Dagblaðið - 25.04.1980, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 1980.
Kvartmíluklúbburinn
Áður auglýst kvartmílukeppni, er halda
átti um næstu helgi, verður felld niður.
Þess í stað verður haldinn kynningar- og
frœðslufundur í bíósal Hótels Loftleiða
föstudaginn 25. apríl kl. 20, og
œfmgarkeppni 26. eða 27. apríl.
Hvað er kvartmíla?
Svarið fœst um helgina.
Stjórnin.
Útgeröarmenn
Óskum eftir að taka á leigu skip
sem hentar til djúprækjuveiða.
Leigutími 3—4 mánuðir.
Upplýsingar í síma 96-52128.
Til sölu
PACER (American Motors Co.)
árgerð 1975, 3ja dyra, 6 cyl., 100 hestöfl. Litur: brúnsans-
eraður, útvarp, ekinn 31.000 mílur. Bifreið þessi er i
eigu starfsmanns
vestur-þýzka sendi-
ráðsins og er til af-
hendiní>ar i lok
maí. Verð kr.
3.600.000 (tollar
og gjöld innifalin).
Uppl. i simum
19535/36 frá kl.
9—5 mánudaga til
föstudaga og um
helgar i síma
74473.
TOSSABEKKURINN
Glenda Jackson — Oliver Reed
Hörkulegur skólastjóri — heimtufrek kennslukona —
óstýrilátir nemendur. Þvílík samsuða.
Bráðskemmtileg gamanmynd
íslenzkur texti
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Leikstjóri: Silvio Narrizzano
Finaborg skita fór fyrir skrúðgöngunni fri Melaskóla. Þitttaka i göngunni var mun minni en oft áöur og hefur
hekfur leiöinlegt veður þar vafalaust riðið mikht.
Hátíðahöldin í tilefni sumardagsins fyrsta:
Leiðinlegt veður
dró úr þátttöku
Sumarið heilsaði Reykvíkingum á
heldur leiðinlegan hátt að þessu sinni
og kom rigningarsuddi í veg fyrir að
þátttaka í hátiðahöldunum í tilefni
sumardagsins fyrsta væri eins mikil og
oft áður.
Hins vegar hafði jörð frosið víða
um land aðfaranótt sumardagsins
fyrsta en slíkt þykir samkvæmt gamalli
trúvita á gott sumar.
Lengi var það svo, að þessi dagur
var mesta hátíð hér á landi, næst
jólunum, og má því muna sinn fifil
fegri. Áður fyrr einkenndu sumar-
gjafirnar svonefndu þennan dag. Þá
gáfu hjónin hvort öðru gjafir og
börnum sínum og stundum öllu
heimilisfólkinu.
Nú er sá siður viðast hvar aflagður
en enn þykir við hæfi að fagna sumrinu
með hátiðahöldum sem ekki sizt eru við
hæfi barnanna.
Að venju hófust hátíðahöldin i
Reykjavík nteð fjölskylduguðsþjónustut
i Dómkirkjunni kl. II. Eftir hádegið
var lagt upp í skrúðgöngur frá Mela-
skóla og Hlemmtorgi. Fyrir göngununt
fóru fánaborgir skáta og lúðrasveitir.
Skemmtidagskrá á Lækjartorgi var
fjölbreytl að venju, og ekki sízt miðuð
við þarfir yngstu kynslóðarinnar.
Trúðar' og sönghópar komu l'rant og
leikþáttur var fluttur, svo fátt eilt sé
nefnt. I Austurstræti stóðu skátar fyrir
tívoliskemmtun, þar sem hægt var að
velja úr 55 mismunandi atriðum.
Fjölmargir lögðu líka leið sina i hús
KFUM og K við Amtmannsstíg en þar
voru Skógarmenn að venju með kaffi-
sölu til styrktar starfsemi sinni í Vatna-
skógi.
Einnig var fjölmenni í Sigtúni en þar
buðu stuðningsmenn Péturs Thor-
steinsonar sendiherra upp á
kaffiveitingar. Selnta Kaldalóns lék á
pianó og Pétur Thorsteinsson spjallaði
viðgesti. Hann sagði meðal annars, að
fólk hefði frani að þessu virzt áhuga-
litið um forsetakosningarnar, sem
væru framundan. Það væri fyrst núna,
sent áhuginn væri að vakna.
Pélur sagði það sina skoðun, að
almenningur ætti að l'á tækifæri til að
kynnast frambjóðendum. Því hefði
hann þegar lagt leið sina um Vestfirði
og mestalla Austfirði og væri nú alveg
nýkominn frá Vestmannaeyjum og
hygði á enn frckari ferðalög.
Pétur sagði að l'ólk hefði enn tvo
mánuði til að gera upp hug sinn og i þvi
sambandi lagði hann sérstaka áherzlu
á að forsetaembættinu fylgdu nieiri
völd en flestir gerðu sér grein fyrir og
þvi riði á að þar væri rétt haldið á
ntálum.
-GAJ.
Lúðrasveitín iét rigningarsuddann ekkert á sig fá. Hór er bisúnuieikari, sem
greinilega er staðráðinn iað láta ekkisitt eftir iiggja.
„Ein með öiiu" er ómissandi þáttur i sórhverjum hátiðahöidum hór á landi.