Dagblaðið - 16.04.1980, Page 12

Dagblaðið - 16.04.1980, Page 12
12 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1980. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1980. 13 11 »31 H'iM—i1 imH K' r ’-N''--> f V- l'ffi'ífMiMBHHIIÍ Islenzkir landsliðsmenn i badminton. Frá vinstri Guðmundur Adolfsson, Sigurður Kolbeinsson, Jóhann Kjartansson og Broddi Kristjánsson. Jóhann gat ekki keppt á EM. DB-mynd Hilmar Karlsson. Sveitakeppnin á Evrópumótinu íbadminton: Danir Evrópumeistarar og ísland vann Sviss í gær ,,Við sigruðum Sviss í siðasta leikn- um í fimmta riðli á Evrópumeistara- mótinu i badminton i Gröningen i spennandi leik, 3—2, og það var ekki fyrr en i siðasta leiknum sem við tryggðum okkur sigur,” sagði Sigfús Ægir Árnason, fararstjóri og leik- maður islenzka landsliðsins, þegar DB ræddi við hann i gærkvöld. ísland varð í öðru sæti i riðlinum — sigraði Portú- gal, Ítalíu og Sviss en tapaði naumlega i fyrsta leiknum gegn Póllandi. Pólland mun leika við Júgóslavíu, neðsta liðið i fjórða riðli, um sæti í þeim riðli á næsta Evrópumeistaramóti. „Við vissum að við urðum að vinna Sviss í karlaleikjunum til aðgeta reikn- að með sigri, því góðar konur eru i svissneska liðinu. Broddi Kristjánsson lék við Riessen í fyrsta leiknum í ein- Þróttur á þröskuldi 1. deildar —Sigraði ÍR 21-19 í gær í leik, sem einkenndist af slakri dómgæzlu ,,Ég legg lítið upp úr þessum úr- slitum — dómgæzla þeirra Jóns Friðsteinssonar og Árna Tómassonar eyðilagði leikinn. Eg vona að við fáum hlutlausa dómara í síðari leik ÍR og Þróttar á fimmtudag. En þessa dómara höfum við orðið að hafa meira og. minna í allan vetur og Jón hefur einkum reynzt okkur ÍR-ingum erfiður. Hjá þeim í þessum leik fór saman klaufaskapur og vankunnátta. En þó að Þróttur hafi sigrað með tveggja marka mun erum við ákvcðnir i að vinna upp þann mun og halda sæti okkar í 1. deild,” sagði Hákon Bjarna- son, formaður handknattleiksdeildar ÍR, eftir að Þróttur sigraði ÍR 21—19 i fyrri aukaleik liðanna um sæti i 1. deild næsta leiktfmabil í handknattleiknum. Liðin leika aftur í Laugardalshöll á fimmtudag og verði þau jöfn að stigum ræður markatala. „Það er lítið um þennan leik að segja — dómararnir, sem dæmdu leikinn, hafa ekki hæfni til að dæma slíkan úrslitaleik,” sagði Ólafur H. Jónsson, hinn kunni fyrirliði Þróttar eftir leikinn. Það var því ekki gott hljóðið i mönnum eftir leikinn i gærkvöld og sannast sagna var dómgæzla þeirra Árna og Jóns ákaflega slök allan leikinn. Að áliti undirritaðs hagnaðist Þróttur á því lengi vel framan af en iokakaflann var eins og dómararnir snerust á sveif með ÍR-ingum. Leik- menn voru reknir miskunnarlaust útaf fyrir hin smávægilegustu brot — því miður voru dómararnir jafnvel orðnir æstari en ieikmenn og sorglegt að fylgjast með störfum þeirra — því er nú verr og miður. Leikmenn Þróttar fengu að kæla sig í 16 mínútur — þar af Ólafur fyrirliði þrívegis. Hann var því útilokaður og gat ekki leikið síðustu fimm mínúturnar. ÍR-ingar voru utan vallar í 14 mínútur — samtals 15 brott- rekstrar í leiknum. Ekki gaf þó leikurinn tilefni til þess. Þróttur fékk sjö vítaköst, flest framan af —ÍR fimm, þar af fjögur í síðari hálfleik. Lengi vel leit út fyrir að Þróttur mundi sigra með talsverðum mun. Eftir 10—8 í