Dagblaðið - 02.04.1980, Síða 12
ÍBIAÐW
frýálst, úháð dayblað
Útgofandi: DagblaðM hf.
Framkvæmdastjórí: Sveirin R. Eyjótfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjónsson.
Ritstjómarfulltrúi: Haukur Helgason. Fréttastjórí: ómar Valdimarsson.
Skrífstofustjórí rítstjómar. Jóhannes Reykdal.
íþróttir. Halkir Símonarson. Menning: AÖalsteinn Ingólfsson. Aöstoöarfréttastjóri: Jónas Haraldsson.
Haatdrít: Ásgrímur PAIsson. Hönnun: Hílmar Karisson.
Blaöamenn: Anna Bjamason, Adi Rúnar Halldórsson, Atfi Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi
Sigurösson, Dóra Stefóhsdóttir, Elin Albertsdóttir, Erna V. Ingólfsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson,
ólafur Goirsson, SigurÖur Sverrisson.
Ljósmyndir. Ámi Póll Jóhannsson, Bjamleifur BjamleHsson, Höröur Vilhjólmsson, Ragnar Th. Sigurðs-
son, Sveinn Pormóösson. Safn: Jón Snvar Baldvinsson.
Skrífstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þróinn Þoríeifsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Drorfing
arstjórí: Mór E.M. Halldórsson.
Rltstjóm Siðumúla 12. Afgreiðsla, óskríftadeild, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11.
Aöalsimi blaðsins er 27022110 línur).
Setning og umbrot Dagblaöið hf., Siöumúla 12. Mynda- og plötugerö: Hilmir hf., Siöumúla Í2. Prentun
Árvakur hf., Skeifunni 10. t
Áskríftarverö ó mónuöi kr. 4500. Verö i lausasölu kr. 230 eintakiö.
Grundvöllurínn er kæríeikur
Atburðir páskanna hafa um þessar
mundir verið til umfjöllunar í sjón-
varpsþætti með athyglisverðum hætti.
Þar hefur verið tekin til meðferðar
spurningin hver beri ábyrgð á dauða
Krists. Rifjað er upp, að gyðingahatur
meðal kristinna þjóða hefur gjarnan
sótt afl i þá kenningu, að gyðingar beri ábyrgðina.
Okkur er öllum hollt að skyggnast í hjarta okkar
eftir rótum þeirra fordóma, sem við geymum með
okkur. Á hátíðum kristninnar fer vel á því, að við
hugsum til þess, að kærleikurinn er grundvöllur krist-
innar trúar. í hinni helgu bók segir: ,,Sá, sem elskar
ekki, þekkir ekki Guð, því að Guð er kærleikur.”
Hversu kristin erum við? Greinilega ætti náunga-
kærleikur okkar að útiloka, að okkur skipti máli, hvert
svar gæti orðið við spurningunni: Hver drap Krist? Þó
vitum við, að páskasagan ýfir upp kenndir, svo sem
haturshug í garð þeirra, sem sagðir eru hafa svikið
Krist og dæmt til dauða, Júdasar, æðstu prestanna,
Pílatusar.
En er það ekki svo samkvæmt kristnum kenningum,
ef allt er tekið bókstaflega, að Kristur gekk vitandi vits
til móts við þau örlög, sem honum voru búin, fórnina?
Væri þá ekki réttast að líta á þá, sem þátt áttu í kross-
festingunni sem handbendi forlaganna við þann verkn-
að?
íslenzkur kennimaður skrifaði um kærleikann, sem
væri gjöf Guðs til okkar, á þessa leið: ,,Án þessa kær-
leika sem raunhæfs veruleika i lífí okkar förum við
villir vegar, þótt svo við værum öllum öðrum fremri á
ýmsum öðrum sviðum. Þetta er það, sem mestu máli
skiptir í lífi okkar sem kristinna manna.”
„Kærleikurinn er upphafið á lífi okkar sem kristinna
manna, kærleikurinn er vegurinn, sem okkur er ætlað
að ganga, og kærleikurinn er markmiðið, sem stefnt er
að. Kærleikurinn er Guð í okkur. Án kærleikans erum
við guðvana. Kærleikurinn er sterkasta afl þessa jarð-
lífs. Það fær ekkert komizt í hálfkvisti við kærleika, og
ekkert annað fær komið því til vegar, sem hann
áorkar.”
