Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 08.03.1980, Qupperneq 10

Dagblaðið - 08.03.1980, Qupperneq 10
BIAÐIÐ DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. MARZ 1980. Lltgefandí: bagblaöið hf. Framkvnmdastjóri: Sveinn R. EyjóHsson. RiUtjóri: Jónas Kristjánsson. Rhstjórnarfuitrúi: Haukur Helgason. Fréttastjóri: ómar Valdimarsson. Skrifstofustjóri riutjómar: Jóhannes Reykdal. (þróttir: Hallur Sknonarson. Menning: Aöalsteinn Ingólfsson. Aóstoðarfréttastjóri: JÓnas Haraldsson Handrit: Ásgrimur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karisson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Stoinarsson, Ásgeir Tómassori' Bragi^ Sigurösson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Atoortsdóttir, Gissur Sigurðsson, Gunnlaugur A. Jónsson, ólafur Geirsson, Siguröur Sverrisson. Ljósmyndir: Ámi Páll Jóhannsson, BjamloHur Bjamlerfsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurös- son, Sveinn Þormóösson. Safn: Jón Snvar Baldvinsson. Skrifstofustjóri: ólafur Eyjótfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing- arstjóri: Már E.M. Halldórsson. Ritstjórn Siðumú'>a 12. Afgreiðsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11. Kippt íspottann Stöðva verður yfírgang varnarliðs- manna gagnvart íslendingum, áður en verra hlýzt af. Viðbrögð ríkisstjórnar- innar við atburðunum í Rockville eru rökrétt og mun einarðari en við höfum átt að venjast. Vonandi nægja þau, þannig að samskipti íslendinga og ^ varnarliðsmanna geti orðið snurðulaus. Augljóst er, að taugaveiklun einstakra varnarliðs- manna hefur valdið því, að þrír alvarlegir atburðir hafa gerzt á nokkrum mánuðum í samskiptum þeirra við íslendinga. Hinn fyrsti varð, er hjón úr Keflavík voru við eggjatínslu á Miðnesheiði utan girðingar. Þau voru tekin höndum af varnarliðsmönnum og urðu fyrir óþægindum. Aftur gerðist alvarlegt atvik í vetur, þegar íslenzk fjölskylda var enn tekin höndum, i þetta sinn á Hafnaveginum, að sjálfsögðu utan girðingar. Slíkir atburðir eru fordæmanlegir. íslendingar eru sem betur fer óvanir byssum, og það er ógeðfelld lífs- reynsla að verða gripinn af vopnuðum hermönnum. í þessu sambandi upphófst snakk um, að vallar- svæðið næði út fyrir girðinguna. Hermenn hefðu þar rétt til að skipta sér af Islendingum, jafnvel á al- mennum vegi. Ekki sást frá íslenzkum stjórnvöldum, svo að vitað sé, margt annað en loðnar vangaveltur um einhver rétt- indi hermanna utan girðingar í slíkum efnum. íslenzk stjórnvöld urðu í þessum tilvikum ber að aumingja- skap. Hér í Dagblaðinu hefur margoft verið lögð áherzla á, að við þurfum að gæta sæmdar okkar og sýna fulla reisn í viðskiptum við þá erlendu gesti, sem hafast við á Keflavíkurflugvelli. Raunar eigum við að krefja bandarísk stjórnvöld um endurgjald fyrir þá aðstöðu, sem við veitum Banda- rikjamönnum á íslenzku landi. Herstöðin á Kefla- víkurflugvelli er fyrst og fremst þáttur í varnarkerfí Bandaríkjanna sjálfra. Sumir íslenzkir forystumenn hafa jafnan talið, að okkur bæri að bugta okkur og beygja fyrir Banda- ríkjamönnum. Þetta er mikill misskilningur. Raunar mundu Banda- rikjamenn sjálfir meta okkur meira, ef við sýndum jafnan fulla reisn í viðskiptum við þá. Þriðja atvikið gerðist nú fyrir skömmu, er tveir íslenzkir starfsmenn voru teknir höndum í Rockville- stöðinni af hermönum, sem miðuðu byssum. Ríkisstjórnin