Dagblaðið - 02.04.1980, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. APRlL 1980.
1X2 1X2 1X2
31. leikvika — leikir 29. marz 1980
Vinningsröð: 102-2XX-111-121
1. vinningur: 10 réttir — kr. 2.105.500-.-
9040 (Reykjavík)
2. vinningur: 9 réttir — kr. 10.000.-
11 2820 5133 7204 9764 11452 40429
345 2945 5407 7233 + 10086 ,*
843 3047 5464 + 7342 10329 + 11750
871 3051 5789 8100 + 10506 + 11779 41312
891 3057 6138(2/9) 10599 + 11949 + 41414
1237 + 3284 + 6274 8503 10654 + 30255(2/9) 41601(3/9)
1333 3682 6276 8578 + 10657 30269(2/9) 41633(2/9)
1800 4107 6321 9022 10684 30493(2/9) 41638(3/9)
2097 4193 6378 9115 10799 31383(2/9) 41708
2396 4573 + 6653 9265 + 10911 32564 41910
2569 + 4628 6676 9449 10927 32710 + 57722
2694 4701 6741 9669 11395 32889(2/9)
Kærufrestur er til 21. april kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar.
Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á aðalskrifstofunni. Vinnings-
upphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til grcina.
Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvisa stofni eða senda stofn-
inn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok
kærufrests.
GETRAUNIR — íþróttamiðstöðinni — REYKJAVÍK
ÚTB0Ð
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar óskar eftir
tilboðum í lagningu 3.áfanga dreifikerfis á Akra-
nesi. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræði- og
Teiknistofunni sf., Heiðarbraut 40, Akranesi,
Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen, Bárugötu
12 Borgarnesi, og á Verkfræðistofu Fjarhitun hf,
Álftamýri 9 Reykjavík gegn 50.000.- kr. skila-
tryggingu. Tilboðin verða opnuð á Verkfræði- og
Teiknistofunni sf., Heiðarbraut 40, Akranesi,
þriðjudaginn 22. apríl kl. 15.
23-30
il.P^adag^fransVíar
3sur-savalfiama\dags
38890
Aðeins 100 emir nú á íslandi:
Amarvarp misfórst
að mestu sl. vor
—Ágangur veiðibjöllu og minks talinn hættulegur f uglalíf i
og nauðsyn á úrbótum
Um 100 ernir voru á Islandi um sl.
áramót að dómi Fuglaverndarfélags
íslands. Um er að ræða 74 fullorðna
fugla, 20 unga fugla og sex unga.
Vitað var um 13 arnarhjón sem gerðu
tilraun til varps vorið 1979 en mis-
fórst af ýmsum orsökum.
Þetta kom fram á aðalfundi
Fuglaverndarfélags íslands sem
haldinn var 30. marz. Þar var
Magnús Magnússon prófessor
kjörinn formaður en ritari er Reynir
Ármannsson póstfulltrúi.
Á fundinum var rætt um leiðir til
fækkunar veiðibjöllu og talið að eina
árangursrika leiðin væri að hætt yrði
að henda slori og úrgangi í sjó. Ætti
að setja úrgang, sem hent er í sjó frá
skipum, i poka eða umbúðir sem
sökkva, en fljóta ekki sem æti. Út-
rýming á veiðibjöllum með skot-
vopnum er talin gagnslaus og frekar
til þess fallin að auka stofnstærð.
Rætt var um aukinn ágang
minks, sem mjög hefur aukizt og er
nú talinn vera i öllum landshlutum.
Af þeim vágesti getur stafað sú hætta
að fuglalíf Ieggist í auðn, þar sem það
áður var blómlegt. Telja fugla-
verndunarmenn ástandið alvarlegt og
gera þurfi tafarlausar ráðstafanir til
útrýmingar minka.
Rædd var hætta af útlendum
eggja- og fuglaræningjum sem ræna
hér eggjum, aðallega fálka, og unga
út í hitakössum.
Félagið hefur gefið út endur-
prentun af ritgerð dr. Finns
Guðmundssonar um haförninn sem
prentuð er í bók Birgis Kjaran. For-
síðu á endurprentun hannaði
Guðrún, dóttir dr. Finns, sem er
auglýsingateiknari í London. Félags-
menn fá ritið ókeypis en það er ekki
til sölu á frjálsum markaði. -A.St.
Konan tók 762 þús. kr. traustataki
Rannsóknarlögreglunoi barst um
helgina kæra um að 762 þúsundum
króna hefði verið stolið úr íbúð í
Reykjavik. Sá sem peninganna saknaði
grunaði ákveðna konu um að vera völd
að hvarfi peninganna, eins og fram
kom í DB á mánudaginn.
Rannsóknarlögreglumenn fundu
konuna snarlega og sat hún inni
aðfaranótt mánudagsins. Á mánudag
var hún tekin til yfirheyrslu og
viðurkenndi þá að hafa tekið umrædda
peningaupphæð frá kæranda. Engu
hafði verið eytt af fénu og er það allt
komið til eiganda, en þjófnaðarkæran
heldur áfram sína leið gegnum kerfið.
-A.St.
Ekki eins og hundar í bandi
DB barst eftirfarandi athugasemd
frá Pétri Sigurðssyni forseta
Alþýðusambands Vestfjarðar:
„Vegna fyrirspurna fulltrúa Útvegs-
mannafélags Vestfjarða á samninga-
fundi hinn 1. aprí. 1980 vil ég taka
eftirfarandi fram: Ég viðhafði ekki þau
ummæli sem eftir mér eru höfð í DB
hinn 19. marz síðastliðinn og voru
uppsett þannig:
„Það er sorglegt að sjá vestfirzka
útvegsmenn eins og hunda í bandi á
eftir Kristjáni Ragnarssyni hér á
fundum með sáttasemjara.”
Slíkt hefði verið óverðskuldað
miðað við reynslu mina af viðskiptum
við þá, fyrir verkalýðshreyfinguna á
Vestfjörðum í hátt á annan áratug.”
Þannig lýkur athugasemd Péturs
Sigurðssonar.
-ÓG.
páskaliljunum!
Lítið við í nœstu blómabúð.