hálfleik fyrir Þrótt náði liðið sjö marka forustu, 18—11, um miðjan siðari hálfleikinn. Siðan fór að halla undan fæti hjá Þrótti og ÍR minnkaði muninn niöur i eitt mark, 19—18, þeg- ar fjórar mínútur voru til leiksloka. Þróttur þá án Ólafs H„ en það kom ekki að sök. Þrótti tókst að sigra með tveggja marka mun. „Við lögðum kannski of mikið að okkur til þess að ná þessari góðu forustu og það hefur þvi komið niður á úthaldinu lokakaflann,” sagði Ólafur H. eftir leikinn. ÍR greip til þess ráðs undir lok fyrri hálfleiks að taka þá Pál Ólafsson og Sigurð Sveinsson úr um- ferð en tókst það ekki nógu vel í fyrstu. Einar Sveinsson var þá ÍR-ingum erfiður — en það var þó fyrst og fremst snjöll markvarzla Sigurðar Ragnars- sonar, sem færði Þrótti sigur i leiknum. Hann varði mjög vel allan leikinn. Ekki er ástæða til að ræða að öðru leyti um frammistöðu einstakra leikmanna eða leikinn í heild, eins og hann þróaðist. Hins vegar ætti síðari leikur liðanna að geta orðið tvísýnn og skemmtilegur — með góðri dómgæzlu. Mörk Þróttar skoruðu Sigurður Sveinsson 8/6, Páll 5, Sveinlaugur Kristjánsson 3, Ólafur 2, Einar 2 og Lárus Lárusson 1. Mörk ÍR skoruðu Bjarni Bessason 6, Pétur Valdimarsson 5, Hörður Hákonarson 4/2, Bjarni Bjarnason 1, Sigurður Svavarsson 1, Guðmundur Þórðarson 1 og Bjarni Hákonarson 1/1, en hann misnotaði tvö vitaköst í leiknum. -hsim. liðaleik karla. Tapaði fyrstu lotunni 15—18, en vann siðan 15—12 og 15— 8. Það var mjkil spenna í leiknum og við vorum eilítið uggandi um tíma en Broddi vann svo góðan sigur. Þar með voru sigurmöguleikar gegn Sviss fyrir hendi,” sagði Sigfús Ægir ennfremur. ,,í einliðaleik kvenna sigraði hin snjalla badmintonkona Liselotte Blumer Kristinu Magnúsdóttur 11 — I og II — I. Staðan þá 1 — I. Broddi og Sigurður Kolbeinsson unnu Múller og Straub í tvíliðaleik með 17—14 og 15— 7. Höfðu góða forustu í fyrri lotunni en misstu hana niður. Sviss jafnaði en Brodda og Sigurði tókst að sigra 17— 14. Önnur lotan var svo örugg hjá þeim. í tvíliðaleik kvenna tókst Sviss að jafna í 2—2. Þeir Blumer og Kropf sigruðu Kristínu Magnúsdóttur og Kristínu Kristjánsdóttur með 18—14 og 15—5. Jafnt 2—2. Allt vallt þvi á úrslitum í síðasta leiknum, tvenndarkeppninni. „Ég lék” sagði Sigfús Ægir,” með Sif Friðleifs- dóttur og við unnum nokkuð öruggan sigur 15—9 og 15—4. Þar með 3—2 fyrir ísland”. Danir Evrópumeistarar „Danir urðu Evrópumeistarar. Sigr- uðu England 3—2 í gær og mér finnst að Danir hafi verið heppnir að sigra í keppninni. Hafa unnið nauma sigra. Lena Koppen lék sinn fyrsta leik í keppninni í gær — var frá vegna meiðsla i baki — og sigraði Karin Bridge, 12—lOog II—2. Danir komust í 2—0, þegar Steen Skovgaard og Flemming Delfs sigruðu Wilkins og Tredgett 15—7 og 15—12 í tvíliðaleik. England minnkaði muninn i tvíliðaleik kvenna en Morten Frost, hinn 22ja ára sögustúdent, tryggði sigur Dana, þegar hann vann Kevin Jolly 15—2 og 15—4. Síðasti leikurinn skipti þvi ekki máli og þar vann England — í tvenndarkeppn- inni. Danmörk varð því í efsta sæti. Síðan komu Englendingar, þá Svíar og Holl- endingar i fjórða sæti. í riðli íslands í gærsigraði Pólland Portúgal 5—0. Fri verður í dag, miðvikudag, en á fimmtudag hefst einstaklingskeppnin. Broddi leikur þá við Badersley, Eng- landi, Guðmundur Adolfsson við Morten Frost, Kristín Magnúsdóttir við pólska stúlku og ég við Rússa. Þá leikur Sigurður við Ray Stevens, Englandi, svo þetta verður erfitt hjá okkur i einliðaleiknum. í tvenndarleik leika Kristín M. og Broddi við Rússa, Kristín Kristjánsdóttir og Guðmundur við V-Þjóðverja og við Sif við Ung- verja,” sagði Sigfús Ægir að lokum. íslenzka landsliðið kemur heim á mánudag. -hsím. íþróttir HALLUR SI'MONARSON. Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi f ormaður UMFÍ: HVERS VEGNA ÞESSIÞÖGN? — Nokkrar fyrirspurnir til élympíunefndar Islands Lokaundirbúningur þátttökuliða þjóða heims fyrir ólympiuieikana í Moskvu 1 sumar er nú viða hafinn eða að komast á lokastig. Ljótan skugga hefur þó borið þar á, þar sem allt útlit er fyrir að hernaðarbrölt stórveldanna, samfara pólitiskum hráskinnsleik Carters Bandarikjafor- seta í undirbúningi forsetakjörs, komi til með að reka fleyg 1 þessa mestu iþróttahátið afreksmanna al- heimsins, þar sem ýmist er hvatt til eða bann sett við þátttöku iþrótta- fólksins í leikunum. Vanhugsuð niðurrifsstarfsemi Tilgangurinn er að sjálfsögðu tal- inn helga meðalið. En skyldu stjórn- málamenn og aðrir, sem þannig hugsa, hafa reynt að setja sig í spor iþróttafólksins eða gert sér grein fyrir þvi að með því að beita þessu vopni í köldu stríði stórþjóða eru þeir að rífa niður margra ára ef ekki áratuga þrotlaust undirbúningsstarf afreks- iþróttafólksins, leiðtoga þeirra og þjálfara, fólks sem lagt hefur á sig ómælt erfiði, ástundun, vinnutap og hrein fjárútlát til þess númer eitt að reyna aðöðlast þátttökurétt. Öllum sönnum íþróttaunnendum finnst að ólympiuhugsjónin ætti að vera lögvernduð fyrir slíkri íhlutan stjórnmálamanna og það ætti ein- ungis að vera á valdi íþróttaforust- unnar og iþróttafólksins sjálfs að ákveða slíkt. Einhuga samstaða Ég fagna því að islenzk stjórnvöld, sem og fjöidi annarra þjóðá’,' hafa vísað ákvörðun um þátttöku í ólympíuleikunum næsta sumar til htnnar frjálsu íþróttahreyfingarog þá er þaó einnig fagnaðarefni að mínu mati að forustumenn íslenzkra íþróttamála voru einhuga um að stefna að þátttöku. Láta ekki póli- tíska niðurrifsstarfsemi sundra eða gera að engu helgan rétt afreks- íþróttafólksins að freista þess með af- rekum sínum að ná þátttökurétti í ólympíuleikum, sem i flestum til- fellum er æðsta hugsjón og takmark þess fólks sem lengst hefur náð. Ég vil eindregið vara þá við, stjórn- málaspekinga og aðra, sem ekki þekkja því betur til þessara mála, að gera litið úr eða niðast á þeirri hug- sjón. Pólitík og íþróttir Nú vilja margir halda því fram að pólitik sé i öllu og það sé ekki svo auðvelt að halda alþjóðlegu íþrótta- starfi utan við pólitik. Þetta er að því leyti rétt að allar svokallaðar menn- ingarþjóðir leggja stórfé til þessarar starfsemi af almannafé. Og það sem meira er vert. Hafa fyrir löngu gert sér grein fyrir því að afreksmenn í iþróttum á heimsmælikvarða eru eftirsóttustu og áhrifaríkustu sendi- fulltrúar sem ein þjóð getur átt á er- lendri grund, þegar vel gengur. Það er svo aftur á móti staðreynd, sem flestir vita, að þjálfun og undir- búningur afreksíþróttafólksins er hjá langflestum þjóðum í umsjá ópóli- tískra, frjálsra íþróttasamtaka sem tekið hafa við opinberum styrkveit- ingum án skilyrða