Dagblaðið - 02.04.1980, Blaðsíða 31
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980.
35
Sjónvarp
<s
Útvarp
KOMDU AFIIIR, SHEBA MÍN - sjónvarp kl. 17,00
föstudagjnn langa:
OFDRYKKJA OG SAM-
BÚÐARERFIÐLEIKAR
áhrifamikil mynd sem áður var sýnd hér fyrir rúmu ári
Á föstudaginn langa, kl. 17, endur-
sýnir sjónvarpið brezku myndina
Komdu aftur, Sheba min. Mynd
þessi var sýnd hér fyrir rúmu ári og
var þá talað um hana sem sérstaklega
vel gerða og leikna mynd.
Myndin segir frá miðaldra hjón-
um, tilfinningalegu vandamáli þeirra
og ofdrykkju. Eiginmaðurinn hefur
þegar myndin hefst haldið sér „þurr-
um” í ellefu mánuði og er á við-
kvæmu lokastigi í baráttunni við
bakkus. Maðurinn starfaði sem
læknir en hefur nú misst starf sitt
vegna drykkjunnar.
Kona mannsins er mjög óham-
ingjusöm. Hún hefur þrengri sjón-
deildarhring og allur hennar hugur
snýst um eina barnið þeirra, sem er
dáið, og hundinn þeirra, Shebu, sem
er týndur. Fleiri persónur koma við
sögu, þar á meðal stúlka sem leigir
hjá þeim hjónum og er jafngömul
þeirra eigin dóttur, hefði hún lifað:
Leikritið er eftir William Inge,
búið til sjónvarpsflutnings af Sir
Laurence Olivier sem jafnframt
leikur aðalhlutverkið. Eiginkona
hans i myndinni er leikin af Joanne
Woodward sem gift er leikaranum
Laurence Olivier i hlutverki drykkfellda læknisins og Joanne Woodward.
Paul Newman. Með önnur hlutverk
fara Carrie Fisher, Patience Collier
og Nicholas Champbell. Leikstjóri er
Silvio Narizzano. Þýðandi er Rann-
veig Tryggvadóttir og er sýningartimi
myndarinnar u.þ.b. einn og hálfur
timi.
- KI.A
ástarraunum Harolds. Þýðandi Ellert Sigur-
björnsson.
22.10 Andatjörnin. 1 Bharatpur-héraði á
Indlandi er stór tjörn, sem höfðingi nokkur lét
gera á siðustu öld. Ætlun hans var sú að geta
skotið er.dur allan ársins hring. Nú er tjörnin
friðuð og athvarf fjölmargra sjaldgæfra fugla-
tegunda. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. Þulur
Friðbjörn Gunnlaugsson.
22.35 Þáttaskil. Bandarisk stjónvarpskvikmynd
frá árinu 1973. Aðalhlutverk Martin Balsam
og Cloris Leachman. Victoria er ánægð með
lifið, hún er i góðu hjónabandi og hefur ágæta
atvinnu. Hún er nú fertug og verður óvænt
þunguð að fyrsta barni sínu. Þýðandi Kristrún
Þórðardóttir.
23.45 Dagskrárlok.
Sunnudagur
6. apríl
Páskadagur
7.45 Klukknahringing. Blásarasveit leikur
sálmalög.
8.30 Messa í Kópavogskirkju. Prestur: Séra
Árni Pálsson. Organleikari: Guðmundur Gils
9.00 Páskaþættir úr óratóríunni „Messías”
eftir Georg Friedrich Hándel. Kathleen
Livingstone. Rut. L. Magnússon, Neil Mackie,
Michael Rippon og Pólýfónkórinn i Reykjavík
syngja meðkammersveit. Stjórnandi: Ingólfur
Guðbrandsson.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Ljósaskipti. Tónlistarþáttur i umsjá
Guðmundar Jónssonar pianóleikara.
11.00 Messa í Bústaðakirkju. Prestur: Séra Jón
Bjarman. Organleikari: Daniel Jónasson. Kór
Breiðholtssóknar syngur.