Umræður eins og þær, sem birtast öllum lands-
mönnum í sjónvarpsþáttunum og hafa vakið mikla at-
hygli, eru til góðs. Þær ýta við ákveðnum þáttum í
trúarhugmyndum okkar og ættu að aðstoða okkur við
að hreinsa úr hjörtum okkar mörg þau óhreinindi, sem
þar hafa setzt að. Svar kristins manns við þeim spurn-
ingum um atburði páskanna, sem þar eru bornar fram,
getur aðeins verið kærleikur og fyrirgefning.
Páskahátíðin er hér á landi fyrir flesta annað lengsta
,,frí” ársins, á eftir sumarfríi. Fólk notar þann tíma
gjarnan til hvíldar eftir erfíðan vetur, hressingar,
ferðalaga og samvista með fjölskyldu.
Um svipað leyti standa tímar ferminga og fermingar-
boða, sem eiga að styrkja fjölskyldubönd og tengsl við
kristna trú.
Allt þetta veitir kirkjunni tækifæri til að ná til lands-
manna. Það ber henni að gera með því að undirstrika
kærleiksboðskap trúarinnar en forðast þær gryfjur,
sem jafnan verða á vegi hennar, að hún einangrist í tor-
skiljanlegum kennisetningum og glati sambandi við al-
menning.
Með kærleiksboðskapinn að leiðarljósi mun krist-
inni trú farnast vel, einnig nú á tímum hraða og tækni-
byltingar, atóms og örtölva.
Grundvöllur kristinnar trúar er og verður, að kær-
leikurinn er gjöf Guðs til okkar.
r
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980.
Er Kadafí með í
spilinu í Chad?
—fimmtán ára borgarastyrjöld blossar aftur upp í þessari
gömlu Af ríkunýlendu Frakka
Borgarastríð geisar í Afríkuríkinu
Chad, einu fátækasta ríki heims. Þar
vantar næstum allt til alls nema vopn
og hermenn. Margar tilgátur eru uppi
um aðalástæður þess að ófriðareldur
logar svo glatt í Chad. Frönsk blöð
álíta að skýringanna sé ef til vill að
leita hjá Kadafi leiðtoga Líbýu-
manna, sem eigi hlut að máli.
Chad var frönsk nýlenda í hjarta
Afríku en hlaut sjálfstæði 1960.
Blóðugir bardagar í marzmánuði á
milli sveita undir forystu Goukouni
Ouddei forseta og Hissene Habre
varnarmálaráðherra eru taldir ráða
úrslitum í borgarastríðinu sem geisað
hefur með hléum í meira en I5 ár.
Um þessar mundir eru ekki færri en
30.000 manns undir vopnum í Chad.
11 mismunandi stjórnmálahreyfingar
i landinu mynduðu samsteypustjórn í
nóvember sl. og var vonazt til að þar
með yrði fjandskapur fortíðarinnar
úr sögunni.
Múhameðstrúarmenn
berjast við kristna
Samkvæmt frönskum heimildum
hefur Goukouni-stjórnin litla mögu-
leika til að ryðja brautina fyrir frið
og sættir og almennar kosningar í
Chad. Stærsta vandamálið er rótgró-
ið hatur milli kristinna manna í
suðurhluta landsins, mikils meiri-
hluta ibúanna, annars vegar og hirð-
ingja á eyðimerkursvæðunum i
norðri, sem eru múhameðstrúar, hins
vegar.
Glundroði og vopnuð innbyrðis
átök hafa gert ómögulegl að stjórna
landinu af einhverju viti.
Frakkar bera ábyrgö
í forystugrein franska blaðsins Le
Figaro nýlega var skrifað að gamla
franska nýlenduveldið bæri mikla
ábyrgð á því hvernig komið væri í
Chad. Blaðið dró i efa að svo blönd-
uð þjóð í svo sundruðu landi gæti
lifað í friði innan einna landamæra.
Á síðasta ári voru átök í höfuð-
borginni Ndjamena, sern urðu tjl þess
að binda enda á valdaskeið Felix
Malloums þáverandi forseta. Hann
var fulltrúi kristinna manna í suður-
hlutanum. Hermenn forsetans flýðu í
ofboði undan liðsmönnum Hissene
Habres, sem börðust fyrir málstað
múhameðstrúarmanna í norðurhlut-
anum. Nú er höfuðborgin fagra i
hitabeltinu enn á ný vígvöllur og er
við það að vera rústir einar. Evrópsk-
ir íbúar landsins, franskir, þýzkir og
brezkir, hafa flúið í hópum úr landi
eða í skjól innanlands. Sjúkrahús
franska hersins er yfirfullt af særðu
fólki frá báðum aðilum og opinberar
heimildir herma að mörg hundruð
manns týni lífi í stríðinu.