og þess vegna afar ómaklegt að þvinga upp á íþróttafor- ustuna og íþróttafólkið óvinsælum aðgerðum pólitískra forustumanna þegar þeim býðst svo við að horfa. Ég óttast að þessi freklega íhlutun Bandaríkjaforseta nú fyrir ólympiu- leikana kunni að verða örlagarík og að hún eigi eftir að'gera íþróttastarfi alheimsins mikinn óleik og skapa for- dæmi, ef eftir verður farið, fordæmi sem gæti riðið frjálsu íþróttastarfi í heiminum að fullu. Hvað um undirbúning íslenzka ólympíuliðsins? Það virðist fremur hljótt um allan undirbúning íslenzku þátttakendanna í ólympíuleikunum í Moskvu næsta sumar og kannski er allur þessi úlfa- þytur um þátttöku eða ekki þátttöku um allan heim kærkomið umræðu- efni fjárvana ólympíunefnd íslands- sem lítið heyrist frá, jafnvel ekki í herbúðum íþróttafólksins. Hvers vegna þessi þögn? Væri ekki verðugt verkefni fyrir ólympíu- nefnd íslands að upplýsa fólk um þessi mál meira en gert er. Ég tel að það hljóti að vera í verkahring nefnd- arinnar. Ég tek þó heils hugar undir þær fáu upplýsandi raddir sem heyrzt hafa um þessi mál, t.d. frá nokkrum sérsambandsformönnum innan ÍSÍ. Hvað veit allur almenningur í þessu landi um aðstöðumun afreks- iþróttafólksins okkar og annarra þjóða, t.d. i sambandi við æfingaað- stöðu, þjálfun og fleira fyrir þessa hörðu keppni? Veit almenningur um það, að á sama tíma og okkar afreksfólk í íþróttum býr sig undir þátttöku i ólympiuleikunum, oft í erlendum æf- ingabúðum mánuðum saman á eigin kostnað, þjálfaralaust, þá dvelja þar á sama tíma einstaklingar og jafnvel heil þátttökulið annarra þjóða, al- gjörlega á kostnað ólympíunefnda viðkomandi landa, með færustu þjálfara í hverri grein, sjúkraþjálfara og nuddara og jafnvel lækna sem fylgjast með heilsufari iþróttafólks- ins og þjálfun þess á vísindalegan hátt? Hafsteinn Þorvaldsson. Er þetta ofrausn sem við ráðum ekki við fjárhagslega? Eigum við íslendingar, sem erum svo fátækir sem raun ber vitni, yfir- leitt að vera að stefna að því að eign- ast afreksfólk i íþróttum á heims- mælikvarða? Er það ekki hrein blekking viö íþróttafólkið okkar sem margt er ekki siðra en annarra þjóða, eins og dæmin sanna, en býr við svo grátlegt misrétti og aðstöðu þegar við berum okkur saman við aðrar þjóðir. íslenzka ólympíunefndin og for- ráðamenn íslenzku iþróttahreyfingar- innar hljóta að eiga margar andvöku- nætur út af þessum málum ef að líkum lætur. Þá hljóta þeir að bera harðan kökk i hálsi þegar þeir á stórum stundum, t.d. við setningu ólympiuleika, ganga inn á leikvang- inn með sitt lítt undirbúna lið, sam- anborið við flesta ef ekki alla aðra, lið sem þrátt fyrir aðdáunarverðan árangur á stundum hlýtur að vera eitt það vanræktasta i heimi. Eða hvernig haldið þið að iþróttafólkinu sjálfu liði, með sinn þjálfaraskort og algjört reynsluleysi i keppni á stórmótum miðað við flesta mótherjana. Staðreyndin er svo sú að þegar fólk hefur einu sinni verið valið til þátt- töku gerir almenningur kröfu um góða frammistöðu og fagnar innilega þegar vel gengur en er óvæginn i dómum sinum þegar eitthvað fer úr- skeiðis. Upplýsingamiðlun einn bezti stuðningur við íþróttafólkið Ég skora á ólympíunefnd íslands að láta eitthvað frá sér heyra um undirbúning og væntanlega þátttöku íslands í ólympíuleikunum í sumar og læt ég hér fylgja nokkrar spurningar sem ég veit að mörgum þætti fróðlegt að fá svör við: 1. Hverjir annast þennan undirbún- ing sem væntanlega er nú i gangi undir forustu nefndarinnar? 