12.10 Dagskráin.Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tónleikar.
13.20 Leikrit: „Páskamorgunn” eftir Þóri S.
Guðbergsson. Áður útv. 1969. Leikstjóri: Þor
steinn ö. Stephensen. Persónur og leikendur:
Elísabet, blind stúlka-Valgerður Dan, Salóme.
móðir hennar-Helga Bachmann, Stefanus
gamli-Valur Gislason. Pétur postuli-Helgi
Skúlason, Anna og Jósé, unglingar-Helga
Stephensen og Guðmundur Magnússon.
14.00 Miðdegistónleikar: Frá Mozarthátíðinni í
Salzburg i febrúarbyrjun. Filharmoniusveitin i
Vinarborg leikur: Stjórnandi: Leópold Hager. |
Einleikarar: Werner Hink, Rudolf Streng og
Wolfgang Herzer. a. Sinfónia í G-dúr eftirl
Michael Haydn. b. Adagio i E-dúr fyrir fiðlu
(K261) eftir Wolfgang Amadeus Mozart. b.
Rondó i C-dúr fyrir fiðlu (K373) eftir Mozart.
d. Konsertsinfónía i A-dúr fyrir fiðlu. viólu og
selló eftir Mozart. e. Sinfónia i D-dúr
„Parísarhljómkviðan" (K297) eftir Mozart.
15.00 Dagskrárstjóri i klukkustund. Vilmundur
Gylfason alþingismaður ræður dagskránni.
16.00 Fréttir. :
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónleikar Sinfóniuhljómsveitar lslands í
Háskólabiói 12. febr. sl. Óperan „La
Traviata” eftir Giuseppe Verdi. Hlutverk og
söngvarar: Violetta-ólöf Kolbrún Harðar
dóttir. Alfredo-Garðar Cortes, Germont-
Guðmundur Jónsson. Flora-Anna Júliana
Sveinsdóttir, Annina-Elisabet' Erlingsdóttir.
Gaston-Már Magnússon, Baron Dauphol
Halldór Vilhelmsson, Þjónn og sendiboði
Kristinn Sigmundsson. Söngsveitin
Filharmonia syngur. Kórstjóri á æfingum:
Marteinn H. Friðriksson. Stjórnandi: Gilbert
Levine. Kynnir: Jón Múli Árnason.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.Tilkynningar.
19.20 „Sjá þar draumóramanninn!” Umsvif
Einars Benediktssonar skálds i Lundúnum
1910—11. Björn Th. Björnsson listfræðingur
talar við Sigfús Blöndahl aðalræðismann.
Samtalið var hljóðritað á aldarafmæli Einars
1964 og hefur ekki verið birt fyrr.
19.50 Gluck og Weber. a. Ballettsvita úr
óperunni „Orfeus og Evrídis” eftir Christoph
Willibald Gluck. Fílharmoniusveitin í Vin
leikur; Dudolf Kempe stj. b. Klarínettukonsert
nr. 2 i Es-dúr op. 74 eftir Car/ Maria von
Weber. Gervase de Peyer og Sinfóniuhljóm-
sveit Lundúna leika.Colin Davisstj.
20.30 „Tólfmenningarnir”, kvæði eftir
Alexander Block i þýðingu Magnúsar Ásgeirs
sonar. Hjörtur Pálsson les.
20.50 Orgelleikur i Egilsstaðakirkju. Haukur
Guðlaugsson söngmálastjóri þjóðkirkjunnar
leikur. a. Prelúdia, fúga og tilbrigði eftir César
Franck. b. Tokkata og fúga í d-moll og D dúr
op. 59 eftir Max Reger. c. Gotnesk svita eftir
Leon Boellman.
21.30 Dagskrá um irska leikritahöfundinn Sean
O’Casey (1000 ár frá fæðingu hans). Stefán
Baldursson leiklistarfræðingur tók saman dag-
skrárþátt,um írska leikritahöfundinn Seani
O’Casey. |
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá'
morgunljgsins.
22.30 Sannleikur og skáldskapur undir einum
hatti. a. „Égelska lífið”: Elín Guðjónsdóttir les
upphafskafia ævisögu eistneskrar skáldkonu,
Helmi Máelo. Séra Sigurjón Guðjónsson
íslenzkaði kaflann, sem nefnist: Stúlkan. sem
ekki var óskabarn. b. „Æskuljóð herra
D’Etagnacs". Jón Júlíusson leikari les smásögu
eftir Hans Kirk i þýðingu Guðmundar Arn |
finnssonar.