Frakkar haldi sig
utan við ófriðinn
Valery Giscard d’Estaing Frakk-
landsforseti hefur gefið frönskum
hersveitum í Chad fyrirmæli um að
taka ekki þátt í ófriðnum undir nein-
um kringumstæðum. Forsetinn lagði
áherzlu á að tilvera franskra væri ein-
ungis tilkomin í þvi augnamiði að
gæta öryggis íbúa af evrópskum upp-
runa og koma þeim undan sem telja
að öryggi sinu sé stefnt i voða með
dvöl í Chad.
„Frönsku sveitirnar eru áfram til
umráða fyrir yfirvöld í Chad ef þau
óska liðsinnis við að koma á vopna-
hléi,” sagði forsetinn í yfirlýsingu.
Það hefur samt sem áður sýnt sig
að vera erfitt að koma á vopnahléi í
borgarastríðinu bar sem þeir eigast
við félagarnir fyrrverandi, Goukouni
forseti og Hissene Habre. Forsetinn
nýtur stuðnings fólks í norðurhlutan-
um en Habre sækir sinn styrk til aust-
læga hlutans umhverfis Abeche við
þjóðveginn til Khartoum í Súdan.
Stutt vopnahlé
Franski ambassadorinn kom á
vopnahléi fyrir nokkrum dögum. En
það entist aðeins í fáeina klukkutíma.
Þá var allt komið í bál og brand á ný.
Friðarumræður sem síðar fóru
fram í dómkirkjunni í Ndjamena
hindruðu heldur ekki að stríð brauzt
út aftur. Í þeim umræðum tóku þátt
fulltrúar hinna stríðandi afla og leið-,
togi múhameðstrúarmanna, Ibrahim
Moussaásamt ambassadorum Frakk-
lands, Egyptalands og Saudi-Arabíu.
Reynt er með öllu móti að ná sam-
komulagi um að hindra að hersveitir
frá suðurhlutanum blandi sér enn
frekar i baráttuna um höfuðborgina.
Franskir herforingjar sem fylgjast
með bardögum segja að sóknin að
sunnan hafi um hríð verið stöðvuð af
sveitum Hissene Habre við fljótið
Chari skammt frá höfuðborginni
Ndjamena.
Kadafi viðriðinn málið?
Heimildir í París herma að stjórn-
völd Chad hafi á bak við tjöldin
beðið um að franskir fallhlífarher-
menn og fótgönguliðar verði um
kyrrt i landinu til aðgæta samgöngu-
leiða svo að ekki þurfi að koma til
skorts á nauðsynjavarningi í stríðs-
hrjáðri höfuðborg landsins. Eftir
friðarsamning sem gerður var i Lagos
í Nígeríu i fyrra var ákvæði um að
Guinea, Benin og Kongo skyldu
senda friðarsveitir inn í Chad. Aðeins
Kongo hefur sent 550 hermenn inn í
landið og þeir hafa lítið haft sig i
frammi i stríðinu undanfarið.
Mörg frönsk stórblöð hafa gefið í
skyn að leiðtoginn í Libýu,
Muammar Kadafi sé viðriðinn nýj-
ustu ófriðaröldurnar í Chad. Síðan
I973 hefur Líbýa ráðið Aouzou-
svæðinu i suður frá Líbýu og stutt
Frelsishreyfingu Chad með ráðum og
dáð, m.a. gegn stjórn Felix
Malloums.
„Gera verður ráð fyrir að Kadafi
líti raunverulega á Chad sem hluta af
innlandi Líbýu og að hann hafi því
áhuga á öllu sem þar gerist,” sagði
franskur sérfræðingur sem ekki vildi
taka dýpra i árinni varðandi afskipti
leiðtogans af innri málum í Chad.
(Byggt á grein eftir Lionel Walsh, fréttaskýranda
Reuter).
3 '
J
Siflan árifl 1973 hefur Libýuher
haldifl norðurhluta Chad. Kadafi
forseti Libýu hefur veitt þeim skæru-
liðum, sem berjast gegn stjórn
landsins, öflugan stuðning.
: -j-