2. Hafa einhverjir nú þegar unnið til þátttöku eða verið valdir í ólympiulið íslands? 3. Hefur ólympiunefnd íslands ákveðið einhver lágmörk sem stuðzt verður við, eða eru það al- þjóðleg lágmörk? 4. Hvaða þjálfarar annast undirbún- ing þeirra iþróttamanna sem lik- legir mega teljast i ólympíulið íslands og hvernig er annarri aðstoð við þetta fólk hagað? 5. Hvernig stendur ólympíunefnd íslands að þvi að undirbúa væntanlegt þátttökulið á lokastigi til þess að skapa góðan liðsanda og samstöðu svo mikilsverðra sendifulltrúa á mestu iþróttahátíð heimsins? 6. Hvernig er þjálfun og undirbún- ingi fararstjóra og annars fylgdar- liðs hagað og eru einhverjir sjálf- kjörnir i þann hóp utan formaður ólympiunefndar íslands? Ég veit að þeir ágætu menn, sem væntanlega annast þennan undirbún- ing íþróttafólksins gera sér fullkom lega Ijóst hversu drjúgan þátt fjöl- miðlarnir geta átt í því að skapa áhuga, jákvætt viðhorf og andrúms- loft fyrir þátttöku okkar fólks í leik- unum og ekki veitir íþróttafólkinu okkar af slikum velvilja og sálarstyrk eða kostar hann ef til vill einnig of mikið fé? Látum ekki fánann falla! Við stöndum nú frammi fyrir þeirri spurningu, Íslendingar, hvort við eigum að stefna að því að gera það vel við afreksfólk okkar í íþrótt- um að það geti notið svipaðrar aðstöðu og afreksíþróttafólk annarra þjóða og meðal annars keppt undir fána íslands á ólympiuleikum eða bara að sætta okkur við að vera eins konar uppeldisstöð fyrir aðrar þjóðir sem hirða frá okkur efnin jafnóðum og þau koma fram í dagsljósið. Ef við veljum seinni kostinn og höfum engan metnað né vilja til að eignast eigin afreksmenn á þessum vettvangi, þá skal engan undra þótt meðalmennskan verði allsráðandi, meðal tslendinga á komandi tið. Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrv. form. UMFÍ. Bikarmeistarar Laugdæla. Efri röð frá vinstri. Halldór Halldórsson, Atli Eðvaldsson, Gylfi Þorkelsson, Haraldur Hlöðvers- son, Torfi Magnússon, sem vann sinn fimmta titil í blaki og körfubolta í vetur, Hreinn Þorkelsson. Fremri röð Samúel örn Erlingsson, Leifur Harðarson, fyrirliði, Lárentsínus Ágústsson, Torfi Rúnar Kristjánsson og Kjartan Lárusson formaður. Tvöfalt hjá Laug- dælum og Víkingi „Önnur eins stemmning hefur ekki veriö i þessu húsi frá því að það var byggt,” sagði húsvöröurinn í íþrótta- húsinu á Selfossi er hann fylgdist með úrslitaleik Þróttar og UMFL i bikar- keppni blaksambandsins í gærkvöldi. Laugdælir urðu þar bikarmeistarar og staðfestu þar með enn betur hverjir væru beztir. Þeir unnu Þróttara með þremur hrinum gegn einni í vel leiknum og skemmtilegum leik. Þróttararnir mættu ákveðnir til leiks og unnu fyrstu hrinuna 15—9. En Laugdælir létu það ekki á sig fá og unnu aðra hrinuna örugglega 15—6. Þriðja og fjórða hrinan voru báðar hörkuspennandi, Laugdælir mörðu þá þriðju 16—14 eftir að jafnt hafði verið á flestum tölum. í þeirri fjórðu náðu Þróttar strax frumkvæðinu, þeir komust í II—7, en UMFL jafnaði. Staðan var síðan lengi 13—13 en þeir Leifur Harðarson og Hreinn Þorkels- son innsigluðu síðan UMFL-sigur. Eldhressir