23.00 Nýjar plotur og gamlar. Haraldur G.
Blöndal spjallarum klassíska tónlist og kynnir
tónverk aðeigin vali.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjónvarp
D
Sunnudagur
6. apríl
Páskadagur
16.00 Páskamessa i sjónvarpssal. Séra Kristján |
Robertsson, fríkirkjuprestur í Reykjavík, i
prédikar og þjónar fyrir altari. Fríkirkjukórinn ’
syngur. Organisti og söngstjóri Sigurður ísólfs-
son. Stjórn upptöku Valdimar Leifsson.
17.00 Þjóðflokkalist. Sjöundi og síðasti þáttur.
Hvað gerist þegar þjóðfiokkalist verður fyrir
evrópskum áhrifum? Þýðandi Hrafnhildur
Schram. Þulur Guðmundur Ingi Kristjánsson.
18.00 Stundin okkar. Meðal efnis. Börn í Isaks
skóla svara spurningum um páskana, og
páskaguðspjallið er lesið við myndskreytingu 8
ára barna. Fjórir 11 ára strákar dansa og
syngja. Umsjónarmaður Bryndís Schram.
Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson.
18.50 Hlé.
20.00 Fréttir, veður og dagskrárkynning.
20.20 Byggðin undir björgunum. Undir;
hrikalegum hömrum Eyjafjalla er blómleg1
byggð. Landbúnaður má heita eina blómlega!
atvinnugreinin, en á sumrin er mikill ferða-
mannastraumur um sveitina. Fylgst er með
íbúunum í starfi og leik og hinkrað við á
nokkrum merkum sögustöðum. Kvikmynd
Sigurliði Guðmundsson. Hljóðupptaka Sigfús
Guðmundsson. Klipping lsidór Hermannsson.
Umsjónarmaður Magnús Bjarnfreðsson.
21.10 t hertogastræti. Níundi þáttur. Efni
áttunda þáttar: Lovisa fer í leyfi og felur
starfsfólki sinu rekstur hótelsins. 1 fjarveru
hennar ræður Starr konu, Lizzie að nafni, til
að annast þvotta. Starr neyðist til að segja
starfsfélögum sínum frá fyrri kynnum sinum
af Lizzie; hún hafi verið sambýliskona hans,
meðan hann var i hernum, en verið honum
ótrú og hann misþyrmt einum elskhuga
hennar svo, að hann var rekinn úr hernum.
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
22.00 Kristin og kvæðið um Gústaf. Sænsk
mynd, byggð á þáttum úr ævi Kristínar Svia-
drottningar (1626—1689) og nýfundnum
tónverkum frá þvi tímabili, er hún dvaldist á
ltaliu. Þýðandi Óskar Ingimarsson. (Nord-
vision — Sænska sjónvarpið).
22.55 Dagskrárlok.
Mánudagur
7. apríl
Annar páskadagur
8.00 Morgunandakt. Herra Sigurbjörn
Einarsson biskup fiytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir.
8.35 Létt morgunlög. Strengjasveit Hans
Carstes leikur.
9.00 Fréttir.
9.20 Morguntónleikar. (10.00 Fréttir. 10.10
Veðurfregnir). a. Hljómsveitarsvita i D-dúr
eftir Georg Philipp Telemann. Rikishljóm
sveitin i Dresden leikur; Kurt Liersch stj. b.
Óbókonsert i c-moll eftir Benedetto Marcello.
Renata Zanfini leikur með kammersveitinni
Virtuosi di Roma. c. Sembalkonsert nr. 3 í D
dúr eftir Johann Sebastian Bach. Karl Richtcr
leikur með Bach-hljómsveitinni i Múnchen. d.
Sinfónia i Bdúr op. 21 nr. 5 eftir Luigi;
Boccherini. Austurrika tónlistarmannahljóm-
sveitin leikur: Lee Schánen stj. e. Fiðlukonsert
nr. 3 i G-dúr (K216) eftir Wolfgang Amadeus
Mozart. Josef Suk leikur með Kammer
sveitinni í Prag og stjórnar jafnframt.
11.00 Messa I Dómkirkjunni
12.10 Dagskráin. Tónleikar.
12.20 Fréttlr. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikar..
13.20 Norræn og samberandi þjóðfélagsvísindi.
Jón Hnefill Aðalsteinsson fiytur fyrra há-
degiserindi sitt.