brást rétt við þessu er hún mótmælti þeirri auðmýkingu, sem þessir íslendingar hafa orðið að þola. Ríkisstjórnin leggur áherzlu á, að slíkir atburðir gætu leitt til þess, að lífstjón hlytist af eða meiðsli. Slíkt mundi skaða óbætanlega samskipti varnarliðs- manna og íslendinga. Þess er óskað, að varnarliðið kanni með skjótum hætti aðferðir og reglur öryggisvarða sinna til þess að koma í veg fyrir slíka atburði. Lýst er fullri ábyrgð á hendur þeim, sem auðmýkja íslendinga með öfgafull- um viðbrögðum við ímynduð brot eða brot framin í ógáti. Jafnframt er minnt á, að varnarsvæðin þurfi að vera nægilega vel merkt. Ríkisstjórnin krefst þess, að með öllum hugsan- legum ráðum verði komið í veg fyrir endurtekningu slíkra atburða. Væntanlega fylgir ríkisstjórnin þessum mótmælum eftir og sér til þess, að íslenzkir borgarar njóti fullra réttinda í samskiptum við hermenn. Engu tali tekur, að varnarsvæði séu svo illa merkt, að ekki sé hverjum manni ljóst, hvenær hann er utan þess eða innan. Tími var til kominn að kippa í spottann, svo að taugaveiklun varnarliðsmanna verði ekki meira böl en orðið er. Norður-írland: Leiðir skiljast hjá fríðarkonum — Betty Williams gekk út af stormasömum stjórnarf undi þar sem hún krafðist þess að starf ið væri flutt út af skrifstof unum og aftur til fólksins á götunni Betiy Williams og Mairead Corrigan, norður-irsku konurnar sem stofnuðu fyrir nokkrum árum friðarhreyfingu haf i landi hafa nú skilið að skiptum. Friðsamleg geta þau ekki talizt og munu konurnar hafa deilt um stefnumörk í friðar- sókninni auk þess sem þeim samdi ekki persónulega. Stofnun friðarsam- takanna i Norður-írlandi vakti heimsathygli á sínuni tíma og kveikti vonir i brjóstum fólks um að brátt færi deilum á milli kaþólskra og mót- mælenda þar að Ijúka. Friðarsam- tökin hlutu friðarverðlaun Nóbels árið 1977 en árangur af starfi þeirra hefur látið meir á sér standa en margir vonuðust eftir. Báðar hafa þær Betty Williants og Mairead Corrigan sagzt ætla að vinna að friðarmálum áfram þó svo að leiðir þeirra skiljist nú. Siðustu mánuði hafði dregið mjög úr starf- semi friðarsamtakanna og lítið eftir af þeint baráttuanda sem ríkti i fjöldagöngunni sent fræg er orðin og var gengin árið 1976. Vaxandi örvæntingar þykir nú gæta meðal al- ntennings i Norður-írlandi og þykir mörgum að upplausnin i friðar- hreyftngunni sé aðeins enn ein sönnunin um að friður sé ekki í nánd í næstu framtið. Það var Betty Williams sem yfirgaf samtökin í febrúar síðastliðnum. Gerðist það þannig að hún gekk af stjórnarfundi eftir miklar deilur. Nýlega gaf hún fyrstu skýringuna á brottför sinni en það var í simaviðtali við fréttamann. Var Betty þá stödd á heintili sinu í Belfast. „Friðarhreyfingin er nú ekki orðin annað en eitt skrifstofuveldið í við- bót. Málefnið er að kafna í skjala- bunkum á skrifstofununt og á eilífum nefndafundum. Við verðum að snúa okkur meira til fólksins sjálfs og við verðunt að fara aftur út á göturnar.” Þannig var skýring Betty Williams á brottför sinni úr friðarhreyfingunni. Mairead Corrigan sagði ntinna þegar rætt var við hana. Hún er nú formaður hreyfingarinnar. „Okkur þykir leitl að Betty Willi- ants skuli hafa yfirgefið okkur.” C'iarran McKeown, þriðji stofn- andi friðarhreyfingarinnar árið 1976, er nú stjórnarformaður í hluta- félaginu Peace People — Friðarfólk — sem nú sér um