Laugdælaaðdáendur áttu ■ e.t.v. stærstan þátt í sigri sinna manna því liðin voru mjög svipuð að styrkleika. Leifur Harðarson fyrirliði og þjálfari UMFL var langbeztur Laug- dæla. Auk þess að stjórna spilinu stöðvaði hann ófáa sóknarskelli Þrótt- ara með góðri hávörn. Haraldur Geir og Lárentsinus voru einnig mjög traustir. Hjá Þrótti átti Valdemar Jónasson einn sinn bezta leik i vetur. Ákveðinn dómari leiksins var Halldór Jónsson, nokkuð kröfuharður á fingurspil en hann naut aðstoðar Björgólfs Jóhannssonar. Á eftir karlaleiknum léku til úrslita í bikarkeppni kvenna Víkingur og Þróttur. Vikingsstúlkurnar sigruðu mjög örugglega með þremur hrinum gegn engri og hafa því eins og karlalið UMFL bæði unnið íslandsmótið og bikarinn. Þróttarstúlkurnar komust litt áleiðis gegn ákveðnum Vikingum og varð leikurinn af þeim sökum frekar daufur. Jóhanna Guðjónsdóttir og Kristjana Skúladóttir eru potturinn og pannan i leik Víkinga, þær stjórna spilinu og eru jafnvígar í vörn og sókn. Ásdís Jónsdóttir var einnig skæðen hjá Þrótti bar mest á þeim Lindu Jóns- dóttur, Sigurhönnu Sigfúsdóttur og Björgu Björnsdóttur. Hrinuúrslit voru 15—8, 15—7 og 15—13. Víkingsstúlkurnar hafa í vetur notið þjálfunar Kínverjans Ni Fongguo sem hefur reyndar haft úr góðu efni að moða. Brátt mun hann halda heim til Kína en Víkingarnir hyggjast fá hann aftur næsta vetur. -kmu. Bikarmeistarar Vikings. Efri röð frá vinstri Tómas Tómasson, Hólmfrfður Garðarsdóttir, Ingibjörg Helgadóttir, Anna Garðarsdóttir, Hermina Gunnarsdóttir, Ásdis Jónsdóttir og Ni Fongguo þjálfari. Fremri röð Oddný Árnadóttir, Jóhanna Guðjónsdóttir, Kristjana Skúladóttir og Ólöf Ámundadóttir. DB-myndir: Þorvaldur Sigurðsson. Cruyff hjá Washington Ray Hudson, fyrrum leikmaður Newcastle á Englandi, er nú mest í sviösljósinu i amerísku knattspyrnunni. Hann er fyrirliði Fort Lauderdale Strikers, sem hefur sigrað í þremur fyrstu leikjum sínum. Hudson hefur skorað fjögur mörk og er markhæstur en það eru engir smákallar með honum í framlinunni, Gerd Múller, V-Þýzka- landi, Teofilo Cubillas, Per og Marinho, Brazilíu. Flórída-liðið sigraði New York Cosmos 4—1 9. april og þá skoraði Hudson tvivegis og einnig tvö mörk, þegar liðið vann Rochester Lancers 2— 0 12. april. Hudson er 25 ára. Cubillas hefur skorað 3 mörk, einnig þeir Leonardo Cuellar,.San Diego, og Steve Moyers, California Surf. Johan Cruyff, Hollendingurinn snjalli, leikur nú með Washington Diplomats. Keyptur fyrir 1.5 milljónir dollara frá Los Angeles Aztecs rétt áður en leiktímabilið hófst. Aðsóknin er líka miklu meiri hjá liðinu, 31.085 og 21.138 i tveimur fyrstu leikjunum. Síðan 24.203, þegar Diplomats sigruðu í sínum fyrsta leik, Phila- delphia Fury 3—1. 51.225 áhorfendur sáu fyrsta leik New York Cosmos — gegn Minnesota Kicks. LAGMETI ÍLAGI Víkingur sigraði Fram íbráðabana — á Reykjavíkurmótinu íknattspyrnu Víkingur hlaut sin fyrstu stig á Reykjavíkur- mótinu í knattspyrnu i gær, þegar liðið sigraði Fram 3—2 eftir bráðabana. Jafntefli var að venjulegum leiktíma loknum 1 — 1. Fram skoraði strax í byrjun, þegar Óskar Magnús- son sendi knöttinn í eigið mark framhjá Diðrik Ólafssyni — en um miðjan hálfleikinn var Pétur Ormslev, Fram, rekinn af velli af dómaranum Kjartani Ólafssyni. Pétur sló mótherja. í síðari hálf- leik sóttu Vikingar nær látlaust á rennblautum Mela- vellinum en tókst ekki að jafna fyrr en langt var liðið á leikinn. Guðmundur Baldursson varði oft snilldar- lega í marki Fram. En honum tókst ekki að erja frá Jóni Bjarna Guðmundssyni átta mín. fyrir leikslok. Fleiri urðu mörkin ekki 1 — 1. Þá var bráðabani og leikmönnum gekk illa að skora — aðeins Gunnar Orrason, Fram, og Heimit Karlsson, Víking, skoruðu. 