14.00 „Myrkir músikdagar”: Frá tónleikum að
Kjarvalsstöðum 25. jan. I vetur. Flytjendur:
Guðný Guðmundsdóttir, Mark Reedman,
Helga Þórarinsdóttir og Carme Russill. a.
„Hásselby-kvartett” eftir Þorkel Sigur
björnsson. b. „Moment” eftir Hjálmar
Ragnarsson. c. Kvartett" eftir Snorra Sigfús
Birgisson. d. Kvartett nr. 15 op. 144 eftir
DmitriSjostakhovitsj.
15.00 Þáttur/Jónas Jónasson.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnatimi /Sigrún Sigurðardóttir.
17.20 Framhaldsleikrit barna og unglinga:i
„Siskó og Pedró” eftir Kstrid Ott i leikgerð;
. Péturs Sumarliðasonar. Fimmti þáttur.
Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Leikendur: Þór
hallur Sigurðsson, Borgar Garðarsson. Rúrik
Haraldsson, Árni Tryggvason og Knútur R.
Magnússon. Sögumaður: PéturSumarliðason.
18.00 Stundarkorn með Dick Leipert sem leikur
á orgelið i Radio City Music Hall i New York.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Dagskrá/Árni Blandop.
20.00 Við, — þáttur fyrir ungt fólk. Umsjónar-
maður: Jórunn Sigurðardóttir.
20.40 Lög unga fólksins. Ásta R. Jóhannesdóttir
kynnir.
21.45 Útvarpssagan: „Guðsgjafaþula” eftir
Halldór Laxness. Höfundur byrjar lesturinn.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Danslög (23.45 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.
0
Sjónvarp
D
Mánudagur
7. apríl
Annar i páskum
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Tommiog Jenni.
20.40 lslenskt mál. I þessum þætti er fjallað um
að gera garðinn frægan og vonandi fer það
ekki fyrir ofan garð hjá neinum. Og þegar
þetta er um garð gengið færist skörin upp í
bekkinn, þótt það eigi ekki upp á pallborðið
hjá neinum. Textahöfundur og þulur Helgi J.
Halldórsson. Teikningar Anna Th. Rögnvalds-
dóttir. Myndstjórnandi Guðbjartur Gunnars-
son.
20.45 Á vetrarkvöldi. Þáttur með blönduðu efni.
Umsjónarmaður óli H. Þórðarson. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
21.50 Skáldaraunir. Kanadísk sjónvarpskvik-
myno byggð á sögu eftir Mordecai Richler.
Leikstjóri Claude Jutra. Aðalhlutverk Saul
Rubinek. Mervyn Kaplansky er ungur, fá-
tækur rithöfundur af Gyðingaættum, sem
hefur i hyggju að semja ódauðlegt meistara-
verk. Þýðandi Kristmann Eiðsson.
23.10 Dagskrárlok.
Þriðjudagur
8. aprfl
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi. Valdimar örnólfsson leikfimi-
kennari leiðbeinir og Magnús Pétursson píanó-
leikari aðstoðar.
7.20 Bæn. Séra Þórir Stephensen fiytur.
7.25 Morgunpósturinn. Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson og Sigmar B. Hauksson. (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.).
Dagskrá. Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: t páskalevfinu.
Umsjón: Sigriður Eyþórsdóttir og Jakob S.
Jónsson. Tveir drengir segja skoðun sína á
fermingunni og séra Jakob Jónsson rifjar upp
eigin fermingu og fjallar um ferminguna frá
sjónarhomi prests.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 „Áður fyrr á árunum”. Ágústa Björns
dóttir sér um þáttinn. Uppistaðan í þættinum
er ritgerðin ,,Fjallið Skjaldbreiður” eftir Pálma
Hannesson. Sigríður Ámundadóttir les.
11.00 Sjávarútvegur og siglingar.
11.15 Morguntónleikar. Concertgebouw hljóm
sveitin i Amsterdam leikur „Rúslan og
Lúdmilu”, forleik eftir Michael Glinka;
Bernard Haitink stj. / Christine Walcvska og
hljómsveit óperunnar í Monte Carlo leika
„Schelomo”, hebreska rapsódiu fyrir selló og
hljómsveit eftir Ernst Bloch; Eliahu Inbal stj. /
Werner Haas leikur með sömu hljómsveit og
stjómanda Píanókonsert nr. 3 í Es-dúr op. 75
eftir PjotrTsjaíkovský.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Á frívaktinni. Sigrún Sigurðardóttir kynnir
óskalögsjómanna.
