Dagblaðið - 02.04.1980, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. APRlL 1980.
Slysið í Norðursjónum:
Stutt var í dauðam hjámörgum
Frá fréttamanni DB,
Sigurjóni Jóhannssyni, Osló:
Það er ljóst af frásögnum þeirra,
sem komust lífs af þegar Alexander
Kielland íbúðarpallinum hvolfdi sl.
föstudag, að litlu mátti muna hjá
mörgum.
, John Nilsen frá Haugasundi var i
bíósalnum þegar slysið varð. Hann
komst á dekk og ásamt fleirum um
borð í björgunarbát, sem þeim tókst
ekki að slaka alla leið niður í sjó.
Báturinn slóst i og byrjaði að brotna.
John tókst að komast úr bátnum,
sem var yfirbyggður, og er hann sökk
í sjóinn hrundi brakið úr bátnum yfir
hann. Þá sá hann björgunarkörfn frá
Eddupallinum eina 15—20 m frá sér.
„Þrátt fyrir að öldurnar væru 8—10
m háar hugsaði ég bara um það eitt
að ná til. körfunnar,” sagði hann.
„Einhvern veginn tókst mér að ná
taki á körfunetinu, en hafði ekki
kraft til að komast ofan í hana. Einn
mannanna í körfunni greip i beltið á
buxunum mínum og þannig var ég
hifður eina 50 m upp á þyrludekkið.
Ég held að ég hafi misst
meðvitund og áttu strákarnir í
erfiðleikum með að losa hendur
mínar, því að ég hélt i körfunetið
með krampataki í orðsins fyllstu
merkingu.”
í hálfónýtu björgunarbelti í
hálftíma, og hélt félaga
sínum á floti
Björn Bemdsen frá Kristiansand
stökk frá pallinum. Fallið var yfir 30
m. Hann var aðeins klæddur skyrtu
og gallabuxum en hafði gripið með
sér hálfónýtt björgunarbelti. Björn
var í sjónum u.þ.b. 1/2 klst., og hélt
jafnframt aðframkomnum félaga
sínum á floti þar til mönnum í
björgunarbáti tókst að bjarga þeim
um borð. Þótti þetta ótrúlegt
harðfylgi af 42ja ára gömlum manni.
Tvíburunum ætlað
að lifa lengur
Þá voru um borð í Alexander
Kielland tvíburabræðurnir Geir og
Jan, 29 ára gamlir. Þeir voru á sitt
hvorum staðnum á pallinum, þegar
slysið varð. Þeim tókst að komast í
sinn hvorn björgunarbátinn, án þess
að vita hvor af öðrum. Það var ekki
fyrr en i land var komið að Ijóst var
að þeim bræðrum var ætlað að lifa
lengur.
Brotni stöpullinn undan fbúðarpallinum hefur nú veríð dreginn til lands til
rannsóknar.
„Hetjudáð og ekkert annað"
Mike Yarwood, 33ja ára gamall
Englendingur, starfar sem björgunar-
sérfræðingur á Seaking-þyrlu hjá
brezka flughernum. Starf hans er
m.a. fólgið í að láta sig síga niður til
nauðstaddra á sjó eða landi og festa á
þá björgunarlínu.
Þyrlan fann gúmmibát með 10
Norðmönnum innanborðs og Mike
lét sig siga niður. Mennirnir voru svo
aðframkomnir af kulda og vosbúð að
þeint gekk illa að ná taki á línunni,
svo að Mike ákvað að láta sig l'alla í
sjóinn til þess að komast um borð.
Hann hjálpaði þeini öllum til þess að
komast upp í þyrluna. Siðastur frá
borði var Mike eftir 90 mín. lifs-
hættulegt erfiði.
Eftir af hafa skilað þessum 10 á
Edduborpallinn var aftur lagt af
stað. Þyrlan fann fljótlega
björgunarbát með 26 mönnum,
öllum veikum og máttförnum.
Mike lék nú aftur sama leikinn.
Nú varð hann sjálfur að klifra, án
hjálpar, um borð i bátinn, þar sem
áhöfnin var of máttfarin til þess að
skynja hvað um var að vera. Til allrar
hamingju kom skip siglandi og tók
mennina um borð. Mike varð enn að
stinga sér í hafið og festa sig í
liflínuna, sem dró hann um borð í
þyrluna.
„Ég gerði bara skyldu mina,”
sagði Mike á eftir. Þyrluflug-
maðurinn var á öðru máli: ,,Það sem
Mike gerði var langt umfram það sem
honum bar skylda til. Þetta var
hetjudáð og ekkert annað.
(Heimild DB, Dagbladei og Verdens gang,
Noregi)
-SJ-Osló/EVI.
TÖ YOTASALURINN
Nýbýlavegi 8 (í portinu).
AUGLÝS/R:
Toyota Corona Mark II station árg. '75, ekinn 104 þús.
3,4 millj.
Toyota Corona Mark II árg. ‘77, ekinn 65 þús. km, verð 4,1 millj.
Toyota Carina station árg. '78, ekinn 13 þús. km, verð 4,9 millj.
Toyota Corolla KE 30 4 dyra árg. '77, ekinn 41 þús. km, verð 3,6
millj.
Toyota Corolla KE 20 árg. '72, ekinn aðeins 20 þús. km, verð 1,8
millj.
Toyota Corolla coupé árg. '73, ekinn 66 þús. km, verð 1,5 millj.
Austin Mini special árg. '78, ekinn 20 þús. km, verð 2,9 millj.
Ford Cortina 1600 XL ekinn aðeins 51 þús. km, verð 2,7 millj.
Ath.: Okkur vantar aiiar gerðir af notuðum Toyota-bíl-
um í sýningarsa/.
°P/ð
7^s
km, verð “■
TO YOTA-SALURINN
NÝBÝLA VEGI8, KÓP. S/M/44144.
BLÓMASKÁLI
MICHELSEIM HVERAGERÐI
FLYTJUM UM PÁSKANA
að Smiðjuveg 7 Sími 45133
„Það er svo geggjað að geta hneggjað”. Það gera
„Tígrarnir” að vísu ekki, en allt sem þeir gera er samt
snargeggjað.
Sprenghlægileg skopmynd
íslenzkur texti.
Sýnd skirdag og annan páskadag kl. 5,7,9 og 11.
USIOfl* Ur«un
Fegrið heimilið með LISTGLERI
— blýlagt gler í ótal mynstrum og
litum.
Tilvalið i svalahurðir, forstofu-
hurðir, útihurðir og alls konar
glugga til skrauts og nytja.
Vinnum gler eftir pöntunum með
stuttum afgreiðslufresti — Hring-
ið eða komið og kynnið ykkur
liti, mynstur og verð.
Gerum föst verðtilboð.
Athugið: Blýlagt gler má tvöfalda
í verksmiðju eða setja fyrir innan
tvöfalt gler.
Nýjung: Úrval af fallegum ljósa-
krónum með blýlögðu LIST-
GLERI
Seljum alls konar
hamrað, glært og
rcyklitað gler.
Leitið ekki langt
yfir skammt, úrval
ið er hji okkur. Nú
er réfli tíminn til
að fá sér LIST-
GLER.
•
LIST
GLER
Smiðjuvegi
7
Sími
45133