framkvæmdahlið- ina á starfsemi friðarhreyftngar- innarauk fjármálasljórnarinnar. Hún sagði: „Betty er þannig ntanneskja að hún þarf að vera i snertingu við fólkið og fá hjá þvi uppörvun. Hún hefur ekki verið i þeirri aðstöðu alveg frá þvi hreyfingin fékk friðarverðlaun Nóbels árið 1977. Margir i Norður-irlandi telja að friðarhreyrtngin hafi hvrjað að hrörna þegar henni voru veitt friðar- verðlaunin af norska stórþinginu. Þá konist hreyfingin og starfsemi hennar i hámæli á heimssviðinu og breyttist úr tiltölulega einföldum barátlusamtökum gegn mannskæð- urn átökum á milli kaþólskra og mót- mælenda í að vera heintsfræg stofnun með mikla fjármuni handa á milli. „Nóbelsverðlaunin settu þær út af sporinu og allir peningarnir sent streymdu inn gerðu litið til að bæta árangur friðarbaráttunnar,”sagði einn íbúinn í Belfast í viðtali, sent fréttamaður bandariska blaðsins The New York Times átti við hann nýlega. Hefur sá fylgzt náið nteð starfi friðarhreyfingarinnar alveg frá byrjun og til þessa dags. Auk nóbelsverðlaunanna, sem nárnu 140 þúsund dollurum eða rétt um sextíu milljónunt islenzkra króna á núverandi gengi, bárusl friðarsant- tökunum miklir fjárntunir viðs vegar að úr heiminum. Má þar meðal annars nefna að i Noregi var safnað mcðal almennings hvorki meira né ntinna en jafnnvirði 150 ntilljóna islenzkra króna. Gerðist það um svipað leyti og nóbelsverðlaunum var úthlutað. Konurnar tvær, þær Betty Williants og Mairead Corrigan tóku reyndar sjálfar til sin nóbelsverð- launaféð. Þær skiptu þvi á milli sín. Varð sú ákvörðun þeirra tilefni lil verulegrar gagnrýni fólks, sent taldi að nóbelsverðlaunin hefðu verið helguð friðarhreyfingunni og baráttu samtakanna en ekki konunum tveim sem einstaklingum. Aðrir fjármunir eru hins vegar notaðir til að standa undir rekstri hreyfingarinnar. Nokkur breyling hefur orðið á baráttuaðferðum. Látið hefur verið af ntiklum fundahöldum og friðar- göngum þúsunda og tugþúsunda. Hins vegar aðstoðar og styrkir friðar- hreyfingin ýntsa starfsemi sem er minni i sniðum en beinist að þvi sem Ciarran McKeown stjórnarforntaður hlutafélagsins vill kalla „aðgerðir til að hressa upp á andann meðal fólks og samfélaga víða um Norður-írland, þar sent andrúmsloftið er þrúgað og erfitt Friðarhreyfingin var stofnuð að frumkvæði kvennanna tveggja sent loks var nóg boðið þegar þrjú ung börn létust i bifreiðaslysi í Belfast árið 1976. Ökumaðurinn sent var skæruliði í írska lýðveldishernum — skæruliðasamtökum — var látinn en hann hafði rélt áður orðið fyrir skoti frá brez.kum hermanni. Nýlega bárust fregnir af því að móðir barn- anna hefði ráðið sér bana þar sem hún treysti sér ekki til að ganga í gegnum þær ógnir sem henni fannst vera að þurfa að rifja upp lát barna sinna. Réttarhöld vegna dauða þcirra átlu að fara fram. „Sorgin og erfiðlei karn ir eru stöðugir fylginautar okkar hér á írlandi,” sagði Betty Williams í sam- talinu við fréttamanninn. ,,Við eiguni þó ekki annan kost en reyna að finna lausn á okkar vanda og reyna að stefna í rétta áttt. En við vitunt að það verður erfitt — mjög erfitt." Mairead Corrigan og Betty Williams ásamt eiginmönnum sinum eftir að þsr höfðu tekið við friðarverðlaunum Nóbels Osló. Þær skiptu verðlaunafénu, um 60 milljónum islenzkra króna, á milli sin og olli það mikilli gagnrýni.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.