2—2 en auk þeirra reyndu Gunnlaugur Kristfinnsson, Helgi Helgason, Aðalsteinn Aðalsteinsson og Hinrik Þórhallsson fyrir Viking, en Símon Kristjánsson, Guðmundur Sigmarsson, Trausti Haraldsson og Marteinn Geirs- son fyrir Fram. Áfram var því haldið. Heimir skoraði þá fyrir Víking en Diðrik varði skot Marteins. Víkingur þvi sigurvegari 3—2. Aðstæður á Melavelli í gær til að leika knatt- spyrnu voru beinlínis hroðalegar. Enn smávon hjá Fulham í 2. deild — vafasamt að McDermott og Case leiki með Liverpool íkvöld Lundúnaliðið Fulham hcldur enn i smávon að halda sæti sinu i 2. deild ensku deildakeppninnar. í gærkvöld sigraði liðið i þriðja leiknum í röð — vann þá Cardiff 2—1 á heimavelli. Cardiff náði forustu í leiknum en Ray Lewington jafnaði á34. mín. Þrem- ur min. síðar skoraði Richad Money sigurmarkið. Fulham hefur nú 27 stig eftir 38 leiki en möguieikarnir eru þó sáralitlir. WatCord og Bristol Rovers hafa 33 stig, eftir 39 og 38 leiki af 42. Úrslit í ensku knattspyrnunni í gær urðu þessi: l.delld Bolton-Coventry Fulham-Cardiff Carlisle-Reading Swindon-Rotherham Wimbledon-Oxford 2. deild 3. deild 1—1 3—3 6—2 1—3 4. deild Hartlepool-Wigan 1 — 1 Huddersfield-Scunthorpe 2—1 Rochdale-Torguay 0—0 Andy Rowlands, hinn kunni miðherji Swindon, skoraði fjögur mörk, þegar Swindon sigraði Rotherham í gærkvöld í þriöju deildinni. Þar er nýjasta deildaliðið, Lundúnaliðið Wimbledon, svo gott sem fallið i 4. deild á ný. I kvöld ieika West Ham-Everton, Liverpool- Arsenal í undanúrslitum ensku bikarkeppninnur. Litlar líkur eru á að Terry McDermott geti leikið með Liverpool og vafasamt að Jimmy Case verði með. Allir helztu menn Arsenal eru hins vegar heilir — aðeins vafi með Sammy Nelson. Pat Holland getur ekki leikið með West Ham og vafasamt að Stuart Pearson leiki. Bob I.atchford leikur í stað Brian Kidd hjá Everton, en Kidd var rekinn af lcik- velli, þegar Everton og West Ham gerðu jafntefli 1—1 á laugardag. ísfirðingar sigr- uðu í 2. deildinni - á íslandsmótinu íkörfuknattleik ísfirðingar urðu sigurvegarar í 2. dcild körfuknattleiksins um síöustu helgi í Hagaskóla. I.éku þá tvo leiki og sigruðu í báðum. Fyrst vann KFÍ Hött frá Egilsstöðum með 103—83 og í úrslita- leiknum Hauka úr Hafnarfirði á sunnudag með 79— 78. Ekki voru ísfirðingum afhent sigurlaun sín eftir þessa leiki á sunnudag. Margir snjallir leikmenn eru i liði KFÍ. Má þar nefna Guðjón Þorstcinsson, sem skoraði 38 stig í fyrri leiknum og 28 stig i síðari leiknum gegn Haukum, Ingvar Sigurbjörnsson, Guðmund Jóhannsson og Þóri Ingimarsson. Um næstu helgi munu ísfirðingar keppa við Skallagrim um sæti i 1. deild næsta keppnistímabil. Tveir leikir verða milli liðanna, báðir í Hagaskóla. Sá fyrri á laugardag og á sunnudag leika liðin aftur. Reiknað er með tvisýnum og skemmtilegum leikjum.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.