14.40 tslenzkt mál. Endurtekinn þáttur Jóns
Aðalsteins Jónssonar frá 5. þ.m.
15.00 Tónleikasyrpa. Tónlist úr ýmsum áttum
og lög leikin á ólik hljóðfæri.
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15 Veöurfregnir.
16.20 Ungir pennar. Harpa Jósefsdóttir Amin
les efni eftir börn og unglinga.
16.35 Tónhorniö. Guðrún Birna Hannesdóttir
sér um þáttinn.
17.00 Siðdegistónliekar: tslenzk tónlist. Halldór
Haraldsson leikur á pianó „Der woltemperi
erte Pianist” eftir Þorkel Sigurbjörnsson og
Fimm stykki fyrir píanó eftir Hafiiða Hall
grímsson. / Kristján Þ. Stephensen og Einar
Jóhannesson leika Dúó fyrir óbó og klarinettu
eftir Fjölni Stefánsson. / Sigurður Björnsson
syngur „I lundi Ijóðs og hljóma”, lagafiokk op.
23 eftir Sigurð Þórðarson; Guðrún Kristins-
dóttir leikur á pianó. / Sinfóniuhljómsveit
Islands leikur „Hlými”, hljómsveitarverk eftir
Atla Heimi Sveinsson; höfundurinn stjórnar.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfrcgnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Viðsjá. 19.50Tilkynningar.
20.00 Nútímatónlist. Þorkell Sigurbjörnsson
kynnir.
20.30 Á hvitum reitum og svörtum. Jón Þ. Þór
fiyturskákþátt.
21.00 Menningaraðall. Sjúkrahúsþarikar eftir
Skúla Guðjónsson á Ljótunnarstöðum.
GunnarStefánsson les.
21.20 Mario Lanza syngur lög úr kvikmyndum
með kór og hljómsveit sem Constantine
Callico og Ray Sinatra stjórna.
21.45 Útvarpssagan: „Guðsgjafaþula” eftir
Halldór Laxness. Höfundur les (2).
22.15 Fréttir. Veðurfrcgnir. Dagskrá morgun
dagsins.
22.35 Þjóðleg tónlist frá ýmsum löndum. Áskell
Másson fjallar um tónlist frá Bali; fyrsti hluti.
23.05 Harmónikulög: Steve Dominko leikur
sigild lög.
23.15 Á hljóðbergi. Umsjónarmaður: Björn Th.
Björnsson listfræðingur. Batseba Elíamsdóttir
— og aðrar sögur af Davíð konungi. Enska
leikkonan Judith Anderson les úr Gamla testa
mentinu.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Fertug og ófrísk í
fyrstaskiptr
„Þessi mynd segir frá fertugri
konu sem hefur verið gift í 18 ár.'
Hún starfar i leikhúsi og er mjög
ánægð með sitt starf. Konan, sem
heitir Viktoria, verður óvænt barns-
hafandi að fyrsta barni sínu,” sagði
Kristrún Þórðardóttir, þýðandi
bandarísku sjónvarpsmyndarinnar
Þáttaskil sem sjónvarpið sýnir okkur
laugardaginn fyrir páska — eða 5.
apríl.
„Aðalatriðið i myndinni er við-
brögð konunnar við þessari frétt og
hvernig fólk í kringum hana bregzt
við. Hún er á báðum áttum hvort hún
eigi að hætta að vinna til að eiga barn
eða hvort hún eigi að láta eyða því.
Fólk sem hún umgengst gefur henni
misjafnar ráðleggingar. Myndin segir
síðan frá þessu hugarstríði hennar og
inn í myndina fléttast svo ýmisleg
smáatriði,” sagði Kristrún ennfrem-
ur.
Myndin er frá árinu 1973 og með
aðalhlutverkin fara Martin Balsam
og Cloris Leachman. -KI.A
Martin Balsam og Cloris Leachman I hlutverkum sfnum í myndinni Þáttaskil.
ÞÁTTASKIL - sjónvarp kl. 22,35
Iaugardaginn5.apríl: