti, spariskírteina ríkissjóðs sem innleyst voru eða seld á árinu 1979 skulu ekki teljast með í þessum reit. Um skattfrelsi vaxtatekna skv. þessum reit visast i leiðbeiningar við liðinn „Útreikningur vaxtatekna til frá- dráttar”. Reitur [74] Hér skal færa vaxtatekjur skv. reil [14] á I. siðu eins og gerð hefur verið grein fyrir i lið E 6. Reitur [75] Hér skal færa arð af hlutabréfum skv. reit [09] á I. siðu eins og gerð hefur verið grein fyrir í lið E 4. Reitur [76] Hér skal færa skattskyldan söluhagnað af fasteignum og eignar- hlutum i félögunt enda hafi eignir þess- ar ekki verið notaðar í tengsluntvið al- vinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi framteljanda. Hagnaður af sölu lausa- fjár, annars en eignarhluta i félögunt, telst ekki til skattskyldra tekna manns, enda geri hann liklegt að sala þess falli ekki undir atvinnurekstur eða sjálfslæða starfsemi hans eða að eignarinnar hafi ekki verið aflað í þeint lilgangi að selja hana aftur nteð hagnaði. Greinargerð um sölu og út- reikning skattskylds söluhagnaðar skal gera i liðnum „Greinargerð unt eignabreytingar” eða á sérstöku fylgiskjali með framtali. Varðandi reglttr um þennan söluhagnað sjá bls. 21. Reitur [77] Hér færast sérhverjar aðrar skalt- skyldar tekjur, sem ekki skal tilgreina annars staðar á skattframtals- eyðublaðinu, svo sent fé er sam- vinnufélög færa félagsaðilum sínunt til séreignar í stofnsjóði vegna viðskipta þeirra, eigin vinna viö'ibúðarhúsnæði til eigin afnota sem fæst endurgreidd við sölu og lögð var frani á siðustu fintm árunt fyrir söludag, eigin vinna við íbúðarhúsnæði til eigin afnota unnin í venjulegum vinnutima, svo og öll önnur skattskyld vinna eigenda við húsbyggingu. Ennfremur verðntæti skiptivinnu i santbandi við eigin hús- byggingu. Athygli skal vakin á því að eigna- auki sem stafar af aukavinnu sent lögð er fram utan venjulegs vinnutinta við byggingu ibúðarhúsnæðis til eigin afnota telst ekki til skattskyldra tekna, en ber þó að tilgreina á húsbyggingar- skýrslu. T 15. Frádráttur B. Reitur 181] Í þennan reit færist sá hluti vaxta- tekna skv. reit [73] sem er umfram vaxtagjöld eins og útskýrt er i kaflan- um um „Útreikning vaxtatekna til frá- dráttar”. Reitur [821 Hér er heimilt að fa-ra til frádráttar arð sem framteljandi og börn hans hafa fengið, sbr. reit [75] að hámarki 10% af nafnverði hvers einstaks hlulabréfs eða hlutar. Aldrei má frádráttur þessi þó vera hærri en 250.000 kr. hjá einhleypingi og 500.000 kr. hjá hjónunt. Reitur [83] Hér ntá færa til frádráttar sömu fjárhæð vaxta af stofnsjóðsinneign i samvinnufélögum og talin var með vaxtalekjum í lið E6. Enn fremur má færa hér til frá- dráltar fé sem samvinnufélög færðu félagsaðilum sínum lil séreignar i stofn- sjóði, sbr. reit [77] vegna viðskipta hans utan atvinnurekstrar eða sjálf- stæðrar starfsemi, þó að hámarki 5% af þeint viðskiptum. Fjárhæðir i reitunt [81] [82] og [83] skal leggja saman og færa i samtöludálk. T 16 Hreinar tekjur skv. framtali barns. í þennan lið skal færa nöfn barna (fædd I964 og siðar) sem eru á framfæri framteljanda og hafa tekjur sent skattleggja ber hjá framteljanda, sbr. leiðbeiningar um útfyllingu skatt- framtals barns I980. Hreinar tekjur skv. lið B 10 á skattframtali barns skal færa í dálkinn aftan við nafn þess og hreinar tekjur allra barnanna færast siðan í einni samtölu í reit [84]. T17. Samtala eignatekna o. fl. Niðurstöðutalan úr þessum kafla færisl nú i reit [59] Ef Fasteignir skal telja til eignar á gildandi fasteignamatsverði, það er samkvæmt fasteignamati sem tók gildi 1. des. 1979. Ef fasteignamat er ekki fyrir hendi skal fasteignin talin til eignar á kaup- eða kostnaðarverði, að viðbættri verðstuðulshækkun i samræmi við töflu um verðstuðla miðað við þau ár sem kaup- eða kostnaðarverð féll til.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.