Dagblaðið - 02.04.1980, Qupperneq 5
5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. APRlL 1980.
Margir létu ginn-
ast af apríl-
Þetta varö leið margra áhugasamra bilkaupenda i gær. Fyrst inn i portið hjá Bifröst
ob Hafskini. Þaöan var mönnum visað á bilasvnineu hiá l.vsi oe mjöli...
ein af þeim allra bestu!
Það er engin tilviljun að Rímíni er talin
ein af allra bestu baðströndum i Evrópu.
Spegiltær sjór og sandur, íbúðir og hótel í
sérflokki, íþrótta- og útivistaraðstaða
hin fullkomnasta og tækifæri fyrirbörnin
óvenju fjölbreytt.
Rímíni iðar af lífi og fjöri allan sólarhring-
inn. Maturinn ódýr og afbragðsgóður.
skemmtistaðir og diskótek á hverju strái
og alls staðar krökkt afkátu fólki, jafnt að
degi sem nóttu.
Skoðunarferðir til Rómar, Feneyja,
Flórens, Júgóslavíu, San Marínó, Frassini
dropasteinshellanna og víðar. Gisting I
íbúðum á Giardino Riccione og I Porto
Verde. Hótelherbergi á Milton hóteli.
Spyrjið um Rlmíni bæklinginn - þar eru
allar upplýsingar og / verðtöflunni má
finna tilboð sem eiga sér fáar hliðstæður.
Kynnið ykkur hinn verulega
barnaafslátt. ih
gabbi blaðanna
— einn kom allt ofan úr Borgarfirði og annar dreif í að fá vaxtaaukalán
Sameiginlegt aprilgabb allra dag-
blaðanna í Reykjavík gerði mörgum
gramt í geði og þvi miður voru nokkrir
gabbaðir meira en góðu hófi gegnir.
Þannig er vitað um einn mann sem
kom brunandi ofan úr Borgarfirði og
ætlaði að ná sér í gallaðan japanskan
bíl af Mihitzu gerð. Einn embættis-
maður brá sér í banka um leið og
opnað var og gerði ráðstafanir til að fá
2 millj. kr. vaxtaaukalán. Spumir eru
af nokkrum einstaklingum sem komu
af Akranesi til bílakaupa í Hafnarfirði.
Og vist munu fleiri hafa látið gabbast
úr hófi fram án þess að bera tortryggni
til fréttar blaðanna, sem þó bar ýmis
merki þess að ekki skyldi agnið gleypt
tortryggnislaust t.d. að viðhafa könnun
isíma.
Eðli hins gamla siðar að láta fólk
hlaupa I. april er að plata fólk ein-
hverja vegalengd að óþörfu eða til að
grípa i tómt. Of hafa blöðin Ient í vand-
ræðum með að búa til slíkt aprílgabb.
Má t.d. benda á aukagabb Þjóðviljans í
gær um forsetaframboð Ólafs Jóhann-
essonar. Þar er enginn plataður til að
fara neina vegalengd — aðeins til að
trúa.
Þegar fram kom tillaga um sameigin-
legt aprilgabb tóku öll blöðin tillögunni
vel og hún var síðan framkvæmd af
þröngum hópi blaðamanna með dyggi-
legri aðstoð hins þjóðkunna Péturs
Sveinbjarnarsonar, sem varla stökk
bros á vör í öllum undirbúningnum.
Straumur var af eftirvæntingarfullu
fólki á bílasvæði Bifrastar allan daginn
í gær. Margir óku þar um og skoðuðu
upp á eigin spýtur og hurfu. Aðrir
komu inn til Hafskips, sem nú hefur
þarna bækistöð, og töluðu við af-
greiðslufólk þar. Vitað er um hjón sem
tóku að skoða Cortinabifreiðar sem eru
á svæði Bifrastar i tuga- eða hundraða-
tali. Konan sagði við mann sinn.
„Þú fékkst mig með þér hingað til að
kaupa bíl. Og ég vil fá þennan bil,” og
benti á ákveðna Cortinabifreið á svæð-
inu. Maðurinn stóð við sitt, ók með
kellu til Sveins Egilssonar og keypti
Cortinu.
Ýmsir héldu að frétt DB um vítamin-
bætta brennivínið væri aprílgabb. Svo
er ekki. Hún er heilagur sannleikur svo
langt sem hún nær, en ekki er búið að
taka ákvörðun um vitamínbætinguna.
Það er sem sagt fréttin um gölluðu
japönsku bílana sem ein er tengd dag-
setningunni l.apríl. Við vonumaðallir
taki gamninu með heimspekilegri ró,
því ef við töpum húmornum þá er ekk-
ert varið í þetta daglega líf. . ^
Starfsmenn Hafskips höfðu.póg að gera I gær vegna mikillar ásóknar fólks í nýja og
ódýra bila. 1 DB-myndir Hörður.
... hva, engir nýir útsölubilar?
Hvurt þó í logandi. Það er þó ekki 1. apríl í dag. Skiltið beið þeirra, sem komust á
leiðarenda og kötturinn hafði gaman af.
Við vonum auðmjúklega að svo hafi verið með alla hina.
... þá er að drífa sig og kfkja á sýninguna...
BEINT DAGFLUG
auðvelt og áhyggjulaust
Alltaf eitthvað nýtt
Samvinnuferóir-Landsýn,
AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 4 28899
PORTO VERDE
- einn af frábærum
gististöðum okkar
á Rímíni ströndinni